Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Qupperneq 4
Fréttir MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001 I>V Guöjón Kristinsson hleðslumeistari um mál ístaks og Árna Johnsens: Fékk þetta á silfurfati - undrast byggingarkostnaðinn á Grænlandi „Ég hef ekki komið nálægt þessu og hef ekki unnið fyrir Áma John- sen. Hann vildi ekki að neinn annar en ístak kæmi að þessu. Hitt er ann- að mál að mig dauðlangaði að gera þessar hleðslur og skrifaði mörg bréf vegna þess,“ sagði Guðjón Kristinsson hleðslumeistari i gær þar sem hann vann við hleðslu galdraseturs á Klúku á Ströndum. Guðjón hafði hug á því að fá verk- efni við endurbyggingu Þjóðhildar- kirkju og skála Eiríks rauða og skrifaði Árna Johnsen, formanni byggingamefndar, vegna þess. „Árni ansaði engu bréfanna, hann gaf engum séns á að gera þetta ódýrara, ístak fékk þetta á silfurfati. Ég veit að fleiri skrifuöu vegna þessa en fengu engin svör,“ sagöi Þjóöhildarkirkja Hleöslumeistari unórast kostnaöinn viö endurbygginguna. Guöjón. Hann segist geta sannað að af 80 milljóna króna byggingar- kostnaöi húsanna tveggja á Græn- landi hafi smiðirnir aðeins kostað 25-30 milljónir, afgangurinn standi fram af. Eins og fram kom í DV í gær hef- ur Ríkisendurskoðun efasemdir við 650 þúsunda króna reikning Víglunds Þorsteinssonar hleðslu- meistara sem vann fyrir Árna John- sen og Istak við endurbyggingu á Grænlandi. Sami Víglundur hlóð fyrir Árna við Höfðaból hans í Vest- mannaeyjum. Hann segist nú ekki vera búinn að rukka þingmanninn fyrrverandi vegna þess verks. 650 þúsund króna reikningurinn sé eft- irstöðvar vegna vinnu hans á Græn- landi. -JBP/rt Skaftfellingur kominn tilVíkur: Happaskip á heimaslóð - segir Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona DV myndir NH Á rauðu Ijósi. Skaftfellingur á Selfossi. Flutningsgengiö. Eríkur Gunnarsson, Kristján Eggertsson, Einar Þór Einarsson og Trausti Gunnarsson. Á hálendisbrúninni. Skaftfellingur á leiö upp úr Þjórsárdal. DV, SUOURLANDI:_________ „Það var einstakt, al- veg dásamleg upplifun að sjá Skaftfelling koma hér niður fjallveginn. Þegar hann kom hér út úr þokunni var eins og yfir honum væri dýrðar- ljómi, enda hefur Skaft- fellingur alltaf verið mikið happaskip," sagði Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona við DV í gær, á áttræðisafmælis- degi sínum á æskuslóð- um í Vík í Mýrdal. Kom- ið var með Skaftfelling til Víkur um hádegið á laugardag eftir sólar- hrings ferðalag um Sudurland á tengivagni. Lagt var upp meö bát- inn frá Vestmannaeyjum 7. ágúst og bátnum skip- að upp í Þorlákshöfn sama dag. Skaftfellingur var hífður upp á tengivagn á hafn- arbakkanum á miðvikudag en ekki var hægt að leggja upp með hann til Víkur fyrr en um hádegi á föstudag- inn, eftir að tekið haföi verið úr honum flest lauslegt, því heildar- þyngdin reyndist aðeins of mikil fyrir vegakerfið. Vegna stæröar Skaftfellings varð að fara með hann langa leið um Suðurland, um 250 kílómetra leið. Farið var frá Þor- lákshöfn, yfir Óseyrarnesbrú, á Sel- fossi varð að fara eftir Engjavegi því aöalgatan er of þröng