Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Page 15
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
31
Sport
Þetta er goð fjol
skylduíþrótt
Ingi Valtýsson fer mikið á skauta
og oftast nær með fjölskyldu sinni,
þ.e. eiginkonunni og tveimur börn-
um, Kristínu fimm ára og Amari
Braga níu ára. Börnin æfa bæði
isknattleik hjá Biminum.
Ingi hefur fariö með fjölskylduna
á skauta í mörg ár. „Kristín hefur
verið á skautum frá tveggja ára
aldri en Arnar Bragi ákvað hins
vegar að byrja á skautum um leið
og hann fór að æfa íshokkí sex ára
gamall. Það má segja að þá hafi
skautabakterían byrjað hjá okkur."
Ingi skautaði sjálfur þegar hann
var yngri. „Það var aöalfjörið þegar
maður var krakki. Þá var maður
bæði á Tjöminni og Melaveliinum
og við forum einstaka sinnum á
Tjörnina þegar viðrar vel. Þá
tökum við fram kylfurnar og pökk-
inn en það má ekki gera í almenn-
ingstímanum í Skautahöllinni."
Aðstaðan núna er hins vegar öll
önnur og betri. „Ferðum á skauta
hefur fjölgað með tilkomu haliar-
innar og þessi aðstaða gerir
gæfumuninn. Maður getur verið
hér í hvemig veðri sem er og svo
er líka hægt aö leigja skauta hérna
ef maður vill ekki endilega eiga
þá.“
Ingi er eins og fleiri heillaður yf-
ir því hversu fjölskylduvæn þessi
íþrótt er. „Þetta er mjög góð fjöl-
skylduíþrótt og íþrótt á borð við
ísknattleik er mjög uppbyggjandi
fyrir krakka. Þeir ná upp góðu út-
haldi og jafnvægi og hafa það að
auki virkilega gaman af þessu. Og
það er alls ekki eins mikið ofbeldi í
þessari íþrótt eins og virðist oft
vera þegar maður sér hana i sjón-
varpinu."
Ingi segist öruggur um að halda
þessu áfram. „Þetta er i raun hluti
af fostudagsrúntinum hjá okkur að
koma hingað í Skautahöllina og við
höfum alltaf gaman af því,“ sagði
Ingi aö lokum. -HI
Feðginin Ingi Valtýsson og Kristín Ingadóttir búa sig áöur en þau fara aö renna sér út á svelliö.
DV-sport heimsækir Skautahöilina í Laugardal:
Skautaíþróttin er
Íshokkí er
flott íþrótt
Ragnar Kristjánsson, 11 ára,
steig fyrst á skauta sjö ára
gamall. Hann hefur tekið það
miklu ástfóstri við þá að hann
byrjaði fyrir hálfu ári að æfa
ísknattleik með Birninum i
Reykjavík.
„Mér fannst alltaf gaman á
skautum og svo fannst mér þetta
líka flott íþrótt," sagði Ragnar
þegar hann var spurður af
hverju hann fór að æfa
ísknattleik. Hann sagðist m.a.
hafa séð íþróttina nokkrum
sinnum í sjónvarpinu og þegar
hann var spurður hvort hann
hefði verið hrifinn af
slagsmálunum sagði hann: „Já,
dálítið."
Ragnar segist líka vel í
íþróttinni. „Það er bara mjög
gaman að skauta og taka svolítið
á. Gengið hefur reyndar verið
misjafnt hjá okkur í vetur.“
Ragnar fer einnig töluvert á
skauta utan æfingatímans. „Ég
kem oft hingað í skautahöllina
til að renna mér á skautum og
hef gert það lengi. Ég byrjaði að
fara á skauta með mömmu og
pabba og fer stundum með þeim
en líka með vinum mínurn,"
segir Ragnar.
Hann er harðákveðinn í því að
halda áfram að æfa íþróttina
eitthvað áfram. „Ég veit reyndar
ekki hvað ég geri það lengi.
Kannski í svona 3-4 ár,“ segir
Ragnar að lokum áður en hann
dreif sig aftur að renna sér með
vinum sínum. -HI
Ragnar Kristjánsson.
