Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Side 11
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
27
«
Sport
DV
Leikmaður helgarinnar: Jerzy Dudek, Liverpool
Efasemdir horfnar
Jerzy Dudek kom á nokkuð
skyndilegan hátt til Liverpool 31.
ágúst sí. þegar Gerard Houllier
ákvað að festa kaup á tveimur
markvörðum, Dudek og Chris
Kirkland. Þar með var ljóst að
dagar Sanders Westervelds hjá
Liverpool væru taldir en hann
hafði oft staðið sig vel milli
stanganna hjá félaginu. En
Dudek var fljótur að þagga niður
í flestum efasemdaröddum með
góðri frammistöðu og hafi ein-
hverjar óánægjuraddir hljómað
enn eru þær sjálfsagt endanlega
úr sögunni eftir leik Liverpool
og Derby um helgina. Þar
bjargaði hann Liverpool oft
með frábærri markvörslu þeg-
ar Derby sótti hvað mest í slðari
hálfleik og kórón-
aði svo leik sinn
með því að verja
vítaspyrnu frá
Fabrizio Ravanelli
skömmu fyrir
leikslok.
Dudek hóf feril
sinn með Sokol
Tychy og lék fyrsta leik sinn með
aðalliði félagsins keppnistímabilið
1995-96. Hann hafði aðeins leikið
15 leiki með liðinu þegar Feyen-
oord keypti hann til að leysa af Ed
de Goey. Þar hefur honum gengið
vel og var m.a. kjörinn besti mark-
vörður hollensku deildarinnar
keppnistímabilið 1998-99.
í sumar munaði minnstu að
hann gengi til liðs við Arsenal en
þau kaup duttu
upp fyrir þegar
Arsenal ákvað að
kaupa Richard
Wright í staðinn.
Phil Thompson,
sem gegnir nú
starfi fram-
kvæmdastjóra,
segir um Dudek: „Hann hefur ver-
ið frábær síðan hann kom til liðs-
ins og hefur haft mjög róandi áhrif
á það. Hann sýndi frábæra mark-
vörslu þegar hann varði víta-
spyrnuna og hann hlýtur að hafa
verið með sjálfstraustið í lagi eftir
að hafa leikið vel 1 leiknum. Hann
er alltaf rólegur og yfirvegaður og
þetta var mjög vel varið.“ -HI
Jerzy Dudek
Fæddur: 23. mars 1973.
Hæð: 185 cm.
Þyngd: 79 kg.
Llð: Sokol Tychy, Feyenoord
og Liverpool.
Landsleikir/Mörk: 19/0.
Robbie Fowler er hér í kröppum dansi viö Rufus Brevett í fyrsta leik sínum fyrir Leeds. Fowler náði sér engan veginn á strik í markalausum leik. Reuters
Enska úrvalsdeildin í gær:
Leeds féll niður
Kí ENGLAND
-; - ------------------------
Úrvalsdeild
Man. Utd-Chelsea ..........0-3
0-1 Melchiot (6.), 0-2 Hasselbaink
(64.), 0-3 Eiöur Smári Guðjohnsen
(86.)
Aston Villa-Leicester......0-2
0-1 Akinbiyi (12.), 0-2 Scowcroft (52.)
Blackburn-Middlesborough . . 0-1
0-1 Boksic (44.)
Charlton-Newcastle.........1-1
0-1 Speed (73.), 1-1 MacDonald (83.)
Derby-Liverpool ...........0-1
0-1 Owen (6.)
Ipswich-Arsenal ...........0-2
0-1 Ljungberg (5.), 0-2 Henry (56., v.)
Sunderland-West Ham........1-0
1-0 Phillips (85.)
Fulham-Leeds ..............0-0
Everton-Southampton........2-0
1-0 Radzinski (50.), 2-0 Pembridge
(87.)
Staðan i í úrvalsdeild
Liverpool 13 9 2 2 23-11 29
Arsenal 14 7 5 2 30-15 26
Leeds 14 6 7 1 16-8 25
Newcastle 14 7 3 4 24-18 24
Chelsea 14 5 8 1 19-11 23
Aston Villa 14 6 5 3 18-14 23
Man. Utd 14 6 3 5 31-26 21
Tottenham 14 6 3 5. 21-18 21
Everton 14 5 5 4 20-17 20
Bolton 14 5 5 4 18-17 20
Blackburn 15 4 7 4 21-17 19
Fulham 14 4 7 3 15-13 19
Sunderland 15 5 4 6 13-15 19
Middlesborolð 5 4 6 17-20 19
Charlton 14 3 6 5 17-19 15
West Ham 14 4 3 7 16-27 15
Leicester 15 3 4 8 9-25 13
Southamp. 14 3 1 10 11-24 10
Derby 14 2 4 8 10-24 10
Ipswich 15 1 6 8 14-24 9
1. deild:
Bradford-Millwall..........1-2
Coventry-Wimbledon.........3-1
Crystal Palace-Bumley......1-2
Grimsby-Man. City .........0-2
Nott. Forrest-Watford .....0-0
Rotherham-WalsaU...........2-0
Sheff. Utd-Preston.........2-2
Stockport-Crewe ...........0-2
Wolves-WBA.................0-1
Portsmouth-Norwich.........1-2
Bamsley-Sheff. Wed.........3-0
Heióar Helguson lék síðari hálfleik-
inn með Watford í markalausu jafn-
tefli liðsins gegn Nottingham Forrest.
