Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2001, Side 25
2í
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001
JETV Tilvera
Nýtt á myndbandi:
Villta vestrið á
tuttugustu öld
Sumar kvikmyndir sem fara
beint á myndbandamarkaðinn ættu
skilið að fá möguleika í kvikmynda-
húsi. Slík kvikmynd er All the
Pretty Horses, sem Billy Bob
Thorton leikstýrir og er hún fyrsta
kvikmynd hans bak við myndavél-
ina frá því hann leikstýrði og lék í
verðlaunamyndinni Sling Blade.
Myndin sem frumsýnd var vestan-
hafs fyrr á árinu hefur yfirleitt feng-
ið ágæta gagnrýni og þykir hún vel
skrifuð og vel leikin mynd um
menn og konur sem lifa í leifum af
Villta vestrinu, horfa til horfms
tíma með söknuði. Úrvalsleikarar
eru í helstu hlutverkum og ber þar
fyrst að nefna stórstjörnurnar Matt
Damon og Penelope Cruz.
Aðrir eru til að
mynda Bruce
Dem, Henry
Thomas, .
Lucas Black
(lék dreng-
inn í Sling
Blade),
Ruben
Blades,
Sam
ara, Blevin, á leið þeirra. Hann hef-
ur verið sakaður um hestaþjófnað
og slæst í for með þeim.
Þegar þeir félagar koma til
Mexíkó fá þeir vinnu hjá ríkum
landeiganda, þar sem vandræðin
byrja. Það slettist upp á vinskapinn
hjá Cole og Blevin um sama leyti og
Cole verður ástfanginn af fallegri
dóttur landeigandans. Ekki bætir
það úr skák að eigendur hestsins
sem Blevin á að hafa stolið eru
komnir til Mexíkó og eru þeir allir
þrír fangelsaðir þótt tveir þeirra
hafi ekki komið nálægt þjófnaðin-
um. Hafi verið einhver vafi um það
í huga Cole og Rawlins að villta
vestrið væri horfið þá komast þeir
að hinu sanna í þeim efnum í fram-
haldi af fangelsuninni.
Billy Bob Thorton skaust upp á
stjörnuhimininn fyrir fimm árum
þegar hann sendi frá sér Sling
Blade. Var hann tilnefndur til ósk-
arsverðlauna sem besti leikari og
fékk óskarinn fyrir handrit sitt. Hef-
ur hann síðan verið iðinn við kol-
ann og leikið í mörgum kvikmynd-
um og var tilnefndur aftur til ósk-
arsverðlaunanna, nú í aukahlut-
verki, fyrir leik sinn í The Simple
Plan. Einkalíf kappans hefur verið á
milli tannanna hjá slúðurdálkahöf-
undum. í dag er hann kvæntur Ang-
eline Jolie. Áður hafði hann verið
trúlofaður Lauru Dern, sem vissi
ekki betur en að hann ætlaði að gift-
ast henni þegar hún las það í blöð-
unum að Jolie væri komin í hennar
stað.
Það er Skífan sem gefur út All the
Pretty Horses og er hægt að nálgast
hana á öllum myndbandaleigum.
-HK
Kúrekarnir
Matt Damon, Lucas Black og Henry Thomas í hlutverkum sínum.
Shepard og Robert
Patrick (X-files).
All the Pretty Hors-
es gerist 1949. Texas-
búarnir John Grady
Gole og Lacey Rawlins
eru ósáttir við þró-
unina í heima-
ríki sínu og
ákveða að
söðla um
og halda
til
Mexíkó í
leit að
atvinnu
og ævin-
týrum.
Þeir
hitta fyr-
ir ungan
flakk-
Alejandra
Penelope Cruz leikur fagra dóttur landeiganda sem heillar
kúrekana.
Uppáhalds myndin
Guðfaðirinn og Being There bestar
- segir Ómar Jóhannsson, eigandi myndbandaleigunnar Heimabíós
Margir héldu niðri í sér and-
anum síðastliðið sunnudags-
kvöld þegar Ómar Jóhannsson,
eigandi sjoppunnar og vidoeleig-
unnar Heimabiós, vann milljón í
spurningaþættinum Viltu vinna
milljón? fyrstur íslendinga.
Ómar er mikill áhugamaður
um kvikmyndir og segist alltaf
horfa á spólu þegar hann kemur
heim eftir vinnu. „Blessaður
vertu, ég gæti ekki sofnað öðru-
vísi.“
Uppáhaldsmyndirnar
„Ég hef mestan áhuga á gam-
anmyndum og krimmum en ég
held að Guðfaðirinn I og II séu
bestu myndir sem ég hef séð. Ég
var að horfa á þær aftur um dag-
inn og myndirnar eru enn í fullu
gildi.“ Ómar segist ekki geta
gert upp á milli þeirra og þó að
þriðja myndin sé líka góð vilji
hann ekki setja hana í sama
gæðaflokk. „Hún er skörinni
lægra."
„Uppáhaldsgamanmyndin
mín er Being There með Peter
Sellers. Að minu viti er hún al-
veg einstök gamanmynd með
dramatískri undiröldu."
