Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001
DV
Fréttir
Pólitísk skjálftavirkni í kjölfar lokunar glasafrjóvgunardeildarinnar:
Ekki þrýstiaðgerð
af hálfu spítalans
- segir Magnús Pétursson forstjóri og segir lokun hafa verið ábyrg viðbrögð
Nokkurs pólitísks titrings gætir
meðal stjórnarliða þessa dagana
vegna heilbrigðismála og hefur sá
titringur náð að kristallast nokkuð í
lokun og opnun tæknifrjóvgunar-
deildar Landspítalans. Samkvæmt
heimildum sem
standa nálægt
Jóni Kristjáns-
syni heilbrigðis-
ráðherra hefur
það vakið tals-
verða athygli að
margir sjálfstæð-
ismenn hafa not-
að lokun tækni-
frjóvgunardeild-
arinnar sem
stökkpall inn í
frekari umræðu
og. kröfur um
einkavæðingu í
heilbrigðiskerf-
inu. Jón Krist-
jánsson hefur
tekið mjög afger-
andi afstöðu gegn
einkavæðingu og
því sem hann
hefur kallað tví-
skiptingu heil-
Ljóst er því að
tæknifrjóvgunar-
viðkvæm póli-
Jón
Kristjánsson.
Magnús
Pétursson.
Landspítalinn
Fjárhagsvandi Landspítalans er mikill og ýmis titringur hefur komið fram síðustu daga í tengsium við
það hvernig bregöast á við honum.
brigðiskerfísins.
uppákoman með
deildina var mjög
tískt og staðfestir ráðherra í samtali
við DV að hann telji málið pólitískt
eldfimt. Hann er hins vegar ekki til-
búinn til að samþykkja að ákvörð-
unin um lokun deildarinnar tengist
öðru en því að menn hafi staðið
frammi fyrir því að fjárveitingar
væru búnar. Annað hafi síðan kom-
ið á daginn og nú geti menn einbeitt
sér að því að takast á við hallarekst-
ur spítalans.
Eitruð sending
Talsvert opinskárri tónn er hins
vegar í pólitiskum samherjum ráð-
herra og fólki nálægt honum sem lít-
ur svo á að samstarfsflokkurinn í rik-
isstjórn hafi mikinn áhuga á að gera
sér pólitískan mat úr rekstrarvanda
Landspitalans en hallinn stefnir í að
verða á milli 500 og 600 milljónir eft-
ir að 112 milljóna verðlagsuppbætur
sem tilkynnt var um í fyrradag á s-
merkt lyf hafa verið reiknaðar inn.
„Þetta var eitruð sending því þó þetta
sé ekki forgangsmál þá er hér um
viðkvæmt mál að ræða. Og það vek-
ur óneitanlega athygli að menn velja
úr þetta 5 milljón króna mál sem veg-
ur ekki mjög þungt í öllum pakkan-
um,“ segir einn viðmælandi blaðsins
sem stendur nærri ráðherra. Jafn-
framt er rifjað upp í þessu samhengi
að ráðherra neitaði að fallast á tillög-
ur framkvæmdastjórnar spítalans í
sumar þegar tillaga var gerð um
sjúklingagjöld og lokun deilda og
sagði að finna yrði aðrar leiðir í
sparnaði. í því samhengi hefur því
verið varpað fram að ákvörðunin um
að loka glasafrjóvgunardeildinni hafl
verið útspil af hálfu spítalastjórn-
enda til að að knýja á um auknar
Qárveitingar og meira svigrúm.
Ekkert slíkt í gangi
„Það er ekkert slíkt sem verið er að
gera hér. Ég er búinn að sjá mikið af
slíkum leikjum og ég get fullvissað
þig um að hér er ekkert þannig á ferð-
inni,“ segir Magnús Pétursson, for-
stjóri Landspítalans, þegar þetta er
borið undir hann. „Spítalinn bað ekki
um þennan pakka með s-merktum
lyfjum sem settur var á hann í árs-
byrjun.Við tókum þó við honum og
reyndum að vinna með hann eins og
við gátum. Við sögðum strax í upp-
hafi að við ætluðum að halda honum
aðgreindum í okkar bókhaldi vegna
þess að við höfðum efasemdir um þá
fjármuni sem í þetta voru ætlaðir.
