Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Síða 8
24
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
25
Sport
Sport
Njarðvík-Þór 96-88
0-5, 8-11, 20-20, 28-27. 30-35, 38^2,
41-47, (45-50). 52-54, 64-54 , 67-62,
70-67. 80-72, 84-78, 94-83, 96-88.
Stig Njarðvíkur: Brenton
Birmingham 34, Logi Gunnarsson 16,
Páll Kristinsson 11, Friðrik
Stefánsson 10, Ragnar Ragnarsson 10,
Sævar Garðarsson 9, Halldór
Karlsson 6.
Stig Þórs: Stevie Johnson 31, Jón
Örn Aðalsteinsson 15, Oðinn
Ásgeirsson 14, Hjörtur Harðarson 9,
Hermann Hermannsson 6, Pétur Már
Sigurðsson 6, Sigurður Sigurðsson 4,
Hafsteinn Lúðvíksson 3.
Frúköst: Njarðvík (14 sókn, 23 vörn,
Brenton 14), Þór (19 sókn, 29 vörn,
Óðinn 19).
Stoósendingar: Njarðvík 14
(Brenton), Þór 17 (Hjörtur 7).
Stolnir boltar: Njarðvík 14 (Páll 4),
Þór 12 (Pétur).
Tapaðir boltar: Njarðvík 12, Þór 14.
Varin skot: Njarðvík 4 (Ragnar 2),
Þór 1 (Johnson).
3ja stlga: Njarðvík 29/11, Þór 26/8.
Víti: Njarðvík 20/11, Þór 16/10.
Dómarar (1-10): Kristinn Óskarsson
og Erlingur Erlingsson. (8)
Gceði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksíns:
Brenton Birmingham, Njarövík
Hamar-Skallagr. 89-83
0-2, 2-10, 8-14, 17-18, 23-27. 23-29,
32-39, 36-45, (41-49). 43-49, 45-58,
51-60, 62-66. 62-68, 75-75, 81-79, 89-83.
Stig Hamars: Nathaniel Pondexter
40, Svavar Birgisson 22, Gunnlaugur
Erlendsson 9, Svavar Pálsson 8,
Lárus Jónsson 4, Kjartan Orri
Sigurösson 2, Sigurður Einar
Guðjónsson 2, Óskar fYeyr Pétursson
2.
Stig Skallagríms: Larry Florence
25, Hlynur Bæringsson 18, Steinar
Arason 15, Alexander Ermolinski 8,
Sigmar Egilsson 5, Hafþór
Gunnarsson 4, Pálmi Sævarsson 4,
Leonid Zhelamov 4.
Fráköst: Hamar (16 í sókn, 25 í vörn,
Svavar 13.) Skallagrímur (9 í sókn -
22 í vörn, Hlynur 9)
Stoósendingar: Hamar 7 (Lárus 4),
Skallagrimur 16 (Hlynur 4, Larry 4).
Stolnir boltar: Hamar 7 (Lárus 3),
Skllagrímur 2 (Sigmar, Larry).
Tapaöir boltar: Hamar 5 (Nate 4),
Skallagrímur 5 (Larry 2)
Varin skot: Hamar 3 (Gunnlaugur),
Skallagrímur 4 (Larry, Pálmi,
Alexander, Hlynur).
3ja stiga: Hamar 3/15, Skallagrimur
5/19.
Vlti: Hamar 24/29, Skallagrímur
23/29.
Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson
og Eggert Aðalsteinsson (8)
Gϗi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 250.
Maöur leiksins:
Nathaniel Pondexter, Hamri
Keflavík-KR 108-82
6-2, 15-10, 21-12, 26-12. 34-17, 40-23,
47-30, (56-33). 61-35, 71-37, 77^9,
82-50. 87-58, 91-65, 102-78, 108-82.
Stig Keflavik: Magnús Gunnarsson
32, Damon Johnson 23, Gunnar
Einarsson 20, Gunnar Stefánsson 14,
Davíð Jónsson 7, Jón Hafsteinsson 4,
Sverrir Þór Sverrisson 3, Halldór
Halldórsson 3; Sævar Sævarsson 2.
Stig KR: Keith Vassell 22, Jón Arnór
Stefánsson 16, Arnar Kárason 14,
Magni Hafsteinsson 10, Ólafur
Ægisson 8, Helgi Magnússon 5,
Herbert Arnarson 4, Jóel
Sæmundsson 2, Hjalti Kristinsson 2.