og með hring- torgi. Farið var upp Skeiðaveg, upp fyrir Búrfell og niður Landveg þar sem Þjórsárbrúin við Þjótanda var ekki nógu breiö. Ferðin frá Hellu austur í Vík gekk greiðlega og eftir áningu í Mýrdalnum aðfaranótt laugardagsins var komið með bát- inn inn í Víkina um hádegi. Eiríkur Gunnarsson hjá GG segir aö ferðin hafi í alla staöi gengið mjög vel. Ekkert óvænt hafi komið upp á svo hægt var að keyra alla leið óhikað. Auk Eiríks skiptu Trausti Gunnars- son og Einar Þór Ein- arsson með sér akstri bílsins sem dró tengi- vagninn, en Kristján Eggertsson fylgdi Skaft- fellingi frá Vestmanna- eyjum til Víkur. Eiríkur segir að það hafi verið óvenjuleg upplifun að koma með Skaftfelling inn í Vík í Mýrdal. „Það var mikil stemning í bænum, Qöldi fólks tók á móti bátnum og fagnaði heimkomu hans inni- lega.“ Skaftfellingur verður settur inn í skemmu í Víkinni þar sem hann verður tek- inn til meðferðar, dytt- að aö og endurnýjað það sem timans tönn hefur bitið á. Sigrún Jónsdóttir segir að end- urbæturnar muni taka talsverðan tíma og fara verði að öllu með gát í endurbótunum. „Það verð- ur að fara varlega að Skaftfellingi, það má ekki taka hann og gera upp sem nýtt skip, það verður að leyfa honum, eins og okkur öllum sem orðin erum fullorðin, að halda sín- um karakter og sinni sál,“ sagði Sig- rún Jónsdóttir. -NH íslandsfugl hefur slátrun: „Munum rugga bátnum" - segir framkvæmdastjóri íslandsfugl í Dalvíkurbyggð hyggst slátra fyrstu kjúklingunum fyrir helgi og munu þúsundir fugla flæöa inn á markaðinn í kjölfarið. Auðbjörn Kristinsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, segist ekki geta lofað verðlækkun til að byrja með en neytendur hagnist vonandi til lengri tíma litið. „Auðvitað munum við rugga bátn- um en okkar stefna er að fara inn á svipuðu verði og keppinautarnir. Svo sjáum við hvernig reksturinn gengur. Ef okkur gengur eins og áætlanir gera ráð fyrir munu neyt- endur njóta þess,“ segir Auðbjöm. Verð á kjúklingum er hátt hér á landi sem skýrir að hluta þá stað- reynd að neyslan er lítil í saman- burði við nágrannalöndin. Auð- bjöm er viss um aö heildarneysla á kjúklingum muni aukast töluvert í kjöfar innrásar íslandsfugls. Alls mun fyrirtækið bjóða upp á um 30 tegundir af hráum kjúklingi á næstunni og hafa keppinautar brugðist við, að sögn Auðbjörns, með því að auka sitt vöruval. Innan tíðar stefnir íslandsfugl að fram- leiðslu á matreiddum fugli. 30 manns starfa sem stendur hjá fyrirtækinu og eru langflestir heimamenn. -BÞ Göngugatan á Akureyri: Framkvæmdum frestað um sinn „Þær kostnaðartöl- ur sem við höfum fyr- ir framan okkur eftir útboðið sem fram fór eru út úr kortinu mið- að við áætlanir okkar og því ljóst að þessari framkvæmd seinkar. Það er hins vegar ljóst að farið verður í breyt- ingar á göngugötunni en þær fram- kvæmdir frestast sennilega til vors- ins,“ segir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, um frestun framkvæmda viö göngugötu bæjar- ins í Hafnarstræti. Framkvæmdaráð bæjarins sam- þykkti á fundi sínum að hafna tilboð- unum tveimur sem bárust í verkið en þau voru