Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Qupperneq 14
14 Útlönd FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 I>V REUTER-MYND David Trimble Snurða gæti hlaupið á þráðinn í friö- arferlinu á Norður-írlandi ef leiötogi hófsamra mótmælenda nær ekki kosningu sem fyrsti ráðherra heimastjórnarinnár. Óvíst um kosn- ingu Trimbles David Trimble, leiðtogi hófsamra mótmælenda á Norður-írlandi, gerir sér vonir um að verða kjörinn fyrsti ráðherra heimastjórnarinnar þegar þingið kemur saman í dag. Blikur eru hins vegar á lofti þar sem marg- ir smáflokkar mótmælenda, sem ef- ast um heilindi Irska lýðveldishers- ins (IRA), vilja reyna að koma í veg fyrir kosningu Trimbles. Hann á þó stuðning kaþólskra vísan. Friðarferlið á Norður-írlandi fékk byr undir báða vængi fyrir rúmri viku þegar IRA tilkynnti að hann væri þegar byrjaður að eyða vopn- um sínum, eins og krafist hafði ver- ið lengi. Vandræðin hrönnuðust hins veg- ar upp fyrir Trimble í gær þegar annar andófsmanna innan flokks hans neitaði að styðja hann. Matarpakkarnir nú í bláum lit Bandaríska landvarnaráðuneytið ætlar að setja matarpakkana sem varpað er niður til þurfandi í Afganistan í bláar umbúðir í stað gulra áður til að koma í veg fyrir að þeim verði ruglað saman við klasa- sprengjur í sama lit sem ekki hafa sprungið. Einhver dráttur verður þó á að breytingarnar verði gerðar en ekki eru uppi áform um að hætta að varpa niður klasasprengjum og mat- arpökkum í gulum umbúðum. „Það er óheppilegt að klasa- sprengjumar, þær sem ekki hafa sprungið, skuli vera í sama lit og matarpakkarnir," sagði Richard Myers, yfirmaður herráðsins. Styttist í innrás Norðurbandalagsins í höfuðborgina Kabúl: Ekkert hlé gert á loft- árásum yfir bænadagana Bandarískar B-52 risasprengjuflug- vélar héldu áfram að dæla sprengjum yfir hæðirnar norður af höfuðborginni Kabúl í bítið í morgun í þeim tilgangi að veikja vamarlínu hersveita tali- bana sem nú verjast hertöku höfuð- borgarinnar en talsmenn Norður- bandalagsins segja nú aðeins daga- spursmál hvenær hún verði hertekin. Að sögn sjónarvotta urðu vélamar ekki fyrir loftvarnaskothríð talibana, sem gefur til kynna að tekist hafi að eyðileggja allan loftvarnabúnað þeirra í borginni, enda flugu vélarnar ótrú- lega lágt. Sprengjum hefur ekki verið varpað á sjálfa höfuðborgina siðustu fjóra daga en í nótt var þó einni ein- stakri sprengju varpað á skotmark inn- an borgarmarkanna. Talsmenn Norðurbandalagsins segja heri þeirra nú undirbúa innrás í borg- ina og er þar lögð áhersla á að æfa götubardaga sem væntanlega verða harðir þegar þar að kemur. Þeir segja einnig að ekkert verði dregið úr sókn- inni á Ramadantímanum sem eru Hermaöur Noröurbandalagsins Einn hermanna Norðurbandalagsins, sem nú sitja um höfuðborgina Kabúl, fylgist hér með óvininum. bænadagar múslíma sem standa í heil- an mánuð frá miðjum nóvember og ekki búist við að talibanar geri það heldur frekar en síðustu árin. „Enda kæmi vopnahléð aðeins talibönum til góða,“ er haft eftir háttsettum foringja í her Norðurbandalagsins. Talsmaður Bandaríkjahers tók i sama streng í gær og sagði að ekkert hlé yrði gert á loft- árásum yfir bænadagana. Víst er að talibanastjórnin mun reyna að færa sér það í nyt og hafa þeir hvatt múslíma heimsins til að snúa til vamar gegn meintum ofsókn- um og hafa pakistanskir múslímar þeg- ar flölmennt yfir landamærin til Af- ganistan, talibönum til stuðnings. Talibanar hafa undanfarna daga staðið að handtökum 25 meintra stuðn- ingsmanna Norðurbandalagsins og var búist við að aftökur þeirra hæfust í dag. I morgun bárust fréttir frá Pakistan um að mOtisbrandssmit hefði fundist á ritstjórn eins stærsta dagblaðs lands- ins en að sögn ritstjórans mun það hafa borist með boðsendu bréfi sem barst