Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Page 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
4 Tilvera
I>V
Verðmætasta auðlind 21. aldarinnar:
Norður-Þingeyj arsýsla skartaði
sínu fegursta fyrir forsetann
Tveggja daga opinber heimsókn
forseta íslands í Norður-Þingeyjar-
sýslu hófst í gærmorgun þegar odd-
vitar og sveitarstjórar á svæðinu
tóku á móti forsetanum, heitkonu
hans Dorrit Moussaieff og fylgdar-
liði við svokallaða Imbuþúfu á Tjör-
nesi, skammt frá sýslumörkum Suð-
> ur- og Noröur-Þingeyjarsýslu. í mót-
tökunefndinni voru Guöný Bjöms-
dóttir, oddviti Kelduneshrepps,
Rúnar Þórarinsson, oddviti Öxar-
íjarðarhrepps, Reynir Þorsteinsson,
sveitarstj ór i Raufarhafnarhrepps,
Jóhannes Sigfússon, oddviti Sval-
i barðshrepps, og Magnús Már Þor-
■, valdsson, sveitarstjóri Þórshafnar-
hrepps.
Eftir að hafa virt fyrir sér ægifag-
urst útsýnið yfir Kelduhverfi og Öx-
arfjörð var farið í Skúlagarð í
Kelduhverfi og snæddur glæsilegur
morgunverður með íbúum hrepps-
ins sem fjölmenntu á staðinn. Guð-
ný oddviti afhenti forseta góða gjöf,
krukku af býflugnahunangi sem er i
V tilraunaframleiðslu hjá Friðgeiri
I Þorgeirssyni og Ingveldi Ámadótt-
\ ur á Hraunbrún. Ólafur þakkaði
gjöfina og sagði hana táknræna fyr-
ir þann nýsköpunarkraft sem býr í
íslenskum landbúnaði og um leið
1
Að morgni
Boð/'ð var upp á glæsilegan morgunverö í Skúlagaröi, félagsheimilinu sem
dregur nafn sitt af Skúla fógeta, fööur Reykjavíkur.
Forsetinn og Dorrit
Þaö er ægifagurt viö tjörnina í botni Ásbyrgis og allir sem þangaö koma
hljóta aö hrífast og þaö geröu þau Ólafur Ragnar og Dorrit.
hæfileika íslenskra bænda til að
koma þjóðinni stöðugt á óvart. Ólaf-
ur taldi að það myndi fljótt klárast
úr krukkunni á Bessastöðum því
Dorrit fengi sér ævinlega íslenskt
skyr með hunangi i morgunmat.
Sungfð fyrir forseta
Forsetinn ávarpaði gesti og blés
mönnum bjartsýni í brjóst. Hann
sagði að vissulega hefði verið á
brattann að sækja í hefðbundnum
atvinnuvegum islendinga. „En þró-
unin í veröldinni hefur verið með
þeim hætti að þau gæði sem þið
búið við hér á þessu svæði, hin
mikla víðátta, óspillt náttúra og
matvælaframleiðsla í hæsta gæða-
flokki, verður kannski ein verð-
mætasta auðlind 21. aldarinnar."
Dagskráin var þétt í forsetaheim-
sókninni. Frá Skúlagarði var haldið
f Ásbyrgi og gengið þar um undir
leiðsögn Kára Kristjánssonar þjóð-
garðsvarðar og þar söng einnig
kvartett fyrir forseta og fylgdarlið,
einkar fagurlega, enda hljómburður
á heimsmælikvarða. Úr Ásbyrgi lá
leiðin í Öxarfjarðarhrepp og að
Dettifossi, þar sem boðið var fjöl-
breytt gómsæti frá Fjallalambi hf.
Leiðin lá svo úr Öxarfjarðarskóla í
Lund þar sem börnin voru í aðal-
hutverki og sungu og léku fyrir
gesti.
Atvinnufyrirtæki skoöuö
Fiskeldisfyrirtækið Silfurstjarn-
an, Fjallalamb og Bóka- og byggða-
safn Norður-Þingeyjarsýslu voru
skoðuð og siðan var móttaka fyrir
gesti á vegum Öxarfjarðarhrepps á
Kópaskeri. Þá var haldið til Raufar-
hafnar þar sem gestum var boðið til
kvöldverðar á Hótel Norðurljósum
og dagskránni lauk svo með fjöl-
skyldusamkomu í Hnitbjörgum á
Raufarhöfn og var dagskrá fjöl-
breytt og menningarleg í besta lagi.
Sýslan skartaði sínu fegursta
þennan fyrri dag heimsóknarinnar,
gestir fengu að kynnast öllu því
besta sem í boði var á svæðinu,
veðrið var til eftirbreytni og mót-
tökur heimamanna hlýlegar og
höfðinglegar.
í dag liggur leiðin svo í fyrirtæki
á Raufarhöfn og síðan verður hald-
ið í Svalbarðshrepp og Þórshafnar-
hrepp og forsetaheimsókninni lýkur
svo með fjölskylduhátíð í félags-
heimilinu Þórsveri á Þórshöfn í
kvöld.
-JS
Dorrit Moussaieff
Dorrit þurfti mikiö aö spjalla viö ungviöiö.