Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
7
DV
Fréttir
Menntamálaráðherra um úttekt á kennaraverkfallinu:
Dvelur ekki við
fortíðina
- sér ekki ástæðu til að ríkið skoði afleiðingar verkfallsins
Björn Bjarnason menntamálaráö-
herra tekur ekki undir hugmyndir
um að ríkið láti gera ítarlega rann-
sókn á afleiðingum kennaraverk-
falls sl. vetur. Eins og fram hefur
komið telur rektor MR að skólastarf
hafi skaðast þar sem brotthvörf og
fall nemenda voru í sögulegu há-
marki. Elna Katrín Jónsdóttir, for-
maður Félags framhaldsskólakenn-
ara, hefur lýst þeirri skoðun í DV að
æskilegt væri að ríkið skoðaði mál-
ið með vísindalegum hætti.
„Ég tel mikilvægast í þessu máli
að líta fram á veginn og skapa skól-
unum sem best skilyrði til að starfa
Björn Elna Katrín
Bjarnason. Jónsdóttir.
í samræmi við nýja kjarasamninga
og þær kröfur sem til þeirra eru
gerðar samkvæmt námskrám. Ef
forysta kennarasamtakanna telur
nauðsynlegt að dvelja við fortíðina í
þessu efni hefur hún vafalaust fulla
burði til að stunda slíkar athugan-
ir,“ sagði Björn Bjarnason í samtali
við DV.
Samtök kennara hafa ekki fjallaö
um málið með formlegum hætti þótt
Elna Katrín hafl lýst þessari skoðun
sinni. Þá er ekki einhlítt að brott-
hvarf eða fall sé meira en í meðalári
hjá sumum framhaldsskólum og
segir Elna Katrín að afleiðingarnar
séu í heild óljósar. Rektor MR hefur
lýst sig fylgjandi athugun á þessu
máli en bendir á að framkvæmd
slíks kunni að vera snúin. -BÞ
Akureyri:
Bærinn styrkir Eina með öllu
Atvinnumálanefnd Akureyrar-
bæjar mun á næstunni ganga frá
fjárstuðningi til þeirra aðila sem
stóðu fyrir hátíðinni Ein með öllu
sem haldin var í höfuðstað Norður-
lands um verslunarmannahelgina.
Að sögn Vals Knútssonar, formanns
nefndarinnar, er nú beðið eftir upp-
gjöri á peningahlið hátíðarinnar. Að
því fengnu mun nefndin útdeila
þeim styrk sem forsvarsmenn hátíð-
arinnar á fyrri stigum höfðu raunar
fengið ádrátt um.
Valur segir að styrkurinn gæti
numið um hálfri milljón króna.
Það var kynningarþjónustan
Fremri á Akureyri sem stóð að
skipulagningu Einnar með öllu.
Valur segir ljóst að tap verði ekki af
hátíðinni. Ljóst sé þó að styrkur frá
bænum verði kærkominn til þess að
stoppa í gat vegna ýmissa reikninga
sem ógreiddir séu enn þá, svo sem
vegna auglýsinga, skemmtikrafta og
fleira.
-sbs
Ein meö öllu
Taliö er aö ekki veröi tap á hátíöinni.
HJ0LAB0RÐ
FRCOm
MEB SKUFFUM
www.isol.is
F4coA?-Plastbakkar
fyrir öll verkfæri
□ruggur staður fyrir
FACOM verkfærin,
og allt á
sfnum stað!
Ármúli 17, UJB Reykjavík
síml: 533 1334 fax: 5EB 0493
..það sem
fagmaðurinn
notar!
Smáauglýsingar
bækur, fyrfrtæki, heildsafa, hljóðfæri,
Internet, matsölustaðir, skemmtanir,
tónlist, tölvur, verslun, veröbréf,
vélar-verkfæri, útgeröarvörur,
iandbúnaöur... markaðstorgið
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VISIF.IS
550 5000
london á 12.000 kr.
Lesendum DV býðst einstakt tækifæri á ferð til London með lágfargjaldaflugfélaginu Go.
Fargjaldið kostar aðeins 12.000 krónur báðar leiðir með sköttum.
Safnið merkjum
Það sem lesendur þurfa að gera er að
safna 4 sérstökum Go merkimiðum
sem birtast í blaðinu dagana 11. til 14.
sept. Hægt er að bóka flug 10. til 18.
sept. Tilboðið gildir fyrir flug á tímabilinu
15. septembertil 26. október.
Go flýgurtil London alla daga vikunnar.
Hvernig á að bóka flug
Farðu á heimasíðu Go á slóðina www.go-fly.com. Undir „what s new" er
krækjan „offers" og þar er DV-tilboðið. Sláðu inn aðgangsorðið london
og bókaðu flug.
Við innritun í Leifsstöð þarf að sýna öll 4 Go merkin sem birtast
í DV dagana 11. sept. til 14. sept. til staðfestingar á tilboði.
go
Ef ekki eru laus tilboðssæti þann dag sem þú óskar mælum við með
að þú hafir nokkurn sveigjanleika í vali á ferðadögum.
Góða ferð með Go og DV!
ódýri ferðamátinn til london
Samkvæmt skilmálum - 350 kr. kostnaður v/greiðslukorts Flogið er til Standstedflugvallar í London
Skilmálar
Lágmarksdvöl 2 nætur.
Ekki er hægt að breyta
bókuðu flugi eða fá það
endurgreitt.
Merkin gilda fyrir 2 sæti.
Heimferðerfyrir
26. október.