Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2002, Page 23
23
LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002
DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Whitney Houston:
Erfitt ár að
baki
Söngkonan Whitney Houston hef-
ur átt afar erfitt ár. Hún kom hvað
eftir annað fram opinberlega aug-
ljóslega undir miklum áhrifum eit-
urlyfia og eitt sinn var hún flutt i
skyndi á sjúkrahús og eiginmaður
hennar Bobby Brown sagði fiölmiðl-
um að hún væri örmagna af vinnu-
álagi en enginn trúði orði af því.
Þegar hún kom fram á tónleikum
sem Michael Jackson hélt til að
fagna endurkomu sinni var hún svo
horuð að fólk greip andann á lofti
og sagt er að hún hafi verið fituð
með stafrænum brellum áður en
tónleikarnir voru sendir út i sjón-
varpinu. Hún var svo mjó að gár-
ungar sögðu að Calista Flockhart úr
Ally McBeal sýndist vera feit við
hliðina á henni. Calista hefur mátt
verja grannvaxið holdafar sitt opin-
berlega hvað eftir annað en hún er
talin meðal annars vera vond fyrir-
mynd af þeim sem eru vissir um að
hún þjáist af anorexíu.
Árið hjá Juliu Roberts:
Flókið ástarlíf
Julia Roberts
vann óskarinn á
árinu fyrir
stjörnuleik sinn í
myndinni Erin
Brockovich. Hún
þykir þó hafa
toppað sjálfa sig
með leik sínum í
myndunum
America’s
Sweethearts og
Ocean’s Eleven,
sem báðar gengu
afskaplega vel.
Þrátt fyrir þetta
er einkalíf Juliu
flóknara en
nokkru sinni fyrr.
Hún hafði verið
með Benjamin
Bratt í heil þrjú
ár þegar slitnaði
upp úr samband-
inu á árinu.
Ástæðan ku vera
sú að skuldbind-
ingafælni leikkonunnar hafi enn á
ný látið á sér kræla þegar Bratt
vildi stofna með henni fiölskyldu.
Kjaftasögur eru líka á reiki um að
hlýtt hafi verið á milli hennar og
George Clooney og fleiri hjartaknús-
ara á árinu, en þær sögusagnir eru
enn óstaðfestar.
Julia hefur verið vond við fiöl-
miðla á árinu, einkum og sér i lagi
eftir skilnaðinn við Bratt. Hún
mætti meira að segja á verðlaunaaf-
hendingu og neitaði alfarið að leyfa
myndatökur. Sagt er að hálf amer-
íska ljósmyndarastéttin hafi næst-
um orðið úti þar sem beðið var eft-
ir prímadonnunni í snjó og kulda.
Ljótt er ef satt er.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fáöu þér miöa í 800 6611 eöa á hhi.is
Whitney Houston
Hún átti afar vont ár og sumir
töldu jafnvet aö hún væri horfin
af heimi.
Sharon Stone:
Ár drekans
Það má segja að síð-
asta ár hafi verið fyrir
Sharon Stone ár drek-
ans. Þetta var nefni-
lega árið sem hún var
hvað mest í fréttunum
vegna þess að sjaldgæf-
ur dreki beit i löppina
á eiginmanni hennar
Phil Bronstein. Þetta
var Komode dreki og
þessi undarlegi atburð-
ur gerðist í dýragarði
þar sem skepnan er
vistuð.
Það varð eðlilega
uppi fótur og fit og
brunað var með Bron-
stein á næsta sjúkra-
hús og hann var
sprautaður við flestum
Sharon Stone
Hún hefur strítt viö veik-
indi aö undanförnu en er
á batavegi.
sjúkdómum á jarð-
kringlunni sem drek-
inn var talinn geta bor-
ið með sér og saumuð á
hann táin aftur en
drekanum tókst næst-
um að slíta hana af og
hefði sjálfsagt borðað.
Þetta var ekki eina
sjúkrahúsferð þeirra
hjóna því ekki löngu
seinna var Sharon sjálf
flutt á sjúkrahús eftir
að lítill æðagúlpur
hafði sprungið í höfði
hennar og valdið smá-
vægilegum truflunum.
Það er talið að heilsu-
far hennar sé i þaö
heila gott þrátt fyrir
þetta.
HÚ5GAGNAHÖLLIN
Svefnsófi
Bíldshöfða 20 • 110 Reykjavík
sími 510 8000 • www.husgagnahottin.is
Raðgreiðslur í atlt að 36 mánuði
.
Verðdæmi:
m
KYNNINGARTILBOÐ
84.900 kr. 75.100 kr.
á mann í tvíbýli í íbúð m/einu
svefnherbergi í 14 nætur
á mann m.v. hjón með 2 börn
2ja til og með 11 ára í 14 nætur
Skattar 5.810,-ámann
Terra Nova-Sól býður nú vikulegar
ferðir til Limassol á Kýpur.
Aðalgististaður okkar, Ermitage Beach
Hotel býður upp á vel búnar íbúðir með
upphitun og loftkælingu. Hótelið
stendur við ströndina, í göngufæri við
iðandi mannlíf og fjölbreytta
afþreyingu. íslensk fararstjórn og
spennandi skoðunarferðir.
Kynntu þér Kýpur nánar!
TERRA sdv
” NOÚA jsd
-SPENNANDI VALKOSTUR-
Stangarhyl 3A • 110 Reykjavík • Sími: 587 1919 • Fax: 587 0036 • terranova.is