Fráköst: Keflavík (13 sókn - 37 vörn,
Magnús 13, Jón 12), KR (12 sókn - 20
vörn, Keith 8).
Stoósendingar: Keflavík 24 (Sverrir
10), KR 17 (Jón Arnór 6).
Stolnir boltar: Keflavík 14 (Sverrir
4, Damon 4), KR 15 (Keith 5).
Tapaðir boltar: Keflavík 19, KR 17.
Varin skot: Keflavík 3 (Jón 2), KR 2
(Keith 2).
3ja stiga: Keflavík 34/17, KR 31/6.
Viti: Keflavik 19-15, KR 34/26.
Dómarar (1-10): Kristinn Albertsson
og Björgvin Rúnarsson. (7)
Gœði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins
Magnús Gunnarsson, Keflavík.
Cedrick Holmes, ÍR, reynir hér skot í leik ÍR og Grindavíkur en Dagur Pórisson er til varnar. DV-mynd Hilmar Pór
Tindastóll-Haukar 58-60
4-0, 12-10, (16-12), 21-12, 23-19, 24-21,
(31-29), 33-34, 40-36, 40-47, (42-49),
49-53, 54-56, 58-58, 58-60.
Stig Tindastóls: Brian Lucas 18,
Kristinn Friðriksson 14, Adoni Pomo-
nes 9, Óli Barðdal 4, Helgi Rafn Vigg-
ósson 4, Mikael Andropov 4, Helgi
Freyr Margeirsson 3, Lárus Dagur
Pálsson 2.
Stig Hauka: Guðmundur Bragason
16, Davíð Guðlaugsson 10, Ingvar Þ.
Guðjónsson 10, Predrag Bojovic 9,
Marel Guðlaugsson 5, Sævar Haralds-
son 4, Lýöur Vignisson 4, Þóröur
Gunnþórsson 2.
Fráköst: Tindastóll 36 (13 1 sókn, 23 í
vörn, Lucas 15), Haukar 32 (16 í sókn,
16 í vörn, Marel 9).
Stoðsendingar: Tindastóll 10 (Pomo-
nes 6), Haukar 8 (Guðmundur 4).
Stolnir boltar: Tindastóll 4 (Kristinn
2), Haukar 8 (Ingvar 3).
Tapaöir boltar: Tindastóll 20, Hauk-
ar 14.
Varin skot: Tindastóll 3 (Andropov,
Lárus, Kristinn), Haukar 2 (Ingvar,
Guðmundur)
3ja stiga: Tindastóll 17/2, Haukar
12/2.
Víti: Tindastóll 13/10, Haukar 17/10.
Dómarar (1-10): Einar Þór
Skarphéðinsson og Jón Bender (6).
Gϗi leiks (1-10): 5.
Áhorfendur: 205.
Maður leiksins: Guðmundur
Bragason, Haukum.
ÍR—Grindavík 85-56
0-4, 8-5, 14-8, 18-12, 22-16 (27-18),
27-23, 32-23, 38-25, (42-33), 45-33,
50-35, 50-44, (56-46), 66-46, 71-54,
83-54, 85-56.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 29,
Cedrick Holmes 14, Sigurður
Þorvaldsson 12, Ólafur Sigurðsson 9,
HaUdór Kristmannsson 9, Ásgeir
Hlöðversson 4, Kristján Guðlaugsson
4, Benedikt Pálsson 4.
Stig Grindavikur: Miha Cmer 24,
Dagur Þórisson 9, Páll Axel
Vilbergsson 9, Guömundur Ás-
geirsson 5, Guðlaugur Eyjólfsson 2,
Ragnar Jóhannesson 2, Ágúst Hilmar
Bearborn 2, Nökkvi Már Jónsson 2,
Pétur Guðmundsson 1.
Fráköst: ÍR 42 (16 í sókn, 26 í vörn,
Sigurður 16), Grindavík 30 (5 í sókn,
25 í vörn, Dagur 13).
Stoösendingar: ÍR 20 (Eiríkur 6),
Grindavík 11 (Miha 4)
Stolnir boltar: ÍR 9 (Cedrick 5),
Grindavík 4 (Miha 4).
Tapaöir boltar: ÍR 9, Grindavík 14.
Varin skot: ÍR 3 (Cedrick, Birgir
Guðfmnsson, Kristinn Harðarson),
Grindavik 0.
