Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Blaðsíða 14
-*
30
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
Sport
i>v
*
Veiðivon
Skotveiðimenn sem hafa haft
samband viö DV-Sport, eru ekki
sammála veiöistjóra, Áka Ár-
manni Jónssyni, aö ekki megi
stytta veiðitímann á næstu
árum. Einn sem hafði samband
sagði að miklu minna væri af
rjúpu núna en fyrir einum eða
jafnvel tveimur árum.
Það var að heyra á formanni
Stangaveiðifélags Reykjavíkur
að framtíðarsvæði félagsins yrði
viö Elliöaámar.
Þessa dagana er bókin
Fluguveiðar á íslandi að koma
út og þykir bókin mjög glæsileg.
Lárus Karl Ingason hefur tekið
myndirnar í bókina og eru þær
um 500. Loftur Atli Eiriksson
blaðamaður sá um textann
ásamt fleiri góðum mönnum.
Stangveiðiárbókin sem Guð-
mundur Guðjónsson á Morgun-
blaöinu hefur skrifað síðustu
árin er að koma út. Fleiri verða
veiðibækumar ekki i ár.
Svo virðist sem Ólafur
Skúlason hafi sagt skilið við
Reynisvatn og Laxalón, en aug-
lýsing var frá honum í fjölmiðl-
um fyrir skömmu. En Ólafur
hefur byggt upp stórfyrirtæki
með hörkunni, enda hafa marg-
ir veiðimenn veitt í Reynisvatni
og fengið þar flna veiði. Þeir
hafa veitt um 110 þúsund fiska á
þeim átta árum sem hann hefur
verið með reksturinn þarna.
Ekki er vitað á þessari stundu
hver muni taka við svæöinu en
það ætti að skýrast á allra næstu
dögum.
Veiðimenn hafa reynt fyrir
sér með veiði i Hvammsvík í
Kjós og margir fengið góða
veiði. Fiskurinn í vatninu er
vænn og tekur vel í hjá veiði-
mönnum.
-G. Bender
Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur: Arthur Bogason, Jóhann Steinsson, Árni Eyjólfsson, Bjarni Ómar Ragnarsson, Gylfi Gautur Pétursson, María Anna
Clausen og Porsteinn Ólafs. DV-mynd G.Bender
Fjörleg kosning á 200
manna aðalfundi SVFR
- koma færri útlendingar til veiða vegna hörmunganna í Bandaríkjunum?
„Þaö er óhætt að segja að laxveið-
in síðasta sumar hafi valdið tölu-
verðum vonbrigðum. Aðeins veidd-
ust 29.600 laxar og þar af 5.300 laxar
í Rangánum einum,“ sagði Bjarni
Ómar Ragnarsson, formaöur
Stangaveiðifélags Reykjavíkur á að-
alfundi félagsins um siðustu helgi.
Um 200 manns mættu á fundinn og
fór þar fram fjörleg kosning.
„Skilyrði fyrir veiðar voru frekar
óhagstæðar, lítill snjór í fjöllum og
leysingavatn því í lágmarki og eins
bætti mikil þurrkatíð um mitt sum-
arið ekki úr skák. Þetta kann að
vera hluti af skýringunni á slakri
veiði en hið dulafulla náttúrufar
leikur þar einnig stórt hlutverk.
Þessi litla veiði hlýtur að valda
veiöimönnum og veiðiréttareigend-
um nokkrum áhyggjum þótt við
þekkjum af reynslunni að veiði-
menn eru bjartsýnismenn hinir
mestu og eiga ávallt von á góðri
veiði næsta sumar. Það er því ekki
að undra að umræöan um hógværð
í veiðinni, eins og um veiða og
sleppa-fyrirkomulagið, séu að verða
meira áberandi manna i milli. Við
teljum okkur finna fyrir þvi að
veiðimenn sætti sig við minni afla,
en þó hefur þaö lítið breyst að hver
veiðimaður vill gjarnan koma með
fisk heim úr sinni veiðiferö. í þeim
efnum er mikill munur á einum laxi
eða engum! Þar sem nokkuð hefur
dregið úr góðærinu er ekki ólíklegt
að minni eftirspurn verði eftir
veiðileyfum næsta sumar. Og eins
telja margir að hörmungarnar í
Bandaríkjunum valdi því að færri
útlendingar komi hingað næsta
sumar til aö veiöa.
Sala veiðileyfa hjá félaginu gekk
ágætlega síðasta sumar. Um 90% af
veiðileyfum félagsins seldust en alls
seldust veiðileyfi fyrir 106 mUljónir.
SVFR hefur verið boðin lóð í Ell-
iðaárdalnum tU að byggja þar hús
fyrir starfsemi félagsins. Lóðin er
þar sem nú stendur gamla eldisstöð-
in. Þetta er glæsileg lóð sem er stað-
sett aðeins uppi í hlíð þannig að út-
sýni yfir EUiðaárdalinn er mjög
mikið og faUegt. Mikiö hefur verið
rætt um þessi mál innan stjórnar og
margar hugmyndir komið fram,“
sagði Bjarni Ómar meðal annars í
sinni ræðu.
„Rekstur félagsins gekk ágætlega,
salan minnkaði reyndar aðeins en
mér þykir ágætt að ná þó 90% sölu
af heUdarveltu talið. Velta félagsins
er tæpar hundrað tuttugu og fjórar
miUjónir, þar af veiðileyfasala rúm-
ar hundrað og sex miUjónir," sagði
Bergur Steingrímsson fram-
kvæmdastjóri Stangaveiðifélags
Reykjavíkur á fundinum.
Félagsmönnum fjölgaði um 88 á
árinu og eru félagsmenn 2483 núna.
Bergur talaði um sölumálin,
nefndir félagsins, veiðina á svæðum
félagsins og fleira sem var í gangi
hjá Stangaveiðifélaginu á árinu.
Fjörleg kosning var í stjórnina en
Árni Eyjólfsson fékk Uest atkvæðin,
Jóhann Steinsson var í öðru sæti og
Arthur Bogason í því þriðja. Bjami
Júlíusson féll úr stjórninni.
„Þetta er búinn að vera góður
tími í þau átta ár sem ég hef setið í
stjórn félagsins og það hafa mörg
góð mál komist í gegn,“ sagði Bjarni
Júlíusson í samtali við DV-Sport
þegar fundinum lauk.
„Ég vona að ég standi undir þeim
væntingum sem félagsmenn gera tU
mín með því að kjósa mig í stjóm,“
sagði Arthur Bogason, formaður
smábátaeigenda, skömmu eftir að
hann var kosinn í stjórn Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur.
Um 200 félagsmenn mættu á fund-
inn, sem þykir ágætt, en núna eru
2.483 í félaginu.
Þrettán árnefndir eru starfandi
innan félagsins og er sú stærsta í
Norðurá í Borgarfirði.
Fundurinn var haldinn á Hótel
Loftleiðum.
-G. Bender
Bjarni ómar Ragnarsson, formaöur SVFR, óskar Arthuri Bogasyni til ham-
ingju meö kosninguna í stjórn félagsins. DV -mynd G. Bender
suimnno