Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2001, Blaðsíða 4
4
Fréttir
MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2001
DV
Dökkir tímar í barraeldi Máka í Fljótum:
Bandaríkjamarkaður lok-
aðist eftir hryðjuverkin
Slæmar markaðsaöstæður hafa
sett verulegt strik i reikninginn hjá
fiskeldisfyrirtækinu Máka i Fljótum
og á Sauðárkróki. Að sögn Guð-
mundar Arnar Ingólfssonar fram-
kvæmdastjóra eru markaðarnir
nánast lokaðir og stöðin full af fiski.
Evrópumarkaðurinn hefur legið
gjörsamlega niðri um nokkurt skeið
en Bandaríkjamarkaður leit ágæt-
lega út þar til hryðjuverkin miklu
voru unnin 11. september, „þá
breyttist heimurinn eins og hendi
væri veifað og menn kipptu að sér
höndum“, segir Guðmundur Örn í
samtali við DV.
Guðmundur segir að þeir Máka-
menn séu að reyna að byggja upp
sölu barrans, hlýsjávarfisksins, sem
alinn er hjá Máka, og þetta virðist
ætla að koma smám saman
en það dugi samt skammt að
losna við 500 kíló á viku þeg-
ar vikusalan þurfi að vera
þrjú tonn. Það gefi augaleið
að þegar fyrirtæki losni ekki
við afurðina stöövist fram-
leiðslan.
„Það hefur ekki verið
svona erfitt á markaðnum
lengi, allt er okkur andsnúið
núna eftir nokkum meðbyr
undanfarin ár. Það eru ekki bara
markaðsmálin heldur líka innan-
landsmálin, peningamarkaðurinn
og fjármögnunarmálin sem valda
erfiðleikum,“ segir Guðmundur en
ekkert útlit er í dag fyrir að á næst-
unni verði ráðist í næsta áfanga
uppbyggingar Máka, Máka III á
matfiskeldinu við Hraun í
Fljótum.
Guðmundur Örn segir
að verð á Evrópumarkaðn-
um séu nánast í sögulegu
lágmarki núna, laxinn t.d.
kominn niður i 160-70
krónur. Bandaríkjamark-
aðurinn gefi meira, 6-800
krónur, og þeim Máka-
mönnum hafi verið ráðlagt
að bíða fram á haustið eft-
ir ákveðnum aðstæðum á markaðn-
um. Nokkrar sendingar voru farnar
til Bandaríkjanna, tonn á viku, og
framhaldið leit ágætlega út þar til
hryðjuverkin voru unnin. Þegar
markaðurinn lokaðist allt í einu
fóru Mákamenn sjálfir að vinna í
markaðsmálunum en þrjú markaðs-
fyrirtæki hafa unnið að þeim. Guð-
mundur Örn segist nú vera frá
morgni til kvölds að berjast í mark-
aðsmálunum og það þýði ekki ann-
að en vera bjartsýnn á að úr rætist
á næstunni, allavega gera sitt besta
í því.
Áætlanir gerðu ráð fyrir að
Mákastöðin myndi framleiða 70
tonn af barra á þessu ári en ekki er
útlit fyrir að þær áætlanir standist.
Máki hefur verið í fylkingarbrjósti
meðal íslenskra fiskeldisstöðva með
eldi í lokuðu rými við svokallað
endumýtingarkefi, þar sem heita
vatnið er margnýtt. Mjög fullkomin
eldisstöð hefur verið byggð með
þessari tækni í fyrrum seiðaeldis-
stöð Miklalax á Lambanesreykjum í
Fljótum. -ÞÁ
Guðmundur Örn
Ingólfsson.
Byggðastofnun:
Aldrei meiri
fjárþörf
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að
veita Byggðastofnun 300 milljóna
króna aukalegt fjárframlag til lán-
veitinga á þessu ári. Þetta staðfesti
Valgerður Sverrisdóttir ráðherra í
samtali við DV en eins og kunnugt
er hefur stofnunin ekki haft neitt fé
aflögu síðan í sumar. Valgerður seg-
ir að síðastliðin ár hafi fjárveitingar
til stofnunarinnar þó aukist veru-
lega en þörfin sé óvenjumikil. „Það
hafa ekki borist áður jafnmargar
umsóknir um lánveitingar og
núna,“ segir ráðherra. -BÞ
Vesturlandsvegur:
Dottaði
undir stýri
Ökumenn og farþegar tveggja fólks-
bíla sluppu með minni háttar meiðsl
úr hörðum árekstri sem varð á Vestur-
landsvegi, nærri Grundartanga, síð-
degis í gær. Talið er að ökumaður bíls-
ins sem kom að sunnan hafi dottað og
farið inn á rangan vegarhelming, í veg
fyrir bíi sem kom úr norðurátt. Femt
var í öðrum bílnum og tvennt í hinum.
