Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Blaðsíða 10
26 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001 Sport__________________________________pv Enska úrvalsdeildin á laugardag: Enn aukast vand- ræði Man. Utd - 0-3 tap á heimavelli fyrir Chelsea - Eiður Smári skoraði síðasta markið Ruud van Nistelroy og Graeme Le Saux eigast hér við í leik Man. Utd og Chelsea. Reuters Hafi vandræði Manchester United ekki verið næg fyrir þá juk- ust þau enn um helgina þegar liðið var niðurlægt á sínum eigin heima- velli, Old Trafford. Chelsea kom þangað í heimsókn og sigraði 0-3. Það er langt siðan leikur Manchest- er United hefur farið á jafn lágt plan og i þessum leik og ljóst að eitthvað mikið er að í herbúðum ensku meistaranna. United hefur ekki tap- aði svona stórt á heimavelli síðan Everton vann þá þar á tímabilinu 1992-93, þegar stjarna liðsins var að byrja að rísa. Mikið hefur verið rætt um varnar- leik United og ekki sáust mikil batamerki á honum í þessum leik. Miöja liðsins ásamt sóknarmönnun- um Eiði Smára Guðjohnsen og Jimmy Floyd Hasselbaink tættu vömina sundur nánast fyrirhafnar- laust. Það eina jákvæða hjá meisturunum var að Roy Keane var færður úr miðjunni aftur í vörnina og það bjargaði sennilega United frá enn stærri ósigri. Dýrmæt færi í súginn Það sem hefur þó trúlega reynst afdrifaríkast fyrir United í þessum ieik var að nýta ekki færi í byrjun leiksins. Eftir aðeins þrjár minútur fékk Ruud van Nistelroy dauðafæri en Carlo Cudiccini, markvörður ■Chelsea, varði frábærlega. Og að- eins þremur mínútum eftir það kom Chelsea yfir þegar Mario Melchiot skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Jimmy Floyd Hasselbaink. Eftir það var ekki aftur snúið fyr- ir Chelsea og þeir réðu leiknum eft- ir það. Hasselbaink fékk tvö góð færi í hálfleiknum og Graeme Le Saux eitt. United-menn sáu hins vegar aldrei til sólar í fyrri hálfleik fyrir utan þetta færi snemma leiks. í byrjun seinni hálfleiks hresstust United menn aðeins og snemma í hálfleiknum varð Cudiccini að taka á honum stóra sinum eftir skot frá Paul Scholes. En á 58. mínútu skor- aði Hasselbaink fyrir Chelsea eftir undirbúnings Eiðs Smára. Skömmu síðar björguðu Chelsea-menn á línu frá Scholes Og á lokamínútum leiks- ins rak Eiður svo smiðshöggið á frá- bæran sigur Chelsea þegar hann fékk sendingu frá William Gallas, lék upp vinstri kantinn og afgreiddi boltann fram hjá Fabien Barthez. Ótrúleg niðurlæging fyrir þetta lið sem fyrir einungis ári var óvinn- andi vígi í ensku knattspymunni og leikmenn liðsins þurfa verulega að hugsa sinn gang. Alex Ferguson, framkvæmda- stjóri Man. Utd, var að vonum ósátt- ur eftir leikinn. „Ég held að við vinnum ekki meistaratitilinn núna því að viö höfum tapað fimm leikjum. Við megum ekki tapa öðr- um leik ef litið er á tölfræðina. Við verðum að fara að vinna leiki,“ sagði hann í samtali við sjónvarps- stöð Manchester United, MUTV. Hann varði einnig þá ákvörðun að setja Roy Keane í vörnina. „Ég áleit að reynsla hans og yfirvegun myndu hjálpa okkur að komast inn í leikinn og í heild gekk honum vel. Hann og Laurent Blanc voru í raun ekki í neinum vandræðum. í öðru markinu gerði Keane rétt í að þvinga Hassel- baink í þrengra færi en hann náði frábæru skoti og þetta mark gerði út- slagið í leiknum." -HI Arsenal og Liverpool halda sínu striki Arsenal og Liverpool tókst að strá salti í sár Manchester United á laug- ardag með því að vinna sína leiki. Leicester komst úr fallsæti með óvæntum sigri á Aston Villa. Sund- erland og Middlesborough unnu góða sigra og Charlton og Newcastle skildu jöfn. Arsenal hélt sínu striki með 2-0 útisigri á Ipswich sem situr sem fast- ast á botni deildarinnar. Arsenal, sem hefur enn ekki tapað á útivelli í vetur, stjórnaði leiknum allan tím- ann. Fyrra mark leiksins kom þó eft- ir mistök Titus Bramble í vörn Ipswich en eftir fimm mínútna leik komst Thierry Henry inn í sendingu hans og sendi á Fredrik Ljungberg sem skoraði. Sóknarleikurinn lagað- ist þó eftir að Finidi George kom inn í liðið en færin létu þó á sér standa. Eftir 56 mínútur kom svo seinna mark Arsenal þegar Thierry Henry skoraði úr vítaspyrnu sem Ljungberg fiskaði. Hermann Hreiðarsson lék all- an leikinn með Ipswich og fékk besta færið i leiknum þegar bjargað var á marklínu eftir skalla hans. Liverpool vann góðan útisigur á Derby County, 1-0, en geta þakkað markverði sínum Jerzy Dudek, öll stigin. Michael Owen skoraði mark- ið eftir sex mínútur en Derby hefði getað skorað oftar en einu sinni, sér- staklega í seinni hálfleik. Undir lok leiksins var svo dæmd vítaspyrna á Emile Heskey fyrir að handleika knöttinn en Dudek varði spyrnu Ravanellis og kórónaði þar með frá- bæran leik sinn. Þar með fór Liver- pool með öll stigin og heldur þvi toppsætinu í úrvalsdeildinni. Leicester komst úr fallsæti með 2-0 útisigri á Aston Villa og voru vel að sigrinum komnir. Ade Akinbiyi kom Leicester yfir á 12. minútu eftir hornspymu en Villa-menn voru mjög ósáttir við það mark þar sem Sinclair hrinti augljóslega Peter Smeichel markverði Villa rétt áður en Akinbiyi skoraði. í seinni hálf- leik innsiglaði svo James Scowcroft sigur Leicester eftir mikil mistök Smeichels. Villa virðist vera að missa flugið eftir góða byrjun en spurning er hvort þetta sé það sem Leicester þarf til að komast á skrið. Danid Ginola var svo rekinn af leik- velli fyrir að sparka í Dennis Wise eftir að sá siðarnefndi hafði brotið á honum. í öðrum leikjum laugardagsins tapaði Blackburn í fyrsta sinn i niu leikjum þegar Middlesborough hirti öll stigin með heppnismarki frá Alen Boksic undir lok fyrri hálf- leiks. Newcastle mistókst að vinna sigur í London I fyrsta skiptið í fjög- ur ár þrátt fyrir að Gary Speed kæmi Newcastle yfir á 73. minútu en Charlie McDonald jafnaði tíu mínút- um síöar. Alan Shearer var svo rek- inn af leikvelli tveimur minútum fyrir leikslok fyrir olnbogaskot en Newcastle hyggst áfrýja þeim úr- skurði. Þá tryggði Kevin Phillips Sunderland sigur á vængbrotnu liði West Ham með marki fimm mínút- um fyrir leikslok en geta þakkað Thomasi Sörensen markverði sínum að vera ekki undir í leikhléi. -HI Michael Owen stendur hér í ströngu gegn Derby. Hann skoraði sigurmark Liverpool í leiknum og er sjóðheitur þessa dagana. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.