3ja stiga: ÍR 29/12, Grrindavík 14/4
Viti: ÍR 5/5, Grindavík 18/12.
Dómarar (1-10): Sigmundur Már
Herbertsson og Kristján Möller, 8.
GϚi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 48.
Maður leiksins: Eiríkur
Önundarson, ÍR.
Breiðabtik-Stjarnan 75-66
0-4, 1-10, 4-14, 17-16, (21-20), 23-28,
25-33, (32-35), 34-35, 37-45, 48^5,
(50-47), 57-52, 61-59, 71-61, 75-66.
Stig Breiöabliks: Ken Richards 25,
Pálmi Sigurgeirsson 18, Þórólfur
Þorsteinsson 11, Ómar Sævarsson 9,
ísak Einarsson 6, Ingvi Logason 4,
Mirko Virijevic 2.
Stig Stjörnunnar: Kevin Grandberg
17, Janes Cmer 14, Örvar
Kristjánsson 11, Eyjólfur Jónsson 10,
Davið Guðlaugsson 6, Magnús
Helgason 3, Sigurjón Lárusson 3, Jón
Þór Eyþórsson 2.
Fráköst: Breiöablik 43 (14 í sókn, 29 í
vörn, Ómar 12), Stjarnan 26 (9 í sókn,
17 í vörn, Grandberg 11).
Stoðsendingar: Breiðablik 15 (ísak
4), Stjarnan 3 (Janes, Grandberg og
Örvar)
Stolnir boltar: Breiðablik 5
(Richards 4), Stjarnan 5 (Janes 2)
Tapaðir boltar: Breiðablik 9,
Stjarnan 11.
Varin skot: Breiðablik 5 (Ómar 3),
Stjarnan 0.
3ja stiga: Breiðablik 14/5, Stjarnan
24/10
Viti: Breiðablik 19/12, Stjarnan 19/16
Dómarar (1-10): Helgi Bragason og
Jón Halldór Eðvaldsson, 7.
Gœði leiks (1-10): 5.
Áhorfendur: 80.
Maður leiksins: Ken Richards,
Breiðabliki.
Kef I ví ki ngar
í toppsætið
Keflvíkingar skelltu sér á topp
deildarinnar í gærkvöld er þeir tóku
KR-inga í kennslustund á heimavelli
og gjörsigruðu þá 108-82. Munurinn
hefði getað verið enn stærri, en KR
klóraði í bakkann eftir að Damon
Johnson hafði verið sendur í sturtu er
14 mínútur lifðu leiks. Damon hafði
farið mikinn í liði Keflavíkur og gerði
hann öll sín 23 stig i fyrri hálfleik.
Magnús Gunnarsson var þó yfir-
burðamaður á vellinum. Strákurinn
hitti ótrúlega á köflum og gerði m.a. 8
3ja stiga körfur, og reif þar af auki nið-
ur 13 fráköst. Dæmi um það að litla
liðið Keflavík getur á góðum degi ver-
iö ansi „stórt“.
Það má segja að KR hafi aldrei séð
til sólar og tölur eins 71-37 eru með
ólíkindum þegar topplið deildarinnar
á í hlut. Þrír tapleikir í röð eru stað-
reynd og erfiðir leikir framundan.
Það verður þó ekki af Keflvíkingum
tekið að það skipti engu máli hver
kom inn á, allir lögðu sitt í púkkið og
þegar liðsheiidin er svo sterk má segja
að Keflvíkingar séu allt að því óvinn-
andi á Sunnubrautinni.
Eins og áður sagði átti Magnús stór-
leik, Damon var mjög öflugur meðan
hans naut við, Jón var duglegur í frá-
köstunum og vamarleiknum og þá
áttu allir aðrir finan leik. 3ja stiga
nýting upp á 50% og samt að taka 34
skot er náttúrulega frábær nýting.
Hjá KR stóð ekki steinn yfir steini.
Andleysið var algjört og frá upphafi til
enda voru þeir röndóttu í vandræðum.
Sóknarleikurinn var mjög ósannfær-
andi og byggðist mikið á einstaklings-
framtaki manna og ekki bætti vamar-
leikurinn upp lélegan sóknarleik að
þessu sinni.
“Við spiluðum hörkuleik, eftir að
hafa spilað illa.síðustu tvo leiki. Allir
leikmenn vora að spUa vel og þetta
skfiar okkur í efsta sætið. Eitthvað
sem enginn var í raun að spá í fyrir-
fram,“ sagði Sigurður Ingimundarson,
þjálfari Keflvíkinga að leik loknum.
