Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Side 14
14
Útlönd
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001
JOV
REUTER-MYND
Gámsins gætt
írskir lögregluþjónar standa vörö um
vöruflutningagáminn þar sem átta
flóttamenn fundust látnir í bænum
Wexford um helgina. Fimm flótta-
menn til viðbótar fundust lifandi í
gáminum en meðvitundarlausir.
Lögreglan rann-
sakar dauða
flóttamanna
Alþjóðleg lögreglurannsókn er
hafin á því hver beri ábyrgð á
dauða átta flóttamanna sem fund-
ust i gámi á írlandi um helgina.
Þrir hinna látnu voru börn, fjög-
urra ára drengur og tíu eða ellefu
ára piltur og stúlka.
Þrettán flóttamenn voru í gámin-
um og lifðu fimm þeirra af innilok-
unina. Þeir voru þó meðvitundar-
lausir þegar þeir fundust og voru
fluttir á sjúkrahús í bænum Wex-
ford. Að sögn voru þeir þungt
haldnir i gær en á batavegi.
Talið er að flóttamennirnir séu
frá Tyrklandi. Það var bílstjóri
flutningabílsins sem flutti gáminn
síðasta spölinn sem uppgötvaði
hvers kyns var. Hann hafði þá
heyrt barsmíðar og hróp úr gámin-
um.
írska lögreglan kannar nú hvort
flóttamennirnir þrettán hafi greitt
smyglurum til að skipuleggja ferða-
lag sitt. Gámurinn kom upphaflega
frá Ítalíu og fór með lest tíl Belgíu
en þaðan með skipi til írlands.
Bertie Ahern, forsætisráðherra
írlands, hét því í gær að hafa upp á
glæpamönnunum sem bera ábyrgð
á dauða fólksins.
Friðarverðlauna-
hafar Nóbels
vilia stöðva stríð
Fjölmennasti fundur friðarverð-
launahafa Nóbels frá upphafi vega
kom sér saman um yfirlýsingu í
gær um hvernig binda eigi enda á
stríðsátök á 21. öldinni.
Verðlaunahafarnir, sem eru
komnir til Ósló að fagna hundrað
ára afmæli friðarverðlaunanna,
sögðu að afvopnun og stofnun al-
þjóðlegs dómstóls væru lykilþættir
lausnarinnar.
Friðarverðlaunahafarnir, þar á
meðal Dalai Lama, leiðtogi Tíbeta,
og Desmond Tutu, erkibiskup i Suð-
ur-Afríku, sátu á fundi í Ósló fjóra
daga. Yfirlýsing þeirra verður gerð
heyrumkunn í dag.
Kofi Annan og Sameinuðu þjóð-
irnar fá friðarverðlaunin fyrir árið
2001 afhent í dag.
Hart barist gegn hryðjuverkamönnum í Austur-Afganistan:
Bin Laden fer fyrir
þúsund manna liði
Hryðjuverkamaðurinn Osama
bin Laden fer fyrir um eitt þúsund
manna harðsnúnu liði sem verst
hörðum árásum Norðurbandalags-
ins og Bandaríkjamanna i skóglendi
í Tora Bora-héraði i austurhluta
Afganistans. Talið er að það geti
orðið lokaorrusta bin Ladens.
Bandarisk stjómvöld itrekuðu í gær
að hann yrði framseldur, næðist
hann á lífi.
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, og aðrir bandarískir emb-
ættismenn sögðu í gær að mynd-
bandsupptaka, sem gerð var eftir
hryðjuverkaárásirnar 11. september
og fannst i húsi í Jalalabad, sann-
aði, svo ekki yrði um villst, að bin
Laden hefði átt hlut að árásunum
sem urðu 3.900 manns að bana.
Myndbandið var tekið upp í síð-
asta mánuði og sýnir bin Laden
segja borðfélögum sínum frá því
þegar hann hlustaði á fréttirnar af
árásunum. „Það er alveg ljóst að
hann vissi um þær áður en þær
voru gerðar,“ sagði embættismaður
sem ekki vildi láta nafns síns getið.
Síðasti naglinn var rekinn í kistu
talibanastjórnarinnar í Afganistan í
REUTER-MYND
Vígamenn í Spin Boldak
Vopnaðir liðsmenn ættbálka við
Spin Boldak í Afganistan gæta þess
að þar sé allt með friði og spekt.
gær þegar þeir þeir gáfust upp í síð-
asta vígi sínu í Zulamhéraði, að því
er afgönsk fréttastofa í Pakistan
greindi frá.
Talibanar réðu yfir 90 prósentum
lands i Afganistan og skutu skjóls-
húsi yfír bin Laden og al-Qaeda
hryðjuverkasamtök hans þar til
Bandaríkjamenn hófu hernaðarað-
gerðir sínar gegn þeim fyrir tveim-
ur mánuðum til að hefna fyrir árás-
irnar á New York og Washington.
Talsmaður Norðurbandalagsins,
sem hefur náð mestum hluta
Afganistans á vald sitt að undan-
fomu, sagði að bin Laden og þúsund
manna lið hans væri í skóglendinu
í Spin Ghar eftir að Norðurbanda-
lagsmenn náðu bækistöðvum þeirra
í Tora Bora á sitt vald.
„Hann er örugglega þar,“ sagði
talsmaðurinn í samtali við Reuters.
