Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Blaðsíða 4
Fréttir
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001
I>V
Guöjón Kristinsson hleðslumeistari um mál ístaks og Árna Johnsens:
Fékk þetta á silfurfati
- undrast byggingarkostnaðinn á Grænlandi
„Ég hef ekki komið nálægt þessu
og hef ekki unnið fyrir Áma John-
sen. Hann vildi ekki að neinn annar
en ístak kæmi að þessu. Hitt er ann-
að mál að mig dauðlangaði að gera
þessar hleðslur og skrifaði mörg
bréf vegna þess,“ sagði Guðjón
Kristinsson hleðslumeistari i gær
þar sem hann vann við hleðslu
galdraseturs á Klúku á Ströndum.
Guðjón hafði hug á því að fá verk-
efni við endurbyggingu Þjóðhildar-
kirkju og skála Eiríks rauða og
skrifaði Árna Johnsen, formanni
byggingamefndar, vegna þess.
„Árni ansaði engu bréfanna,
hann gaf engum séns á að gera þetta
ódýrara, ístak fékk þetta á silfurfati.
Ég veit að fleiri skrifuöu vegna
þessa en fengu engin svör,“ sagöi
Þjóöhildarkirkja
Hleöslumeistari unórast kostnaöinn viö endurbygginguna.
Guöjón. Hann segist geta sannað að
af 80 milljóna króna byggingar-
kostnaöi húsanna tveggja á Græn-
landi hafi smiðirnir aðeins kostað
25-30 milljónir, afgangurinn standi
fram af.
Eins og fram kom í DV í gær hef-
ur Ríkisendurskoðun efasemdir við
650 þúsunda króna reikning
Víglunds Þorsteinssonar hleðslu-
meistara sem vann fyrir Árna John-
sen og Istak við endurbyggingu á
Grænlandi. Sami Víglundur hlóð
fyrir Árna við Höfðaból hans í Vest-
mannaeyjum. Hann segist nú ekki
vera búinn að rukka þingmanninn
fyrrverandi vegna þess verks. 650
þúsund króna reikningurinn sé eft-
irstöðvar vegna vinnu hans á Græn-
landi. -JBP/rt
Skaftfellingur kominn tilVíkur:
Happaskip á heimaslóð
- segir Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona
DV myndir NH
Á rauðu Ijósi. Skaftfellingur á Selfossi.
Flutningsgengiö. Eríkur Gunnarsson, Kristján Eggertsson, Einar Þór Einarsson og Trausti Gunnarsson. Á
hálendisbrúninni. Skaftfellingur á leiö upp úr Þjórsárdal.
DV, SUOURLANDI:_________
„Það var einstakt, al-
veg dásamleg upplifun
að sjá Skaftfelling koma
hér niður fjallveginn.
Þegar hann kom hér út
úr þokunni var eins og
yfir honum væri dýrðar-
ljómi, enda hefur Skaft-
fellingur alltaf verið
mikið happaskip," sagði
Sigrún Jónsdóttir
kirkjulistakona við DV í
gær, á áttræðisafmælis-
degi sínum á æskuslóð-
um í Vík í Mýrdal. Kom-
ið var með Skaftfelling
til Víkur um hádegið á
laugardag eftir sólar-
hrings ferðalag um
Sudurland á tengivagni.
Lagt var upp meö bát-
inn frá Vestmannaeyjum
7. ágúst og bátnum skip-
að upp í Þorlákshöfn
sama dag. Skaftfellingur
var hífður upp á tengivagn á hafn-
arbakkanum á miðvikudag en ekki
var hægt að leggja upp með hann til
Víkur fyrr en um hádegi á föstudag-
inn, eftir að tekið haföi verið úr
honum flest lauslegt, því heildar-
þyngdin reyndist aðeins of mikil
fyrir vegakerfið. Vegna stæröar
Skaftfellings varð að fara með hann
langa leið um Suðurland, um 250
kílómetra leið. Farið var frá Þor-
lákshöfn, yfir Óseyrarnesbrú, á Sel-
fossi varð að fara eftir Engjavegi því
aöalgatan er of þröng og með hring-
torgi. Farið var upp Skeiðaveg, upp
fyrir Búrfell og niður Landveg þar
sem Þjórsárbrúin við Þjótanda var
ekki nógu breiö. Ferðin frá Hellu
austur í Vík gekk greiðlega og eftir
áningu í Mýrdalnum aðfaranótt
laugardagsins var komið með bát-
inn inn í Víkina um hádegi. Eiríkur
Gunnarsson hjá GG segir aö ferðin
hafi í alla staöi gengið mjög vel.