Lárus Orri Sigurósson lék allan
leikinn með WBA í 1-0 útisigri á
Wolves.
WBA er í þriðja sæti deildarinnar
með 38 stig, þremur stigum á eftir
Wolves. Burnley náði efsta sætinu af
Úlfunum með sigri sínum á Crystal
Palace. Watford er í 12. sæti deildar-
innar með 29 stig.
Brentford fór heldur illa að ráði sínu
í 2. deildinni þegar liðið tapaöi 5-3
fyrir Wycombe á útivelli eftir að hafa
komist í 2-0 og síöan 3-2. Ólafur Gott-
skálksson og ívar Ingimarsson léku
báðir allan leikinn fyrir Brentford.
Leik tslendingaliðanna Peter-
borough og Stoke, sem vera átti á
laugardag, var frestað vegna mikillar
bleytu á heimavelli Peterborough.
í þriðja sætið
Þrátt fyrir það er Stoke enn í öðru
sæti deildarinnar með 40 stig en
Brentford er í því þriðja með 39 stig.
Brighton er efst í deildinni með 43
stig eftir 0-2 sigur á Bury. -HI
SKOTLAND
Leeds mistókst að endurheimta
annað sætið í gær þegar liðið náði
aðeins markalausu jafntefli við Ful-
ham á Craven Cottage. Fulham var
heldur meira með boltann en vörn
Leeds með Danny Mills og Rio
Ferdinand sem bestu menn áttu frá-
bæran leik og héldu sóknarmönn-
um Fulham að mestu niöri. Fulham
fékk þó nokkur góð færi til að skora
sem þeir nýttu ekki, bæöi vegna eig-
in klúðurs og góðar markvörslu
Nigel Martyn. Leeds stillti upp
þriggja manna sóknarlínu með Alan
Smith, Mark Viduka og Robbie
Fowler en enginn þeirra lét neitt
verulega að sér kveða. Fyrsti leikur
Fowlers með Leeds var því ekki
minnisstæður og vonast hann
eílaust til þess að fall sé fararheill í
þessum efnum.
Fowler sagðist eftir leikinn vera
feginn að þessi leikur væri frá. „Það
er augljóslega gott að þessi leikur er
búinn. Það skiptir miklu máli að
koma honum frá. Leeds er með frá-
bært lið og allir leikmenn eru í
heimsklassa. Við höfum lagt hart að
okkur á æfingum og ég er viss um
að það mun brátt leiða af sér að
mörkin komi,“ sagði hann.
Það var öllu meira fjör á Goodi-
son Park í Liverpool þegar heima-
menn í Everton tóku á móti South-
ampton. Fyrri hálfleikur einkennd-
ist af töluverðri baráttu en bæði lið
fengu þó góð færi til að komast yflr.
í siðari hálfleik var hins vegar Ev-
ertonliðiö töluvert sterkara og það
var því fyllilega sanngjamt þegar
Tomas Radzinski kom Everton yfir
eftir frábæra sókn upp vinstri kant-
inn. Watson sendi þá á Radzinski
sem tók á mikinn sprett, stakk varn-
armennina af og afgreiddi boltann
síðan fram hjá Paul Jones í marki
Southampton. Everton fékk nokkur
færi til viðbótar og Daninn Thomas
Gravesen fékk meðal annars tvö
dauðafæri sem bæði fóru forgörð-
um. Hann átti síðan eftir að koma
töluvert meira við sögu. Hann bjarg-
aði á línu eftir skalla frá South-
ampton-mönnum og lagði síðan upp
annað mark Everton fyrir Mark
Pembridge. Southamtpon er því eft-
ir sem áður í þriðja sæti deildarinn-
ar en Everton lyfti sér upp í níunda
sæti meö þessum sigri. -HI
Aberdeen-St. Johnstone . . . . . 1-0
1-0 Winters (23.)
Celtic-Hibemian . 3-0
1-0 Hartson (10.), 2-0 Hartson (39.),
3-0 Lennon (71.)
Dundee-Rangers . 0-0
Hearts-Dunfermline . 1-1
0-1 Nicholson (72.), 1-1 Simmons (89.,
v.)
Kilmarnock-Dundee Utd. . . . . 2-0
1-0 Mahood (31.), 2-0 Hay (55.)
Livingston-Motherwell . . . . . 3-1
1-0 Xausa (20.), 2-0 sjálfsmark (22.)
3-0 Causa (40.), 3-1 McFadden (77.)