Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Page 4
4
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001
Fréttir DV
Atburðarás hjá björgunaraðilum þegar Svanborgu SH rak upp við Svörtuloft:
Varnarlið var kallað út
fljótlega eftir Mayday-kall
- flugtak einni og hálfri klukkustund eftir útkall - tafir vegna storms við flugskýli
armenn af Snæfellsnesi höfðu þá ver-
ið við slysstað í um hálfa klukku-
stund, eftir að hafa gengið talsverða
vegalengd um torfarna leið með bún-
að sinn. Útilokað reyndist fyrir sveit-
irnar að bjarga áhöfn Svanborgar.
Afrek meö nætursjónauka
Varnarliðsmenn sem notuðu
nætursjónauka, búnað sem gerir
þeim kleift að sjá nánast í algjöru
myrkri, hófust þegar handa við að
stilla þyrluna af og senda sigmann
niður. Áhöfn TF-SIF bað björgunar-
sveitarmenn, sem biðu átekta á og
við björgin fyrir ofan slysstað, um
að slökkva ljós en slíkt truflar
virkni nætursjónauka varnarliðs-
manna. Einnig voru áhafnir báta
sem lónuðu fyrir utan beðnar um
að slökkva sín ljós. Þegar hinn
bandaríski sigmaður varnarliðsins
seig niður var aðeins einn skipverji
enn þá um borð. Honum hafði tek-
ist að halda sér í foráttubrimi á
meðan Svanborg slóst til í stórgrýt-
inu. Þrjá félaga hans hafði tekið fyr-
ir borð. Eins og fram kemur í viö-
tali við skipverjann á blaðsíðu 2
vann bandaríska þyrlusveitin
frækilegt björgunarafrek við að ná
honum við óvenjuerfiðar aðstæður.
Áhöfn þyrlunnar lét skipbrots-
manninn af Svanborgu SH síga nið-
ur við bjargbrún þar sem björgun-
arsveitarmenn og læknir tóku við
honum.
Varahlutur í stýribúnað TF-LÍF er
á leið til landsins. Búist er við að við-
gerð taki fljótt af er hann berst. -Ótt
Köll í talstöð á neyðarrás 16 á
VHF-bylgju um klukkan kortér fyrir
sex á fóstudag urðu til þess að björg-
unarsveitarmenn og þyrlusveit
Landhelgisgæslunnar var kölluð út
til að freista þess að bjarga skip-
brotsmönnunum á Svanborgu SH frá
Ólafsvík þegar bátinn var að reka
Leitaö aö skipverjum af Svanborgu SH
Fjöldi báta hefur leitaö um helgina aö tveimur sjómönnum sem saknaö
er af Svanborgu SH. Lík eins skipverja fannst á laugardag.
DV-MYND GVA
Varnarliösmenn meö nætursjónauka
Þegar þyrlusveit varnarliösins kom á slys-
staö viö Svörtutoft notaöi áhöfn björgunar-
þyrlunnar nætursjónauka sem gerir kleift aö
sjá nánast í algjöru myrkri. Á meöan þurfa
hins vegar Ijós aö vera slökkt.
upp í stórgrýtið við Svörtuloft á
Snæfellsnesi. Tveimur mínút-
um síðar sendi Svanborg SH út
Mayday-neyðarkall. Tæpri
hálfri klukkustund síðar,
klukkan 18.15, óskaði Landhelg-
isgæslan eftir að þyrlur varnar-
liðsins yrðu einnig kallaðar út
en á þeim tíma var bátinn um
það bil að reka upp. Þremur
mínútum síðar tilkynntu
áhafnir báta við strandstað að
ljós Svanborgar SH hefðu
slokknað.
Þegar Super Puma-þyrla
Gæslunnar, TF-LÍF, var komin
að Malarrifi, klukkan 19.20, og
átti þá aðeins eftir um tíu mín-
útna flug að strandstað, kom
upp alvarleg bilun í stýribún-
aði vélarinnar. Bilunin hafði
það í fór með sér að þyrlan
varð óstöðug og ekki hefði ver-
ið mögulegt fyrir áhöfn hennar að at-
hafha sig yfir Svanborgu. Var ákveð-
ið að vélinni yrði snúið viö og var
henni flogið óstöðugri til Reykjavík-
ur. Þar fór sama áhöfn, að undan-
skildum flugstjóra, um borð í minni
þyrlu Gæslunnar, TF-SIF, sem þá
hafði verið sett í gang og var tilbúin
til flugtaks. Flugstjóri stóru þyrlunn-
ar varð hins vegar að vera eftir
vegna bilunarinnar. Minni vélin fór
í loftið klukkan 20.
