Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
Útlönd
DV
Kosningaúrslitum mótmælt
Stjórnarandstædingar í Hvíta-Rúss-
landi komu saman í Minsk til að
mótmæla úrslitum forsetakosninga.
Lúkasjenkó boð-
ar óbreytt ástand
í Hvíta-Rússlandi
Alexander Lúkasjenkó, sem var
endurkjörinn forseti Hvíta-Rúss-
lands á sunnudag, sagði í gær að
ekki yrðu gerðar miklar breytingar
á stjóm landsins, þar sem enn er í
gildi verðlagseftirlit í anda Sovét-
ríkjanna og þar sem öryggislögregl-
an er stolt af því að heita KGB.
„Ekki verða neinar róttækar
breytingar á öðru kjörtímabili
mínu. Við munum bæta lífskjör al-
þýðunnar," sagöi Lúkasjenkó.
Helsti keppinautur Lúkasjenkós
sakaði stjórnvöld um að hafa viö-
haft stórfelld kosningasvik og Ör-
yggis- og samvinnustofnun Evrópu
sagði að kosningarnar hefðu ekki
verið lýðræðislegar. Samkvæmt op-
inberum tölum fékk Lúkasjenkó
75,6 prósent greiddra atkvæða.
Léleg heilsu-
gæsla veröur
börnum að bana
Á hverri mínútu deyja átta böm,
sem ekki hafa náð eins mánaðar
aldri, einhvers staðar í heiminum
vegna ónógrar heilsugæslu. Þetta
kemur fram í skýrslu sem samtökin
Björgum börnunum sendi frá sér í
gær.
Samtökin hvöttu stjómvöld til að
auðvelda aðgang ungbama að bólu-
setningu, stuðla að aukinni brjósta-
gjöf og til að sjá fyrir grundvallar-
heilsugæslu.
Tekist hefur að draga úr ung-
bamadauða um fjórtán prósent síð-
astliðin tíu ár. Engu að síður er
hann svimandi hár, að mati Charles
MacCormacks, forseta góðgerðar-
samtakanna.
Joseph Ferguson
Gekk berserksgang í Kaliforníu og
varö fimm að bana áður en yfir lauk.
Svipti sig lifi eft-
ir morð á fimm
Öryggisvörður í Kaliforníu, sem
grunaður er um að hafa myrt fimm
manns um helgina, svipti sig lifi í
gærmorgun eftir skotbardaga við
lögregluna. Tveir menn særðust í
bardaganum.
Lögreglan sagði að öryggisvörð-
urinn, hinn tvítugi Joseph Fergu-
son, hefði verið rekinn úr starfl
sínu í síðustu viku eftir að hann
vann skemmdir á bifreið fyrmm
unnustu sinnar. Stúlkan hafði ný-
lega slitið sambandi þeirra.
Ástralska flóttamannamálið fyrir dóm:
Brottrekstur flóttamann-
anna dæmdur ólöglegur
Móttaka afgangskra fióttamanna á Nauru undirbúin
Undirbúningur áströlsku ríkisstjórnarinnar fyrir móttöku
afgönsku flóttamannanna á eyjunni Nauru gæti verið unnin
fyrir gýg, samkvæmt nýrri niðurstöðu átralsks dómstóls.
Ástralskur dómstóll hef-
ur úrskurðað að áströlsk
stjórnvöld hefðu átt að
veita afgönsku flóttamönn-
unum, sem norska flutn-
ingaskipið Tampa bjargaði
af sökkvandi smyglarabáti
undan ströndum Indónesíu,
leyfl til að ganga á land í
Ástralíu.
Niðurstaða dómarans,
Tony North, var að ríkis-
stjórnin hefði ólöglega vís-
að flóttamönnunum á dyr
og var það samkvæmt áður
fram komnum ábendingum
ástralskra lögspekinga. Þar
sem rikisstjórnin hefði sent
hermenn um borð í flutn-
ingaskipið til að hindra að
flóttafólkiö gæti synt til
lands og síðan flutt það um
borð í ástralskt herskip, þá væri það
þar með komið undir ástralska lög-
sögu og ætti því fullan rétt á að leita
réttar síns samkvæmt áströlskum lög-
um. Lögfræðilegir ráðunautar ríkis-
stjórnarinnar segja hins vegar að
flóttamennirnir hafi fyrirgert þeim
rétti þegar þeir neyddu skipstjóra
flutningaskipsins til að sigla til Ástr-
alíu en ekki til Indónesíu sem var
nær.
Ástralska ríkisstjórnin
hafði þegar ákveðið að
áfrýja dómnum yrði hann
henni í óhag, en að sögn
talsmanns Daryl Williams,
dómsmálaráðherra Ástral-
íu, hefur ekki enn verið
ákveðið hvenær áfrýjunin
verður lögð fram, en North
dómari gaf ríkisstjórninni
frest til föstudags til að
framfylgja dómnum nema
um áfrýjun verði að ræða.
„Ríkisstjórnin er enn að
fara yfir niðurstöðu dóms-
ins og mun væntanlega taka
ákvörðun um það í dag,“
sagði talsmaðurinn.
Afgönsku flóttamennirn-
ir, 433 að tölu, eru nú á leið
með ástralska herskipinu
til Papúa Nýju-Gíneu, en það átti að
flytja um 100 þeirra til Nýja-Sjálands
og restina til smáríkisins Nauru í
Kyrrahafí, sem mun vera fámennasta
lýðveldi heims.
