Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 23 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aóstoöarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Fréttastjórí: Birgir Guðmundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiósla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.netheimar.is/dv/ Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2200 kr. m. vsk. Lausasöluverð 200 kr. m. vsk., Helgarblað 300 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Flogið að Fróðárundrum Methafi í einkaflugi á flugvél Fluginálastjórnar er Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Eins og greint hefur verið frá í DV hefur ráðherrann notað þessa ríkisflugvél til þess að skjótast landshorna á milli, stundum til þess að taka skóflustungur og í önnur skipti til þess að klippa á borða. í sumum tilvikum hefur ráðherrann haft viðkomu í heima- bæ sínum, Stykkishólmi, eða ferðast víðar um Snæfellsnes- ið, meðal annars á frumsýningu á leikritinu Fróðárundrin í Ólafsvík. Víst ræður ráðherrann tíma sínum og vafalaust er oft til- hlýðilegt að samgönguráðherra hefji mikilvægt verk með formlegum hætti eða fagni starfslokum. Hitt er umdeilan- legra hvort svo mikið liggi við að brúka þurfi flugvél í þágu ráðherra sem ætluð er sérhæfðum verkefnum Flugmála- stjórnar í stað þess að nýta áætlunar- eða leiguflug hefð- bundinna flugfélaga á lengri leiðum og aka styttri. DV hefur leitað upplýsinga um notkun þessarar flugvél- ar frá því í apríl. Fyrirspurnir hefur þurft að ítreka þar sem fátt var um svör. Spurt var meðal annars hvaða ráð- herrar hefðu nýtt sér vélina á ákveðnu tímabili til ferða- laga innanlands sem utan og um kostnað vegna einstakra ferða. Svör Flugmálastjórnar voru fátækleg en þó kom fram hvaða ráðuneyti hefðu nýtt sér flugvélina en nöfn farþega voru ekki gefin upp. Því leitaði blaðið til allra ráðuneyta og embættis forseta íslands. Nákvæm svör bárust frá forseta- embættinu og félagsmálaráðuneytinu. Forsætisráðuneytið svaraði fyrir hönd annarra ráðuneyta. Þar fengust heldur ekki upplýsingar um farþegana en þó kom fram að yfirleitt væri um að ræða ferðir ráðherranna sjálfra. Samgöngu- ráðuneytið var sem fyrr segir stórtækast en ráðherrann og lið hans notaði vélina í 58,4 tíma á árabilinu 1998 til 2001. Önnur ráðuneyti eru langt að baki samgönguráðuneyt- inu en þó hljóta menn að staldra við 10 tíma flug utanrík- isráðherra til Parísar þar sem vélin beið í 2 daga, Græn- landsflug iðnaðarráðherra þar sem vélin beið í 4 daga og Grænlandsflug sjávarútvegsráðherra þar sem vélin beið í 3 daga. Þá eru ónefnd önnur flug innanlands - sem utan í þágu ráðuneytanna. Fyrirspurnir DV hafa komið við kaunin á samgönguráð- herra og ekki sist eftir að Gísli S. Einarsson alþingismaður spurðist fyrir um sama mál á þingi. í þingumræðum greindi ráðherrann meðal annars frá ríkisflugferð sinni til þess að sjá Fróðárundrin en kveinkaði sér undan því að þurfa að ómaka sig til svaranna vegna Gísla og „samstarfs- manna hans á DV“. Vegna þessa er rétt að minna ráðherr- ann enn og aftur á að fyrirspurnir DV voru fram komnar löngu áður en þingmaðurinn tók málið upp og við fram- lagningu þeirra þurfti blaðið enga aðstoð. Eftir stendur að samgönguráöherrann fer fyrir í notkun þessarar flugvélar Flugmálastjórnar. Flugmálastjórn niður- greiðir flugstarfsemi sína í þágu ráðherranna. Verð á flug- tíma vélarinnar er skráð lægra en svo að einkaðailar í flug- rekstri geti keppt við það. Þá er