Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001
Tilvera
37
IOV
Dansaö í rigningu
Vinsældir línudansanna amerísku viröast ekkert vera aö dala hér á landi. Stór hópur línudansara af öllu iand-
inu steig nokkur spor á Ingólfstorgi á tíunda tímanum.
Heyrir einhver í mér?
Samsöngur Garöars Cortes, Óperukórsins og annarra Reykvíkinga fór því miöur fyrir ofan garö og neöan þar
sem hljóökerfiö var ekki nógu öflugt.
Hillary ræður heima við
Hillary Clinton, öldungadeildar-
þingmaður New York-ríkis í Banda-
ríkjunum, segir að ekkert sé til í
sögusögnum um að brösulega gangi
í hjónabandi hennar og fyrrverandi
forsetans og vandræðagemlingsins
Bills Clintons. Þvert á móti finnst
henni hjónaband þeirra vera jafn
traust og það var þegar það hófst
fyrir rúmlega 30 árum.
Þau tvö skemmta sér víst þessa
dagana við að innrétta híbýli sín i
Washington og New York eftir sínu
eigin höfði eftir átta ára búsetu í
Hvíta húsinu þar sem ekkert má
hreyfa. Auk þess hefur Bill nú tima
til þess að lesa yflr og betrumbæta
ræður sinnar heittelskuðu. Hillary
segir hann einnig ómetanlegan í að
leiðbeina sér um völundarhús
stjórnmálanna i Washington; hvern
eigi að tala við í sambandi við
hvaða mál. Hún tekur þó fram að
það sé hún sem ráði á heimilinu þar
sem Bill sé bara óbreyttur borgari.
Liz Hurley
Táldrottningin Liz Hurley var í Dublin á dögunum aö kynna snyrtivörur Estee
Lauder. Hér sést hún brosa viö riddara sem opnar fyrir henni. Hurley, sem er
fyrrum kærasta kvennabósans Hughs Grants, var viö opnun nýrrar
snyrtihallar á írlandi.
Málverkasýning Tínu Simonsen:
íslensk náttúra ómeð-
vitað í verkunum
DV, HVERAGERÐI__________________
I Eden stendur nú yfir sýning á
olíumálverkum Tínu Simonsen sem
er dönsk og sérstaklega hingað kom-
in til að sýna verk sin. Hún hefur
sýnt víða í Danmörku en þetta er í
fyrsta skipti sem hún sýnir á ís-
landi. Tína bjó hérlendis um sex ára
skeið til ársins 1993 en býr nú ásamt
íslenskum eiginmanni sínum í
Kaupmannahöfn. Málverkin bera að
dómi fréttaritara vott af íslenskri
náttúru og Tína neitar því ekki.
“Ég var ekki með neitt sérstakt í
huga en svo fór ég að sjá betur og
betur að þarna voru á ferð endur-
minningar frá íslandi. íslenska nátt-
úran varð ómeðvitað orðin ráðandi
í málverkum mínum. Þess vegna
fannst mér spennandi að sjá hvem-
ig íslendingar tækju verkum mín-
um og ákvað að setja upp sýningu
hér. Þetta er mín stærsta áskorun
sem listamaður hingað til,“ sagði
Tina Simonsen í samtali við DV.
Tína segir að hún hafi vísvitandi
ekki gefið málverkunum nöfn - það
sé miklu meira varið í að fólk gefi
þeim sín eigin nöfn, eftir áhrifum
eða skilningi þess á verkinu. Tína
segist vera mikill íslendingur í sér
og vilja gjarnan flytjast hingað aft-
ur, en hinn íslenski maður hennar
sé ekki á sama máli. Sýningin
stendur til 26. ágúst.
-eh
Málverkasýnlng
Tína Simonsen viö eitt málverkanna á sýningunni.
Rafstöðvar
Verð frá
35.500 WRÓ
Allar stærðir
DV-MYND ELMA GUÐMUNDSDÖTTIR.
Fallegt módel
Þaö var Halldór Þorsteinsson, stjórnarformaður SÚN, annar frá vinstri á
myndinni, sem afhenti Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Síldarvinnslunnar,
iengst til hægri, gjöfma. Aörir á myndinni eru Guömundur Bjarnason, bæjar-
stjóri í Fjaröabyggö, Sigurjón Valdimarsson, skipstjóri á Beiti, og Kristinn V.
Jóhannsson, formaöur stjórnar Samvinnufélags útgeröarmanna í Neskaup-
staö, SVN.
Nýr Beitir til
Síldarvinnslunnar
Mikið úrval bensín og
dísil rafstöðva.
Hagstætt verðl
DV, NESKAUPSTAÐ:_____________________
Nýlega afhentu Samvinnufélag
útgerðarmanna í Neskaupstað og
Hafnarstjóm Fjarðabyggðar, Síldar-
vinnslunni hf. líkan af Beiti NK 123
sem Tryggvi Sigurðsson vélsmiður í
Vestmannaeyjum gerði. í 40 ára af-
mælisveislu SVN í desember 1997
var tilkynnt um gjöfina en hún ekki
afhent fyrr en nú þar sem smíði lík-
ansins tók mun lengri tíma en áætl-
að var, eða á þriðja þúsund vinnu-
stundir, og töf varð einnig á verk-
inu vegna annarrar smíði.
Beitir NK 123 er 742 brúttólesta
fjölveiðiskip, upphaflega smíðað
sem síðutogari í Bremenhaven í V-
Þýskalandi árið 1958. Síldarvinnsl-
an hf. keypti skipið árið 1981. Skip-
ið er mikið endurnýjað og lítið er
eftir nema skrokkurinn af nýsmið-
inni í V-Þýskalandi. í skipinu er
RSW sjókælikerfi og ísdreifari sem
gera það að verkum að skipið getur
komið með vel varðveitt hráefni að
landi. Óhætt er að segja að Beitir
hafi stundaö fjölbreyttari veiðar en
flest önnur skip og oftar en ekki
ásamt Berki verið í broddi fylking-
ar m.a. við flottrollsveiðar á
kolmunna, síld og loðnu. Aflaverð-
mæti Beitis á síðustu fimm árum er
um 1,6 milljarður króna.
-Eg
BALENO
WAG0N 4X4 - Fjölskyldubillinn
____ Meðalevðsla 7.41
* I 'fi.. 1.875.000
SUZUKI BÍLAR HFÍ^'C
Skeifunni 17. Sími 568 51 00. \ ’