Frá miðju ári hefur legið fyrir að
þessir Qármunir myndu ekki duga og
málið hefur legið inni í ráðuneyti
lengi og ekki komið svar fyrr en í síð-
ustu viku. Þannig hefur af minni
hálfu ekkert verið gert til að pressa á
einn eða neinn og það væri hreinleg
óábyrg afstaða hjá spítalanum að
taka ekki á þessu máli og láta reka á
reiðanum," segir Magnús Pétursson.
-BG
Kalda stríðið skaut upp kollinum í umræðum um Náttúruverndarráð á þingi:
Mjög öfgafull samtök
- segir Kristján Pálsson - stjórnarandstaðan varar við mismunun
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra mælti í gær fyrir frumvarpi
um að leggja Náttúruvemdarráð
niður. Stjórnarandstaðan varaði
við mismunun sem gæti fylgt laga-
breytingunni. Því var m.a. haldið
fram að ráðherra væri með þessu
að veikja náttúruvemd í landinu.
Siv sagði að tímarnir heföu
breyst mjög í umhverfismálum og
dregið hefði úr þörf á sérstakri
ráðgjöf Náttúruvemdarráðs. Frjáls
félagasamtök heföu m.a. sprottið
upp á sviði náttúruvemdar og
samstarf við slík samtök myndi
verða eflt eftir aö Náttúruvemdar-
ráö yrði lagt niður.
Ámi Steinar Jóhannsson (VG)
spurði hvaða frjálsu félagasamtök
ætti að efla. Hættan væri sú að
þeim samtökum yrði aðeins dillað
sem væm skaðleg stjómvöldum
hverju sinni. Hann minnti á djúp-
stæðan ágreining sem orðið hefði í
fjárlaganefnd Alþingis um fjárút-
hlutun til þessara félaga og fleiri
stjómarandstöðuþingmenn töluðu
á svipuðum nótum.
Siv svaraði því til að handhafar
stjórnvalda væru lýðræðislega
kjörnir og þótt hlustað yrði á til-
Siv
Friðleifsdóttir.
Kristján
Pálsson.
Þuríöur
Backman.
Jóhann
Ársælsson.
Halldór
Blöndal.
Arni
Steinar.
lögur allra félagasamtaka áskildu
stjórnvöid sér rétt til að meta
hvaða hugmyndir væru betri en
aðrar þegar kæmi að fjárúthlutun.
Gagnrýni kom einnig fram á
Náttúruverndarráð á þinginu og
sagði Kristján Pálsson (D) að Nátt-
úruverndarráö hefði þróast í
„mjög öfgafull samtök“ í stað þess
að verða stjómvöldum til ráðgjaf-
ar. Opinber slagsmái milli stjórn-
valda og ráðgjafa væri ekki hægt
að þola ár eftir ár.
Þuríður Backman (VG) mót-
mælti þessu harðlega og sagði
mikla hættu á að í framtíðinni
myndu stjórnvöld aðeins velja
samstarf við „þægileg" samtök.
„Hefur Náttúruverndarráð staðið
vaktina of vel fyrir hönd náttúr-
unnar?“ spurði þingmaðurinn.
Jóhann Ársælsson (SO var
einnig mjög ósáttur við málflutn-
ing Kristjáns og spurði: „Eru skila-
boðin þau að félagasamtök skuli
halda sér á mottunni til að þau geti
fengið aur?“ Jóhann sagði einnig
að Siv hefði verið of hörundsár sið-
an hún komst í stól umhverfisráð-
herra. Gagnrýni væri hluti hennar
vinnu og viðkvæmnin hefði keyrt
úr hófi fram vegna mála sem eðli-
legt væri að tekist væri á um.
Halldór Blöndal (D) fagnaði sér-
staklega framlagningu frumvarps-
ins enda væri með því brugðist við
mikilli gagnrýni á Náttúruvemd-
arráð víða um land. Ráðið hefði
ekki litið þannig á að stjónvöld
gætu leitað til þeirra í trúnaði um
ráðgjöf heldur hefði það gert opin-
berlega athugasemdir við ýmsar
aðgerðir stjómvalda og oft með
ósmekklegum hætti. Halldór hélt
þvi fram að ráðið hefði ekki staðið
sig síðan Eysteinn Jónsson var for-
maður Náttúruvemdarráðs. Eng-
inn einn flokkur hefði einkaleyfi á
því að telja sig náttúruvemdar-
sinna. Helstu talsmenn umhverfis-
sjónarmiða nú hafi verið opinberir
gestir Austur-Þýskalands á sínum
tíma og allir vissu hvernig þeir
hefðu komið fram gagnvart náttúr-
unni.