ekki rukkað fyrir dýran biðtíma. Því er eðlilegt að einkaaðilar íhugi kæru til sam- keppnisyfirvalda eins og rekstrarstjóri flugfélagsins Jór- víkur hefur gefiö í skyn. „Þarna á sér stað stórfelld og glórulaus niðurgreiðsla,“ sagði rekstrarstjórinn í viðtali við DV og bætti því að leiguflug ráðuneytanna gæti orðið einkareknum flugfélögum búbót, varla gæti staðist aö rík- ið héldi úti flugrekstri með þessum hætti til að keppa við einkareknu félögin. Þetta hlýtur samgönguráðherrann að íhuga enda er ekki argiað vitað en hann sé í forystu ríkisstjórnarinnar í einka- væðingarmálum. Jónas Haraldsson Skoðun I>V Frelsið og Flugmálastjórnarvélin Gísli S. Einarsson þingmaöur Samfylkingarinnar í tengslum við umræðu um notkun Flugmála- stjórnarvélarinnar TF- FMS, sem meðal annars er notuð til aö fljúga með ráðamenn innaniands sem utan, hafa vaknað ýmsar spurningar sem þörf er á að fá svör við. 1) Hvaða reglur gilda um þessa flugvél, hverjir hafa rétt til að nota hana, er hún seld á sambærilegu gjaldi og flugvélar í einka- rekstri, hvert er hið raun- verulega hlutverk vélarinnar? 2) Hvers vegna er svo mikil tregða á upplýsingum sem raun ber vitni i ljósi svara til fjölmiðlanna um opin- bera notkun vélarinnar? 3) Búa samkeppnisaðilar við sam- bærileg skilyrði gagnvart tilboðum í þessa þjónustu fyrir ríkið og ráðu- neytin? 4) Er þörf á að bregðast við á sama hátt og Sturla Böövarsson varðandi athugasemdir um notkun umræddr- ar flugvélar; að telja að verið sé að koma á hann höggi? 5) Hvers vegna brást meiri- hluti fjárlaganefndar við beiðni um afrit af logbók vél- arinnar eins og þeir væru einhver rannsóknarréttur? Er eitthvaö að fela? Ef aðdragandi málsins er skoðaður liggur fyrir að DV spurði fyrst um málið i apríl síðastliðnum en fékk loðin svör eða engin. Hvorki DV né aðrir fjölmiðlar hafa fengið þær uppiýsingar sem þeir hafa sóst eftir varðandi notkun Flug- málastjórnarvélarinnar. Það að vitna til þess kallar meirihluti fjárlaga- nefndar hviksögur. Fjölmiðlar vöktu athygli mína á þessu máli sem mér fannst sárasaklaust að kanna en menn bregðast við eins og verið sé að fletta upp einhverju sakamáli. Helstu notendur vélarinnar telja sig vera boðbera frjálsrar samkeppni og stuðningsmenn einstaklingsfram- taks. Það er ekki að sjá í verki því einstaklingar í flugrekstri virðast gjörsamlega sniðgengnir varðandi þjónustu fyrir ráðuneytin. Svo þarf ráðherrum landsins að vera Ijóst að þingmenn hafa skyldum að gegna varð- andi aðhald og eftirlit og það er hart þegar svo er brugðist við sem raun ber vitni. Mér sem þessar vangaveltur rita virðist ekki síst nauðsyn á að veita aðhald þegar eitt stjómmálaafl hefur setið svo lengi við völd að þeim finnst þeir eiga allt, mega allt og geta allt. Svo þarf ráðherrum lands- ins að vera ljóst að þingmenn hafa skyldum að gegna varðandi aðhald og eftirlit og það er hart þegar svo er brugðist við sem raun ber vitni. Við- brögð við athugasemdum og beiðn- um um upplýsingar er oftar en ekki útúrsnúningur, höfnun og dráttur á svörum. Fyrirspurnir í salt Mér er um og ó að rifja upp hluta þess en læt fylgja nokkur dæmi. Fyr- irspurnum Jóhönnu Sigurðardóttur hefur hvað eftir annað verið hafnað. Mínum fyrirspumum varðandi Lánasýslu ríkisins var svarað mjög seint og a.m.k. reynt aö fara í kring- um hlutina. Það tók nærri tvö ár að fá hlutina upp á borðið í því dæmi. Niðurstaðan varð starfslokasamning- ar við tvo einstaklinga sem ef til vill eru alveg „eölilegir". Lokaspurning