Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002 DV Fréttir Óljóst neyðarkall barst varðskipinu Tý: Mayday, mayday, við erum að sökkva Þridrangar Bjarmi fórst 10 sjómflum vestan Þrídranga. ------- 'CO- alandi - Vestmannaeyjar Átfsey ; O , _____________ - þyrla bjargaði tveimur mönnum þegar Bjarmi VE sökk. Einn skipverji lést, annars er saknað „Aðkoman var nöturleg,“ segir Jakob Ólafsson, flugmaður hjá Landhelgisgæslunni, en hann var í áhöfn TF-SIF, þyrlu Landhelgis- gæslunnar sem hiföi þrjá menn úr sjónum þegar Bjarmi VE sökk um 10 sjómílur undan Þrídröngum á laugardagsmorgun. „Þegar við kom- um að héngu tveir mannanna í hálf- uppblásnum gúmmíbátnum og sjór- inn gekk yfir þá og sá þriðji fannst látinn i sjónum skammt frá.“ Eins manns er enn saknað. Rétt fyrir klukkan 11.00 á laugar- daginn heyrði áhöfn varðskipsins Týs óljóst neyðarkall þar sem skila- boðin voru „mayday, mayday, við erum að sökkva". Þá var kannað hvort önnur skip í grenndinni hefðu heyrt neyðarkallið en svo virtist ekki vera. Um hádegisbil kom fram að Bjarmi VE hafði dottið út hjá Til- kynningarskyldunni og þá var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út. Kallið kom klukkan 12.14 og var hún komin í loftið kl. 12.35. Orion- kafbátaleitarflugvél, sem var á æf- ingu um 50 sjómílur suðvestur af Keflavík, fór strax á svæðið og einnig var óskað eftir vél Flugmála- stjómar þar sem Fokker Landhelg- isgæslunnar var bilaður. Eins var vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli gert viðvart og var þyrla frá þvi send á staðinn skömmu síðar. Skömmu eftir að TF-SIF kom á svæðið fann hún annan gúmmíhát Bjarma og var sigmaður sendur nið- ur í hann en hann reyndist mann- laus. „Þegar við uröum þess varir að gúmmíbáturinn var tómur hófum við aö leita upp í vindinn," segir Jakob. „Talsvert var af braki þarna og fljótlega komum við auga á hinn gúmmíbátinn sem maraði i hálfu kafi á hvolfi, varla hálfuppblásinn, og mennimir á honum. Sigmaður- inn sótti þá og gekk sú aðgerð mjög vel. Því næst héldum við áfram að leita og skammt frá fundum við einn mann í sjó og var hann sóttur. Eftir það reyndum við að skima um i brakinu en þar sem læknir þyrl- unnar mat ástand mannanna þannig að þeir væru mjög kaldir var haldið með þá á sjúkrahúsið i V estmannaeyj um. Jakob segist ekki geta metið hversu lengi mennirnir hefðu enst í sjónum en telur að varla hafi mátt tæpara standa. „Þeir vom mjög þrekaðir og annar þeirra hættur að Látinn Matthías Hannesson. Maðurinn sem lést þegar Bjarmi VE sökk hét Matthías Hannes- son, fæddur 11.12.61, til heim- ilis að Hring- braut 62 í Kefla- vik. Hann lætur eftir sig sambýl- iskonu og 2 dæt- ur. Saknað Maðurinn sem saknað er heitir Snorri Norðfjörð Haraldsson, fæddur 9.3.45, til heimilis að Hringbraut 62 í Keflavík. Hann er ókvæntur og barnlaus. Mennimir eru hálfbræður. Snorri Noröfjörð Haraldsson Þyrla Landhelglsgæslunnar, TF-SIF. Tekið á móti skipbrotsmönnum Mennirnir tveir sem komust lífs af voru fluttir á sjúkrahúsiö í Vestmannaeyjum. Þessi mynd er tekin á flugvellinum þar sem björgunarmenn bíöa komu þyrlunnar. gær en varð frá að hverfa vegna veðurs. Bjarmi VE var 58 brúttólesta tog- bátur sem smíðaður var árið 1970 og gerður út frá Vestmannaeyjum en var á leið í nýja heimahöfn í Grindavík. Ekki er vitað hvers vegna skipið sökk og björgunarbát- ur Bjarma bíður rannsóknar í geymslum lögreglunnar. -ÓSB Bjarmi VE 66. skjálfa sem er merki um mikla of- kælingu. Enda vora þeir illa klædd- ir, bara í léttum fatnaði." Talið er að mennimir hafi verið í köldum sjónum í u.