Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2001, Qupperneq 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2001
I>V
REUTER-MYND
Sigurvegarinn í Kosovo
Ibrahim Rugova, leiötogi hófsamra
Albana i Kosovo, hefur lýst yfir sigri í
þingkosningunum um helgina.
Rugova vill viöur-
kenningu á sjálf-
stæði Kosovo
Ibrahim Rugova, leiðtogi hóf-
samra Albana í Kosovo, lýsti í gær
yfir sigri í sögulegum þingkosning-
um sem fóru fram í héraðinu á laug-
ardag. Hann hvatti við það tækifæri
ríki heims til að viðurkenna sjálf-
stæði Kosovo þegar í stað.
Bráðabirgðaúrslit kosninganna
verða ekki kunngerð fyrr en i dag
en engu að síður sagði Rugova ljóst
að flokkur hans, Lýðræðisbandalag
Kosovo, hefði farið með sigur af
hólmi. Á Vesturlöndum var mikil
ánægja með kosningarnar sem
menn sögðu fyrstu lýðræðislegu
kosningamar í þessu serbneska hér-
aði þar sem meirihluti íbúanna er
af albönsku bergi brotinn.
Kosovo hefur verið undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna frá í júní 1999
þegar loftárásir NATO á Júgóslavíu
bundu enda á þjóöernishreinsarnir
stjórnar Júgóslavíu í Kosovo.
Powell telur Osama bin Laden enn vera í Afganistan:
Leynisveitir CIA
í lykilhlutverki
REUTER-MYND
Noröanmaöur á bæn
Liösmaöur Noröurbandalagsins, sem berst viö hersveitir talibana í Afganist-
an, hefur lagt frá sérAK-47 árásarriffilinn sinn og fariö úr skónum á meöan
hann fer meö bænir sínar nærri þorpinu Maidan Shahr, skammt frá Kabúl.
Leynilegar sveitir bandarísku
leyniþjónustunnar CIA og litlar eftir-
litsvélar hennar hafa gegnt lykilhlut-
verki í baráttunni gegn al-Qaeda
hryðjuverkasamtökum Osama bin
Ladens í Afganistan, að því er banda-
ríska blaðið Washington Post hafði i
gær eftir áreiðanlegum heimildar-
mönnum sínum. Ekki hefur áður ver-
ið greint frá tilvist þessara vopnuðu
sveita CIA.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að hann
teldi að bin Laden, sem grunaður er
um að hafa staðið fyrir árásunum á
New York og Washington í septem-
ber, væri enn innan landamæra
Afganistans.
„Ég held að hann sé enn í Afganist-
an og það er orðið erflðara fyrir hann
að fela sig, þar sem talibanar missa
sífellt meira land,“ sagði Powell.
Sendiherra talibana í Afganistan
sagði að bin Laden væri ekki lengur
á yfirráðasvæði talibana. Þá sagði
hann að bin Laden væri ekki lengur
gestur talibana.
Breska blaðið Sunday Times sagði
í gær að breskar og bandarískar sér-
sveitir einbeittu sér að að leita bin
Ladens á 80 ferkílómetra svæði í suð-
austurhluta Afganistans. Breska
landvamaráðuneytið vildi ekki stað-
festa fréttina í gær.
Norðurbandalagið, sem berst gegn
talibönum, féllst í gær á að koma til
viðræðna við aðra andstæðinga tali-
bana um myndun nýrrar stjómar.
Viðræðumar munu fara fram í Evr-
ópu, hugsanlega á næstu dögum.
Norðurbandalagið hafði áður krafist
þess að fundirnir yrðu haldnir í
Afganistan.
Ákvörðun þessi hefur dregið mjög
úr ótta manna við að í kjölfar hrak-
fara talibana á vígvellinum undan-
fama daga myndi blossa upp enn eitt
borgarastríðið milli ættbálka lands-
ins.
Talibanar ráða enn yfir Kandahar í
sunnanverðu Afganistan og Kunduz í
norðri og voru gerðar loftárásir á
borgimar í gær. Andstæðingar tali-
bana hafa umkringt Kunduz og boðið
þúsundum talibana sem verjast enn
að gefast upp.
