Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Page 6
22
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
Sport
Davis Cup í tennis:
Frakkar
hrósuðu sigri
í Ástralíu
Franska landsliðiö í tennis kom
mjög á óvart þegar liðið hrósaði
sigri í Davis Cup. Frakkar mættu
Áströlum í úrslitaleik í Melboume
og knúðu fram sigur, 3-2, eftir
spennandi og jafna viðureign.
Frakkinn Nicolas Escude innsigl-
aði sigir Frakka með þvi að leggja
Wayne Arthur að velli í fjórum
settum. Arthur tók sæti Patricks
Rafters í úrslitaleiknum en gömul
meiðsl hjá Rafter tóku sig upp.
Þetta var í níunda skipti sem
Frakkar vinna Davis Cup en
keppnin hefur verið haldin allar
götur síðan 1900. Bandarikjamenn
hafa 31 sinni unnið sigur en Ástral-
ar hafa unnið þessa keppni alls 27
sinnum.
Þess má geta að um helgina voru
Ástralinn Lleyton Hewitt og Jenni-
fer Capriati frá Bandaríkjunum út-
nefnd heimsmeistarar í tennis en
nefnd innan alþjóða tennissam-
bandsins komst að þessari niður-
stöðu.
-JKS
KFÍ-Keflavík 66-65
1-0, 5-9, 15-14, 17-15, (17-22), 21-22,
(29-32), 29-34 , 31^0, 38-41, 42-13,
(47-48), 51-19, 54-55, 56-57, 56-60.
Stig KFÍ: Kathryn Otwell 26,
Stefanía Ásmundsdóttir 17, Tinna
Björk Sigmundsdóttir 5, Sesselja
Guöjónsdóttir 3, Fjóla Eiríksdóttir 3,
Anna Sigurlaugsdóttir 2.
Stig Keflavikur: Erla
Þorsteinsdóttir 22, Birna
Valgarðsdóttir 11, Kristín Blöndal 10,
Gréta Guðbrandsdóttir 6, Svava Ósk
Stefánsdóttir 5, Theódóra Káradóttir
4, Guðrún Guðmundsdóttir.
Fráköst: KFl 40 (13 i sókn, 27 í vörn,
Stefanía 10), Keflavík 42 (9 í sókn, 33
í vöm, Erla 15).
Stoðsendingar: KFl 14 (Tinna 8),
Keflavík 14 (Kristín 4).
Stolnir boltar: KFI 10 (Tinna 3),
Keflavík 12 (Kristín 3).
Tapaðir boltar: KFÍ 22, Keflavík 22.
Varin skot: KFÍ 3 (Stefanía 2),
Keflavík 10 (Birna 6).
3ja stiga: KFl 2/9, Keflavik 2/15.
Víti: KFl 22/26, Keflavík 16/24.
Dómarar (1-10): Rúnar Gíslason og
Björgvin Rúnarsson, 8.
Gϗi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 50.
Maður leiksins
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík
Grindavík-KR 66-65
4-0, 13-8, 25-8, (25-15), 28-19, 37-19,
44-24, (46-28), 46-30, 51-36, 58-37,
(60-48), 66-51, 73-61.
Stig Grindavikur: Jessica Gaspar
35, Jovana Stefánsdóttir 11, Ólöf Páls-
dóttir 10, Sólveig Guðnnlaugsdóttir 7,
Sigríður Anna Oiafsdóttir 5, Sandra
Guðlaugsdóttir 3, Ema Rún Magnús-
dóttir 2.
Stig KR: Kristín Jónsdóttir 24, Helga
Þorvaldsdóttir 13, Gréta María Grét-
arsdóttir 11, Hildur Sigurðardóttir 11,
Georgia Kristiansen 2.
Fráköst: Grindavík 42 (15 i sókn, 27 í
vörn, Gaspar 17), KR 40 (12 í sókn, 28
í vörn, Vassell Hildur 13).
Stoðsendingar: Grindavík 18
(Gaspar 8), KR 16 (Hildur 6).
Stolnir boltar: Grindavík 14 (Gaspar
6), KR 10 (Kristín 4).
Tapaðir boltar: Grindavík 13, KR 19.
Varin skot: Grindavík 4 (Gaspar),
KR 4 (Helga 2).
3ja stiga: Grindavik 6/23, KR 5/11.
Víti: Grindavik 9/14, KR 6/9.
Dómarar (1-10): Eggert Þór
Aðalsteinsson og Jón Halldór
Eðvaldsson, 8.
