Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001 I>V Fréttir Háma Kanmuplaga 1 uppsiglingu: í sig blóm á leiðum Óboönir gestir Útígangskanínur viröast vera farnar aö færa út kvíarnar. Þær hafa einkum haidiö sig í Öskjuhlíöinni en eru nú farnar aö heimsækja kirkjugaröinn í Fossvogi og éta blóm af leiöunum. Útigangskanínum hefur snarfjölg- aö i Reykjavík að undanförnu. Helst eru þær áberandi í Öskjuhlíðinni en eru einnig farnar að sjást víðar, svo sem í skóginum að sunnanveröu við Elliðaárhólmann. Þá eru þær farnar að láta til sín taka í Fossvogskirkjugarði, þar sem þær háma í sig blóm á leiðum. Að- standendum sem hafa verið að líta eftir leiðum ættingja hefur brugðið í brún þegar sumarblómin hafa ver- ið á bak og burt en stilkarnir einir eftir. Kvaðst einn viðmælandi DV hafa horft á kanínu sem hreinsaði þrjú leiði - og var snögg að því. Þessi kanínufjöldi er m.a. talinn stafa af því að mjög sé nú í tísku hjá krökkum að kaupa sér kanínu og hafa hana í beisli. Þegar viðkom- andi sé orðinn leiður á gæludýrinu sé því hreinlega sleppt í Öskjuhlíð- ina eða annars staðar þar sem það er talið komast vel af. Bjöm Júlíusson, starfsmaður garðyrkjudeildar Reykjavíkur, sagði, að óhemjufjölgun hefði orðið á kanínum að undanfomu. Þess væru dæmi að fólk kæmi með kan- ínumar í búrunum í Öskjuhlíðina og skildi þau eftir opin undir trjám og inni í runnum. „Þetta gæti hreinlega stefnt í plágu,“ sagði Björn sem kvað mikla þörf á að ræða þessa stöðu sem upp sé komin, enda væm kanínurnar einkum í skóglendi borgarinnar. Þær gætu lagst á börk á trjám yfir sumartímann og síðan á nýbrum ungs birkis að vetri til þegar þær hefðu ekki annað. Ómar F. Dabney hjá meindýra- vörnum Reykjavíkurborgar sagði að í vetur heföi komið orðsending þess efnis frá Kirkjugörðum Reykja- víkur að kanínur sæktu i garðana. Þá hefði verið farið út í aðgerð til að stemma stigu við því. Þegar ágang- urinn hefði minnkað hefði aðgerð- um verið hætt. „Við reynum að aðstoða borgar- ana eftir fremsta megni,“ sagði Ómar. „Þegar tiltekinn árangur hef- ur náðst þá hættum við.“ Hann kvaðst oft sjá hópa af kan- ínum á umferðareyjum við Loft- leiðahótelið þegar hann væri að vinna að næturlagi. Mest hefði hann séð 12 stykki í einu og þær virtust vera dauðspakar. -JSS Margir á sjúkrahús eftlr görótta drykkju - »»t b« rl..« AI.IIm ctm l*UM IU Frétt DV síöastliöinn föstudag íslendingarnir á Krít: Órói meðal skólakrakkanna Talsmaöur ferðaskrifstofunnar sem flutti íslensk ungmenni th Krítar seg- ist alls ekki útiloka að ólyfjan hafi ver- ið bætt út i drykki nokkurra ung- menna sem hafa lagst á spítala vegna torkennilegrar sóttar. Hins vegar hafi blóðsýnatökur hingað til ekki sýnt fram á torkennileg eiturefni. Eins og DV greindi frá á fóstudag hafa nokkur íslensk ungmenni misst meðvitund í bænum Chania og orðið að leggjast inn á sjúkrahús undanfar- iö. Þetta eru nemendur í framhalds- skólum og töldu þeir og aðstandendur þeirra að ólyflan hefði verið bætt út í drykki þeirra. Það er þekkt aðferð tO að slæva meðvitund í þeim tilgangi að beita kynferðislegu ofbeldi og sérfræð- ingur á neyðarmóttöku Landspítalans segir að sum efnanna séu þeirrar nátt- úru að leysast upp í blóði innan fárra klukkustunda. Enn fremur þurfi nokkra þekkingu við þessi sýni og grísku blóðsýnin segi því e.t.v. ekki alla söguna. Úrval-Útsýn sér um ferð krakkanna til Krítar og segir Páll Ármann fram- kvæmdastjóri að ferðaskrifstofan vari í upphafi ferðar sérstaklega við þess- ari hættu sem sé þekkt viða í Evrópu. Hann segir að fjórir krakkar hafi farið á spítala í Chania síðustu daga og ferðaskrifstofan hafi brugðist fljótt við hverju tilviki. Fararstjóri sé á sólar- hringsvakt og hann hringi strax í lækni ef eitthvað bjátar á. DV náði tali af íslendingi á Krít sem fylgst hefur með málinu. Hann sagði mikinn óróa hafa verið meðal skólakrakkanna vegna málsins og Páll Ármann viðurkennir að dálítið hafi gengið á. Krakkarnir eru frá MS og MK og gista í tveimur hótelum sem eru dálít- ið afsíðis. Grunur