Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2001, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2001 37 I>V EIR á mánudegi Potter í pósti Um 700 eintök hafa selst af nýjustu Harry Potter-bókinni í forsölu en bókin fer ekki í al- menna sölu fyrr en klukkan 15 á morgun. Bókaverslanir Ey- mundsson hafa séð um forsöluna fyrir bókaút- gáfima Bjart en Harry Potter verður settur í póst í dag og sendur þeim sem tryggt hafa sér eintak í for- sölunni: „Það er alls kyns fólk sem hefur verið að kauþa bókina; börn jafnt sem fullorðnir,“ segir Þorgerður Sig- urðardóttir hjá Eymundsson sem að vonum er ánægð með undir- tektirnar. Ekki er ánægjan minni í höfuðstöðvum Bjarts því ef 700 eintök fara í forsölu má gera ráð fyrir að leiðin á topp metsölulistans verði greið þegar bókin loks fer í almenna sölu. Harry og Ron 700 eintök í forsölu. Tap á Sýn Sjónvarps- stöðin Sýn hefur að und- anfórnu sýnt alla lands- leiki íslend- inga í knatt- spyrnu á úti- velli og at- hygli vekur að leikirnir tapast allir. Starfsmenn KSÍ skilja ekkert í þessu en benda á að úti- leikir séu yfirleitt erfiðari viðfangs en heimaleikir sem Ríkissjónvarpið sýnir. Úrslit í síðustu landsleikjum íslendinga sem sýndir hafa verið á Sýn eru þessi: ísland - Danmörk: 0-6 ísland - N-írland: 0-3 ísland - Tékkland: 0-4 ísland - Búlgaria: 1-2 ísland - Frakkland: 2-3 ísland Rússland: 0-1 Árangur íslenska landsliðsins i knattsymu i beinum útsendingum Ríkissjónvarpsins hefur verið betri. Landsleikir Alltaf tap á sömu stööinni. Kristjana og bíliinn Dúxaöi á ökuprófinu. Sú fyrsta Kristjana Jensdóttir, húsmóðir á Höfn í Hornafirði, er farin að aka leigubíl: „Ég var að leita mér að einhverri aukavinnu og maðurinn minn hvatti mig til að fara í leigubílaaksturinn þannig að ég dreif mig bara í meirapróflð," segir Kristjana sem er þegar farin að aka leigubíl á Höfn. Hún fékk 10 í Ökuskólanum og ekur nú varlega og við góðar undirtektir. Kristjana er fyrsti kvenleigubílstjórinn á Höfn og hafði ekki komið í skóla í 30 ár þegar hún þreytti ökuprófið með þeim glæsibrag sem fyrr greindi. Leiðrétting Vegna myndskreytingar með frétt um styrkleika áfengis og stjórn- málailokka hér að ofan skal tekið fram að tapparnir sem eru á flösk- ununum eru ekki seldir með þeim á útsölustöðum ÁTVR. Fímm ráö fyrir vi BSÍ - matstofan á BSÍ við Hring- braut. Jólamat- Prósentur og pólitík ur á tombólu- verði í hádeg- inu og á kvöld- in. Enda vinsælt hjá kynlegum kvistum sem setja svip á staðinn og eru allir til í að spjalla. Arf- taki Múlakaffis. logandi ljósi í áfengisverslunum til að finna drykk af sama styrkleika. Hjá öðrum flokkum var styrkurinn meira í takt við almennt framboð á áfengi og úr ýmsu að velja. MEGAS - ný bók um Megas er gefin út í tengslum við sýningu í Ný- listasafninu. Myndir, greinar, viðtöl - allir opna sig um Megas. Og sjálfur opnar hann sig um allt - meira að segja Tailandsferðirnar. EPLI - nýju eplin í Bónus. Það er bæði eplabragð og eplalykt af þeim. Góð mið- að við verð og ódýr miðað við gæði. Stjórnmálaflokkar og áfengi eiga það sameiginlegt að mæla styrk sinn í prósentum. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun DV um fylgi flokkanna kemur i - sannur styrkur ljós að styrkur Sjálfstæðisflokksins er þvílíkur að aðeins ein áfengisteg- und í Ríkinu nær sama styrkleika. Frjálslyndi flokkurinn er hins veg- ar svo veikur að leita þurfti með úÁHinm \ wumnu AHUIRUM wm 45,6 % Fylgi Sjálfstæðis- flokksins er af sama styrkleika og Jack Daniels Single Barrel. Hér er um rúgviskí frá Banda- ríkjunum að ræða sem helst er drukk- ið af öflugum karl- mönnum sem vilja ekkert sull. Konum er ráðlagt að halda sig frá drykknum. Leitun er að drykk í áfengisverslunum ríkisins sem er sterkari. Það sama má segja um póli- tíkina. Sjálfstæðis- flokkurinn er lang- sterkastur í pró- sentum talið. 13,0 % Fylgi Fram- sóknarflokksins samsvarar sér vel með Torres Gran Coronas. Hvítvín þeirra sem vita ekki hvaða rauö- vín á að panta. En það svíkur ekki og virkar vel - sérsfaklega á hænuhausa. Torres-hvítvínið á það sameiginlegt með mörgum öðr- um léttvínsteg- undum að vera 13 prósent eins og Framsóknarflokk- urinn. Þetta er miðjuvín eins og flokkurinn. 