mín hlýtur því að vera: Á íslensk þjóð ekki rétt á að vita hvernig opinberir aðilar nýta fjármuni hennar? Gísli S. Einarsson Varist villukenningar „Varist falsspámenn" segir í biblí- unni. Viðvaranir um villukenningar eru jafngamlar kenningum yfirleitt; vandinn er bara að greina þar á milli. Fyrir tæpri hálfri öld kom Ben- Gurion, forsætisráðherra ísraels, hingað í heimsókn og borgarstjóri hélt honum veislu; í ræðu til heiðurs gestinum sagði hann eitthvað um ísr- ael sem föðurland Krists. Gesturinn svaraði hvimpinn, að margir falsspá- menn hefðu verið í landinu helga og að Kristur hafi verið einn þeirra; sumir gyðingar þykjast hafa einka- rétt á að túlka testamentin. Nú geisa deilur um nýjan spámann íslams, í meira lagi falskan. Mannskepnan fellur sífellt fyrir loddarabrögðum fjáraflamanna og predikara. Eitt gjöfulasta sviðið er útlit og heilsa fólks. Eitt sinn lét þýska ritið Der Spiegel gera rann- sókn á virkni og gagnsemi húð- krema sem áttu að gefa fegurð og heilsu. í ljós kom að eitt þeirra dýr- ustu var ekkert betra en venjulegt krem sem kostaöi tíu sinnum minna; salan hrundi í fyrstu en þá var breytt um nafn á kreminu og þá rauk salan upp. Já, fólk á víst rétt á Dr. Jónas Bjarnason efnaverkfræöingur fyrrverandi dósent læknadeild „Draga skal sem mest úr neyslu fitu, sérstaklega harðrar, sykraðra matvœla, fljótmeltanlegra og trefjasnauðra mjölvamatvœla. Gaui „litli“ lýsti þessu vel i sjónvarpi, enda hefur hann sýnt árangur sjálfur.“- „Spurningin er ekki um að hætta að borða heldur að gera minna af því, velja betur og stunda hreyfingu.“ því að fá að láta blekkjast. Offita og áróöur Offita er vaxandi vandamál á Vestur- löndum og er eitt stærsta heilbrigðis- vandamálið; hún veld- ur einnig skertri sjálfsímynd og minnk- ar lífsgæði. Til að glíma við hana er mik- ill fjöldi af aðferðum í boði; megrunarkúrar, efni í krukkum, bækur og mataruppskriftir. Þeir sem bestu reynslu hafa í þessum efnum vita að leiðin til að grennast heitir hófsemi til allrar neyslu og hreyfmg. Draga skal sem mest úr neyslu fitu, sérstak- lega harðrar, sykraðra matvæla, fljót- meltanlegra og trefjasnauðra mjölvamatvæla. Gaui „litli“ lýsti þessu vel í sjónvarpi, enda hefur hann sýnt árangur sjálfur. Spurningin er ekki um að hætta að borða heldur að gera minna af því, velja betur og stunda hreyfingu. Því miður er engin töfralausn til en upp- skriftin byggist á hófsemi, sjálfsstjórn og grunnþekkingu á matvælum. Fólk kaupir sig ekki frá offitu með skyndi- brögðum eða „megrunarefnum"; manni rennur til rifja hvernig sumt fólk er prettað og féflett. Röngu tré veifaö í helgarblaði DV 21.10. 00 er viðtal við Jón Braga Bjamason prófessor með fyrirsögninni: „Sykur er fíkni- efni“. Umræðan er um offitu og pró- fessorinn segir fólki að forðast sykur og sykrur án þess að þekkja muninn sjálfur; boðskapinn er að finna í dægurhugmynd í amerískri bók: „Sugarbusters" (sykurbanar). Slíkar bækur hafa birst nýverið, en þær predika að fólk eigi að forðast sykur og sykrur (mjölva) en borða í staðinn prótín og fltu. Siðan eru sýndar töflur með „sykurstuðlum" eða vísbending- um um sykruinnihald í einstök- um matvælum. Munurinn á milli sykurs og náttúrulegra sykra (fjölliður syk- °S urs, mjölvi) er mikill; mjölvi er Vl° uppistaðan í öllu korni og garð- — ávöxtum, en hvítur sykur, hun- ang, þrúgusykur og mjólkursykur eru „hrásykur". Mörg hollustumatvæli eins og heilhveiti, kartöflur, gulrófur og gulrætur hafa háa „sykurstuðla" og það er