Á meðan á þessu stóð höfðu tvær
áhafnir á þyrlum varnarliðsins átt í
mestu erfiðleikum með að koma vél-
unum út úr flugskýli á Keflavíkur-
flugvelli vegna gífurlegs hvassviðris.
Þetta tafði flugtak hjá þebn. Önnur
vélanna náði þó að leggja af stað
klukkan 19.45, hálfri annarri klukku-
stund eftir útkall og kom að Svörtu-
loftum rétt á undan TF-SIF eða
klukkan um hálfníu. Björgunarsveit-
Baltasar Kormákur:
Skelfilegt áfall
„Þetta er skelfi-
legt áfall. Fyrst
komu bara neistar
en þetta endaði
með því að 10
metra eldtungur
stóðu upp í loftið,"
sagði Baltasar
Kormákur, leik-
stjóri kvikmynd-
arinnar Hafið, um
það óhapp sem
átti sér stað í Neskaupstað aðfara-
nótt laugardags þegar eldsvoði varð
í geymsluhúsnæði Síldarvinnslunn-
ar þegar verið var að taka upp upp-
hafs- og lokaatriði kvikmyndarinn-
ar.
„Við vorum búin að undirbúa
þessar upptökur i tiu daga og höfð-
um meðal annars fengið aukafólk til
starfa. Á staðnum voru slökkviliðs-
bíll og sjúkrabíll og margt annað
hafði verið gert til að forðast óhöpp
þannig að allar viðeigandi ráðstaf-
anir höfðu verið gerðar. Mér finnst
þetta hræðilega leiðinlegt, ekki síst
gagnvart íbúum Neskaupstaðar sem
hafa verið okkur einstaklega hjálp-
legir svo mánuðum skiptir," sagði
Baltasar.
- En var eldsvoðinn ekki sjálfur
tekinn upp?
„Já, að vísu var það gert. Ég veit
hins vegar ekki hvort við notum það
því þarna ríkti algjör örvænting.
Við skutum á þetta en það var líka
gert í fullu samráði við eigendur
húsnæðisins. Við eigum eftir að sjá
hvemig tökurnar koma út en þær
voru framkvæmdar án svokallaðs
monitors, skjás sem leikstjóri fylgist
alltaf með af.
Við erum tryggð með svokallaðri
all-risk áhættutryggingu fyrir slys-
um sem þessum hjá Sjóvá-Almenn-
um. Fyrir fram höföum við kynnt
þetta atriði fyrir félaginu í smáatrið-
um og það komu engar athugasemd-
ir þaðan. Nú er bara að sjá hvort
menn standa sig hvað það varðar,"
sagði Baltasar Kormákur. -Ótt
Upphafs- og lokaatriði kvikmyndarinnar Hafið:
Eldsvoði þegar
tökur stóðu yfir
Slökkviliðsmenn frá Neskaupstað,
Eskifirði og Reyðarfirði, auk björg-
unarsveitarmanna, börðust í nokkr-
ar klukkustundir við að ráða niður-
lögum elds sem kviknaði þegar ver-
ið var að kvikmynda eld og spreng-
ingar í geymsluhúsnæði Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað aðfara-
nótt laugardags. Um er að ræða upp-
hafsatriði og endi kvikmyndarinnar
Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson
sem Baltasar Kormákur leikstýrir.
Þegar klukkan var að verða fjög-
ur um nóttina var kvikmyndatöku-
fólkið að taka upp en þá vildi það
slys til að eldur breiddist út, meðal
annars í þakskegg. Ekki varð við
neitt ráðið þó svo að miklar ráðstaf-
anir hefðu verið gerðar af hálfu
kvikmyndatökufólksins að koma i
veg fyrir að eldurinn breiddist
meira út en ætlunin var. Til að
mynda voru tveir slökkvibílar á
í birtingu
Mikiö hvassviöri var þegar eldurinn kom upp.
UV-MYNUIK tLMA
Húsiö illa farið eftir brunann
Slökkviliösmenn voru á sjöundu klukkustund aö ráöa niö-
urlögum eldsins.
staðnum, annar
frá Neskaupstað
en hinn frá Eski-
firði, og sex
slökkviliðsmenn.