Duldist fáum að með þessu var
Halldór að sneiða að Steingrími J.
Sigfússyni en hann var fjarverandi
og svaraði því ekki fyrir sig.
-BÞ
Kópavogslistinn:
Gagnrýnir verk
án útboðs
Kópavogslist-
inn hefur gert at-
hugasemdir við
það að Klæðning
ehf., fyrirtæki
Gunnars I. Birg-
issonar, for-
manns bæjarráðs
Kópavogs, vann á
árinu 2000 verk
fyrir Kópavogs-
kaupstað fyrir
Gunnar
Birgisson
rúmar 15 milljónir króna án útboðs.
Segja talsmenn listans í tilkynningu
að þetta sé í samræmi við undan-
gengin ár en alls hafi Klæðning, fyr-
irtæki Gunnars, unnið verk fyrir
Kópavog fyrir rúmar 60 milljónir
króna á árunum 1997 til 2000. Að-
eins eitt verk hafi verið unnið að
undangengnu lokuðu útboði, um öll
hin verkin var samið beint. Fuiltrú-
ar Kópavogslistans segjast oft hafa
bent á hversu óeðlilegt það sé að
starfsmenn tæknideildar bæjarins
skuli vera settir í þá stöðu að semja
við pólitískan yfirmann sinn um
verðlagningu einstakra fram-
kvæmda innan bæjarins. Sigurður
Geirdal bæjarstjóri hefur svarar því
til að urmull smærri verka sé unn-
inn fyrir bæinn án útboðs og þau
verk sem hér séu tínd til séu hluti af
slíkum verkum. -BG
Vöruskipti við útlönd:
Hallinn er mun
minni í ár
Samkvæmt tölum Hagstofunnar
mun vöruskiptahallinn fyrstu níu
mánuðina minnka um hartnær helm-
ing frá síðasta ári. í fyrra var hann 27
milljarðar króna en hann er í ár 15
miOjarðar. Sé tekið tillit til gengisþró-
unarinnar og breytingin skoðuð mið-
að við fast gengi kemur í ljós að um-
skiptin eru enn meiri eða 32 milljörð-
um fyrstu níu mánuðina í fyrra yfir í
15 miOjarða á sama tímabili í ár. í
vefriti fjármálaráðuneytisins er sú
niðurstaða dregin af þessum sam-
drætti að þessar tölur „virðast stað-
festa spár um að vöruskiptahaUinn
verði mun minni á árinu 2001 en fyrri
spár gerðu ráð fyrir, eða rétt rúmlega
20 miUjarðar króna“. -BG
Ako-Plastos-húsið til sölu:
Var eitt sinn
verðmetið á
200 milljónir
- engin tilboð enn
Húsnæði AKO-Plastos var tU um-
ræðu á fundi bæjarráðs Akureyrar í
gær. Bærinn keypti ekki aUs fyrir löngu
hús fyrirtækisins
við Þórsgötu á upp-
boði og greiddi fyr-
ir 85 miUjónir. Hús-
ið var reist þegar
mUíil bjartsýni
rikti í kjölfar sam-
runa Ako og Plast-
os en rekstur fyrir-
tækisins gekk mjög
UlaogyflrtókPlast-
prent starfsemina.
Síðan hefur nýting hússins verið léleg
og segir Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, brýnt að selja húsið.
Nokkrar fyrirspumn- hafa borist frá
áhugasömum kaupendum en engin tU-
boð hafa enn verið gerð i eignma. Bær-
inn hyggst reyna að fá töluvert meira fé
fyrir eignina en sem nam uppboðsverð-
mu. Kristján Þór segist ekki treysta sér
tU að tUgreina neina tölu í því efni en
minnir á að verðmat hússins hafi i eina
tíð verið talið um 200 mUljónn- króna.
„Við verðum að koma þessu í verð en
það er starfsemi þama fyrir sem taka
verður tUlit tU auk fleh-i þátta. Við
emm að vinna með ákveðnar hugmynd-
ir en ég get ekki tjáð mig nánar um þær
á þessu stigi,“ sagði Kristján.
Á fundi bæjarráðs í gær gerði lög-
maður bæjarms grein fyrn- stöðu mála
og fól bæjarráð honum ásamt bæjar-
stjóra að vinna áfram í málinu. -BÞ
Kristján Þór
Júlíusson.