Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Síða 2
2
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
DV
Mikilvæg uppgötvun íslenskrar erfðagreiningar og Roche:
Gen sem tengjast
kvíða og offitu
- „stórt skref“ á langri leið, segir Páll Magnússon
íslensk erfða-
greining og sviss-
neska lyfjafyrir-
tækiö Roche til-
kynntu i morgun
að þau hefðu
kortlagt tvö gen
sem tengjast
oífitu og kvíða.
Fyrirtækin
byggja á þessum
mikilvægu upp-
götvunum til að þróa ný og árang-
ursrík lyf sem geta dregið úr eða
hugsanlega komið í veg fyrir þann
mikla toll fyrir einstaklinginn og
þjóðfélagið sem þessir sjúkdómar
valda, segir í yfirlýsingu sem fyrir-
tækin sendu frá
sér í morgun.
í skeyti frá
Reuters-frétta-
stofunni i morg-
un segir að takist
fyrirtækjunum
tveimur að finna
meðferð eða
lækningu við
sjúkdómum þess-
um geti það haft í
fór með sér byltingu í heilsugæslu.
Fjórði hver fullorðinn Evrópubúi
eða Bandaríkjamaður er of þungur
og börnin verða sífellt þyngri, að
því er segir í yfirlýsingu ÍE og
Roche. Kvíðaraskanir eru algeng-
Uppgötvun
Tilkynnt var um nýja uppgötvun
starfsmanna ÍE snemma í morgun.
ustu geðrænu kvillarnir sem hrjá
íbúa iðnvæddu ríkjanna.
Þessar nýjustu uppgötvanir þýða
að ÍE á rétt á tímamótagreiðslum
frá Roche.
„Þetta er stórt skref,“ sagði Páll
Magnússon, framkvæmdastjóri
samskipta- og upplýsingasviðs ís-
lenskrar erfðagreiningar, við DV í
morgun. „Það markar þau tímamót
að nú verður farið að leita að lyfjum
á grundvelli þessara uppgötvana.
Það ferli er tímafrekt, en samkvæmt
þumalputtareglunni tekur það í
kringum tíu ár frá grundvallarupp-
götvunum á borð við þessar þar til
komin eru lyf í hillurnar í apótek-
unum. Þetta er fyrsta ákveðna
skrefið á töluvert langri leið.“
-gb/-JSS
Mikið um þjófnað:
Stálu málverki
á veitingahúsi
Lögregla veitti á laugardag athygli
tveimur mönnum sem gengu eftir
Hafnarstræti með málverk á milli
sín. Þegar þeir urðu lögreglu varir
tóku þeir á rás en annar þeirra náðist
skömmu síðar. Málverkinu höfðu
mennirnir stolið á veitingahúsi og í
ofanálag hlaupið frá ógreiddum
reikningi. Sá sem var handtekinn var
vistaður í fangageymslu.
Mikið var innbrot og þjófnaði um
helgina og hafði lögreglu verið til-
kynnt um 22 atvik í gær. Brotist var í
tvígang inn í sama fyrirtækið í mið-
borginni um helgina og stolið tölvum
og tækjabúnaði. Þá voru þrír hand-
teknir við innbrotstilraunir í Grafar-
vogi og þekktur brotamaður náðist
eftir innbrot I söluturn í Mosfellsbæ
aðfaranótt sunnudagsins. -aþ
Flugvallarsmyglið :
Enginn
handtekinn
- hugsanlega burðardýr
Enginn hefúr verið handtekinn hér-
lendis í tengslum við hasssmyglið á
Reykjavikurílugvelli um helgina. Þá
stöðvaði tollgæslan danskan karlmann
sem var að koma ffá Færeyjum og
fundust rúm fjögur kiló af hassi á hon-
um innanklæða. Maðurinn situr nú í
fangelsi en Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi hann i þriggja vikna gæslu-
varðhald meöan á rannsókn málsins
stendur.
Magn fikniefnanna er of mikið til
þess að geta talist til eigin nota. Því
hafa vaknað spumingar um hvort
maðurinn hafi verið burðardýr.
