Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2001, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2001, Page 8
8 ____________________________________________________________________________________________MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2001 Útlönd I>V REUTER-MYND Fórnarlambanna minnst Mikill fjöldi manna kom saman viö rústir World Trade Center í gær til aö minnast þeirra sem létust í árás- unum í síöasta mánuöi. Minningarathöfn um fórnarlömbin Þúsundir manna komu saman við rústir World Trade Center í New York í gær til að minnast fórnar- lamba hryðjuverkaárásanna í síð- asta mánuði, bæði ættingjar og for- ystumenn borgarinnar. Fulltrúar fjölda trúarhópa fluttu bænir og flutt var tónlist til minn- ingar um hina látnu. Meðal annars söng óperusöngkonan Renée Flem- ing lagið Amazing Grace. Ættingjar með tárvot augu, marg- ir hverjir með myndir af ástvinum sínum en aðrir meö litla bandaríska fána, stóðu í hnapp í kuldanum við rústirnar. Rudy Giuliani borgarstjóri hefur sagt að með minningarathöfninni hafi átt að gera ættingjum kleift að biðja fyrir ástvinum sínum á þeim stað þar sem þeir týndu lífi. Tugir sárir í ólát- um á N-írlandi Til átaka kom milli kaþólikka og mótmælenda á götum Belfast á Norður-írlandi í gær með þeim af- leiðingum að 23 menn slösuðust, óeirðaseggir og laganna verðir. Þá slösuðust sex til viðbótar í Armagh, skammt frá landamærunum að írska lýðveldinu. Átökin þykja benda til þess að enn sé langt í land með að friður komist á, þrátt fyrir sögulega yfir- lýsingu Irska lýðveldishersins i sið- ustu viku um afvopnun. Blóðbað í pakistanskri kirkju: Kristnir stráfelldir í vélbyssuskothríð Konur kveinuðu yfir líkum fimmtán kristinna manna sem lágu í blóði sínu í kirkju í Pakistan í gær eftir að vopnaðir grímuklæddir menn á vélhjólum létu skothríðina dynja úr vélbyssum sínum yflr söfn- uðinn í bænum Bahawalpur. Ódæð- ismennimir skutu einnig lögreglu- þjón sem stóð vörð við kirkjuna. Kristnir menn í Pakistan höfðu lýst ótta sínum yfir því að á þá kynni að verða ráðist ef óeirðir brytust út í landinu vegna loftárása Bandaríkjamanna á Afganistan. Pervez Musharraf, forseti Pakist- ans, sagði greinilegt af ómanneskju- legri aðferð morðingjanna að um þjálfaða hryðjuverkamenn hefði verið að ræða. Morðingjamir hróp- uðu íslömsk slagorð þegar þeir komu til kirkjunnar. Aukalið lög- reglunnar var kallað út og hermenn fóru um götur borgarinnar. REUTER-MYND Á vettvangi blóðbaösins Ættingjar viröa fyrir sér lík 15 krist- inna manna sem voru drepnir viö messu í Pakistan í gær. Ekki er vit- aö hverjir stóöu fyrir árásinni en lög- reglan lítur á moröín sem hryöjuverk og ætlar aö refsa þeim seku. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, gaf grænt ljós í gær: Hermenn kallaðir heim frá Betlehem Ekkja Palmes: Vill ný réttarhöld yfir Petterson Lisbet Palme, ekkja Olofs Palmes, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur farið fram á að réttað verði að nýju yfir glæpamanninum Christer Petterson eftir að hann viðurkenndi í blaðagrein um helgina að hafa myrt Palme fyrir fimmtán árum. Petterson var sakfelldur fyrir morðið í undirrétti árið 1989 en áfrýjunardómstóll sýknaði hann. Lisbet Palme hefur alltaf haldið þvi fram að Petterson sé morðinginn. Sænska blaðið Expressen birti á laugardag grein sem Petterson er annar höfundur að. Þar kemur fram að hann hafi sagt meðhöfundi sín- um, Gert Fylking, að hann hafi myrt Palme. í viðtali við Aftonbladet í gær sagði Petterson hugsanlegt að hann hefði myrt Palme, hann bara muni ekki atburði kvöldsins. REUTER-MYND Flóttastúlkan og kisulóran Hin átta ára gamla Marriam frá Afganistan leikur sér viö kisuna sína í tjaldi í nýuppslegnum búöum fyrir afganska flóttamenn nærri Chaman-landamæra- stööinni, um 130 kilómetra norövestur af Quetta í Pakistan. Bryndrekar ísraelska hersins fóru burt frá Betlehem á Vestur- bakkanum í gær eftir að Ariel Shar- on, forsætisráðherra ísraels, gaf grænt ljós á heimkvaðninguna, þrátt fyrir að Palestínumenn hefðu drepið fimm manns í ísrael. Banda- rísk stjórnvöld höfðu milligöngu um heimkvaðninguna. Sjónarvottar sögðust hafa séð að minnsta kosti þrjá brynvarða fólks- flutningabíla ísraelska hersins fara burt frá Betlehem eftir að skyggja tók. „Bottflutningurinn er hafinn," sagði heimildamaður Reuters