Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Page 11
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001
I>V
Fréttir
11
Húsnæöi Leikfélags Akureyrar heldur hvorki vatni né vindum:
Hrollkaldir leikarar
striplast í ónýtu húsi
- óforsvaranlegt að bjóða upp á þetta, segir leikhússtjóri
Samkomuhúsið á Akureyri, hús-
næði Leikfélags Akureyrar, heldur
hvorki vindum né vatni og er svo
komiö að heilsu leikaranna er nán-
ast stefnt í hættu. Að sögn Sigurðar
Hróarssonar leikhússtjóra hefur
Akureyrarbær ekki staðið sig sem
skyldi í viðhaldi hússins. Hann tel-
ur brýnt að fá aukafjármagn til að
koma því í viðunandi horf.
„Skúrinn sem hýsir búningaað-
stöðu leikara, fórðun og fleira er
gjörsamlega ónýtur og heldur
hvorki vatni né vindum. Þar er ekki
hægt að hita almennilega upp og
það frýs í leiðslunum. Við höfum
með öllum ráðum reynt að gera eig-
anda hússins, Akureyrarbæ, grein
fyrir því að úr þessu verði að bæta,“
segir leikhússtjóri.
Sigurður treystir sér ekki til að
segja um hvort kvef sé algengara hjá
leikurum LA en annars staðar vegna
aðstöðunnar. Leikarar þekki ástand-
ið og kunni leiðir til að reyna að
sporna gegn heilsuleysinu. „Þaö
breytir hins vegar ekki því að menn
eru í bókstaflegri merkingu að
striplast alla daga i búningsaðstöð-
unni. Menn eru að fara í og úr fötun-
um og ef frostið fer niður fyrir 5
gráður þá verður ekki almennilegur
hiti þarna inni. Þá frýs i leiðslunum
og afleiðingin verður sú að hvorki er
hægt að nota salerni né vaska. Það er
gjörsamlega óforsvaranlegt að bjóða
upp á þetta,“ segir leikhússtjóri.
Hann telur að 10-15 milljónir
króna þurfi til að koma aðstöðunni
í sæmilegt horf en það sé aðeins
hluti þess sem gera verði fyrir hús-
ið. Hvað þetta varði skilji á milli að-
stöðu hjá LA og annarra atvinnu-
leikhúsa. Leikfélag Reykjavíkur sé
t.d. að setja tugi milljóna í nýjan
glæsilegan sal í Borgarleikhúsinu
og Þjóðleikhúsið hafi fengið hundr-
uð milljóna i endurbætur. Akureyr-
arbær veiti eina og hálfa- milljón ár-
lega fyrir fast viðhald Samkomu-
hússins.
„Auðvitað grunar mann að ástæð-
an fyrir þessu sé að menn líti ekki
til Samkomuhússins sem framtíðar-
leikhúss. Enn er stefnt að því að hér
rísi stórt menningarhús en þetta
eru bara óskyld mál. Samkomuhús-
ið er menningarverðmæti og það er
skylda bæjarins að gera vel við
það.“ -BÞ
Matarkarfa DV og Bónuss í DV-Innkaupum:
Tveir áskrifendur
með 15 þúsund
krónur í Bónus
DV-MYND SBS
Nöturleg starfsskilyröi
Siguröur Hróarsson viö vask í búningsherbergi leikara hjá Leikfélagi Akureyr-
ar. Húsið er óþétt og frýs vatniö í krönunum aö vetrarlagi.
Tveir heppnir áskrifendur DV,
þær Margrét Amardóttir og Svan-
hildur Guðmundsdóttir, hafa þegar
dottið í lukkupottinn og hlotð Mat-
arkörfu DV og Bónuss, 15 þúsund
króna vöruúttekt í Bónusverslun-
unum. Dregið er um matarkörf-
una í viku hverri og niðurstaðan
birt í DV-Innkaupum, nýju fylgi-
riti DV sem er í blaðinu hvern
fimmtudag.
Allir reglulegir áskrifendur DV
eiga þess kost að vinna
þrjár 5.000 króna
ávísanir á
í versl-
unum Bón-
uss svo það
er til mikils
að vinna að
vera áskrif-
andi. Ávisanirn-
ar má nota að vild,
eina í einu eða allar
Blað sem borgar sig
Margrét Arnardóttir (að ofan) og Svanhildur Guömunds-
dóttir meö ávísanirnar góðu sem gilda í verslunum Bón-
uss. Hvor um sig er meö þrjár 5000 króna ávísanir en
þær geta allir reglulegir áskrifendur DV hlotið.
þrjár í einni Bónusferð. Það munar
svo sannarlega um minna en 15.000
krónur í heimilisbókhaldinu.
Margrét Arnardóttir var himinlif-
andi, sagði meiriháttar að
geta farið í Bónus og
fyllt ísskápinn heima.
Svanhildur hugsaði sér
einnig gott til glóðar-
innar. Hvorug kvenn-
anna hafði nokkum
tíma unnið í happ-
drætti eða getraunum
áður og var
það ekki til
að minnka
ánægjuna.