langt fyrir ofan kostnað- aráætlun. Kristján Þór segir að nú sé unnið við að fara yfir hönnun verks- ins og kostnaðarliði en að því loknu verði verkið boðið út að nýju. „Fram- kvæmdatími á þessu verki getur ekki verið nema annaðhvort að vori eða að hausti og því líklegast að farið verði í þetta verk næsta vor,“ segir Kristján. -gk Krístján Þór Júlíusson Veðrið í kvöld Rigning Austan- og suðaustanátt, víöa 8-13 m/s og rigning sunnan til en skýjað á Norðurlandi á morgun. Austan 5-10 m/s en noröaustan 10-15 austan til í nótt. Rigning, einkum suöaustan- og austanlands, og hiti 8 til 15 stig. Sólargangur og sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag í kvöld 21.26 21.20 Sólarupprás á morgun 05.37 05.12 Siódegisfló& 19.26 23.59 Árdegisflóó á morgun 07.52 12.25 Skýrlngar á veðurtáknum J^VINDÁTT 10°—HITI -10° \VINDSTYRKUR Vconcr í metrum á Mkúndu rnu:y' HEIÐSKIRT IÉTTSKÝJAÐ 3D HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ o ALSKÝJAÐ •,,r Q o **ííí4 RIGNiNG SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA •v: ÉUASANGUR V ÞRUMU- VEÐUR V SKAF- RENNINGUR POKA iH Regngalla; Blautt en hlýtt Það er sannkallað regngallaveöur þessa dagana en þó getur fólk enn huggaö sig viö aö hlýtt er í veöri. Þaö kemur sér ekki hvaö síst vel fyrir útivinnandi byggingariönaöarrmenn og aöra sem ekki geta setiö verndaöir viö vinnu sína undir þaki og á bak viö gler í hverju sem á dynur. Þeir fá þó örugglega tilefni til aö bölva um leið og kólnar í veöri þegar nær líður hausti. Rigning sunnanlands Austan- og suöaustanátt, víöa 8-13 m/s og rigning sunnan til en skýjaö á Noröurlandi. Hiti 11 til 16 stig. Mióvi ýhwjúPikiMjjj Vindur: 'O 8—15 m/» / ^ ; Hiti 11" til 17" Su&austlæg átt og viöa rlgnlng sunnan- og vcstanlands en skýjaó meö köflum á Noröurlandl. Hlti 11 til 17 stig, heitast á Norðurlandi. Vindur: cO O 8—13 m/» ^ Hiti 11» til 17» ‘U Suöaustlæg átt og viöa rlgnlng sunnan- og vestanlands en skýjaö meö köflum á Noröurlandi. Hitl 11 tll 17 stig, heitast á Nor&urlandl. Vindur: /O' i—. 5-15 ,n/, O \ | Hiti 8" til 14» i Nor&austlæg átt og rlgning á Austurlandl, skúrlr noröanlands en víöa léttskýjab allra vestast. Hltl 8 tll 14 stlg, hlýjast á Su&vesturlandl. AKUREYRI skýjaö 17 BERGSSTAÐIR skýjaö 16 BOLUNGARVÍK skýjaö 14 EGILSSTAÐIR skýjað 15 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 12 KEFLAVÍK rigning 12 RAUFARHÖFN skýjað 14 REYKJAVlK úrkoma 13 STÓRHÖFÐI rigning 10 BERGEN skýjaö 21 HELSINKI léttskýjaö 21 KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 21 ÓSLÓ léttskýjaö 20 STOKKHÓLMUR 21 ÞÓRSHÖFN skúrir 11 ÞRANDHEIMUR léttskýjað 17 ALGARVE skýjaö 23 AMSTERDAM léttskýjaö 22 BARCELONA mistur 26 BERLÍN þokumóöa 22 CHICAGO rigning 17 DUBLIN skýjaö 19 HALIFAX skýjaö 19 FRANKFURT skýjaö 25 HAMBORG rigning 21 JAN MAYEN súld 7 LONDON skúrir 19 LÚXEMBORG hálfskýjaö 26 MALLORCA léttskýjaö 30 MONTREAL heiöskírt 20 NARSSARSSUAQ heiöskírt 8 NEWYORK þokumóöa 23 ORLANDO hálfskýjaö 25 PARÍS skýjaö 22 VÍN léttskýjaö 32 WASHINGTON þokumóöa 21 WINNIPEG heiöskýrt 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.