„Við erum mjög ósáttir. Sóknar-
leikurinn var í rúst og við náðum ekki
að vinna saman, og þess vegna var
þetta var þetta andlaust og vonlaust.
En það býr karakter í þessu liði og það
er alls enginn ótti kominn í mann-
skapinn. Við munum vinna okkur út
úr þessu og byrjum á þvi í næsta leik
gegn Tindastól," sagði Ingi Þór Stein-
þórsson, þjálfari KR, að leik loknum.
Damon Johnson, leikmaður Kefla-
víkur, var ekki sáttur við að vera
sendur í sturtu snemma í síöari hálf-
leik. „Ég hélt að það hefði verið brot-
ið á mér og ég spurði Kristinn hvort
að þetta væri ekki villa, og hann sagði
nei og sagði svo „stop crying and
play,“ og ég svaraði honum á svipuð-
um nótum, og í framhaldinu rak hann
mig út,“ sagði Damon að leik loknum.
-EÁJ
Stórsigur ÍR
á Grindavík
Heimamenn í ÍR fóru með sigur
af hólmi þegar þeir mættu Grind-
víkingum i Seljaskóla í gærkvöldi.
Sigurinn var frekar öruggur í lokin
en gestirnir voru inni í leiknum þar
til í lok þriðja fjórðungs en þá
skildu leiöir á milli liða. Lokatölur,
85-56.
Leikurinn fór fjörlega af stað. Lið-
in spiluðu stuttar sóknir og gekk ÍR-
ingum heldur betur og höfðu niu
stiga forystu eftir fyrsta fiórðung.
Eftir annan leikhluta var munurinn
sá sami en frekar hafði hægst á
stigaskorun. Varnarleikur beggja
liða var þeim mun sterkari.
Grindvíkingar
byrjuðu síðari hálf-
leikinn með því að
spila svæðisvörn.
Það virtist vera að
ganga upp þegar
munurinn var orð-
inn sex stig. Eiríkur
Önundarson gerði
þá tvær þriggja stiga
körfur undir lok
þriðja fiórðungs.
I upphafi fiórða
fiórðungs var síðan
eins og heimamenn
hefðu fundið svarið
við vamarleik gest-
anna. Hver karfan
rak aðra og í lokin
var munurinn á liðunum tuttugu og
níu stig.
Eiríkur Önundarson var at-
kvæðamikill í liði ÍR. Einnig voru
Ólafur Sigurðsson, Sigurður Þor-
valdsson og Cedrick Holmes áber-
andi í leik liðsins.
Hjá Grindavik var Miha Cmer
lang atkvæðamestur. Aðrir leik-
menn liðsins voru að spila undir
getu. Athyglivert að sjá leikmenn
eins og Pál Axel Vilbergsson og
Guðlaug Eyjólfsson leggja svona lít-
ið til málanna sóknarlega. Greini-
legt var að þeir söknuðu Helga
Jónasar Guðfinnssonar sem er fing-
urbrotinn. Það af-
sakar samt ekki
lágt stigaskor liðs-
ins í leiknum.
Þessi lið eru nú jöfn
að stigum í deild-
inni. Bæði lið hafa
unnið fióra leiki og
tapað fimm. Áhugi
heimamanna í
Breiðholtinu er
ekki mikill fyrir ÍR
liðinu miðað við
áhorfendafiöldan á
leiknum í gær-
kvöldi. Skemmti-
legt lið þeirra á
skilið meiri athygli.
-MOS
Eiríkur Önundarson var bestur
ÍR-inga í gærkvöldi
Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, gat verið ánægöur með sína menn í
gærkvöld sem unnu stórsigur á KR.
Baráttusigur Hauka
„Mínir menn voru að sýna
virkilega baráttu og góða vörn í
leiknum í kvöld. Það var það sem
skilaði okkur sigrinum. Við höf-
um í sjálfu sér oft verið að leika
ágætlega í vetur en hlutirnir ekki
verið að ganga okkur í hag.
Gummi og Marel voru að skila
góðri vinnu í kvöld og ungu strák-
arnir stóðu virkfiega fyrir sínu,“
sagði Reynir Kristjánsson, sigur-
reifur þjálfari Hauka, eftir að þeir
sunnanmenn náðu að knýja fram
sigur á Tindastóli í hörkuleik á
Króknum í gærkveldi.