Sjónvarpsstöðin CNN sendi frétt
frá Tora Bora í gær þar sem sagði
að bandarískar herflugvélar hefðu
varpað sprengjum á svæðið frá því í
dögun. Bæði talsmaður Norður-
bandalagsins og Richard Myers, for-
maður herráðs Bandaríkjanna,
sögðu að bardagarnir væru harðir.
Ekki er vitað hvar múllann
Ómar, leiðtogi talibana, er niður-
kominn en Bandaríkjamenn vilja
einnig fá hann framseldan, náist
hann á lífi.
REUTER-MYND
Beðiö eftir mataraðstoðinni
Afganskur drengur stendur í hópi kvenna sem bíða eftir því að fá afhentan matarskammt í dreifingarstöð matvælaað-
stoðar Sameinuðu þjóðanna í Kabúl. Sameinuðu þjóðirnar hrundu af staö umfangsmikilli mataraöstoð í afgönsku höf-
uðborginni um helgina og afhentu rúmlega þremur af hverjum fjórum íbúum hveitisekki.
Hagkvæmt - óháð - öruggt
INTERNETSAMBAND
UM GERVIHNÖTT
Hvar sem er! Hvenær sem er!
Hringdu í síma 561 9600
og fáðu nánari upplýsingar.
lOsat ehf.
Borgartúni 31 ■ 105 Reykjavík ■ Sími: 561 9600
Fax: 561 9610 ■ iosat@iosat.net ■ www.iosat.net
IOsat.net
Óháð staðsetningu.
Óháð umhverfi.
Óháð tímagjaldi.
Óháð bilunum á línu-,
net- og símaköplum.
VIRICAR HVAR SEM ER:
■ Ájökli ■ Uppi á öræfum
■ Á sjó_- Á fjöllum
■ Til sveita ■ í óbyggðum
Baráttan gegn
rasisma aldrei
verið mikilvægari
Mary Robinson, mannréttinda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í
gær að baráttan gegn kynþáttafor-
dómum í heiminum hefði aldrei
verið mikilvægari en síðan hryðju-
verkaárásirnar voru gerðar á
Bandaríkin í september.
„Vonin um að nýtt árþúsund
hefði í fór með sér nýtt tímabil virð-
ingar fyrir grundvallarmannrétt-
indum virðist eins og fjarlæg minn-
ing núna,“ sagði Robinson í yfirlýs-
ingu sem hún sendi frá sér í tilefni
þess að í dag, mánudag, er haldinn
hátíðlegur dagur mannréttinda.
Robinson bar lof á samfylkingu
gegn rasisma sem stofnað var til á
ráðstefnu SÞ í Suður-Afríku.
Wolfensohn gagnýnir Dani
James Wolfen-
sohn, forseti Al-
þjóðabankans, hef-
ur gagnrýnt áform
nýrrar ríkisstjórn-
ar i Danmörku fyr-
ir áform hennar um
að draga úr aðstoð
við erlend ríki um
sem nemur rúmum fimmtán millj-
örðum íslenskra króna. Danski ut-
anríkisráðherrann vísar gagnrýn-
inni á bug.
Sæðisgjafi borgi meðlag
Sænskur karlmaður, sem gaf les-
bísku pari þrisvar sinnum sæði fyr-
ir tíu árum, hefur nú verið krafinn
um barnsmeðlag af þeirri sem fékk
forræðið eftir að parið skildi.
Vill nýta vindorkuna
Færeyskur arkitekt segir að Fær-
eyingar eigi að nýta vindorkuna
mun betur en gert er og hefur í þvi
skyni gert áætlun þar sem 39 vind-
myllur eiga að leysa olíunotkun af
hólmi á 18 árum, að sögn færeyska
blaðsins Sosialurin um heigina.
Pútín kom í matinn
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
leit inn í mat til Gerhards
Schröders Þýskalandskanslara í há-
deginu í gær á heimleið frá Grikk-
landi. Þykir það til marks um æ
nánari tengsl þeirra.
Njósnastöð í Danmörku
Saddam Hussein íraksforseta
tókst að setja á laggirnar svokallaða
njósnastöð í Danmörku, að því er
fyrrum hershöfðingi í írak sagði í
viðtali við blaðið Politiken.
Drottning fær lestarvagn
Margrét Þórhild-
ur Danadrottning
og fjölskylda henn-
ar taka á móti nýj-
um lestarvagni úr
hendi forráða-
manna dönsku
járnbrautanna í Ár-
ósum á morgun.
Lestarvagninn er sextugsafmælis-
gjöf til drottningar, tæpum tveimur
árum á eftir tímanum.
Frakkar skoða gæslulið
Hubert Védrine, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði í gær að
frönsk stjórnvöld myndu ákveða í
þessari viku hvort þau tækju þátt í
fjölþjóðlegu friðargæsluliði í
Afganistan. Stærð gæsluliðsins hef-
ur ekki enn verið ákveðin.
Öll spjót á Berlusconi
Silvio
Berlusconi, forsæt-
isráðherra Ítalíu,
sætir nú harðri
gagnrýni heima fyr-
ir vegna neitunar
stjórnar hans um
að fallast á áform
ESB um handtöku-
heimiidir sem gilda eiga innan sam-
bandsins. Berlusconi hefur verið
sakaður um að láta eigin hagsmuni
ráða ferðinni en hann hefur átt í
útistöðum við lögin.
Vinnið bug á hatrinu
Jóhannes Páll páfi hvatti mann-
kynið í gær til að yfirvinna hatrið
og stuðla að friði í heiminum. Hann
gaf einnig til kynna að hann vildi
ekki að Bandaríkjamenn réðust á
fleiri lönd en Afganistan.