Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Side 36
) 7* » * rc* % Aðeins kr. 1.050. Nissan Almera bíialeigubílar skráðir 06/00 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í stma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001 Fjárfestingarfélagið ESÓB ehf.: Kaupir 60% í útgáfu DV Tekist hafa samningar milli Frjálsrar fjölmiðlunar ehf. og Fjár- festingarfélagsins ESÓB ehf. um kaup þess síðamefnda á 60% hlut í Útgáfufélaginu DV ehf. í sameiginlegri fréttatilkynningu segir að í apríl síðastliðnum hafi ESÓB keypt 40% hlut í Útgáfufélag- inu DV af Frjálsri fjölmiðlun og hafi aðilar nú náð samkomulagi um kaup ESÓB á öllum hlutabréfunum. Samningurinn tekur gildi miðviku- daginn 12. desember næstkomandi en þá er gert ráð fyrir að fjármögn- un verði lokið. Kaupverð er trúnað- armál milli aðila. Fjárfestingarfélagið ESÓB ehf. er í eigu Óla Bjarnar Kárasonar, rit- stjóra DV, Einars Sigurðssonar, Ágústs Einarssonar og Hjartar Niel- Höfuðstöðvar DV. sen. Ágúst Einarsson hefur verið stjórnarformaður Útgáfufélagsins DV frá liðnu vori. -aþ Hlustað eftir krumma Leikhópurinn Perlan flutti leikrit viö Krummasögu Jóhannesar úr Kötlum viö góöar undirtektir á jólaskemmtun fatlaöra á Hótel Sögu í gær sem André Bachmann og Gleðigjafarnir hafa staöiö fyrir í áraraöir. Leit heldur áfram Leit að skipverjanum sem saknað er af Ófeigi VE hélt áfram alla helg- ina. í gær fór björgunarsveitin í Vik um svæöið frá Jökulsá á Sólheima- sandi austur að Blautukvisl. Einnig var flogiö yfir leitarsvæðið, allt austur að Ingólfshöfða. Að sögn Val- geirs Elíassonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, er leit á Skeiðarár- sandi mjög erfið og vart framkvæm- anleg nema úr lofti. Leit verður haldið áfram í dag. -Kip Smáralind Fjárlög samþykkt með þriggja milljarða króna afgangi: Býst viö tíu millj- arða króna halla - segir formaður VG. Tekið á útþenslu ríkisins, segir Einar Oddur Búast má við að ríkissjóður verði eftir næsta ár gerður upp með fimm til tíu milljarða króna halla. Fjár- lögunum var rumpað saman með aðferðum sem eru vel þekktar frá því þegar harðnar á dalnum, svo sem með þvi að ýkja tekjuforsendur og draga úr útgjöldum með handa- hófskenndum hætti. Þetta er mat Steingríms J. Sigfússonar, for- manns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á fjárlögum ríkis- stjórnarinnar sem samþykkt voru á Alþingi um helgina. Samkvæmt fjárlögunum verður tekjuafgangur ríkissjóðs á næsta ári um þrir milljarðar króna. „Það er sama upphæð og við lögðum af stað með en í fjárlagavinnu haustsins þurfum við að endurmeta allar tekjuhorfur. Þvi var farið í að skera niður og lagt í aðgerðir sem lágu létt fyrir - og ekkert nema gott um það að segja,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokks og varaformaður fjárlaga- nefndar Alþingis, í samtali við DV. Hann telur mikils um vert að með nýsamþykktum fjárlögum sé verið Wrm 11 í 11 Steingrímur Einar Oddur J. Sigfússon. Kristjánsson. að taka á þeirri miklu útþenslu sem verið hafi á rikiskerfinu á undan- fórnum árum. Um niðurskurð og auknar álögur á einstaka sviðum segir Einar Odd- ur að ósannindi séu að hækkun komugjalda til lækna séu íþyngj- andi. í öðrurh Evrópulöndum greiði fólk úr eigin vasa 2,0% af vergri landsframleiðslu fyrir þjónustu heilbrigðiskerfisins en ekki nema 1,2% hérlendis. „Þannig sker ísland sig frá öllum öðrum löndum, hvað sjúklingar og notendur heilbrigðis- þjónustu greiða hér lítinn hlut.