Tindastólsmenn voru mun
sterkari framan af leik i gær en
virkuðu engu að síður full væru-
kærir þannig að Haukamir náðu
að halda sér vel inni í leiknum.
Það var þó greinilegt þegar kom
fram í annan leikhluta að stemn-
ingin var betri í Haukaliðinu og
þeir til alls líklegir, með mikla
baráttu í vörninni. Tindastóls-
menn misstu Rússann Andropov
út af tognaðan á ökkla snemma
leiks og virtust sakna hans mikið
og það var eins og beðið væri eft-
ir því að Lucas og Kristinn Frið-
riksson tækju af skarið en þeir
voru í strangri gæslu Guðmundar
Bragasonar og Marels.
Tindastólsmenn höfðu nauma
forustu í leikhléinu en Haukarnir
létu strax til skarar skríða í byrj-
un seinni hálfleiks og tókst fljót-
lega að komast yfir og höfðu náð
allvænlegu forskoti við lok þriðja
leikhluta. Þeir juku síðan enn við
í byrjun þess síðasta og komust
mest í níu stiga mun, 51-42. Tinda-
stólsmenn náðu að smásaxa á það
forskot en það var ekki fyrr en á
síðustu mínútu leiksins sem þeim
tókst að jafna, 58-58.
Haukarnir keyrðu upp og Lýður
Vignisson skoraði, 58-60, þegar 17
sekúndur voru eftir. Tindastóls-
menn tóku leikhlé og í sinni síð-
ustu sókn skutu þeir þrisvar á
körfuna án þess að hitta og tíminn
rann út.
Tindastólsliðið lék illa að þessu
sinni. Það var eins og vantaði alla
stemningu í liðið, þennan neista
sem kveikir baráttuna. Brian
Lukas, Kristinn Friðriksson og
Adoni Pomones voru bestu menn
liðsins en Helgi Rafn Viggósson
lék vel þær fáu mínútur sem hann
spfiaði. Hjá Haukunum var Guð-
mundur Bragason bestur. Ungu
strákarnir Sævar Haraldsson og
Ingvar Guðjónsson voru mjög góð-
ur og Marel Guðlaugsson og Dav-
íð Ágrímsson drjúgir. -ÞÁ
Hörkuleikur í
Hveragerði
Það virtist sem Hamarsmenn
væru enn að fagna sigri á KR þegar
þeir mættu hressu liði Skallagrims i
Hveragerði í gær. Skallagrimsmenn
voru mun betri aðilinn I fyrri hálf-
leik og náðu ágætri forystu strax í
byrjun leiksins og komust í 14-2. Þá
tóku Hamarsmenn leikhlé og réðu
ráðum sínum og eftir það náðu Ham-
arsmenn að saxa á forskotið, minnk-
uðu muninn og komust yfir. Það
dugði skammt þvi Skallagrímsmenn
tóku aftur forystuna og leiddu með
átta stiga mun í hálfleik.
í síðari hálfleik höfðu svo Skalla-
grímsmenn frumkvæðið framan af
en ágætissprettur Hamarsmanna í
fiórða leikhluta skóp sigur þeirra.
Þetta var virkilega skemmtilegur
leikur á að horfa, hraður og fiörug-
ur og er mikfi barátta í þessu
Skallagrímsliði.
„Þegar maður er þjálfari á maður
að reyna að ná sem bestum árangri
út úr sínum mönnum og gera þá
betri en maður er sjálfur,“ sagði
Pétur Ingvarsson, þjálfari Hamars,
þegar DV-Sport ræddi við hann eft-
ir leikinn. „Þetta var baráttusigur.
Þeir voru að spfia mjög vel og hefðu
haldið út hefðu þeir sigrað en það er
ekki nóg að leiða í þremur leikhlut-
um það verður að klára þetta. Ekki
veit ég hvort mínir menn hafi kom-
ið með vanmat en þeir fengu þá að
kenna á því.“
Hjá Hamri var Nathaniel
Pondexter allt í öllu, gerði fiörutíu
stig og hélt þeim á floti um tíma og
náði svo að klára þetta í lokin. Svav-
ar B var að leika ágætlega, skoraði
tuttugu og tvö stig og hirti þrettán
fráköst.
Hjá Skallagrími áttu Larry og
Hlynur góðan leik, Larry fór út af
með fimm villur snemma í fiórða
leikhluta og Steinar og Alexander
áttu líka ágætisleik. -EH
Nathaniel Pondexter var allt í öllu Hlynur Bæringsson átti góðan leik
hjá Hamri og gerði 40 stig. fyrir Skallagrím í gærkvöld.