blaðinu f fyrri viku. Vel vopnum bunir bandariskir landgonguliöar Bandarískir landgönguliðar um borð í herskipinu Peleliu, sem er á Arabíuflóa undan Pakistan, bíða hér um borð í skip- inu eftir að fara um borð í herþyrlu sem flytja átti þá og nokkra félaga þeirra til hernaðaraðgerða í Afganistan. Eins og sjá má eru þeir vel vopnum búnir, enda þjálfaðir til að starfa við verstu hugsanlegu aðstæöur. UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir á eftir- farandi eignum: Baldursgata 36, 0301, 53,4 fm íbúð á 3. hæð t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Bemharður Guðmundsson, gerðarbeið- endur Íslandsbanki-FBA hf. og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 6. nóvem- ber 2001, kl. 10.00. Berjarimi 9, 0203, íbúð á 2. h., geymsla, merkt 0007, m.m. og stæði í bílageymslu B7, Reykjavík, þingl. eig. Kristín Stef- ánsdóttir og Egill Guðlaugsson, gerðar- beiðandi Húsasmiðjan hf., þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Brautarholt 24, 010301, 3. hæð, Reykja- vík, þingl. eig. Skeifan ehf., gerðarbeið- andi Landsbanki íslands hf., höfuðst., þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Drápuhlíð 36, 50% ehl. í 0201, 139 fm íbúð á 2. hæð ásamt geymslu í kjallara m.m., Reykjavík, þingl. eig. Drífa Björk Þ. Landmark, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og lón Magn- geirsson, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Dvergabakki 24, 0301, 87,8 fm íbúð á 3. hæð t.v. m.m. og herbergi í kjallara 0003, Reykjavík, þingl. eig. Kristinn Ámi Kjartansson og Guðrún Júlíana Ágústs- dóttir, gerðarbeiðendur Iðunn ehf. bóka- útgáfa og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Háberg 7,0301, 3ja herb. íbúð á 3ju hæð, Reykjavík, þingl. eig. Þórir Þórisson og Halldóra Kristín Valgarðsdóttir, gerðar- beiðendur Ibúðalánasjóður og Ríkisút- varpið, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Heiðargerði 76, 0201, rishæð, þingl. eig. Guðmundur Eggertsson, gerðarbeiðandi Landsbanki Islands hf., höfuðst., þriðju- daginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Hringbraut 43, 0302, 76,2 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð t.h. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Helga Sumarliðadóttir, gerðarbeið- andi Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, B-deild, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Kambsvegur 34, 0101,91,2 fm íbúð á 1. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Samúel J. Valberg, gerðarbeiðendur Búnaðar- banki íslands hf. og Lífeyrissjóður versl- unarmanna, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Lágaberg 1, Reykjavík, þingl. eig. Des- form ehf., markaðsdeild, gerðarbeiðandi Sparisjóður vélstjóra, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Njálsgata 25,010101,1. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Guðlaugur Kristján Júlíusson, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður, þriðju- daginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Skálagerði 11, 0103, 3ja herb. íbúð á 1. hæð t.h., Reykjavík, þingl. eig. Bjami Gunnlaugs Bjamason, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, þriðju- daginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. Skeljagrandi 7, 50% ehl. í íbúð, merkt 0101, Reykjavík, þingl. eig. Hallfríður Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Búnað- arbanki Islands hf., þriðjudaginn 6. nóv- ember 2001, kl. 10.00. Þingás 25, 50% ehl„ Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Sveinsson, gerðarbeiðandi Samvinnulífeyrissjóðurinn, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Bergstaðastræti 10B, Reykjavík, þingl. eig. Hjördís Brynja Mörtudóttir, gerðar- beiðandi Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 11.00. Eyjarslóð 5, 010201, verslunar- og þjón- ustuhúsnæði á 2. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. ÍS-EIGNIR ehf., gerðarbeið- endur Lífeyrissjóðurinn Framsýn og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 6. nóvem- ber 2001, kl. 10.30. ' Frostafold 119, 0102, 3ja herb. íbúð á 1. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Kristín Ema Ólafsdóttir, gerðarbeiðendur íbúðalána- sjóður og Tollstjóraembættið, þriðjudag- inn 6. nóvember 2001, kl. 13.30. Hverfisgata 82, 010501, 96,8 fm á 5. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Sigtún 7 ehf., gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður og Toil- stjóraembættið, þriðjudaginn 6. nóvem- ber 2001, kl. 10.00._________________ Kleppsvegur 32, 040103, 2ja herb. íbúð á l. hæð norð-vesturhluta ásamt geymslu m. m., Reykjavík. þingl. eig. Valdís Gunn- laugsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, þriðju- daginn 6. nóvember 2001, kl. 11.30. Mosarimi 2, 0101, 1. íbúð f.v. á 1. hæð, 88,6 fm m.m., Reykjavík, þingl. eig. Gottskálk Ágúst Guðjónsson, gerðarbeið- endur Hekla hf., Ibúðalánasjóður og Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 14.00. Rósarimi 2, 0102, 2. íbúð frá vinstri, geymsla á 1. hæð, samtals 75,6 fm m.m. og bílastæði nr. 4, Reykjavík, þingl. eig. Sædís Hrönn Samúelsdóttir og Guð- mundur Sigurðsson, gerðarbeiðandi Rósarimi 2-4, húsfélag, þriðjudaginn 6. nóvember 2001, kl. 14.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Shevardnadze rekur Edúard Shevar- dnadze, forseti Ge- orgíu, rak ríkis- stjórn sína í gær til að reyna að róa al- menning eftir tveggja daga harðar mótmælaaðgerðir á götum höfuðborgar- innar. Almenningur óttaðist að til stæði að hefta frelsi fjölmiðla. Dauðarefsing í Færeyjum Færeyska lögþingið ætlar á næst- unni að taka afstöðu til þess hvort eldgömul lög um dauðarefsingu í Færeyjum skuli numin úr gildi. Meira en hundrað ár eru liðin frá siðustu aftöku þar. Afturganga á Grænlandi Lars Emil Johansen, fyrrum for- maður grænlensku heimastjórnar- innar, ætlar að bjóða sig fram í kosningunum til danska þingsins fyrir krataflokkinn Siumut. ekki í felum Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, er ekki i felum, þótt hann hafi verið fluttur á óþekktan staö af öryggisástæðum, að sögn starfs- mannastjóra Hvíta hússins. Rússar bráðnauðsynlegir Forsætisráðherrar Bretlands og Ítalíu, Tony Blair og Silvio Berlusconi, urðu sammála um það í gærkvöld að Rússar yrðu að gegna meira lykilhlutverki en til þessa í stríðinu gegn hryðjuverkum. Blair bókar Concorde I sætisráðherra Bret- j lands, hefur tryggt , tj sér hljóðfráu far- I * * 1 þegaþotuna Concor- t • - M de þegar hann fer í Æ skyndiheimsókn til y Bush Bandaríkja- viku. Það er jafnframt fyrsta al- menna flug breskrar Concordeþotu eftir að frönsk Concordeþota hrap- aði við París í fyrra. Berbar mótmæla i Alsír Þúsundir berba í Alsír fóru um götur bæja i Kabýlíuhéraði í gær til leggja áherslu á pólitískar kröfur sínar og til að minnast upphafs skæruhernaðar gegn Frökkum 1954. Páfi til Búlgaríu Jóhannes Páll páfi ætlar í fyrstu heim- sókn sína til Búlgar- íu á næsta ári og mun meðal annars fara til höfuðborgar- innar Sofiu. Búl- görsk stjórnvöld sögðu í gær að þau vonuðu að heimsóknin myndi binda enda á getsakir um að Búlgarar hefðu tengst banatilræðinu við páfa fyrir tuttugu árum. Hótanir í Makedóníu Forseti þings Makedóníu hótaði í gær að stöðva umræður um stjórn- arskrárbreytingar nema allir al- banskir flokkar samþykktu þær. Hvetur til viðræðna Hubert Védrine, utanríkisráð- herra Frakklands, hvatti Indverja og Pakistana í gær til að ræða sam- an til að koma í veg fyrir versnandi samskipti vegna Kasmírs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.