Ökumennimir og einn farþegi vora
færðir undir læknishendur á Akranesi
en fengu að fara heim eftir skoöun. Bíl-
amir era mikið skemmdir eða jafnvel
ónýtir. Gun.
Fundur hjá RÚV-fólki vegna sparnaðarhugmynda:
Svartsýnismyndir á
starfsmannafundi
— afleiðing af aðstæðum, segir formaður Starfsmannasamtaka RÚV
„Þessar hug-
myndir eru auð-
vitað allra versta
svartsýnismynd-
in sem hægt er
að draga upp,“
segir Jón Ásgeir
Sigurðsson, for-
maður Starfs-
mannasamtaka
Ríkisútvarpsins,
í samtali við DV.
Starfsfólk í Efsta-
leiti kom saman
til fundar fyrir
helgi þar sem
ræddar voru hug-
myndir Markús-
ar Arnar Antons-
sonar útvarps-
stjóra um róttæk-
an sparnað í rekstri stofnunarinnar.
Hugmyndimar fela meðal annars í
sér að útsendingartími Sjónvarps
verði aðeins virka daga frá 18.30 til
22.30 og til miðnættis um helgar, að
tíufréttir Sjónvarps
verði lagðar af, dregið
verði úr sýningum frá
íþróttaviðburðum og
rekstur Rásar 1, texta-
varps og vefs einfaldað-
ur. Þá verði tímabundn-
ir ráðningarsamningar
almennt ekki endumýj-
aðir.
Eftir fyrstu níu mán-
uði ársins er hallarekst-
ur RÚV orðinn alls 238
millj. kr og fyrirsjáan-
legt að hann verði 300 til 400 millj.
kr. á næsta ári ef svo heldur sem
horfir. Jón Ásgeir segir þetta vera
afleiðingu af þeim aðstæðum sem
stofnuninni séu búnar. Afnotagjöld
hafa lítið hækkað á sama tíma og
RÚV hafi í ríkari mæli þurft að fjár-
magna rekstur Sinfóníuhljómsveit-
arinnar, auknar lífeyrisskuldbind-
ingar hafi fallið til og kostnaður við
framleiðslu dagskrárefnis orðið
meiri. Jón vill ekki ekki segja til
Utvarpshúsið vlð Efstaleiti.
um hvað í sparnaðarhugmyndum
útvarpsstjóra mætti helst ganga eft-
ir en segir að öllum sé sárt um sitt.
„Þessar tillögur hafa ekki verið
kynntar mér. Ég segi ekkert um
fjármái RÚV fyrr en nefnd sem ég
fól að fara yfir þau mál hefur skilað
niðurstöðu sinni,“ sagði Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
þegar DV leitaði eftir hans áliti á
sparnaðarhugmyndum útvarps-
stjóra. -sbs
Veörið í kvöld ■ Solnrgangur og sjavarföll
1 <L/
%tl/
S
• 3-°
W
.y 2
!° 2J
o-
2V
é
Hiti kringum frostmark
Norölæg átt, 8-13 m/s, og él um landið
noröanvert en norövestlæg átt, 5-10 m/s
um sunnanvert landiö og skúrir eöa slydduél.
Hiti O til 7 stig á Suöurlandi, en annars hiti í
kringum frostmark.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 17.21
Sólarupprás á morgun 09.04
Síödegisflóó 17.06
Árdegisflóö á morgun 05.24
16.56
08.58
11.39
09.57
Skýringar á veðurtáknum
♦^.VINDATT
'J'SVINDSTYRKUR
I ftnrtnim i wíkfiwlu
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ
‘A',*
RIGNING skúrir
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR
3°, HITI 0° &
*Vrost HEIOSKÍRT
O
SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
w SIYDDA SNJÓKOMA
~h .
SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Veöríö a morgun
pnMCT^/lnll
Hálkan farin aö sýna sig
Nú er veturinn kominn samkvæmt
almanakinu og þótt hann hafi ekki sýnt
á sér klærnar svo nokkru nerini enn þá
er hálku farið aö gæta víöa og
tímabært aö setja vetrardekkin undir.
