Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 20
24
_________________________FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001
*» Tilvera DV
Býflugnaræktun á Stokkseyri - úrvalsframleiðsla og góð áhrif á gróðurinn:
Mestu mein-
leysisgrey
- segir Rúnar Óskarsson býflugnabóndi
„Ég fékk þá flugu í höfuðið að
reyna þetta eftir að ég las viðtal
viö Egil Sigurbjömsson, lækni á
Selfossi, sem er með talsverða bý-
flugnaræktun og hefur verið einn
frumkvöðla í því hér á landi. Hann
er meö talsverða ræktun. Ég fór á
námskeið hjá honum og keypti
mér bú í framhaldi af því,“ sagði
Rúnar Óskarsson á Stokkseyri sem
hefur verið að reyna fyrir sér í bý-
flugnabúskap niðri viö ströndina.
Býflugnarækt hefur verið að ryðja
sér til rúms á íslandi undanfarin
ár.
Þegar Rúnar keypti sínar flugur
, í fyrra, tvö bú, vom alls flutt til
landsins 16 býflugnabú. Búskapur-
inn gekk ekki snurðulaust hjá
Rúnari fyrsta áriö, hann tapaöi
annarri drottningunni og flugurn-
ar lifðu ekki af veturinn. Hann lét
það ekki slá sig út af laginu og
heldur nú ótrauður áfram. „Ég er
Flugur í búrl
Flugumar eru fljótar í feröum ef opn-
aö er.
nú kominn með annan stofn frá
Skandinavíu. Þær flugur eru
miklu betur aðlagaðar svipaöri
veðráttu og hér er svo þær munu
örugglega lifa af íslenskan vetur,“
sagði Rúnar. Hann segir að tUgang-
urinn með býflugnaræktun sé ekki
aðeins að láta þær framleiða hun-
ang. „Þær hafa mikil og góð áhrif á
gróðurinn; auka blómgun og frjó-
semi plantnanna á stóru svæði.
Þær vinna í um 3 kílómetra radíus
út frá búunum. Ef bú er til dæmis
í berjalandi eykst uppskera berja-
landsins allt að því tvöfalt," sagði
Rúnar. Hann segist líta til þess að
geta sett afurðir býflugna sinna á
markað fljótlega.
„Þetta er hrein afurð, það eru
engin auka- eða geymsluefni í hun-
anginu, flugumar vinna það allt úr
islenskri náttúru. Við stefnum að
því að selja það í sérpökkuðum
umbúðum. Félag íslenskra bý-
Brynjaöur fyrlr flugunum
Rúnar í búningi til aö verjast flugunum. Hann segir aö þó verið sé meö þykka hanska geti þær stungiö gegnum þá.
DV-MYNDIR NJÖRÐUR HELGASON
Afurðir búsins
Rúnar Óskarsson meö vaxhólka, fulla af hunangi úr búi sínu.
flugnaræktenda kemur líklega til
með að votta hunangiö og taka út
ræktunina og mun jafnvel annast
sölumálin.
Flugurnar halda sjálfar
á ser hita yfir veturinn
Rúnar segist ekki hafa verið
mikill hunangsmaður fram að því
að hann hóf sjálfur ræktun bý-
flugna. Hann segist þó hafa borið
sitt hunang saman við hunang frá
öörum framleiðendum og það
standist fyllilega samanburðinn.
Rúnar segist gefa býflugunum einu
sinni í viku sykurvatn til að örva
útungunina hjá drottningunni. Til-
gangurinn sé að fá nógu stórt bú til
að flugurnar lifi af veturinn. Yfir
vetrartimann segir Rúnar að flug-
urnar aðlagi sig kuldanum meö þvi
að mynda hnapp utan um drottn-
inguna og haldi með því á henni
hita.
„Það helst um 30 gráða hiti inni
í búinu sem flugurnar sjálfar
mynda og því meiri sem kuldinn
verður úti því betur þjappa þær
sér utan um drottninguna. Enginn
hiti kemur utan og þær nýta hun-
angið og frjókomin sem vetrar-
forða og til að mynda hita,“ sagði
Rúnar. Um 20.000 flugur eru í
hvoru búi hjá Rúnari. Hann segir
að í fyrra hafi flugurnar framleitt á
milli 10 og fimmtán kíló af hun-
angi og það hafi hann haft áfram í
búinu fyrir nýju flugumar sem
koma frá Noregi. Hann segir aö
þær séu miklu duglegri að bjarga
sér en þær sem hann var með í
fyrra.
„Þær flugu aðeins þegar veður
var með besta móti en þessar eru
miklu duglegri að fljúga þó að
veðriö sé ekki upp á það besta. Þaö
gefur manni von um að þær komi
til með að framleiða meira og veröi
með þvi betur undirbúnar fyrir
veturinn,“ sagði Rúnar.
Stinga sjaldan
Rúnar segir að býflugurnar séu
hin mestu meinleysisgrey. „Ef
gengið er um búið á eðlilegan hátt
eru þær til friðs og ráðast ekki á
mann. Nágrannarnir hafa veriö
hér úti í görðum og þær hafa látið
þá í friði. Hjá mér hafa verið menn
að klæða húsið mitt að utan og
þeir hafa ekki orðið fyrir árás eða
ónæði af flugunum. Þær pirruðust
þó aðeins um daginn þegar ég var
í slæmu veðri að eiga við búrið
sem þær héldu sig inni í. Þá réðust
þær á mig, stungu tengdamóður
mína og mann sem var hér í garö-
inum. Stungan er þó ekki hættu-
leg, það svíður aðeins fyrst, siðan
þarf bara að fjarlægja broddinn úr
húðinni," sagði Rúnar Óskarsson,
býflugnabóndi á Stokkseyri.