DV-Inn-
kaup fjall-
ar um
innkaup
íslend-
inga á
jákvæð-
um og
léttum
nótum
og á að vera bæði
kaupendum og selj-
endum vöru og þjón-
ustu til gagns og gam-
ans.
DV-Innkaup vill
eiga náið samstarf
bæði við neytendur og
seljendur vöru og
þjónustu - fá fréttir af
nýjungum, tilboðum
og áhugaverðum upp-
ákomum auk ábend-
inga um það sem vel
er gert. Neytendur og
seljendur eru hvattir
til að hafa samband
símleiðis, bréfleiðis
eða með tölvupósti.
Netfangið er inn-
kaup@dv.is .
Heimilisfangið er:
DV-Innkaup, Þver-
holti 11, 105 Reykja-
vík. -hlh
Sameiningarkosningar:
Þingeyingar
kjósa á morgun
Frá Húsavík.
Kosið verður um sameiningu
ellefu sveitarfélaga í Þingeyjar-
sýslum á morgun. Ekki er þó
kosið um heildarsameiningu
allra þessara sveitarfélaga,
heldur er um nánast tvö aðskil-
in mál að ræða, annars vegar
sameiningu 4 sveitarfélaga í S-
Þingeyjarsýslu og hins vegar
sameiningu 7 sveitarfélaga í
báðum Þingeyjarsýslunum.
Stærri sameiningarkosningin
varðar Skútustaðahrepp,
Reykjahepp, Aðaldælahrepp, Húsa-
vík, Tjömeshrepp, Kelduneshrepp
og Öxarfjaröarhrepp. Kjörfundur
verður í Reykjahlíðarskóla og Skjól-
brekku í Mývatnssveit, í félags-
heimilinu Heiðarbæ í Reykjahreppi,
í félagsheimilinu Ýdölum í Aðal-
dælahreppi, félagsheimilinu Sól-
vangi í Tjörneshreppi, félagsheimil-
inu Skúlagarði í Kelduneshreppi, í
Öxarfjarðarskóla á Kópaskeri í öx-
arfjarðarhreppi og á Húsavik verð-
ur kosið í Borgarhólsskóla. Atkvæði
verða talin að kosningu lokinni í
hverju sveitarfélagi fyrir sig.
í hinni kosningunni verður kosið
um sameiningu Bárðdælahrepps,
Hálshrepps, Ljósavatnshrepps og
Reykdælahrepps. Kjörfundur verð-
ur kl. 12-20 í Barnaskóla Bárðdæla,
að Breiðumýri í Reykjadal, Ljós-
vetningabúð og Skógum í Fnjóska-
dal. Atkvæði verða talin strax að
lokinni kosningu -gk
Ungur maöur lamaður eftir vinnuslys á Akureyri:
Verkstjórinn dæmdur sekur
Verkstjóri hjá SJS-verktökum á
Akureyri hefur í Héraðsdómi verið
dæmdur sekur um brot á lögum um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum. Verkstjórinn er tal-
inn hafa vanrækt að tryggja öryggi
og heilsu starfsmanna þegar fyrir-
tækið var að rífa þakið af íþrótta-
skemmunni við Árstíg á Akureyri.
Alvarlegt slys varð þegar nýliði í
vinnu fór í gegnum þakið áriö 1999
og niður á gólf hússins með þeim af-
leiðingum að hann lamaðist. Hann
var tvítugur þegar óhappið varð.
Héraðsdómur telur að verkstjór-
inn hafi ekki tryggt að fullnægjandi
fallvarnir væru á staðnum, m.a.
handrið og merkingar á þakinu um
lítið burðarþol.
Hann er því dæmdur til greiðslu
100.000 króna sektar auk greiöslu
alls sakarkostnaðar. -BÞ
M-Benz E 300 dísil, ek. 280
þús. 5 gíra, leður. Verð 950 þús.
100% fjármögnun
með 14,95% vöxtum
til allt að 60 mán.
Skráðu bílinn á
Bilfang.is
Bilfang Malarhöfði 2
Sími 567- 2000
Góðir bílar
til sölu
Ford Transit dísil, árg. 1994.
Verð 780 þús.
BMW 7281 steptronic, ek. 15
þús., 06/99, einn með öllu.
Verð 4.850 þús., áhv. 2,8 TM
Daewoo Lanos, árg. 2001, ek.
13 þús. Verð 850 þús.
Toyota 4Runner, árg. 1992,
ssk., 33', ek.137þús.
Verð 680 þús.
M. Benz E 240 Avantgarde,
árg. 1998, ek. 130 þús., silfurl.,
„16 álf., toppl. Verð 1350 þús.
Áhv. 2100 þús. Bílalán.
Nissan Patrol TD, árg. 1997,
ek. 170 þús. á boddíi,
nýupptekinnmótor, ek. 0.
Verð 1.950 þús.
M-Benz C-200 dísil, árg. 1994,
ek. 360 þús. Verð 780 þús.
Uppl. ísíma 821-7660
eða 695-2860