Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Page 2
18
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
Sport
Argentína efst
hjá veðbönkum
Það var ekki að sökum að
spyrja að veðbankar víðs vegar
hrundu af stað spám um hverjir
myndu verða heimsmeistarar í
knattspyrnu þegar dráttur í
riðlakeppnina lá fyrir um helg-
ina. Argentína er talin líklegust
til að hreppa titilinn, að mati
veðmangara. Ítalía kemur þar í
humátt á eftir og heimsmeistar-
ar Frakka eru settir i þriðja sæt-
iö. Englendingar eru settir í
sjötta sætið. Langfæstir hafa
hins vegar minnstu tiltrú á Sádi
Araöbum.
-JKS
Sverrir hafnaði
boði frá Noregi
Sverrir Sverrisson, leikmaður
Fylkis í Árbænum, hafnaði á
dögunum tilboði frá norsku 1.
deildar liði.
„Ég vildi ekki fara frá góðri
vinnu og eins líður mér vel hjá
Fylki og vil vera þar áfram,“
sagði Sverrir Sverrisson sem ný-
verið framlengdi samning sinn
við Fylki um tvö ár. Áður en
Sverrir gekk í raðir Fylkis lék
hann um tveggja ára skeið með
sænska liðinu Malmö.
-JKS
Þórður áfram
á Kanaríeyjum
Þórður Guðjónsson, sem er
hjá spænska liðinu Las Palmas
frá Kanaríeyjum, fer ekki til hol-
lenska liðsins Roda Kerkrade
eins og allt stefndi í. Roda seldi í
sumar sóknarmann til Gron-
ingen í Hollandi en fékk hann í
hausinn aftur þegar hnémeiðsli,
sem leikmaðurinn átti í, tóku sig
upp að nýju og Roda var dæmt
til að taka hann aftur. Þetta
hafði það í fór með sér að ekkert
varð af kaupum Roda á Þórði.
Þórður sagði í samtali við DV-
sport að þaö væri þó ekki útilok-
að að hann gengi til liös við lið-
ið síðar. „Þeir sögðu að ef þeir
yrðu búnir aö losa sig við ein-
hverja leikmenn þegar vetrarfrí-
ið kæmi myndu þeir gjarnan
vilja vera í sambandi. En það er
ekkert sem maður bíður eftir og
ég sé það ekki endilega gerast."
Þórður er þó ánægður með að
eftir þetta er komin ákveðin
verðhugmynd og Las Palmas
hefur lækkað verðið töluvert frá
fyrsta boði.
Þórður hefur ekkert fengið að
leika með Las Palmas í vetur og
vill komast frá félaginu.
-JKS/HI
Góður árangur
Emmu í Svíþjóð
Emma Furuvik náði góðum
árangri á alþjóðlegu svigmóti á
skíðum í Tárnaby í Svíþjóð um
helgina. Emma lenti í öðru sæti
en sigurvegari varð Lina Jo-
hansson frá Svíþjóð sem kom
0,80 sekúndum á undan Emmu í
mark.
Þetta var fyrsta mótið sem
Emma tekur þátt í í vetur en fyr-
ir annað sætið um helgina fær
hún 46 FlS-stig. Emma hafði ver-
iö frá vegna meiðsla í um tvö ár.
-JKS
Dregið í riðla
deildarbikarsins
Dregið hefur verið í riðla í
deildarbikarnum í knattspymu.
Efri deOd karla er tvískipt og í
A-riðli leika ÍA, FH, Þór, A„ KR,
Breiöablik, Stjaman, Víkingur
R. og Fylkir.
I B-riðli leika Þróttur, R„ Val-
ur, Keflavík, KA, Grindavík,
ÍBV, Fram og Dalvík.
-JKS
DV
Dregið 1 riðla heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu:
Getum á góðum degi
lagt hvaða lið sem er
- sagði Sven Göran Erikson, landsliðsþjálfari Englendinga
Á laugardaginn var var dregið í
riðlakeppni heimsmeistaramótsins
í knattspyrnu í borginni Pusan í S-
Kóreu. Opnunarleikur mótsins
verður viðureign heimsmeistara
Frakka og Senegals í A-riðli 30. mai
og því lýkur síðan með úrslitaleik
30. júní. Mjög mikil spenna ríkti
yfir drættinum en landsliðsþjálfar-
ar allra þjóða sem eiga lið í úrslita-
keppninni voru samankomnir í
Pusan. Riðlar keppninnar eru átta
talsins og verður keppt bæði í Jap-
an og S-Kóreu.