Boðið nær þó ekki til erlendra
vopnabræðra talibana. Fréttir herma
að erlendu skæruliðarnir í sveitum
talibana hafi drepið félaga sína sem
vildu gefast upp.
Vertu viðbúinn vetrarfærðinni
V
Hjá Suzuki bílum býðst einstaklega
fjölbreytt úrval fjórhjóladrifsbíla.
Alit frá nettum og einstakiega sparneytnum bæjarbíl eins og Wagon R+ upp í nýjasta og
stærsta jeppann, Suzuki Grand Vitara XL-7, sjö sæta glæsijeppa með 2.7 L173 hestafla vél.
Allir Suzuki fjórhjóladrifsbílarnir eru byggðir á traustum grunni og áratuga reynslu Suzuki
í smíði rúmgóðra og sparneytinna jeppa og fólksbíla.
Grand Vitara 2.0L, 5 dyra Grand Vitara XL-7 2.7L, 7 sæta Grand Vitara 1.6L, 3 dyra
Verð kr. 2.420.000 Verð kr. 3.080.000 Verð kr. 2.110.000
Wagon R+ 1.2L,
VerðTcr. 1.375.000
Baleno Wagon GLX 1.6L,
Verðkr. 1.955.000
^ SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
w ww. suzukibi lar. is
J
Páfi hvetur til bæna
Jóhannes Páll
páfi hvatti leiðtoga
allra trúarbragða
til að koma á fund
í janúar til að biðja
fyrir friði og vinna
að því að binda
enda á vopnuð
átök. Fundurinn
verður í ítalska
bænum Assisi og sagðist páfi vona
að hann yrði til að bæta samskipti
kristinna og múslíma.
Bjartsýnn á árangur
Sendifulltrúi leiðtoga uppreisnar-
manna í Tsjetsjeníu sagði eftir við-
ræður við ráðamenn í Moskvu í gær
að hann væri bjartsýnn á friðar-
samning við Rússa.
Brýn þörf fyrir aðstoð
Rauði krossinn segir að brýn þörf
sé fyrir vatn, matvæli og aðrar
nauðsynjar við borgina Mazar-i-
Sharif í norðurhluta Afganistans.
Sharon hafnar tiimæium
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, hafnaði í gær tilmælum full-
trúa Evrópusambandsins um að
ganga til viðræðna við Palestínu-
menn á grundvelli áætlunar sem
þjóðir heims hafa lagt fram. Sharon
sagði að Palestínumenn hefðu ekki
gert nóg til að binda enda á ofbeldi.
Tengdir bin Laden
Spænskur dómari fór í gær fram
á að átta meintir félagar í íslömsk-
um harðlíunusamtökum yrðu úr-
skurðaðir i gæsluvarðhald þar sem
þeir tengdust hryðjuverkaárásun-
um i september.
Powell varar Rússa við
Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Banda-
L i ríkjanna, varaði í
gær við því að sam-
búð Bandaríkja-
manna og Rússa
* Ma kynni að versna ef i
ljós kæmi að Rússar
_JS hefðu gerst sekir um
að aðstoða írana við framleiðslu
kjarnorkuvopna.
Olíuskip sökk
Drekkhlaðið skip sem grunað er
að hafi veriö að smygla olíu frá írak
sökk í Persaflóa í gær eftir að
bandarísk eftirlitssveit fór um borð.
Sósíalisti lýsti yfir sigri
Georgi Parvanov,
leiðtogi sósíalista-
flokksins í Búlgar-
íu, lýsti i gærkvöld
yfir sigri í síðari
umferð forsetakosn-
inganna. Parvanov
sigraði fráfarandi
forseta, Petar Stoja-
nov, með litlum mun.
Sparnaður við lyfjakaup
Sænska rikið ætlar sér að spara
fimm milljarða íslenskra króna með
því að skylda apótek til að afgreiða
alltaf ódýrustu lyf til sjúklinga,
sama hvað stendur á lyfseðlinum,
samkvæmt tillögu sem lögð verður
fram síðar í mánuðinum.
Stríðinu mótmælt
Allt að eitt hundrað þúsund
manns fóru um götur Lundúna i
gær og hrópuðu vígorð gegn hernað-
inum í Afganistan og hvöttu til að
loftárásunum yrði hætt.