Gceði leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 50.
Maóur leiksins
Jessica Gaspar, Grindavík
Boston-leikmaöurinn Antoine Walker átti ágætan leik gegn New Jersey, skoraöi 25 stig og tók 17 fráköst. Reuter
Bandaríski körfuboltinn um helgina:
Meistarar Lakers
hreint óstöðvandi
- liðið hefur aldrei byrjað með meiri krafti
Los Angeles Lakers leikur best
allra liða í NBA-deildinni i
körfuknattleik. Eins og liðið er að
leika er fátt sem getur stöðvað
Shaqullie O’Neal og félaga en liðið
hefur aldrei áður byrjað með
jafnglæsilegum hætti. Minnesota,
sem hefur leikið vel til þessa í vet-
ur, mætti ofjörlum sínum í LA
Lakers og urðu aö lokum að sætta
sig við 26 stiga tap, 102-76.
Shaquille O’Neal var eins og oft
áður stigahæstur hjá Lakers, gerði
23 stig og tók níu fráköst. Liðið var
annars jafnt í leiknum og kom
Kobe Bryant næstur i stigaskorun-
inni með 18 stig.
Svo gæti farið aö Michael Jord-
an hjá Washington Wizards yrði
frá í einhverja daga vegna meiðsla
á hné en kappinn þurfti að yfirgefa
völlinn í leiknum gegn Orlando
Magic. Jordan hefur kvartað und-
an álagi svo það kom engum á
óvart að hnéð skyldi gefa sig en
hann ætlar að láta sérfræðing í
Chicago skoða það.
Paul Pierce hjá Boston var stiga-
hæstur leikmanna í leikjum helg-
arinnar þegar hann skoraði 48 stig
gegn New Jersey.
San Antonio tapaði í fyrsta sinn
á heimavelli í vetur en Sacramento
Kings vann það afrek eftir fram-
lengdan leik.
-JKS
Úrslit í NBA um helgina:
Charlotte-Detroit .......105-110
Davis 23, Campbell 17, Nailon 17 -
Stackhouse 31, Atkins 24, WiUiamson
19.
Miami Heat-Washington . . 75-84
Ellis 24, Jones 13, Carter 11 - Jordan
22, Hamilton 19, Whitney 14.
Memphis-Houston ..........102-85
Williams 38, Battier 18, Gasol 17 -
Williams 15, Willis 14, Thomas 14.
Denver-LA Clippers........96-93
Lafrentz 26, Van Exel 18, Johnson 13
- Richardson 26, Brand 17, Miles 14.
Phoenix-Utah Jazz.........100-76
Rogers 23, Hardaway 17, Marion 16 -
Malone 15, Marshall 9, Starks 9.
Portland-Milwaukee........101-95
Davis 25, Wallace 24, Stoudamire 18 -
Allen 24, Robinson 23, Cassell 23.
Seattle-LA Lakers.........92-107
Mason 21, Lewis 19, Vin Baker 13 -
Bryant 30, Fisher 14, Hunter 12.
New Jersey-Boston ........98-105
Kidd 20, Van Horn 17, Kittles 17 - Pi-
erce 48, Walker 25, Anderson 12.
Washington-Orlando........87-96
Hamilton 21, Haywood 18, Jordan 15 -
McGrady 26, Ewing 18, Armstrong 17.
New York-Detroit .........97-100
Sprewell 26, Houston 22, Thomas 14 -
Stackhouse 25, Robinson 21, Atkins
20.
Houston-San Antonio.......75-85
Thomas 21, Torres 21, Norris 10 -
Duncan 25, Smith 13, Robinson 12.
Golden State-Dallas ......82-111
Fortson 17, Dampier 12, Mills 11 -
Nowitzki 21, Finley 14, Nash 13.
Atlanta-Toronto..........103-104
Glover 25, Rahim 22, Kukoc 16 - Cart-
er 19, Olíýuwon 16, Clark 14.
Cleveland-Charlotte.......93-81
Miller 19, Person 19, Murry 18 -
Nailon 20, Campbell 18, Wesley 18.
Chicago-Philadelphia .... 76-93
Guyton 14, Fizer 13, Miller 11 - Iver-
son 30, Mutombo 16, Harpring 16.
Utah Jazz-Indiana.........97-100
Malone 18, Kirilenko 13, Stockton 13 -
Rose 25, Miller 18, O’Neal 15.
LA Lakers-Minnesota . . . 102-76
O’Neal 23, Bryant 18, George 15 -
Szczerbiak 19, Garrnett 11, Brandon
10.