Bylting varð á aðstöðu til
skautaiðkunar hér á landi þegar
Skautahöllin í Laugardal var opn-
uð fyrir nokkrum árum og er
óhætt að segja að nokkur spreng-
ing hafi orðið í iðkun með tilkomu
hennar. Nú þegar frystir er fólk
óðum að taka fram skautana og
höllin að fyllast af ungum sem
öldnum sem una sér við góða
hreyfingu.
Hilmar Björnsson forstööumað-
ur Skautahallarinnar segir að eft-
ir sprenginguna sem varð með til-
komu Skautahallarinnar hafi
fjöldi iðkenda nánast staðið í stað.
„Við sjáum hins vegar á árinu í ár
að skautaiðkun fylgir töluvert
veðráttu. Iðkun eykst þegar fer að
frysta en minnkar þegar vorar og
þá skiptir litlu máli þó að iðkunin
fari fram innan dyra við sömu að-
stæður árið um kring.“
Hilmar telur að það sem heilli
fólk við skautaíþróttina sé hveru
góð fjölskylduíþrótt þetta er.
„Starfsemin hér skiptist í nokkra
hluta. Sá stærsti er hin almenna
skautamennska þar sem
skólakrakkar koma og skauta. En
það er einnig mikið um að fjöl-
skyldur komi saman á svellið
enda eru fáar íþróttir þar sem fólk
er meira saman. Svo eru félögin
með öflugt starf bæðf í ísknattleik
og listhlaupi. Skautaíþróttin er þó
mjög ung hér á landi miðað við
þær aðstæður sem við búum við
hér.“
Hilmar telur einnig að skautai-
þróttin sé mjög góð alhliða hreyf-
ing. „Þetta þjálfar upp þol, styrk
og jafnvægi. Hreyfingamar eru
mjúkar og meiöslahætta þvi lítil.
En menn verða þó að fara varlega
þegar þeir eru að byrja.“
Margir kynntust skautum í
fyrsta skiptið á Tjörninni en
Hilmar segir þó visst gat vera í
þessari kunnáttu hjá fólki á aldin-
um 30-40 ára. „Það hefur ekki ver-
ið mikið skautað á Tjörninni, trú-
lega vegna þess að veðráttan hefur
breyst á þann hátt að tækifærin
hafa ekki verið mjög mörg til
þess. Það er því kynslóð hér á höf-
uðborgarsvæðinu sem hefur til-
tölulega lítið kynnt skautaíþrótt-
inni. Þetta stendur okkur sérstak-
lega fyrir þrifum gagnvart full-
orðna fólkinu því það er sérstak-
lega erfitt fyrir það að stíga á
Hilmar Björnsson, forstöðumaður Skautahallarinnar.
skauta í fyrsta skiptið. Það er
mun auðveldara fyrir börn.“
Hilmar segir að reynt hafi verið
að halda skautanámskeið fyrir
fullorðna til aö gera þessum ald-
urshópi kleift að læra á skauta en
lítil aðsókn hafi verið í það. „Það
hefur hins vegar verið algengt aö
fulloröið fólk byrji að skauta með
börnunum sínum. Fólki finnst
þetta almennt ekki erfið íþrótt
þegar það er komið af stað.
Stærsti hópurinn sem kemur
því á skauta eru annars vegar
börn og unglingar og hins vegar
fiölskyldur. „Þama er hins vegar
fólk á öllum aldri, frá 4 ára og upp
í áttræöa. Þetta er því íþrótt fyrir
fólk á öllum aldri.“
Hilmar segir að það sem helst
standi framþróun íþróttarinnar
fyrir þrifum sé að það vanti tíma
DV-myndir Brink
fyrir íþróttahópana. „Við reynum
þó að deila þeim tímum sem við
höfum út sanngjamt milli félaga
og almennings og eins og staöan
er núna náum við að anna eftir-
spurn. En það verður mikil fram-
for eftir um tvö ár þegar önnur
skautahöll kemur í Grafarvogi í
tengslum við fiölnota íþróttahúsið
sem er að rísa þar,“ segir Hilmar
að lokum. -HI
góð alhliða hreyfing