El noröan- og austanlands
Norðan og noröaustan 8-13 m/s. Él noröan- og austanlands, en annars
skýjað með köflum. Hiti 0 til 5 stig sunnanlands en vægt frost noröan til.
Miðvlkud
Vindur:
6—10 m/s
ÍJrþjj'
Fliumtu
ffiBÖj/
$
Hiti 0° til 41* 0
Breytileg átt og víöa él.
Kólnar lítiö eltt.
Vindur:
5-11 trysi
Hiti 4° tii.
Fostiitlu
Suölæg átt og rigníng
sunnan til en slydda
noröan til. Hlýnar í veöri.
Vindur: J r—' V,
5-9
Hiti 4° til 7°
Suövestanátt og skúrir.
Fremur hlýtt.
Héraðsdómur:
Sekt ffyrir
kaup á þýfi
Karlmaður á fertugsaldri var á
föstudag sakfelldur í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir aö hafa fest kaup
á skjávarpa sem tilheyrði þýfi úr
innbroti í Tækniskólann fyrr á
þessu ári.
Maðurinn neitaði sök fyrir dómi
og í niðurstöðu dómara segir að
ekki sé sannað að hann hafi vitað
hvers kyns var þegar hann keypti
skjávarpann. Hins vegar hafi komið
fram að ákærði átti í samræðum við
bróður sinn eftir kaupin og hann
hafi bent honum á að skjávarpinn
væri hugsanlega stolinn. Ákærði
hafi hins vegar ekkert aðhafst til að
koma skjávarpanum aftur í hendur
réttmætra eigenda og með því hafi
hann gerst sekur um hylmingu.
Skjávarpanum var skilað til Tækni-
skólans.
Maðurinn var dæmdur til
greiðslu sektar að upphæð 40 þús-
und krónur auk þess sem honum er
gert að borga 50 þúsund króna
málsvarnarlaun. Guöjón St. Mart-
einsson héraðsdómari kvað upp
dóminn. -aþ
Frá Landmannalaugum.
Meiddist í 1
Landmanna-
laugum
- björgunarsveit á staðnum
íslensk kona sem var í gönguferð
í Landmannalaugum í gær varö fyr-
ir meiðslum á fæti þar sem hún var
stödd í svokölluðu Grænagili.
Ferðafélagar konunnar vissu aö
björgunarsveitarmenn úr sveitinni
Ársæli úr Reykjavík væru í æfing-
arferð í nágrenninu og leituðu
hjálpar hjá þeim. Þeir brugðust að
vonum vel við, voru með allar
græjur með sér til að binda um fót
konunnar sem ekki gat gengið
vegna verkja. Þeir Ársælsmenn báru
konuna á börum niður úr gilinu og
komu henni niður í skála. Þangað
sótti sjúkrabíll frá Selfossi hana og
flutti til byggða þar sem gert var að
meiðslunum. Þau reyndust sem betur
fór ekki alvarleg. Gun.
1— íúpj/
AKUREYRI snjóél -2
BERGSSTAÐIR snjóél -2
BOLUNGARVÍK úrkoma í gr. 2
EGILSSTAÐIR alskýjaö 0
KIRKJUBÆJARKL. rigning 3
KEFLAVÍK rign. á síö. kls. 8
RAUFARHÖFN alskýjaö 1
REYKJAVÍK rignin 4
STÓRHÖFÐI skúr 7
BERGEN skýjaö 8
HELSINKI skýjaö 11-
KAUPMANNAHÖFN skýjað 13
ÓSLÓ skýjaö 11
STOKKHÓLMUR slydda 9
ÞÓRSHÖFN skúr 8
ÞRÁNDHEIMUR skúr 7
ALGARVE þokumóöa 23
AMSTERDAM léttskýjað 15
BARCELONA mistur 21
BERLÍN skýjaö 13
CHICAGO heiöskírt 1
DUBLIN léttskýjaö 12
HALIFAX léttskýjaö 5
FRANKFURT rigning 13
HAMBORG skúr 14
JAN MAYEN snjóél -5
LONDON skýjaö 13
LÚXEMBORG þokumóða 13
MALLORCA léttskýjaö 25
MONTREAL heiöskírt -2
NARSSARSSUAQ rigning 3
NEWYORK hálfskýjaö 5
ORLANDO skýjað 11
PARÍS skýjaö 17
VÍN þokumóða 9
WASHINGTON léttskýjaö 2
WINNIPEG heiöskírt 1