Fíkniefnalögreglan verst allra
fregna af rannsókninni og því hvort
maðurinn hafi verið í sambandi við
eiturlyfjasala hérlendis. Óalgengt er að
menn séu teknir með svo mikið magn
fikniefna á Reykjavíkurflugvelli en
götuvirði hassins nemur að líkindum
rúmum átta milljónum króna. -aþ
Veggi akrotarar:
Náöust á hlaupum
Lögreglumenn í Kópavogi hlupu
uppi þrjá menn um tvitugt sem höfðu
úðað málningu á glænýtt strætóskýli
í bænum. Þegar lögregla hafði náð
mönnunum kom i ljós að þeir voru
með 27 úðabrúsa meðferðis og höfðu
unnið stórfelldar skemmdir á skýl-
inu. Að sögn lögreglu hafa sömu
menn áður komiö við sögu lögreglu í
Kópavogi vegna svipaðra mála. Þeir
eiga yfir höfði sér að þurfa að greiða
háar bótagreiðslur vegna tjónsins
sem þeir ollu. -aþ
Reiöir sjómenn
Yfír áttatíu sjómenn mættu reiðir til fundar í gærkvöld. Hér má sjá þingmennina Karl V. Matthíasson, alþingismann
Samfylkingar, og Kristján Pálsson, þingmann Sjálfstæöisflokks, í hópi fundarmanna.
Smábátamenn í kreppu funda í Sandgerði:
Alþingi veldur landlegu
- segir formaður smábátafélagsins
Rúmlega áttatíu smábátamenn
mættu til fundar í Vitanum í Sand-
gerði í gær. Fundarefnið var kvóta-
setning smábáta á þorskaflahámarki
þar sem allar helstu fisktegundir eru
nú komnar undir kvóta í stað þess að
áður var það þorskurinn einn. Gunn-
ar Ari Harðarson, formaður smábáta-
félagsins Reykjaness, segir sjómönn-
um og landverkafólki vera mikið
niðri fyrir vegna laga sjávarútvegs-
ráðherra sem gildi tóku þann fyrsta
september.
„Menn eru ákaflega reiðir og
svekktir og það kom skýrt fram á
fundinum," segir Gunnar Ari.
Hann segir stóran hluta þeirra
smábáta sem áður voru á þorskafla-
hámarki vera bundinn í höfn vegna
laganna. Engin leið sé til þess að róa
án þess að eiga kvóta á löngu, stein-
bít, ýsu og keilu.
„Við megum ekki koma með keilu
og löngu að landi. Þessi fiskur hefur
komið á línuna frá því veiðar hófust
og því verður ekki breytt. Okkur er
sagt að þessu verði breytt þegar Al-
þingi kemur saman en þangað til eig-
um við að liggja í landi. Á meðan eru
þeir og auðvitað landverkafólkið
tekjulaust. Hér er mikO óánægja,"
segir Gunnar Ari.
Hann segir að þingmönnum og
sjávarútvegsráðherra hafi verið boðið
á fundinn. Aðeins Kristján Pálsson al-
þingismaður hafi mætt frá stjómar-
liöum. Sjávarútvegsráðherra hafi
ekki þekkst boð um að mæta.
„Kristján sagði að lögunum yrði
ábyggilega breytt þegar þingið kemur
saman. Þangað til ligggur hluti flot-
ans bundinn," segir hann.
Hann segir einu leiðina til aö leið-
rétta kjör smábátamanna og land-
verkafólks vera þá að taka aftur upp
gamla þorskaflahámarkið þar sem
frjáls sókn er í aðrar tegundir en
þorsk. -rt
Eftirgrennslan lögreglu eftir Sahari Jakobssyni hafin:
Feðgarnir enn í felum
- faðirinn gæti átt yfir höfði sér fangavist
Enn hefur ekkert spurst til
feðganna Saharis og Jakobs Páls Jó-
hannssonar. Þeir fóru í felur á
fostudagsmorgun, nokkrum klukku-
stundum áður en Jakob Páll átti að
afhenda Sahari móður sinni í
Frakklandi.
í gærmorgun fór fulltrúi sýslu-
manns i Hafnarfirði ásamt lögreglu-
mönnum, lögmanni móðurinnar og
fulltrúa barnaverndarnefndar að
heimili Jakobs Páls við Stekkjar-
hvamm í Hafnarfirði. Um svokall-
aða innsetningu var að ræöa en
ekki formlega húsleit. Feðgarnir
Sahare Jakobsson.
voru ekki heima og hófst formleg
eftirgrennslan lögreglu í kjölfarið.
