Alþýðublaðið - 20.03.1969, Síða 16
Alþýðu
blaðið
Afgreiðslusími: 14900
Ritstjórnarsímar: 14901, 14902
Auglýsingasími: 14906
Pósthólf 320, Reykjavík
Verð í áskrift: 150 kr. á mánuði
Verð í lausasölu: 10 kr. eintakiíf
HVER ERU VIÐBRÖGÐ ALMENNINGS?
Löffregrluþjónninn brosti g-óðlátlegra við spurningunni og svaraði: „Nei, klæðnaður stúlkunnar vekur
síður en svo hneykslun mína“.
— Lítur almenningur hney\sl-
andi augum á ungar stúlkur, sem
klæðast stytztu pilsunum, — pils-
um, sem aðeins þekja lítinn hluta
læranna? Þessi spurning er vissu-
Iega forvitnileg, og einmitt þess
.vegna brugðum við á leik í gær og
spurðum fólk, sem var á gangi í
miðborginni, hvort því fyndist
klæðnaður stúlkunnar hér á mynd-
tinum hneykslanlegur.
Því er ekki að neita að spurn-
ingin kom fólkinu á óvart, svo
sjálfsagt þótti sumum, að ung og
falleg stúlka klæddist mini-pilsi. Þó
voru nokkrir, sem ekki kváðustf
dómbærir í þessu efni — og vekur
það reyndar nokkra furðu okkar.
Þá voru nokkrir, sem skunduðu
á brott sem hraðast þeir máttu,
er þeir uppgötvuðu segulbandstæki
blaðamannsins, svo ekki sé nú
minnzt á ljósmyndarann, sem stóð í
nokkurra metra fjarlaegð. En þrátt
fyrir allt komumst við að þeirri
niðurstöðu, að fólkinu á götunni
þykir síður en svo neitt athugavert
við það, að ungar stúlkur klæðist
stuttpilsunum víðfrægu. Nú má því
ætla, að stuttpilsin séu orðin úrelt
þrætuefni fólks, og þau hafi áunnið
sér jafnvirtan sess í augum fólksins
og síðpils peysufatanna.
I góðviðrinu í gær hefur sjálfsagt
sumum fundizt það nokkur tilbreyt-
ing frá grámyglulegum vetrarmán-
uðunum, sem á undan eru gengnir,
að dæma um það, hvort klæðnaður
stúlkunnar á vegum Alþýðublaðsins
vekti hneykslun þeirra eða ekki. —
Víst er um það, að flestir brugðu vel
við. Væri heldur annað verjandi?
Því miður getum við ekki birt
myndir af öllum þeim, sem við
spurðum. Þær myndir, sem hér eru
á síðunni og svo á forsíðunni verða
að nægja.
Ekki má bregða okkur um það,
að við gætum ekki fyllsta hlutleys-
is, hvað niðurstöðuna áhrærir. Því
er okkur skylt að geta þess, að 2
konur kváðust ekki dómbærar í
málinu. Ef til vill eru aðeins karl-
menn dómbærir í málum sem þess-
■Æ&wl
Þessi roskni maður, sem við hittum í Austurstræti, svaraði sPUrit
ingrunni: „Klæðnaffurinn. inei, hann er ekki hneykslimarefni frekar
en svona gerist ogr gengur“.
um — eða hvað? Hins vegar var
ekki annað að sjá eða heyra en allir
karlmennirnir, sem við spurðum,
væru þeirrar skoðunar, að ekkert
sérstakt mælti á móti því, að ung-
ar stúlkur klæddust stuttpílsijm. —
(Til dæmis gerði enginn þeirra þá
athugasemd, að minipils væru litlar
skjólflíkur í nepju vetrarmánaðanna,
en það er ef til vill önnur saga).
l»essi frú vildi enga afstöðu taka I málinu.
Þessi vegfarandi í Austurstræti svaraði spurningunni á þessa leiff: „Nei, síður en
svo. Pilsið er alls ekki of stutt“.