í A-riðli leika Frakkar, Senegal,
Úrúgvæ og Danmörk. B-riðla skipa
Spánverjar, Slóvenar, Paragvæar
og Suður-Afríka. í C-riðli eru
Brasilía, Tyrkland, Kína og Kosta
Ríka. I D-riðli eru Suður-Kórea, Pól-
land, Bandaríkin og Portúgal. E-
riðil skipa Þýskaland, Sádi-Arabía,
Irland og Kamerún. I F-riðli leika
Argentína, Nígeria, England og Sví-
þjóð. I G-riðli eru Ítalía, Ekvador,
Króatía og Mexíkó. H-riðil skipa
Japan, Belgía, Rússland og Túnis.
Eins og vænta mátti upphófust
töluverðar vangaveltur eftir drátt-
inn um möguleika og svo virtist
sem menn hölluðust að því aö F-rið-
illinn væri mjög tvisýnn. Englend-
ingar mæta Argentínu eins og þeir
reyndar einnig gerðu í keppninni
fyrir fjórum árum í Frakklandi. Sá
leikur í 16 liða úrslitunum er mörg-
um í fersku minni en Argentínu-
menn sigruðu í leiknum eftir fram-
lengdan leik. David Beckham, fyrir-
liði enska landsliðsins í dag, sagði
fyrir dráttinn að hann ætti sér
þann draum að mæta Argentínu á
nýjan leik og hann fékk ósk sína
uppfyllta.
Draumurinn rætist
Beckham sagðist ætla að bæta
fyrir mistök sín í leiknum í Frakk-
landi þar sem hann fékk að líta
rauða spjaldið. Sven Göran Erikson
sagði eftir dráttinn riðilinn vera
mjög erfiðan og í raun gæti allt
gerst og ekkert lið gæti bókað fyrir-
fram sigur á andstæðingi sínum.
„Við verðum að mæta vel undir-
búnir til leiks, nýta verður vel tím-
ann fram að keppninni en ég fæ
rúmar þrjár vikur með allan mann-
skapinn áður en flautað verður til
leiks. Við ætlum okkur að sjálf-
sögðu að komast áfram en það verð-
ur síður en svo auðvelt. Mér finnst
það kostur út af fyrir sig aö leika
alla leikina í sama landinu. Við eig-
um fyrir hendi mannskap til að
gera góða hluti og það er mitt mat
að á góðum degi getum við lagt
hvaða lið sem er,“ sagði Svíinn
Sven Göran en Englendingar leika
alla sína leiki í riðlinum í Japan.
Olsen nokkuð sáttur
Morten Olsen, landsliðsþjálfari
Dana, sagði að danska liðið hefði ef-
laust getaö fundið sér erfiðari and-
stæðinga. Hann taldi þó danska lið-
ið eigi möguleika á að komast upp
úr A-riðlinum ásamt Frökkum.
„Frakkar hafa á að skipa
sterkasta liðinu í riðlinum. Úrú-
gvæ og Senegal eru sýnd veiði en
ekki gefin. Ég hef fulla trú á mínu
liði en það er engum blöðum um
það að fletta að þetta er hörkuriðill
og flóknari en sýnist í fyrstu," sagði
Morten Olsen.
Roger Lemerre, landsliðsþjálfari
Frakka, sagði að þeir færu til
keppninnar með það að leiðarljósi
að verja titilinn sem þeir unnu á
heimavelli fyrir fjórum árum.
Fyrsti leikur hættulegur
„Þaö hefur sýnt sig í gégnum
sögu keppninnar að það að leika
opnunarleikinn er mjög erfitt.
Minni liðin, ef svo skyldi kalla,
hafa oft velgt þeim stærri verulega
undir uggurn," sagði Lemerre.
Bruno Metsu, þjálfari Senegal,
sagöi að sínir menn hefðu varla get-
að fundið sér erfiðari andstæðing í
fyrsta leik. Hann sagði að það gæti
brugðið til beggja vona fyrir sína
menn í keppninni.
Spánverjar, sem ekki hafa riðið
feitum hesti frá stórmótum þrátt
fyrir miklar væntingar, lentu í við-
ráðanlegum riðli að sumra mati.
Þjálfari þeirra, Jose Antonio
Camacho, sagði eftir dráttinn viss-
ara að menn héldu sig á jörðinni.
Það væri ekkert hægt að bóka í
heimsmeistarakeppni.