innan öryggissveita ísraels. ísraelar fóru með hersveitir sínar inn i eða að sex borgum Palestínu- manna, þar á meðal Betlehem og ná- grannabænum Beit Jala, þann 17. október eftir að róttækir Palestínu- menn myrtu hægrisinnaðan ráð- herra í stjórn ísraels. Fyrr í gær var allt óljóst um hvort ísraelar myndu hefla brott- REUTER-MYND Fórnarlamb á strætóbiöstöö Lík ísraelskrar konu, sem pal- estínskir byssumenn skutu til bana í gær, hvílir á bekk í strætisvagnabiö- skýli í Hadera í noröurhluta Israels. flutning hermanna sinna, eins og samkomulag var gert um á fóstu- dag. Tveir palestinskir byssumenn skutu flórar konur til bana í borg- inni Hadera í norðanverðu Israel í gær áður en þeir féllu sjálflr fyrir kúlum ísraelsku lögreglunnar. Fyrr um daginn var ísraelskur hermaður drepinn í bardaga nærri landamær- unum að Vesturbakkanum. Heimastjórn Palestínumanna sendi frá sér yfirlýsingu þar sem morðin i Hadera voru fordæmd. Samtökin Heilagt stríð lýstu morð- unum á hendur sér. Bandarísk stjórnvöld héldu áfram að þrýsta á stjórnina í ísrael og í viðtali við bandaríska sjónvarps- stöð ítrekaði starfsmannastjóri Hvita hússins, Andrew Card, kröf- una um að ísraelar kölluðu her- menn sina heim frá yfirráðasvæð- um Palestínumanna. Ekki hefur verið ákveðið hvenær ísraelsmenn kalla hermenn sína heim frá öðrum heimastjórnarsvæðum. Laus staða Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi auglýsir starf á sambýli á Egilsstöðum laust til umsóknar. Um er að ræða vaktavinnu, 70-80% stöðu, frá og með 1. des. nk. Óskað er eftir þroskaþjálfa eða áhugasömum starfsmanni. Starfið felst í því að aðstoða fatlað fólk við athafnir daglegs lífs, að skapa sér notalegt heimili og vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Umsóknarfrestur er til 16. nóv. nk. og getur umsóknin gilt í allt að 6 mánuði. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Þroskaþjálfafélags íslands eða Alþýðu- sambands Austurlands við ríkissjóð. Umsóknareyðublöð eru á Svæðisskrifstofu fatlaðra, Tjarnarbraut 39, Egilsstöðum. Allar nánari upplýsingar veittar á Svæðis- skrifstofu í síma 471-1833. Stuttar fréttir Nyrup gegn bókstafstrú Poul Nyrup Rasmussen, forsæt- isráðherra Dan- merkur, hefur hvatt alla borgara lands- ins til að berjast gegn hvers kyns bókstafstrú. í við- tali við Jyllands- Posten sagði Nyrup að ekki væri hægt að banna ýmis öfgasamtök múslíma eða nasista heldur yrði að berjast gegn þeim með orðum. írakar búast við árásum Stjórnvöld í írak eiga von á því að Bandaríkjamenn og Bretar ráðist á landið í herferð sinni gegn hryðju- verkum, að því er Tareq Aziz að- stoðarforsætisráðherra sagði í við- tali við Daily Telegraph í gær. Kona til bjargar kommum Kommúnistaflokkur Frakklands kaus konu, Marie-George Buffet, í embætti aðalritara á landsþinginu í gær til að reyna að rétta hlut flokks- ins við í kosningum sem verða haldnar á næsta ári. Mont Blanc-göng opnuð Frakkar og ítalir hafa ákveöið að opna Mont Blanc-jarðgöngin í ölp- unum fyrir almennri umferð 15. desember og fyrir flutningabílum nokkrum vikum síðar. Þrjátíu og níu létust í eldsvoða í göngunum í mars árið 1999. Skjálfti I Englaborg Jarðskjálfti, sem mældist 3,7 stig á Richter, skók Los Angeles í gær- morgun en ekki er vitað um tjón. Kóngur bað fyrir vini Mohammad Za- hir Shah, fyrrum konungur í Afgan- istan, bað i gær fyr- ir sál vinar síns og bandamanns, Ab- duls Haqs, sem tali- banar handsömuöu og tóku af lífi í síð- ustu viku. Kóngur tók á móti af- gönskum stjómarandstæðingum í garði sínum í Róm. Jörð skelfur í Englandi Minni háttar skemmdir urðu á nokkmm húsum en engin slys á mönnum í 3,8 stiga jarðskjálfta í miðhluta Englands í gær. Saklausum verði þyrmt Jóhannes Páll páfi hvatti í viku- legu ávarpi sínu í gær til þess að sak- lausum borgurum yrði þyrmt í Afganistan og sagði að þjóðir heims ættu að bregðast skjótt við og senda aðstoð til af- ganskra flóttamanna. Tuga enn saknað Yfirvöld í Sviss sögðu í gær að tala þeirra sem væri enn saknað eft- ir eldsvoðann í Gotthard-jarðgöng- unum væri komin í 35. Staðfest er að ellefu hafi látist. Taki við flóttamönnum Ruud Lubbers, yfirmaður Flótta- mannastofnunar SÞ, heimsótti flóttamannabúðir á landamærum Afganistans og Pakistans í gær og hvatti Pakistana til að taka viö flóttamönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.