Talið er liklegt að Jakob Páll
hyggist vera í felum með son sinn
þar til hæstiréttur fellir úrskurð í
málinu. Jakob Páll er um leið að
brjóta gegn úrskurði héraðsdóms og
kann að vera að brjóta gegn 193.
grein hegningarlaganna þar sem
segir að hver sá er sviptir foreldra
eða aðra rétta aðila valdi eða umsjá
yfir barni skuli sæta sektum, varð-
haldi eða fangelsi allt 16 árum eða
ævilangt.
Hörður Felix Harðarson, lögmað-
ur Saharis, sagði í samtali viö DV í
morgun að hann hefði engar fregnir
af dvalarstað feðganna. -aþ
Þingmaður hagnast
Þrír aldraðir bræð-
ur sem lengi höfðu
stundað búskap á rík-
isjörðinni Uppsölum í
Hvolhreppi nýttu sér
kauprétt ábúenda
samkvæmt 38. gr.
jarðalaga sl. haust.
Tveimur mánuðum
síðar keypti ísólfur Gylfi Pálmason,
þingmaður og fyrrum sveitarstjóri í
hreppnum, af þeim jörðina, rúmlega 100
hektara, ásamt öllum húsum sem henni
fylgja fyrir fjórar milljónir króna. Fast-
eignasalar telja það gjafverð. - Frétta-
blaðið greindi frá.
Reykvíkingar eiga nteira
Hreinar eignir hjóna í Reykjavík
voru að jafnaði 4,4 milljónum króna
hærri en hjóna á Norðurlandi eystra
um síðustu áramót, samkvæmt skatt-
skýrslum. Hjón í Reykjavík áttu að
meðaltali 10,2 milljónir króna en hjón
á Norðurlandi eystra áttu 5,8 milljónir
í hreina eign. Þetta kemur fram í út-
reikningum ríkisskattstjóra.
Varnarliðið fær verðlaun
Flotastöð Vamarliðsins á Keflavikur-
flugvelli vann nýlega til verðlauna
bandaríska flotamálaráðuneytisins fyrir
frábæran árangur í vinnuvemd annað
árið i röð. - Víkurfréttir greindu frá.
Skilyrt sala
íslensk stjómvöld setja ákveðin skil-
yröi fyrir þá fjárfesta sem vilja bjóða í
fjórðungshlut ríkisins í Landssíma is-
lands. í auglýsingu í Financial Times
fra 10. júlí sl. segir að kaupendur
hlutafjárins verði að tengjast fyrirtæki
sem hefur eina milljón áskrifenda á
fjarskiptamai'kaðnum samanlagt á bak
við sig.
Biðin til tjóns
Því miður hafa
H flestir íslenskir
8 stjómmálamenn
í ___1 hingað til sagt að að-
1 ild sé ekki tímabær,"
L Jm sagði Vilmundur Jós-
Hk - B| efsson, formaöur
W Samtaka iðnaðarins,
^™ þegar hann fjallaði
um mögulega ESB-aðild á ráðstefhu Is-
landssamtakanna í gær. „Við teljum
hins vegar að nóg sé komiö af biðinni."
- Fréttablaðið greindi frá.
VGfundar
Vinstrihreyfingin grænt framboð í
Reykjavík heldur félagsfúnd á fimmtu-
dagskvöld þar sem metin verður ár-
angur af viðræðum við fulltrúa Sam-
fylkingar og Framsóknarflokks um
sameiginlegt framboð fyrir borgar-
stjómcirkosningamar næsta vor.
Gjaldeyristekjur aukast
Gjaldeyristekjur af erlendum ferða-
mönnum vom 14.300 milljónir króna á
fyrri helmingi ársins, 3 milljörðum
króna hærri en á sama tíma í fyrra. -
RÚV greindi frá.
íslensk friöargæsla
Islenska friðargæslan tók til starfa í
gær. Á næstunni mun utanríkisráðu-
neytið auglýsa eftir friðargæsluliðum
til starfa úr ýmsum starfsstéttum.
Starfsmenn munu halda þeim launa-
kjörum sem þeir njóta hér á landi og fá
auk þess þóknun vegna álags og fjar-
vem frá fjölskyldu og heimahögum.
Haldið til haga
IDV í gær var frétt
á baksíðu um hugsan-
legt framboð Vinstri
grænna á Akureyri.
Er þar m.a. talað um
Sigríði Stefánsdóttur
sem atkvæðamikla í
pólitík í bænum.
Þessi mynd sem birt-
ist með fréttinni er hins vegar af nööiu
hennar, Sigríði Stefánsdóttur sem leiðir
viðræður VG í Reykjavík. -HKr.