óðs manns æði að vara fólk við þeim sérstaklega vegna ofþyngdar (nema sýkursýkisjúklinga). - Þetta er allt saman skelfilegt rugl, sem er Jóni til skammar. Margir virtir fræðimenn í Banda- ríkjunum hafa bent á algjört gagns- leysi „sykurstuðla" í baráttu við offitu. Nú síðast hafa Bandarísku hjartasamtökin (AHA) beinlínis var- að við háprótínmat og sykrusveltiað- ferðum til að grennast; afleiðingarn- ar geta verið margs konar blóðrásar- og hjartasjúkdómar, slag, sykursýki, ýmsar gerðir krabbameins o.fl. Manneldisfræðingar vita að hollasti maturinn er fjölbreyttur og felst í hóflegri fitu og prótini en er með heilkorn, garðávexti, ávexti og græn- meti sem meginuppistöðu, en sá mat- ur hefur fremur háan sykurstuðul, hvað sem líður óábyrgu hjali pró- fessors við Hí. Dr. Jónas Bjamason Hagsmunir bílavina . „Án þess að ég ætli... að fjalla um öll þau sorglegu bílslys sem hér hafa orðið að undanfömu, þá hlýtur maður nú að mega halda því fram að það sé ýmislegt brýnna í þessu samfélagi en að sum öflugustu bíla- og peningafyrirtæki landsins taki höndum saman með heilsíðuaug- lýsingum í blöðum til að telja unga fólkinu okkar trú um að bílar séu bestu vinir þess ... Bílavinafélagiö er náttúrlega bara hagsmunafélag, for- varnarfélag, en snýst ekki um for- varnir gegn til dæmis mengun eða slysum - eins og þó er svo mikil þörf á í sambandi við bílaeign lands- manna. Þetta er bara forvörn gegn því að kannski græði þessir aðilar ei- lítið minni pening á næstunni." Illugi Jökulsson í pistli á Stöö 2. Raust Guðs þrumar „Þjóðir gnýja, ríki n jfm riða og raust Guðs n þmmar. Og enn gnýja w, i þjóðir og náttúran fí V, _ A minnir á sig. Sagt hef- |f , . ur verið að íslending- IV " ar hafi misst hlutfalls- I J ''■23 lega fleira fólk af völd- ■— um náttúruhamfara en allar þjóðir Evrópu í öllum styrjöldum fyrri alda. Landið okkar er fagurt og frítt en um leið er það hættulegt. Lífið er hættu- legt! Unga fólkið sem í æskufjöri nýt- ur lífsins fellur alltof margt fyrir eitri og líka fyrir hröðum og ógætilegum akstri á vegum landsins eins og dæm- in sanna einmitt nú um þessa helgi. Lífið er dauðans alvara." Sr. Örn Báröur Jónsson í predikun I Neskirkju um sl. helgi. Spurt og svarað Er stríðið gegn talibönum í Afganistan aðmissa marks? Vigfús Geirdal sagnfrœdingur: Marklaust frá upphafi „Ef þessar hernaðaraðgerðir eru skoðaðar í samhengi við yfirlýst markmið Bandaríkjanna um að vemda lýðræði og útrýma hryðjuverkum er ljóst að þær voru marklausar frá upphafi. Málið snýst hins vegar miklu frekar um Sádi-Arabíu en Afganistan. Bin Laden er Sádi-Arabi og krafa hans hefur verið sú að Bandarík- in fari út úr heimalandi hans meö herstöðvar sínar. Afganistan er eitt fátækasta land veraldar og er sundur- sprengt fyrir löngu. Dreift um landið liggja tíu milljón- ir jarðsprengna - og innan um matvæli sem varpaö er úr lofti em klasasprengjur sem líta út eins og leikfóng. Kannski eru „leikfangasprengjumar" skýrasta birting- armynd þess að árásirnar hafa ekki þann tilgang að gera heiminn ömggari gegn hryðjuverkum." H Ámi Ragnar Ámason, , þingmadur Sjálfstædisflokks: ^f| Illvígir dregnir til ■*£-y ^ „Eg held að ekki sé hægt að dæma um það enn. Við höfum séð á gögnum m—i—að eftir sex ára styrjöld í Afganistan álitu sérfræðingar Rússa að þeir gætu átt eftir að berjast þar í áratugi. Ég tel að það muni reynast rétt sem sagt var í byrjun þessara hemaðaraðgerða að við sjáum ekki fyrir endann á þeim fljótlega. Það skiptir mestu máli