3,9 % Fylgi Frjálslynda flokksins er svo veikt að ef flokkur- inn væri áfengi þá væri hann nær óá- fengur. Fáar áfeng- istegundir sem í boði eru í áfengis- verslunum ríkisins ná lágum styrk Sverris Hermanns- sonar á félaga. Næst honum kemst Vice ávaxtabjórinn sem er vinsælastur meðal grunnskóla- nema og annarra undir lögaldri. Sæt- ur en ekki bragð- góður. Hálfgert tyggjó í fljótandi formi. 13,5 % La Fiole du Pape er borðvín alþýð- unnar og hentar jafnt með kjöti sem fiski. Þetta er vín sem allir hafa ráð á og allir geta verið sammála um að sé gott. Samt er það bara sæmilegt. Það eldist þó vel eins og 68-kynslóðin og at- hyglisvert er að það hefur sama styrkleika og Sam- fylkingin i síðustu skoðanakönnun. La Fiole höfðar til fjöldans án veru- legra áhrifa. Þökk sé lágum styrk í prósentum. 24,0 % Vinstri grænir ná styrkleika Mali- bu-líkjörsins. Þetta er sætur dömu- drykkur sem nýtur sívaxandi vin- sælda víða um heim og þá sérstak- lega fyrir afger- andi bragð. Malibu hentar sérstaklega vel fyrir þá sem drekka sjaldan og til málamynda. Styrkurinn er hvorki of mikill né lítill heldur mátu- legur. Malibu er drykkur hins ábyggilega sem rat- ar ekki í ævintýri að óþörfu. Baráttukonan Waris Dirie kemur í dag: Nakin hjá Pirelli - samsæti hjá Ingibjörgu Sólrúnu Sðmalska baráttukonan Waris Dirie kemur til landsins í dag en Dirie hefur getið sé heimsfrægð fyrir sýningarstörf og ekki síður fyrir baráttu sína gegn umskurði stúlkubama. Er hún sérlegur sendiherra Sameinuðu þjóðanna i því efni. Dirie mun flytja fyrirlestur í Há- skóla íslands um baráttu sína gegn um- skurði en jafhframt er tilgangur heim- sóknar hennar hingað til lands að kynna íslenska þýðingu á ævisögu sinni sem nefnist Eyðimerkurblómið og kem- ur út í dag. Lífshlaup Dirie hefur verið ævintýri líkast. Hún fæddist og ólst upp hjá hirð- ingjaQölskyldu í Sómalíu en lagði ung leið sína til London. Starfaði hún á skyndibitastað hjá McDonald’s þar sem hinn heimsþekkti tiskuljósmyndari Ter- ence Donovan kom auga á hana og fékk að taka af henni myndir sem síðar fleyttu henni upp á hæstu tinda tísku- heimsins. Hefúr Dirie meðal annars prýtt dagatal Pirellis eins og Terence Donovan sá hana í gegnum linsu sína. í framhaldinu kom svo baráttan gegn um- skurði stúlkubama í heimalandi henn- ar og viðar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri hefur ákveðið að halda Dirie sam- sæti í tilefni af heimsókn hennar hing- að til lands. Sjálf segist Dirie líta á sig sem sendiherra systra sinna í Afríku sem hún hefúr séð þjást og deyja af völd- um umskurðar. Og bókmenntagagnrýn- andi Sunday Express hefur þetta um ævisögu hennar að segja: „Þetta er saga sem spannar heimsálfur, jafnt land- fræðilega sem á viðáttum mannlegra til- fmninga og sárustu reynslu...Með feg- urð sína og hugrekki að vopni berst hún ótrauð fyrir því að hennar þraut verði öðrum líkn.“ Rétta myndin GÖNGUSTAFUR - fáið ykkur göngustaf. Staf- urinn tekur 15 prósent af lík- amsþyngdinni þannig að göngutúrinn getur orðið lengri og betri. Líka smart. HAUST- HANSKAR - fáið ykkur nýja hanska. Fátt veitir meiri ör- yggiskennd en nýir leðurhanskar. Veita einnig mátulegt skjól í haustnepjunni. Betra að leiðast. „Ofsaiega flott saga“ Björn meö mynd af afa sínum. Krossgötur Kristmanns Stuttmyndin Krossgötur hefur ver- ið tilnefnd til Edduverðlaunanna 2001 en myndin byggir á samnefndri smásögu eftir Kristmann Guðmunds- son. Það er bamabarn Kristmanns, Björn Helgason, sem skrifar handrit myndarinnar og framleiðir hana í samvinnu við félaga sinn, Sigurð Kaiser Guðmundsson leikstjóra. „Þetta er ástarsaga sem gerist á geðsjúkrahúsi," segir Bjöm sem ætl- ar að frumsýna myndina í Háskóla- bíói á miðvikudaginn. „Ofsalega flott saga,“ bætir hann við og ekki er leikaravalið af verri endanum hjá þeim Birni og Sigurði: Egill Ólafs- son, Hilmir Snær og Nanna Kristín Magnúsdóttir. Waris Dirie Fyrirlestur í Háskólanum - svo til borgarstjóra. DV-MYND HILMAR PÓR Mollbúar Gaman aö sýna sig og sjá aöra. Maöur er manns gaman. Þau kunna vel viö sig i Smáralind meö kaffi og kleinur. Molliö heillar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.