Stjarnan enn án sigurs
Njardvík vann Þór í hörkuleik
Stjarnan úr Garðabæ er enn-
þá án sigurs eftir tap gegn
Breiðabliki í Smáranum í gær-
kvöld, 75-66. Leikurinn var
gríðarlega mikilvægur fyrir
bæði lið þar sem þau em bæði
að berjast i botnbaráttu en Blik-
ar reyndust sterkari þegar mest
á reyndi í seinni hálfleik.
Stjarnan spilaði oft á köflum
ágætan körfubolta, eins svo oft
í vetur, en þess á milli getur lið-
iö dottið í tómt ragl. Furðulegt
skotval oft á tiðum og óöguð
spilamennska í sókninni varð
liðinu að falli að þessu sinni.
Þá hjálpaði ekki liðinu að fá
tæknivíti fyrir kjaftbrúk á við-
kvæmu augnabliki og í kjölfar-
ið jafnaði Breiðablik og komst
yfir. Fram að því hafði Sfiarn-
an ágæta stjórn á leiknum.
Þrátt fyrir sigur hafa Blikar
oft spilað betur. Pálmi Sigur-
geirsson var rólegur framan af
en lét vel til sín taka þegar lið-
ið þurfti virkilega á honum að
halda. Ken Richards var jafn-
besti maður Blika og Þórólfur
Þorsteinsson lék vel. Þá kom
ísak Einarsson með mikilvægar
3ja stiga körfur á lokakaflanum.
Hjá Stjörnunni var Kevin
Grandberg sterkur í fyrri hálf-
leik en dalaði í þeim seinni.
Eyjólfur Jónsson skilaði sínu
þann tíma sem hann var inn á
og Janes Cmer átti rispur.
Staða Stjömunar er nú orðin
slæm og þarf liðið að fara að
brjóta ísinn svo menn fái trú á
að þeir geti þetta. -Ben
Njarðvíkingar sigruðu Þórsara í hörku-
leik í Ljónagryfiunni í gærkvöld. Það var
jafnræði með liðunum í fyrsta leikhluta og
höfðu heimamenn eins stigs forystu að hon-
um loknum. Eitthvað var kæruleysið að
gera vart við sig hjá Njarðvíkingum þar sem
gestimir skoraðu hverja körfuna á fætur
annarri þar sem heimamenn vora seinir til
baka og það fór svo að gestirnir leiddu með
5 stigum í hálfleik.
Eitthvað hefúr Friðrik Ragnarsson, þjálf-
ari Njarðvíkinga, lesið yfir sinum mönnum
í hléinu og breytti þar að auki varnartaktík
sinna manna. Við það kom fát á Þórsara og
á skömmum tíma í upphafi síðari hálfleiks
gerðu heimamenn 12 stig í röð og má segja
að sá kafli skilji liðin að. Þórsarar reyndu að
klóra í bakkann og náðu að minnka muninn
minnst í 1 stig í upphafi fiórða leikhluta en
þá kom að þætti Brentons og Ragnars sem
skaut Njarðvikinga aftur í þægilegt forskot
og lokatölur 96-88.
Brenton var yfirburðamaður í Njarðvík-
urliðinu að þessu sinni. Kappinn var allt í
öllu og sá um stigaskorunina, fráköstin,
hafði gætur á Stevie Johnson, sem hafði gert
heimamönnum lífið leitt í fyrri hálfleik og
lék samherja sína uppi þess á milli. Páll var
að berjast en var óheppinn með skotin og
þeir Ragnar og Sævar áttu finan leik. Ann-
ars hafa Njarðvíkingar oft spilað betur.
Stevie Johnson og Óðinn Ásgeirsson vora
atkvæðamestir hjá gestunum. Þeir gerðu
Njarðvíkingum erfitt fyrir í baráttunni um
fráköstin. Hjörtur lék einnig vel en það væri
gaman að sjá strákinn skjóta meira. Þess má
geta að Þórsarar voru án Johns Caraglia,
liðsstjóra síns, og hugsanlega kom það nið-
ur á liðinu þar sem lítið var um skiptingar
í seinni hálfleik og menn sem skiluðu finum
mínútum í fyrri hálfleik komu ekki við sögu
í þeim siðari. -EÁJ
I
'í
4
V