að það takist að draga til ábyrgðar einhverja illvígustu hermdarverkamenn sögunnar og þá sem veita þeim skjól. Því verða vesturveldin og þeirra samstarfsríki að standa fyrir mikilli neyðarhjálp á þessu svæði. Mér flnnst mis- skilningur að tala um þetta sem átök milli kristinna manna og múslíma, þetta era aðgerðir til að ná til hermd- arverkamanna sem ekki einasta hafa ráðist gegn Vestur- löndum heldur alþjóða samstarfi á öllum sviðum." Sr. Vigfus Þór Ámason, sóknarprestur í Grafarvogi: Stríð œtíð án takmarks „Að mínu áliti geta styrjaldir eða hernaðaraðgerðir hvers konar aldrei falið í sér neitt takmark, heldur fylgja þeim alltaf enn meiri hörmungar. Mat vesturveldanna var að til einverra aðgerða yröi að grípa gagnvart tali- banastjórninni í Afganistan og bin Laden í kjölfar hryðjuverkanna 11. september. Líta Bandarikin og vest- urveldin svo á að þau séu ekki að heyja stríð, heldur verj- ast. Þrátt fyrir það megum við ekki missa vonina, heldur biðja Guð um frið rétt eins og að við verðum alltaf að trúa á það góða í heiminum. Ég vil alls ekki líta svo á að stríðið í Afganistan sé milli kristinna manna og múslíma. Sjálfur þekki ég marga úr síðamefnda hópnum sem er fyrirmyndarfólk. Þetta stríð er komið til vegna árása fá- menns hóps öfgamanna á hið vestræna samfélag." Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingar: Tíminn vinnur gegn stríðsrekstri „Þeim mun lengri tími sem líður frá því sýnilegur árangur næst gegn hryðjuverkamönnunum og samtökum þeirra, þeim mun erfiðara er að verja árásirnar. Það era engin ný sannindi að Afganistan er sjálfsagt eitt erfiðasta land heimsins til þess að heyja hernað LÞað ætti því ekki að koma á óvart þótt einhvem tíma tæki að hafa hendur í hári bin Laden og liðssveita hans. Á meðan talibanastjóm- in skýtur skjólshúsi yfir hryðjuverkamenn er hins vegar eðlilegt að þeir svari fyrir gjörðir slíkra manna, en þær hafa bitnað á lifi fólks um allan heim og eru hryðjuverkin í Bandarikjunum gleggsta dæmið um það. Hið ömurlega er hins vegar hve margir almennir borgarar falla í þessu stríði og það er ekki síst sú staðreynd sem vekur upp mikl- ar efasemdir um réttmæti þess.“ :v=\ VIG> IHO ROMcSJl 60 O CXS'Tf=7Kk£- 3PRXa - 1—/F7tNÍe»© o VÖ!?GM Sf=7M- Mftlfi gm SK> CXS HRVCSJG - VEP?l<riN Fordómafullir fordómar Stríösrekstur Bandaríkjamanna í Afganistan sætir vaxandi gagnrýni víöa um lönd, þar sem hann þykir ómarkviss og bitna um of á saklausum borgunum. Alitlegur hópur fólks starfar við að aðstoða út- lendinga sem hingað flytj- ast til að fóta sig i fram- andi samfélagi. Starfsmenn svona þjónustu eru tíðir gestir í fjölmiðlum og fer ekki á milli mála að þeir hafa kórrétta skoðun á mikilvægi starfa sinna og geta flestir eða allir tekið undir það. Nú er það orðin almenn vitneskja að til að ná þegnrétti í landi verða aðfluttir að tileinka sér tungumálið sem þar er talað. Að öðr- um kosti verða þeir alltaf utanveltu og ná illa því menningarsambandi sem til þarf til að samlagast um- hverfinu sem viðkomandi lifa og hrærast í. Því er lögð eðlileg áhersla á að kenna og þjálfa fólk af erlendu bergi brotið til að skilja og tjá sig á islensku. Samtimis eru dómstólar farnir að kenna innfæddum hvernig þeir mega ekki orða hugsanir sínar sem snúast um íjarlægar þjóðir og lífviðhorf. ! þeirri viðleitni að kenna því ís- lenska fólki sem rekur ættir til nor- rænna kónga og Írafells-Móra að um- gangast nýdubbaða landa sína er mikil áhersla lögð á að hérlendis ríki óskaplegir