“ Einar Oddur vill ekki spá fyrir um hvernig ríkisfjármálin geti hugsanlega þróast á næsta ári og hvort uppgjör rikissjóðs eftir árið geti orðið mínus. „Það eru óvissu- tímar og ég er ekki i stakk búinn að segja til um óorðna hluti. En ég hef haldið fram í þessari umræðu, burt- séð frá því hvort útlitlið er bjart eða aðeins dekkra, að verkefnið er sama og fyrr; að draga úr kostnaði hins opinbera." Sem kunnugt er var nokkuð skor- ið niður í opinberum framkvæmd- um á næsta ári til þess að ná mark- miðum um þriggja milljarða króna tekjuafgang rikisins. Steingrímur J. Sigfússon segist setja spurningar- merki við hversu skynsamlegt það hafl verið, „í ljósi þess að lítið má gerast í okkar litla hagkerfi, þannig að við sveiflumst ekki yfir í fjár- málakreppu og atvinnuleysi. Hlutir eru fljótir að breytast og það kæmi mér ekki á óvart að um mitt næsta ár verði menn famir að huga að því hvað hægt sé að gera til að örva at- vinnulífið, svo sem með því að flýta opinberum framkvæmdum," segir formaður VG. -sbs Fundahöld um helgina: Menn eru þokkalega samstiga Fulltrúar ASÍ, atvinnurekenda og stjórnvalda sátu á fundum allan dag- inn í gær þar sem farið var yflr þá stöðu sem nú er uppi í efnahagsmál- um. Sem kunnugt er hafa verið við- sjár vegna verðlagsþróunar og ljóst er að efnahagsforsendur kjarasamninga eru brostnar. Launaliður þeirra er uppsegjanlegur í febrúar, en eins og DV hefur greint frá hefur verið rætt um að fresta uppsögn til vors. „Við höfum rætt um aðgerðir sem miða að því að lækka verðlag, koma böndum á verðbólguna, styrkja gengi - segir forseti ASÍ krónunnar og lækka vexti sem afleiðingu af þessu öllu,“ sagði Grétar Þorsteinsson, for- seti ASÍ, í samtali við DV í gærkvöld. Hann sagði menn vera þokkalega samstiga í nálgun ;inni á þetta við- fangsefni en lagði þó áherslu á að ekkert væri fast í hendi enn. Formenn aðildarfélaga ASÍ koma saman til fundar síðdegis í dag og því hefur helgin verið notuð til að móta efnahagstillögur. „Við viljum hafa í hendi einhverjar tillögur fyrir for- mannafundinn þannig að menn geti tekið afstöðu tU málsins. Það hefur verið aldeilis ágæt samstaða í verka- lýðshreyfingunni um þá nálgun sem við höfum haft í efnahagsmálunum en auðvitað hafa allir fyrirvara á afstöðu sinni til hugmynda og tiOagna þegar á hólminn er komið,“ sagði forseti ASÍ. -sbs Svanborg SH: Nöfn mannanna Sjómaðurinn sem fórst með Svan- borgu SH við við Öndverðarnes á Snæfellsnesi sl. föstudagskvöld hét Sæbjöm Vignir Ásgeirsson, Ennis- braut 21 i Ólafsvik. Hann var fædd- ur 6. september 1961 og lætur eftir sig konu og þrjú böm. Tveggja manna er enn saknað. Þeir heita Vigfús Elvan Friðriksson, Brúar- holti 5 í Ólafsvík, fæddur 5. október 1953; og fóstursonur hans, Héðinn Magnússon, Vallholti 7 í Ólafsvík, fæddur 9. maí 1970. -sbs Nýtt kortatímabil: Jólaverslun hafin Jólaverslun almennings tók mik- inn kipp um helgina og hafði nýtt kortatímabil sín áhrif, að mati markaðsstjóra stærstu verslunar- miðstöðvanna. Að sögn ívars Sigurjónssonar hjá Kringlunni komu 25 þúsund manns i húsið á laugardag til að versla. „Verslunin fór vel af stað með nýju kortatímabili. Á venjulegum laugar- degi koma um 15 þúsund gestir í Kringluna." Erla Friðriksdóttir, markaðsstjóri Smáralindarinnar, segir að helgin sem leið sé önnur stærsta verslun- arhelgin í Smáralind síðan verslun- armiðstöðin var opnuð. „Það komu rúmlega 30 þúsund manns hingað á laugardaginn. Guðmundur H. Páls- son, markaðsráðgjafi Laugavegs- samtakanna, segir að það hafi verið mikið af fólki á Laugaveginum í gær og greinilegt að fólk sé byrjað að versla. -Kip 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.