hafði beinst að til- teknum bar en allt er ósannað i þeim efnum. A.m.k. einn þeirra sem veikt- ust hafði ekki drukkið áfengi sam- kvæmt upplýsingum DV. -BÞ Vegna mjög góðra undirtekta verða SPARIDAGAR framlengdir um eina viku! AEG DVD spilari - Spilar öll svæði 29.900 SHARR XL30 AEG AEG 10.900 25% Vinsælu leirvörurnar BSl mBHI T-30 3 Barkarþurrkari I 46.900 Þvottavél 1400sn 79.900 i • 14.900 nordica Brauðgerðarvél 10.900 24 ■t^Cágúst mmm SHARR R212 örbylgjuofn X ■ ,0 12.900 TEFAt Pottar og pönnur Heimilisleg og kraftmikii tilboð á úrvals vörum AEG 167/46 L. 8 -25% GAMEBOY 09 íjí NINTINDO.64 Leikir á verði frá kr. 990 AEGaT 250 CLASSIC AEG CC 101 Kaffivél 44.500 Brauðrist-stál 4.490 4.990 SHARR EL6053 Skipuleggjari og símaskrá 1.250 Skrifsofustóll ATH amiar á mynd eWd innifaldir í verði. 14.900 Líttu iriö - því þetta er aðeins sýnishorn af þvi sem í boði er. 15% afsláttur af verðlistaverði af öðrum vörum heimilistækjadeildar við kassa. BRÆÐURNIR ORMSSON SPARNAÐUR Lágmúla 8 • Sími 530 2800 .OG ÞU GERIR ÞÉR GLAÐAN DAG FYRIR MISMUNINN Umsjón: Gylfi Kristjánsson netfang: gylfik@ff.is Draumasviðin Það er mikið fram undan hjá Atla Eðvaldssyni, landsliðsþjálfara í knattspyrnu, enda leikir í for- keppni HM á dagskrá. Atli sagði í viðtali við DV í fyrri viku að leik- urinn við Tékka yrði „ofboðslegur" og reyndar yrðu allir leikirnir þrír „rosalegir". Hann segir styrkleika ís- lenska liðsins fel- ast í „gífurlegum" karakter en sínir menn verði að spila mjög agað og vera þolinmóðir. Þetta botnaði landsliðsþjálfarinn síð- an á þann hátt að segja að ef hans menn hefðu yfirburði „á þessum draumasviðum" gæti liðið náð langt. Hver segir svo að íþróttamenn kunni ekki að koma fyrir sig orði? Vanþakklætið Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra hefur heldur betur fengið framan í sig vanþakklætið eftir að hann tilkynnti nýjar reglun um veiði smábáta. Árni sagðist þarna vera að koma til móts við þá sem hafa hags- muna að gæta varðandi þessar veiðar og hefði maður þá haldið að þeir tækju tillögum hans fagnandi. Annað hefur þó ver- ið upp á teningnum og hafa menn keppst hverjir við aðra að hallmæla ákvörðun Árna. Meira að segja framkvæmdastjóri LÍÚ, Friðrik J. Amgrímsson, er nú sammála smá- bátaforustunni en pað gerist ekki oft. Eini maðurinn sem eitthvað hef- ur mælt tillögum Áma bót er sam- flokksmaður hans, Einar K. Guð- finnsson, þingmaður á Vestfjörðum. Útgerðarmenn þar segja hins vegar ekkert að marka Einar, hann sé undir hæl Qokksforustunnar í þessu máli. fjör fram undan Það er svo sem ekkert nýtt að þeir tali hvor til annars á hvössu nótun- um, þeir Halldór Blöndal, forseti Alþingis, og Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna. Það er oft eins og að vera á íþrótta- móti að heyra tii þeirra þegar þeir hækka róminn og á stundum æsist svo leikurinn að unun er á að hlusta. Þeir „félagar“ eru báðir þing- menn fyrir Norðurland eystra og verða báðir í framboði í nýja Norð- austurkjördæminu í næstu kosning- um. Er ekki laust við að margir séu farnir að hlakka til að heyra til þeirra þá, en 1 þeirri kosningabar- áttu munu þeir án efa „taka hraust- lega á því“, a.m.k. gaf rimma þeirra í Mogganum í síðustu viku það til kynna að líflegra funda sé að vænta. Þróttarar harðir Sveinn Andri Sveinsson, for- maður Fram, Fótboltafélags Reykja- víkur, vill greinilega sameinast Knattspyrnufélaginu Þrótti, ef marka má viðtal við hann á heima- síðu Fram. Sveinn Andri segist hafa „gaukaö" að for- manni Þróttar til- lögu um samein- ingu meistara- flokka félaganna tveggja. Undirtektir hafa engar verið formlega. í viðtal- inu sagði Sveinn Andri að hann vildi ekkert annað en bestu aðstöð- una fyrir leikmenn Fram og áhan- gendur liðsins, en hún er í Laugar- dalnum þar sem Þróttarar hafa bestu íþróttaaðstöðuna í borginni. Eitthvað hefur heyrst eftir þetta úr herbúðum Þróttar, eins og t.d. það að Sveinn Andri sé ekki á höttunum eftir neinu öðru en aðstöðu Þróttar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.