Nú vandast málið
Þegar Ómar er spurður hvort
hann haldi sérstaklega upp á ein-
hvern leikara þagnar hann um
stund og segir að nú vandist mál-
ið. „Tveir af mínum uppáhalds-
leikurum eru reyndar látnir en
það voru þeir Peter Sellers og
Laurence Olivier. Af núlifandi
leikurum held ég mikið upp á
Anthony Hopkins, A1 Pacino og
Johnny Depp, þetta eru allt
klassamenn."
Gamanmyndir og krimmar
Ómar Jóhannsson segist horfa á eina mynd á dag til aö sofna eftir vinnu en hann
rekur myndbandaleiguna Heimabíó.
Some Like It Hot
„Að mínu viti þarf mynd að
hafa bitastæðan söguþráð til að
teljast góð. Persónurnar þurfa að
vera trúverðugar og leikstjórnin
í lagi. Góður leikstjóri getur
reyndar bjargað lélegu handriti
en hann getur líka eyðilagt gott
handrit."
í lokin viðurkennir Ómar að
hann hafi alltaf haldið mikið upp
á gamanmyndini Some Like It
Hot með Jack Lemmon, Tony
Curtis og Marilyn Monroe. „En
það er bara okkar á milli.“
-Klp
m
Wit
Dauðastríð
Mike Nichols er
einn fremsti leik-
stjóri Bandaríkj-
anna og jafnvígur
á kvikmyndir sem
og leikhús. í Wit
fær hann tækifæri
til að sameina
þessa krafta sína
og þegar maður á
borð við Nichols á í hlut þá er ætl-
ast til mikils af honum. Því miöur
nær hann ekki að búa til kvikmynd
úr leikhúsi í þetta skiptið. Wit sem
er einstaklega áhrifamikið verk fer
aldrei nema með tærnar inn í kvik-
myndaheiminn.
Emma Thompson (sem skrifar
handritið ásamt Nichols) leikur há-
skólaprófessor, Vivian Bearing.
Hún fær þann úrskurð að hún sé
með ólæknandi krabbamein. Lækn-
irinn fær hana til að taka þátt i til-
raunaverkefni með lyf sem hann
segir mjög sársaukafullt en eigi eft-
ir að lengja líf hennar. Við fylgj-
umst síðan með Bearing í nútíð og
fortíð, hvernig sjúkdómurinn breyt-
ir henni, hvernig læknarnir nánast
hugsa aðeins um hana sem tilraun
og hvernig kvöl hennar eykst eftir«n»
hverja meðferð.
Það verður að segja Mike Nichols
til vorkunnar að hann fær einstak-
lega erfiðan texta til að kvikmynda.
Heimur Bearings er í klassískum
bókmenntum og hún er, sem og þeir
sem umgangast hana, stanslaust að
vitna í ljóð og ævi sautjándu aldar
skáldsins, Johns Donne.
Textinn er djúpur og framsetning
hans góð en myndrænn er hann
ekki. Það sem gerir myndina fyrst
og fremst áhrifamikla er leikur
Emmu Thompson sem er einstakur,*-~
svo ekki sé meira sagt. Hún leggur
allt sem hún á í hlutverkið og upp-
sker eftir því. -HK
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Mike
Nichols. Bandaríkin, 2001. Lengd: 99
mín. Leikarar: Emma Thompson.
Christopher Uoyd, Eileen Atkins og Audra
McDonald. Bönnuð börnum innan 12 ára
Marlene ★★
Prímadonna
Mikið hefur ver-
ið skrifað um Mar-
lene Dietrich,
þýsku leikkonuna
sem heillaði alla
eftir að hún lék í
Bláa englinum.
Leið hennar lá til
Hollywood þar
sem frami hennar
var mikill og er hún ein af stóru
stjörnum kvikmyndanna á síðustu
öld.
Marlene Dietrich var þýsk og það
eru Þjóðverjar sem gera myndina
Marlene sem lýsir lifshlaupi hennar
sem var fjölskrúðugt. Marlene gift-
ist aðeins einu sinni en átti marga
elshuga og ástkonur. í myndinni er
staldrað við einkalíf hennar, lítið
farið yfir veg hennar á listabraut-
inni en hún var á seinni árum ekki
síður þekkt sem söngkona. Marlene
var einn þeirra þýsku listamanna*4
sem tóku afgerandi afstöðu gegn
Hitler og ferðaðist um allan heim í
siðari heimsstyrjöldinni til að
skemmta hermönnum (kom meðal
annars til Islands).
Marlene ristir ekki djúpt. Það er
farið fljótt yfir sögu. Mér virðist
vera reynt að bera i bætifláka fyrir
hana í sambandi við fjölskylduna,
um leið og látið er liggja að því að
hún hafi átt eina sanna ást. Eitt-
hvað sem erfitt er að trúa. Sú sem
leikur Marlene, Katja Flint. nær
ágætum tökum á persónunni. Að
lokum má geta þess að í hlutverki^®
elshuga hennar er Heino Ferch sem
næstum náði að eyðileggja eina að-
alpersónuna i Mávahlátri. Hér
sannar Ferch að hann er vondur
leikari. -HK
Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Joseph
Vilsmaier. Þýskaland, 2000. Leikarar:
Katja Flint, Herbert Knaup og Heino
Ferch. Lengd: 122 mín. Bönnuö börnum ^
innan 12 ára.