Ekkert óvænt hafi komið upp á svo
hægt var að keyra alla leið óhikað.
Auk Eiríks skiptu Trausti Gunnars-
son og Einar Þór Ein-
arsson með sér akstri
bílsins sem dró tengi-
vagninn, en Kristján
Eggertsson fylgdi Skaft-
fellingi frá Vestmanna-
eyjum til Víkur.
Eiríkur segir að það
hafi verið óvenjuleg
upplifun að koma með
Skaftfelling inn í Vík í
Mýrdal. „Það var mikil
stemning í bænum,
Qöldi fólks tók á móti
bátnum og fagnaði
heimkomu hans inni-
lega.“ Skaftfellingur
verður settur inn í
skemmu í Víkinni þar
sem hann verður tek-
inn til meðferðar, dytt-
að aö og endurnýjað
það sem timans tönn
hefur bitið á. Sigrún
Jónsdóttir segir að end-
urbæturnar muni taka
talsverðan tíma og fara verði að öllu
með gát í endurbótunum. „Það verð-
ur að fara varlega að Skaftfellingi,
það má ekki taka hann og gera upp
sem nýtt skip, það verður að leyfa
honum, eins og okkur öllum sem
orðin erum fullorðin, að halda sín-
um karakter og sinni sál,“ sagði Sig-
rún Jónsdóttir. -NH
íslandsfugl hefur slátrun:
„Munum rugga
bátnum"
- segir framkvæmdastjóri
íslandsfugl í Dalvíkurbyggð
hyggst slátra fyrstu kjúklingunum
fyrir helgi og munu þúsundir fugla
flæöa inn á markaðinn í kjölfarið.
Auðbjörn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segist
ekki geta lofað verðlækkun til að
byrja með en neytendur hagnist
vonandi til lengri tíma litið.
„Auðvitað munum við rugga bátn-
um en okkar stefna er að fara inn á
svipuðu verði og keppinautarnir.
Svo sjáum við hvernig reksturinn
gengur. Ef okkur gengur eins og
áætlanir gera ráð fyrir munu neyt-
endur njóta þess,“ segir Auðbjöm.
Verð á kjúklingum er hátt hér á
landi sem skýrir að hluta þá stað-
reynd að neyslan er lítil í saman-
burði við nágrannalöndin. Auð-
bjöm er viss um aö heildarneysla á
kjúklingum muni aukast töluvert í
kjöfar innrásar íslandsfugls.
Alls mun fyrirtækið bjóða upp á
um 30 tegundir af hráum kjúklingi
á næstunni og hafa keppinautar
brugðist við, að sögn Auðbjörns,
með því að auka sitt vöruval. Innan
tíðar stefnir íslandsfugl að fram-
leiðslu á matreiddum fugli.
30 manns starfa sem stendur hjá
fyrirtækinu og eru langflestir
heimamenn. -BÞ
Göngugatan á Akureyri:
Framkvæmdum
frestað um sinn
„Þær kostnaðartöl-
ur sem við höfum fyr-
ir framan okkur eftir
útboðið sem fram fór
eru út úr kortinu mið-
að við áætlanir okkar
og því ljóst að þessari
framkvæmd seinkar.
Það er hins vegar ljóst
að farið verður í breyt-
ingar á göngugötunni en þær fram-
kvæmdir frestast sennilega til vors-
ins,“ segir Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri, um frestun
framkvæmda viö göngugötu bæjar-
ins í Hafnarstræti.