-NH
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
^ Reykjavík, sem hér segir á eftir-
farandi eignum:
Fiskakvísl 12, Reykjavík, þingl. eig. Jón
Öm Jakobsson, gerðarbeiðandi Trygg-
ingamiðstöðin hf„ mánudaginn 27. ágúst
2001, kl. 10.00.
Hólaberg 4, Reykjavík, þingl. eig. Ragn-
ar Sverrir Ragnars og Margrét Ragnars
Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur Ibúða-
lánasjóður og Tollstjóraembættið, mánu-
daginn 27. ágúst 2001, kl. 10.00.
Langholtsvegur 10, Reykjavík, þingl. eig.
Sigríður Ólöf Bjömsdóttir og Guðlaugur
R. Magnússon, gerðarbeiðendur Islands-
banki-FBA hf. og Tollstjóraembættið,
mánudaginn 27. ágúst 2001, kl. 10.00.
Melabraut 27, Seltjamamesi, þingl. eig.
Raffy Artine Torossian og Guðrún Valdís
Ingimarsdóttir, gerðarbeiðendur Ibúða-
lánasjóður, Landsbanki Islands hf„ höf-
uðst., og Seltjamameskaupstaður, mánu-
daginn 27. ágúst 2001, kl. 10.00.
Miðleiti 5, 0202, íbúð á 2. hæð, nr. 29,
Reykjavík, þingl. eig. Ólafur S. Ólafsson
og Ingibjörg Þórðardóttir, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður verslunarmanna, mánu-
daginn 27. ágúst 2001, kl. 10.00.
Teigasel 5, 0201, 3ja herb. íbúð á 2. hæð,
Reykjavík, þingl. eig. Soffía Kragan Sig-
urðardóttir, gerðarbeiðendur Ingvar
Helgason hf„ Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins, B-deild, og Sparisjóður Reykja-
víkur og nágrennis, útibú, mánudaginn
27. ágúst 2001, kl. 10.00.
Tungusel 5,0202,3ja herb. íbúð á 2. hæð,
Reykjavík, þingl. eig. Þuríður Herdís
Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur fbúðalána-
sjóður og Sparisjóður Kópavogs, mánu-
daginn 27. ágúst 2001, kl. 10.00.
Vallarhús 24, 0101, 2ja herb. íbúð á 1.
hæð, 1. íb. frá vinstri, Reykjavík, þingl.
eig. Bóas Ragnar Bóasson og Guðlaug
Sigríður Jónsdóttir, gerðarbeiðendur
Frjáls fjölmiðlun ehf„ Fróði hf„
Greiðslumiðlun hf. - Visa ísland, Ibúða-
lánasjóður, Íslandsbanki-FBA hf„ Sam-
skip hf„ Sparisjóður Hafnarfjarðar og
Tollstjóraembættið, mánudaginn 27.
ágúst 2001, kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Sinead O'Connor í það heilaga:
Gifti sig í laumi
írska söngkonan Sinead O'Connor
(34 ára) gekk nýlaga í það heilaga í
annaö sinn og fór athöfnin fram á laun
fyrir þremur vikum. Sá hamingjusami
er blaðamaðurinn Nick Sommerland
(27 ára) en þau kynntust í Dublin í
febrúar sl. Það var hann sem fyrst
sagði frá brúðkaupinu en ekki hvar
það fór fram. „Við féllum fljótlega
hvort fyrir öðru. Við höfum bæði
verið í fjölda sambanda en erum mjög
hamingjusöm núna,“ sagði Somm-
erland.
O'Connor, sem varð fyrst fræg fyrir
um það bil áratug, þegar hún m.a.
gerði frægt lagið Nothing Compares to
you, á tvö böm frá fyrri samböndum.
Það em Jake (13 ára), sem hún átti
með fyrsta eiginmanni sínum,
trommaranum John Reynolds, og
Roisin (5 ára), sem hún átti með írska
dálkahöfundinum John Waters.
Sinead O'Connor
Sinead O'Connor varö fyrst fræg fyrir
áratug, m.a. fyrir tagiö Nothing
Compares to you.
Poppprinsessan Britney Spears er
ekki beint snjall ökumaður ef marka
má fréttir sem bámst af misheppnað-
ari ökuferð hennar í Beverly Hills í
fyrri viku. Spears mun hafa tekið rán-
dýran Ferrari á leigu og eftir aðeins
tveggja tíma akstur hafði hún möl-
brotið í honum gírkassann. Hún mun
hafa verið á þó nokkurri ferð þegar
hún reyndi að skipta beint niður í
annan gír með áðurnefndum afleið-
ingum. Bíllinn mun hafa tekið loft-
köst á hraðbrautinni en Spears slopp-
ið með skrekkinn, en hún þarf að
punga út vel á 3. milljón króna til bíla-
leigunnar vegna skemmda á bílnum.