Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Page 32
44 MÁNUDAGUR 10. DBSEMBER 2001 * Tilvera lífift Óvissukvöld Óvissukvöld verður 1 Listklúbbi Leikhússkjallarans í kvöld kl. 20.30 þar sem fjölmargir listamenn koma fram, svo sem Geirfuglamir, Rússibanarnir, Jóel Pálsson og Sigurður Flosason, ásamt Hringjum, Jagúar, Pollock-bræðmm og Þórdísi Cleassen. (Jafnvel einhverjir heimsfrægir sem ekki má nefna.) Allir þessir snillingar þurfa að flytja lög sem þeir hafa ekki spilað áður. Krár DUNDURFRETTIR A GAUKNUM Hljómsveitin Dúndurfréttir rokkar á Gauki á Stöng.. Klassík TONLEIKAR I NESKIRKJU A al- þjóölegum mannréttindadegi efnir Islandsdeild Amnesty International til aðventutónleika. Tónleikarnir verða haldnir í Neskírkju við Haga- torg og hefjast þeir kl. 20. Fram koma: Schola Cantorum undir stjórn Haröar Áskelssonar, Jónas Inglmundarson píanóleikari, Ólafur Kjartan Sigurösson barítonsöngvari, Siguröur Rúnar Jónsson hljóðfæra- leikari, sönghópurinn Voces Thules, Kammerkór Seltjarnarneskirkju, undir stjórn Víeru Manasek; Guörún Helga Stefánsdóttir sópransöng- kona kemur fram með kórnum, Selma Guömundsdóttir píanóleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari, Monika Abendroth hörpuleikari, Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari og Þórunn Lárusdóttir söngkona. Tónleikar Am- nesty International á mannréttinda- daginn eru orönir fastur liöur á að- ventunni. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Fundir UPPLESTUR I HLAPVARPANUM Þá er komið að síðasta bókaupp- lestrarkvöldinu í Hlaövarpanum fyrir þessi jól sem er í kvöld, kl. 20.30. Þær sem lesa eru Hildur Hermóðsdóttir, Inga Lá/a Baldvinsdóttír, Sigrún Árnadóttir, Oddný Sen og Steinunn Siguröardóttir. Gestum gefst tæki- færi til aö spyrja höfunda/þýðendur spurninga í lokin. MIKILVÆGI MARKAÐSMÁLA Prófessor Michael R. Czinkota heldur fyrirlestur um mikilvægi markaðsmála I hnattvæðingu yiöskiptalífsins t Hátíðasal Háskóla íslands kl. 15.30 í dag. Fyrirlest- urinn kallast The Global Marketing Imperative og fer fram á ensku. Að honum loknum mun dr. Czinkota svara fyrirspurnum úr salnum. Bíó n FILMUNDUR Þessa vikuna sýnir Filmundur aðra mynd Litatrilógíu Krzystofs Kieslowskis, Þrjá liti: Hvít- an. Myndirnar þrjár heita eftir frönsku fánalitunum og fjalla um það sem fánalitirnir standa fyrir, þ.e. frelsi, jafnétti og bræðralag. Myndin verður sýnd kl. 22.30. Myndlist n KERAMIKVERK Jónína Guönadóttir myndlistarmaður sýnir keramikverk í Gallerí Reykjavík, Skólavörðustíg 16 Happdrætti Bókatíðinda Vinningsnúmer 10. desember: 29126 Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Jólagleði Kramhússins: Dansinn dunar í Tjarnarbíói Það var rífandi fjör og stemning á hinni árlegu jólagleði Kramhússins sem haldin var í Tjamarbíói á laug- ardagskvöld. Nemendur og kennar- ar Kramhússins sýndu þar dansa hvaðanæva úr heiminum, svo sem salsa, afró og tangó, og klæddust viðeigandi búningum sem margir hverjir voru æði skrautlegir. Áhorf- endur voru vel með á nótunum og hrópuðu, klöppuðu og stöppuðu svo að á tímabili virtist þakið ætla að rifna af húsinu. Morgunmeyjar Kramhússins Meöal þeirra sem komu fram á jólagleðinni voru hinar svo kölluðu morgunmeyjar Kramhússins. — Gestir boönir velkomnir Kúbverski stultudansarinn Alberto Sanchez tók á móti gestum og dansaði síðan salsa á stultum við gífurlegan fögnuð. Afródans meö þvottakörfur dvmyndireinarj. Hópur afródansara fór í loftköstum um sviðið við dynjandi trommuleik. DV-MYNDIR EINAR J. Meö blómvönd á lofti Garðar Cortes, stjórnandi Sinfón- íuhljómsveitarinnar og íslenska óperukórsins, var ákaft hylltur að tónleikunum loknum. Til heiðurs Verdi Sinfóníuhljómsveit íslands hélt sérstaka hátíðartónleika í Háskóla- bíói á föstudaginn í tilefni af 100 ára ártíð tónskáldsins Giuseppes Verdis. Auk -sinfónihljómsveitarinn- ar tók íslenski óperukórinn þátt í flutningnum og einsöngvararnir Elín Ósk Óskarsdóttir og Jón Rúnar Arason. Garðar Cortes hélt um tón- sprotann og stjórnaði