Camacho bjartsýnn
„Vissulega er ég bjartsýnn enda
bjartsýnismaður að eölisfari. Öll
liðin eru verðugir andstæðingar og
við verðum að fara með gát gegn
hvaða liði sem er,“ sagði Camacho.
Luiz Felipe Scolari, þjálfari Bras-
ilíu, var hins vegar ekkert að skafa
utan af hlutunum og var í sjöunda
himni með riðilinn sem Brasilía
leikur í.
„Þetta er góður riðill og á eðlileg-
um degi eigum við að komast upp
úr honum en engu aö síður megum
við ekki vera með neitt vanmat,"
sagði Scolari.
Tyrkirnir, sem leika í sama riðli,
voru heldur ekki svo óhressir með
dráttinn. Hakan Sukur, einn skæð-
asti leikmaður Tyrkja, sagði að
Kína og Kosta Rika hefðu fram-
bærilegum liðum á að skipa.
„Þetta er riðill sem allt getur
gerst í. Brasilía sýnist sterkast en
við stefnum að því að komast
áfram,“ sagði Sukur.
-JKS
Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, og Amodu Shaibu,
nígeríski starfsbróðir hans, stinga saman nefjum eftir dráttinn í Pusan á
laugardag. Þjóðirnar leika í sama riðli á heimsmeistaramótinu. Reuter
Guðjón Valur beittur
- skoraöi átta mörk í 13 marka sigri Essen gegn Willstátt
íslendingaliðið Essen i þýsku
Bundeslígunni í handknattleik
vann stórsigur á Willstátt, 38-25,
um helgina og fór Guðjón Valur Sig-
urðsson á kostum með Essen, Hann
skoraði átta mörk í leiknum og var
markahæstur leikmanna liðsins.
Patrekur Jóhannesson skoraði þrjú
mörk. Essen er í þriðja sæti meö 20
stig.
Gústaf meö sex mörk
Gústaf Bjarnason skoraði sex
mörk fyrir Minden sem sigraði Post
Schewrin, 36-27.
Sigurður Bjamason skoraði fjög-
ur mörk fyrir Wetzlar sem tapaði
fyrir geysisterku liöi Lemgo, 27-20,
á útivelli. Kiel, sem trónir á toppn-
um með 24 stig, sigraöi Gummers-
bach, 29-25, en viðureign liöanna
fór fram í Köln að viðstöddum
18.500 áhorfendum sem er aðsóknar-
met í þýska handboltanum. Daninn
Nikolaj Jakobsen skoraði sjö mörk
fyrir Kiel en hjá Gummersbach var
Kóreubúinn Yoon markahæstur
með 11 mörk.
Róbert Sighvatsson og Gylfi
Gylfason og samherjar í Dusseldorf
sigruðu Concordia Delitzsch, 22-24,
í 2. deild suðurriðils. Dússeldorf er í
6. sæti riðilsins með 17 stig.
Conversano í ööru sæti
Á Italíu eru Guðmundur Hrafn-
kelsson og félagar í Coversano í
öðru sæti eftir sigur á Rovigo, 23-24,
á útivelli. Liö Hilmars Þórlindsson-
ar tapaði hins vegar fyrir Ancona,
41-34. Aö loknum 12 umferðum er
Bologna efst með 36 stig, fullt hús
stiga, en þrjú stig eru gefin fyrir sig-
ur. Conversano er í öðru sæti með
28 stig og Prato er í þriðja sæti með
sama stigafjölda.
Dýrmætt stig
í súginn
Þýsku meistararnir í Mag-
deburg urðu að gera sér að góðu
jafntefli, 27-27, á útivelli við
Vardar Skopje í D-riðli meist-
aradeildar Evrópu í handknatt-
leik um helgina. I hálíleik var
staðan 16-11 fyrir Magdeburg.
Ólafur Stefánsson skoraði þrjú
mörk fyrir Magdeburg í leikn-
um. Liðin áttust við í Magdeburg
í fyrri leiknum um þar síðustu
helgi og vann þýska liðiö þar 14
marka sigur.
I þýskum netmiðlum í gær
kemur fram að Alfreð Gíslason,
þjálfari Magdeburg, er mjög
óhress með dómara leiksins en
þýska liðið var utan vallar í 18
mínútur og fékk dæmt á sig átta
vítaköst. I sama riðli sigraði Fot-
ex Vesprem franska liðið Cham-
bery, 26-28, og er efst í riðlinum
með 8 stig. Magdeburg hefur 4
stig, Chambery 3 og Vardar 3.
Tvö efstu liðin fara áfram.
-JKS