fordómar gegn aðfluttu fólki og yfirleitt öllum þeim sem ekki hafa yflrbragð Gunnars á Hlíð- arenda og Hallgerðar spúsu hans. Þeir sem þykjast bera hag aðfluttra fyrir brjósti gleyma aldrei ásökun- um um fordómana þegar þeir flytja boðskap sinn í fjölmiðlum og víðar á opinberum vettvangi. Á stundum jaðrar við að allt for- dómatalið sé ekki síður ógrundaðar og illa orðaðar hugrenningar en það orðbragö sem jafnt og þétt er verið að ásaka aðra fyrir að viðhafa þegar fólk af ólíkum kynþáttum ber á góma. Að kenna öðrum um fordóma getur verið allt eins fordómafullt og hver önnur illmælgi um náungann. Ef til vill tekst einhverjum að láta á það reyna fyrir dómi hvort allt for- dómarausið er eins saklaust og vel- viljað í garð náungans eins og mann- kynsfrelsarar vilja vera láta. Hinir hjartahreinu Ef þeir sem taka að sér upp- fræðslu þeirra sem hingað leita til búsetu byrja á þvi að kenna fólkinu að á meðal innfæddra ríki forldómar í þeirra garð, sem byggist á fáfræði og illum hug, er það vafasöm fræðsla Oddur Olafsson skrifar: og er bágt að sjá hvaða til- gangi hún þjónar. Hún sýn- ist fyrst og fremst henta til að ala á tortryggni og vinna gegn þeim tilgangi að bræða saman ólíka menningar- heima og aðlaga aðflutta að einhverju, sem kalla má ís- lenskan veruleika upp á póstmódernísku. Engum er greiði gerður með því að klifa óhóflega aö meintri meinsemd i sambúð þeirra íslendinga sem passa inn í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði og hinna sem bera í sér órekjanlega litninga. En ef marka má vitnisburði dökkleitra landa eða þeirra sem hafa stríðari augnlok en algengast er á vestur- hveli jarðar er oftast grunnt á því að þeir fari að ræða fordómana. Engu er líkara en að þeir læri lexíuna með íslenskunáminu. Viðmælendur aðfluttra, sem bera einhver sérkenni kynþáttar síns, fréttamenn eða aðrir, eru sífellt að láta þá svara spurningum um for- dóma gegn þeim með tilheyrandi fá- fræði. í fjölmiðlum virðist eini til- gangurinn með viðtölunum vera að fá fólkið til að vitna um fordómana og ganga spurningamar oft einhliða í þá átt. Oft er fólkið að lýsa ánægju sinni með viðtökur og viðmót sem það mætir hér, þegar allt í einu er farið að láta það svara stöðluðum spurn- ingum um fordómana gegn þvi. Kjánaskapur Þetta er orðið eins og slæmur kækur sem þeir sem halda sig for- dómalausa eru illa haldnir af. Að gera mönnum, jafnvel heilum þjóðum, upp skoðanir og einstreng- ingsleg sjónarmið undir yfirskini manngæsku og samúðar, er oft álíka kjánalegt og að dæma heilu kynþætt- ina samkvæmt eigin ranghugmyndum. Aðskilnaður felst oft í nafngiftum og heitum og varðar nú orðið við lög ef ruglast er í því rími. í góðri meiningu var fundið upp orðskrípið nýbúi, til aðgreiningar frá þeim er löggildur íslendingur orðinn síbúi. Það skrípi er farið að nota i fjölmiðlum. Til að þjóðin, hvernig sem hún er á litinn, sé sjálfri sér samkvæm er nú hægt að sleppa við slettuna túristi, sem þá verður skammbúi, svo að allt verði í stíl og innan ramma laganna. En aldrei skal ég svívirða landa mína með samheitinu nýbúar. Eru til hinsegin íslendingar? Á stundum jaðrar við að allt fordómatalið sé ekki síður ógrundaðar og illa orðaðar hug- renningar en það orðbragð sem jafnt og þétt er verið að ásaka aðra fyrir að viðhafa þegar fólk af ólíkum kynþáttum ber á góma. Að kenna öðrum um fordóma getur verið allt eins fordómafullt og hver önnur illmœlgi um náungann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.