flutningnum af stakri list. Þóttu tónleikarnir takast frábærlega og var flytjendum ákaft fagnað að þeim loknum. Klassík hjá Sævari Karli Tónlistarhópurinn 4Klassískar gaf nýverið út diskinn Fyrir austan mána og vestan sól en á honum er að finna sigild íslensk dægurlög í bland við þekkta söngleikjaslagara. Hópinn skipa söngkonurnar Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdótt- ir og Signý Sæmundsdóttir og pi- anóleikarinn Aðalheiður Þorsteins- dóttir. Til að fagna útgáfu disksins héldu stöllurnar fjórar útgáfutón- leika í verslun Sævars Karls í Bankastræti á laugardaginn. Laðaði söngurinn að sér fjölda forvitinna vegfarenda sem ráku inn nefið og nutu tónlistarinnar innan um bux- ur, jakka og vesti. DV-MYND EINAR J Sungið innan um fatnaö Stöllurnar sem mynda sönghópinn 4Klassískar léku viö hvern sinn fingur. Vel fagnaö Óperusöngvararnir Jón Rúnar Arason og Elín Ósk Óskars dóttir hneigja sig fyrir áheyrendum ásamt Garðari Cortes. —11 |i Smárabíó/Regnboginn - Bandits -^- Næturgestir bankastjóranna Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Bankaræningjar Billy Bob Thornton og Bruce Willis í hlutverkum strokufanga sem ræna banka á hálfs mánaðar fresti. Ekki veit ég hvaða formúlu Barry Levinson fylgir, en eitt er víst, eftir þvi sem kvikmyndir hans eru dýr- ari því verri eru þær. Levinson er með langa reynslu að baki og mynd- ir hans eru misgóðar. Ef við tökum nærtæk dæmi á borð við Wag the Dog og Liberty Heights höfum við þar tvær ódýrar gæðamyndir sem sýna bestu hliðar Barry Levinsons sem leikstjóra. Á móti höfum við svo Sphere og Bandits, rándýrar Hollywoodmyndir sem skarta stór- stjörnum og eru ekkert annað en meðalafþreying. Leikstjóri á borð við Barry Levinson á að geta gert mun betur en hann gerir í Bandits. Þetta er maðurinn sem leikstýrði Diner, Good Morning Vietnam og Rain Man, svo nefndar séu fleiri gæðamyndir frá hans hendi. Bandits, sem teljast verður gam- anmynd þótt gamanið sé grátt á stundum, fer ekki illa af stað. Bruce Willis og Billy Bob Thornton leika tvo ólíka fanga, Joe er töffari sem lætur engan eiga neitt inni hjá sér og er harður í horn að taka. Terry er gáfaðri, en um leið hálfgerð mannleysa miðað við Joe. Þeim hef- ur orðið vel til vina innan rimla fangelsisins og þegar Joe sér tæki- færi til að flýja fær Terry að fljóta með. Flóttinn tekst vel og nú ætlar Joe að láta draum sinn rætast um að reka skemmtstað í Acapulco. Til að fjármagna það á að ræna banka. Það er hér sem Terry reynist betri en enginn. Hann kemur með þá snilldarhugmynd að ræna fyrst bankastjóranum kvöldið áður, dvelja nóttina hjá honum og láta hann síðan lóðsa þá um hankann um morguninn. Fram yfir fyrstu ránin er Bandits prýðisgóð skemmtun. Eða allt þar til Kate (Cate Blanchett) kemur til sögunnar. Hún ekki aðeins kemur upp á milli félaganna, heldur leiðir þátttaka hennar til þess að myndin verður ótrúverðugri með hverri mínútunni og leysist í lokin upp í farsakenndan athurð sem hvorki er spennandi né fyndinn. Cate Blanchett er góð leikkona og hún á sína góðu spretti. Þegar grannt er skoðað er hún sú af stjörnunum sem stendur sig best. Hún sýnir oft góð tilþrif í samleik sínum við Billy Bob Thomton og Bruce Willis sem á móti standa vel fyrir sínu. Willis kann utanbókar að leika töffara á borð við Joe og Thornton er kómískur í leik sínum. Það sem eyðileggur fyrir Blanchett er glíma hennar við persónu sem eingöngu er ætlað að vega upp á móti karlmönnunum, persónu sem ekkert hefur með söguþráðinn að gera. Kate er sú persóna sem gerir síðari hluta myndarinnar langdreg- inn. Levinson ætti að vera ljóst að kvikmyndir þurfa ekki að vera rúm- ir tveir tímar. Níutíu mínúturnar er góð lengd og tel ég að Bandits hefði orðið betri hefðu skærin verið not- uð meira. Leikstjóri: Barry Levinson. Handrit: Harry Peyton. Kvlkmyndataka: Dante Spinotti. Tónlist: Christopher Young. Aöallelkarar: Bruce Willis, Billy Bob Thornton, Cate Blanchett og Troy Garity.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.