Leyfi hafði feng-
ist bæði hjá
sýslumanni og
slökkvistjóran-
um í Neskaup-
stað til að taka
umrætt atriði
upp á staðnum.
Auk þess eru
framleiðendur
tryggðir fyrir
áföllum sem
þessum.
Fleiri slökkvi-
liðsmenn voru
kallaðir út og kom þriðji bíllinn
brátt á vettvang. Aö sögn lögregl-
unnar í Neskaupstað var ekki búið
að ráða niðurlögum eldsins fyrr en
á ellefta tfmanum um morguninn.
Þegar eldurinn kviknaði var
mikið hvassviðri í bænum. Rætt
hafði verið um að fresta tökum á
eldatriðinu af þeim sökum en frá
því var horfið enda hafði mikil
vinna verið lögð í að undirbúa
hina vandasömu töku sem var síð-
asta útitakan við kvikmyndagerð-
ina.
Húsnæðið sem brann var á árum
áður frystihús en hefur á síðustu
árum verið notað sem geymsla. í
austurhluta hússins, sem tókst að
forða frá eldinum, er hins vegar
aðstaða fyrir hlýraeldi. -Ótt
WÉ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 15.34 14.50
Sólarupprás á morgun 11.03 11.25
Síödegisflóð 14.49 19.01
Árdegisflób á morgun 03.31 09.53
Veöriö í
Súld og rigning
Suðaustan 13-18 m/s vestan til en
s. 8-13 austan til á landinu.
Þokusúld eöa rigning víðast hvar á
Suöur- og Vesturlandi en skýjað að
mestu og þurrt noröaustan til. Hiti 5
til 10 stig.
Suðlæg átt
Suðvestan 8-13 m/s. Rigning eða
skúrir sunnan- og vestanlands en
þurrt nprðaustan til.
i'.OfíD iBáiiij ibj£sj
Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudaguragur
9 Hití 3° tii 8° 9 hiti 3" til 8° 9 Hití 3° tii 8°
Vimiur: Vindur: Vindur:
8-13 m/s 8-13 "v5 8-13'"/s
t t t
Suðlæg átt Veöurstofan Suðlæg átt
með vætu gerlr ráð með vætu
og hlýindum, fyrlr og hlýlndum,
einkum suðlægri átt elnkum
sunnan- meö sunnanlands
lands. hlýlndum. Milt veður
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
17,2-20,7
20,8-24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
>= 32,7
AKUREYRI Skýjaö 3.8
BERGSSTAÐIR Hálfskýjað 3.2
BOLUNGARVÍK Skýjaö 4.1
EGILSSTAÐIR Hálfskýjaö 4.0
KIRKJUBÆJARKL. Þoka 2.4
KEFLAVÍK Alskýjað 5.2
RAUFARHÖFN Alskýjaö 4.2
REYKJAVÍK Skýjaö 4.7
STÓRHÖFÐI Súld 6.7
BERGEN Rigning 8.0
HELSINKI Slydda 1.7
KAUPMANNAHÖFN Þokumóöa 1.5
ÓSLÓ Þoka 1.8
STOKKHÓLMUR Sandbylur 3.9
ÞÓRSHÖFN Súld 9.4
ÞRÁNDHEIMUR Léttskýjaö -4.3
ALGARVE Heiöskírt 13.3
AMSTERDAM Þokumóöa 0.0
BARCELONA Léttskýjaö 6.6
BERLÍN Skýjaö -2.8
CHICAGO Heiöskírt -0.6
DUBLIN Léttskýjaö 3.1
HALIFAX Alskýjaö 1.8
FRANKFURT Heiöskírt -1.9
HAMBORG Lágþoka -2.3
JAN MAYEN Léttskýjað 2.2
LONDON Mistur 2.4
LÚXEMBORG Heiöskírt -2.1
MALLORCA Léttskýjaö 5.4
MONTREAL Alskýjað -1.8
NARSSARSSUAQ Alskýjað -6.9
NEWYORK Rigning 3.9
ORLANDO Alskýjaö 20.6
PARÍS Heiösklrt -1.1
VÍN Heiöskírt -6.2
WASHINGTON Rigning 5.6
WINNIPEG Heiösklrt -8.5
ijji’íj>:«! oþ:j11f V"