Barist á móti veðrinu
Fellibylurinn Danas varð fimm manns aö bana þegar hann fóryfirJapan I morgun. Aö minnsta kosti tveggja manna er
saknað. Þessi mynd var tekin í japönsku höfuöborginni Tokyo í morgun þar sem vegfarendur áttu fullt í fangi með að
hemja regnhlífar sinar. Einhverjar skemmdir urðu í Tokyo af völdum veðurhamsins.
ísraelskir skriðdrekar á faraldsfæti í nótt:
Umkringdu palestinskan bæ til
að afstýra sjálfsmorðsárásum
ísraelskir skriðdrekar um-
kringdu palestínsku borgina Jenin
á Vesturbakkanum í nótt til að
koma í veg fyrir frekari sjálfs-
morðsárásir á ísrael, að því er ísra-
elski herinn sagði í morgun.
Fjórir Palestínumenn að minnsta
kosti særðust í skothríð ísraela í
tengslum við aðgerðimar sem fóru
fram í skjóli myrkurs.
Á öðrum vígstöðvum urðu palest-
ínskir byssumenn tveimur israelsk-
um landamæravörðum að bana,
ekki langt frá Vesturbakkabænum
Tulkarm.
ísraelski herinn greip til aðgerð-
anna gegn Jenin, borg sem ráða-
menn kalla „hreiður hryðjuverka-
manna“, tveimur dögum eftir aö
ísraelskur arabi varð sjálfum sér og
þremur ísraelum að bana í bænum
Nahariya í norðanverðu ísrael.
Félagi syrgöur
ísraelskir hermenn syrgja félaga
sinn sem fórst í sjálfsmorðsárás í
bænum Nahariya á sunnudag.
Ekki var ljóst í morgun hver
áhrif aðgerðanna í nótt yrðu á
áform um að halda fund milli Yass-
ers Arafats, forseta Palestínu-
manna, og Shimonar Peresar, utan-
rikisráðherra ísraels.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, sendi frá sér yfirlýsingu þar
sem hann sagði að árásin í Nahari-
ya hefði verið gerð „undir leiðsögn
hryðjuverkamanna frá Jenin“.
Úr hátölurum á tumum bæna-
húsa í Jenin mátti í morgun heyra
ákall til íbúanna um að bjóða ísra-
elska herliðinu birginn. ísraelar
fóru ekki inn í borgina, að sögn
sjónarvotta, heldur tóku sér stöðu
við útjaðar hennar og í nærliggj-
andi flóttamannabúðum.
íbúarnir sögðu að rafmagn hefði
farið af borginni skömmu eftir að
ísraelsku skriðdrekarnir komu.
Scharping neitar að fara
Rudolf Scharp-
ing, ástsjúkur land-
varnaráðherra
Þýskalands, sagðist
í gær ekki ætla að
segja af sér emb-
ætti, þrátt fyrir
ásakanir um að
hann hafi notað
flugvélar hersins til að fara á fund
ástkonu sinnar. Á fundi með sér-
stakri rannsóknamefnd þingsins
sagðist Scharping hafa farið að sett-
um reglum.
Þrýstir á aðild að NATO
Valdas Adamkus, forseti Lithá-
ens, þrýsti i gær á um inngöngu
landsins í NATO og sagði umsókn-
ina ekki beinast gegn Rússum.
Mannfall í Nígeríu
Tugir manna hafa látist í átökum
hópa kristinna og múslíma í tveim-
ur borgum Nígeríu síðustu daga.
Leiðtogar ræða Simbabve
Leiðtogar ríkja í sunnanverðri
Afríku halda í dag áfram að ræða
leiðir til að leysa jarðadeilur í
Simbabve. Stuðningsmenn Mugabes
forseti lýstu því yfir í gær að þeir
myndu halda áfram að leggja undir
sig jarðir hvítra bænda á meðan
ekkert réttlæti ríkti, eins og það var
orðað.
Létust eftir landadrykkju
Lögreglan í Eistlandi hefur hand-
tekið fjóra menn eftir að tuttugu og
fjórir létust eftir að hafa drukkið
landa sem gerður var úr tréspíra.
Þrjátíu og sjö liggja þungt haldnir á
sjúkrahúsi.
Varinn gegn vilja sínum
Lögmenn sem
stríðsglæpadóm-
stóll Sameinuðu
þjóðanna hefur
skipað til að gæta
hagsmunda Slobod-
ans Milosevics,
fyrrum Júgóslaviu-
forseta, munu í
raun verja hann gegn vilja hans, að
sögn nefndar sem berst fyrir lausn
Milosevics.
Barist við skógarelda
Hundruð slökkviliðsmanna börð-
ust í gær við skógarelda í suðaust-
anverðu Frakklandi í gær og nutu
aðstoðar flugvéla, þyrlna og stór-
virkra vinnuvéla. Tvö gamalmenni
hafa látist af völdum eldsins.
Gagnrýndi geimvarnir
Joseph Biden,
áhrifamaður úr
röðum demókrata í
öldungadeild
Bandaríkjaþings,
gagnrýndi í gær
það ofurkapp sem
Bush forseti setur á
eldflaugavarnakerfi
sitt. Biden sagði að Bandaríkjunum
stafaði meiri hætta af sýklavopni
sem kæmi með skipi eða i ferða-
tösku en af langdrægum eldflaug-
Óvissa um örlög Masoods
Enn er allt á huldu um örlög af-
ganska skæruliðaforingjans
Ahmads Shahs Masoods. Nánir
bandamenn hans segja að hann hafl
sloppið lifandi frá sjálfsmorðsárás á
sunnudag en vestrænir embættis-
menn segja að hann hafl látist.