í Atlandshafsriöli er New Jersey í
efsta sæti með tíu sigra og sex töp
sem er um 63% vinningshlutfall. í
miðriðli er Milwaukee með níu sigra
og fjögur töp sem er 70% vinnings-
hlutfall. San Antonio er í efsta sæti í
miðvesturriöli með 11 sigra og fjögur
töp sem er um 73% vinningshlutfall.
LA Lakers er með 94% vinningshlut-
fall, 15 sigra og aðeins einn ósigur.
-JKS
Grindavíkurkonur slógu
KR út í undanúrslitum
- Keflavík vann KFÍ í spennandi leik og tryggöi sér þátttöku í úrslitaleiknum
Það voru spennandi lokamínútur
í leik Keflavíkur og KFÍ en Keflavík
tryggði sér sigur í lokin, 60-56. Sig-
urinn hefði getað lent hvorum meg-
in sem var og tókst Keflavík aldrei
að losna við ísfirðinga þrátt fyrir að
hafa frumkvæðið í
leiknum.
Keflvíkingar
virtust vera að
stinga af í byrjun
seinni hálfleiks
og náðu níu stiga
forskoti, 40-31, en
Kathryn Otwell
átti góðan kafla
fram að hálfleik
og KFÍ náði aö
minnka muninn í eitt stig, 47-48.
KFÍ komst síðan yfir um miðjan
fjórða leikhluta en Birna Valgarðs-
dóttir kom með mikilvægar körfur á
lokakaflanum og þá átti Svava Stef-
W i
Erla Þorsteins-
dóttir, Kefiavík.
ánsdóttir frábæra körfu úr erfiðu
færi.
Leikmenn KFÍ gerðu sig seka um
mistök I lokin sem gerðu vonir
þeirra um þátttöku í úrslitaleiknum
að engu. Það kom sér illa fyrir lið-
ið að erlendi leikmaðurinn í liðinu,
Kathryn Otwell, fékk sína fimmtu
viilu þegar skammt var til leiksloka
og var hún algjör óþarfi af hennar
hálfu. Hún var enga að síður at-
kvæðamest í liði KFÍ meö 24 stig en
hitti frekar illa. Hún var þó örugg
á vítalínunni. Stefanía Stefánsdótt-
ir átti ágætisleik.
Hjá Keflavík átti Erla Þorsteins-
dóttir mjög góðan leik og lét vel til
sín taka bæði í sókn og vöm. Birna
var mikilvæg í lokin og varði alls
sex skot í leiknum. Þá átti Gréta
Guöbrandsdóttir fína innkomu af
bekknum og tók m.a. átta fráköst á
17 mínútum.
Grindavík sló KR út
Kjörísbikarmeistarar KR voru
slegnir út af Grindavik í undan-
úrslitum á laugardag. Grindavik
sigraði, 75-61, og var sigurinn sann-
færandi.
Leikurinn fór fjör-
lega af stað og
voru leikmenn
Grindavikur i
miklum ham.
Eftir rúmar sjö
mínútur var
staðan orðin 25-8
fyrir Grindavik
og eins og KR-lið-
ið væri alveg til-
búið í átökin sem
beiðliðsins. Bar-
áttan hjá Grindavík var til fyrir-
myndar og grimmdin var mikil.
Eftir þessa góðu byrjun náði
Grindavík undirtökunum í leikn-
um og KR var alltaf að elta.
Munurinn var ailtaf 10-20 stig og
náðu KR-stelpur aldrei aö ógna sigri
Grindavíkur. Jessica Gaspar fór
fyrir sínu liði að vanda. Hún skor-
aði helming stiga liðsins eða alls 25,
tók 17 fráköst, gaf 8 stoðsendingar
og stal 6 boltum. Hún hefði getað
verið með mun fleiri stoðsendingar
ef samherjar hennar heföi klárað
fleiri færi sem hún var að skapa.
Jovana Lilja Stefánsdóttir átti fln-
an leik sem og Ólöf Pálsdóttir.
Lið KR var borið uppi af fjórum
leikmönnum eins og áður í vetur.
Kristín Jónsdóttir var besti leik-
maður liðsins í þessum leik og hitti
mjög vel. Þær Gréta María Grétars-
dóttir, Hildur Sigurðardóttir og
Helga Þorvaldsdóttir gerðu það sem
þær gátu en það dugði ekki að þessu
sinni.
-Ben
Jessica Gaspar,
Grindavík.