Framkvæmdaráð bæjarins sam-
þykkti á fundi sínum að hafna tilboð-
unum tveimur sem bárust í verkið
en þau voru langt fyrir ofan kostnað-
aráætlun. Kristján Þór segir að nú sé
unnið við að fara yfir hönnun verks-
ins og kostnaðarliði en að því loknu
verði verkið boðið út að nýju. „Fram-
kvæmdatími á þessu verki getur ekki
verið nema annaðhvort að vori eða
að hausti og því líklegast að farið
verði í þetta verk næsta vor,“ segir
Kristján. -gk
Krístján Þór
Júlíusson
Veðrið í kvöld
Rigning
Austan- og suðaustanátt, víöa 8-13 m/s og
rigning sunnan til en skýjað á Norðurlandi á
morgun. Austan 5-10 m/s en noröaustan
10-15 austan til í nótt. Rigning, einkum
suöaustan- og austanlands, og hiti 8 til 15
stig.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 21.26 21.20
Sólarupprás á morgun 05.37 05.12
Siódegisfló& 19.26 23.59
Árdegisflóó á morgun 07.52 12.25
Skýrlngar á veðurtáknum
J^VINDÁTT 10°—HITI -10° \VINDSTYRKUR Vconcr í metrum á Mkúndu rnu:y' HEIÐSKIRT
IÉTTSKÝJAÐ 3D HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ o ALSKÝJAÐ
•,,r Q o **ííí4
RIGNiNG SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
•v: ÉUASANGUR V ÞRUMU- VEÐUR V SKAF- RENNINGUR POKA
iH
Regngalla;
Blautt en hlýtt
Það er sannkallað regngallaveöur þessa
dagana en þó getur fólk enn huggaö sig
viö aö hlýtt er í veöri. Þaö kemur sér
ekki hvaö síst vel fyrir útivinnandi
byggingariönaöarrmenn og aöra sem
ekki geta setiö verndaöir viö vinnu sína
undir þaki og á bak viö gler í hverju sem
á dynur. Þeir fá þó örugglega tilefni til
aö bölva um leið og kólnar í veöri þegar
nær líður hausti.
Rigning sunnanlands
Austan- og suöaustanátt, víöa 8-13 m/s og rigning sunnan til en skýjaö á
Noröurlandi. Hiti 11 til 16 stig.
Mióvi ýhwjúPikiMjjj
Vindur: 'O 8—15 m/» / ^ ; Hiti 11" til 17" Su&austlæg átt og viöa rlgnlng sunnan- og vcstanlands en skýjaó meö köflum á Noröurlandl. Hlti 11 til 17 stig, heitast á Norðurlandi. Vindur: cO O 8—13 m/» ^ Hiti 11» til 17» ‘U Suöaustlæg átt og viöa rlgnlng sunnan- og vestanlands en skýjaö meö köflum á Noröurlandi. Hitl 11 tll 17 stig, heitast á Nor&urlandl. Vindur: /O' i—. 5-15 ,n/, O \ | Hiti 8" til 14» i Nor&austlæg átt og rlgning á Austurlandl, skúrlr noröanlands en víöa léttskýjab allra vestast. Hltl 8 tll 14 stlg, hlýjast á Su&vesturlandl.
AKUREYRI skýjaö 17
BERGSSTAÐIR skýjaö 16
BOLUNGARVÍK skýjaö 14
EGILSSTAÐIR skýjað 15
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 12
KEFLAVÍK rigning 12
RAUFARHÖFN skýjað 14
REYKJAVlK úrkoma 13
STÓRHÖFÐI rigning 10
BERGEN skýjaö 21
HELSINKI léttskýjaö 21
KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 21
ÓSLÓ léttskýjaö 20
STOKKHÓLMUR 21
ÞÓRSHÖFN skúrir 11
ÞRANDHEIMUR léttskýjað 17
ALGARVE skýjaö 23
AMSTERDAM léttskýjaö 22
BARCELONA mistur 26
BERLÍN þokumóöa 22
CHICAGO rigning 17
DUBLIN skýjaö 19
HALIFAX skýjaö 19
FRANKFURT skýjaö 25
HAMBORG rigning 21
JAN MAYEN súld 7
LONDON skúrir 19
LÚXEMBORG hálfskýjaö 26
MALLORCA léttskýjaö 30
MONTREAL heiöskírt 20
NARSSARSSUAQ heiöskírt 8
NEWYORK þokumóöa 23
ORLANDO hálfskýjaö 25
PARÍS skýjaö 22
VÍN léttskýjaö 32
WASHINGTON þokumóöa 21
WINNIPEG heiöskýrt 11