þ.b. tvær klukkustundir áður þeim var bjarg- að. Þeir dvelja nú við ágæta heilsu á sjúkrahúsinu í Vest- mannaeyjum. Á fimmta tíman- um í gær hættu björgunarsveitir Slysavarnafélagsins leit að skipverjanum sem saknað er en leitin bar ekki árang- ur. 50 björgunar- sveitarmenn á 12 jeppum og 2 fjór- hjólum leituðu strandlengjuna frá Herdísarvik austur til Jökulsár á Sólheimasandi. Auk þess var varð- skip á sveimi nærri slysstaðnum í Kaupfélag Stöðfirðinga leggur upp laupana: Hið Stöðfirzka verzlunarfélag tekur við „austantjaldsverslun" Kaupfélag Stöðflrðinga var úrskurð- að gjaldþrota fyrir síðustu áramót en þrotabú þess hefúr siðan þá rekiö verslunina áfram og reynt að selja það sem eftir var af vörum, ásamt því að selja nýmjólk og brauð. Hefúr mörgum frekar þótt verslunin minna á verslan- ir í austantjaldslöndunum sálugu með hálftómum hillunum en verslun á ís- landi. Nú hillir hins vegar undir að i húsnæðinu verði opnuð verslun undir nýjum merkjum. Jósef Friðriksson, núverandi sveitarstjóri Stöðvarhrepps, hefúr stofnað hið Stöðfirzka verzlunar- félag og segir hann að þótt enn þá eigi eftir að hnýta einhverja lausa enda muni opnun verslunarinnar verða að veruleika. Enn stendur á samþykki stofnunar innan samvinnuhreyfingar- innar og hefur verið gefrnn frestur til að svara til mánudags. Annars mun Stöðfirzka verzlunarfélagið verða opn- að í öðru húsnæði. -GH DV-MYND GARÐAR HARÐARSON Gott verslunarhús. Verslunarhús Kaupfélagsins er hiö ágætasta til síns brúks en félagiö hefur ekki bolmagn til aö versla eins og vert væri. Nú bíöa nýir aðilar eftir aö fá aö spreyta sig. Ars fangelsi fyrir grófa misnotkun Hæstiréttur hefur snúið dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra og dæmt norðlenskan karlmann á fer- tugsaldri í eins árs fangelsi fyrir kynferðisbrot. Áður hafði héraðs- dómur sýknað manninn. í dómi Hæstaréttar segir að ákærði hafi ekki áður sætt refsingu en til þess beri að líta að um gróf brot hafi verið að ræða. Þau hafi beinst að liðlega 11 ára gömlum frænda ákærða. Drengurinn hafi borið fullt traust til hans og litið á hann sem vin. „Þykir ljóst af gögn- um málsins að umræddir atburðir hafi orðið honum þungbærir," segir í dómi Hæstaréttar. Sannað þykir að maðurinn hafi framið ýmis brot gegn frænda sínum og þ.á m. haft við hann munnmök. Atburð- imir gerðust á árunum 1998-1999. -BÞ Flosi sigraði Flosi Eiríksson sigraði í próf- kjöri Samfylking- arinnar í Kópa- vogi vegna kom- andi bæjarstjóm- arkosninga í vor. Annað sæti hlaut Sigrún Jónsdótt- ir, Hafsteinn Karlson lenti í því þriðja en Tryggvi Felixson hafnaði í fjórða sæti en kosningin er bindandi fyrir fjögur efstu sætin. Tæplega eitt þúsund manns greiddi atkvæði i kosning- unni sem var eingöngu opin flokks- mönnum og öðrum stuðningsmönn- um Samfylkingarinnar. -áb Bessastaðahreppur: Guðmundur í fyrsta sæti Prófkjör Sjálfstæðisfélags Bessa- staðahrepps var haldið síðastliðmn laugardag. Alls tóku 234 þátt í kosn- ingunni af þeim 1130 sem voru á kjörskrá. í fyrsta sæti lenti Guð- mundur G. Gunnarsson, oddviti hreppsnefndar, með 138 atkvæði, en Snorri Finnlaugsson varð annar með 120 atkvæði. Næstar urðu þær Erla Guðjónsdóttir í þriðja sæti, með 73 atkvæði, og Sigríður Rósa Magnúsdóttir í því fjórða. Fimmti varð svo Bragi Vignir Jónsson, sjötta Halla Jónsdóttir, sjöundi Doron Eliasen og Hildur Ragnars- dóttir varð í því áttunda. íbúar Bessastaðahrepps eru nú um 1740 en þeim hefur fiölgað um rúman fiórðung á þessu kjörtímabili. Sjálf- stæðismenn eru með meirihluta í hreppsnefnd Bessastaðahrepps eins og er, með fióra fulltrúa af sjö. -áb Vilja reisa Gretti minnisvarða í Drangey Kiwanisklúbburinn Drangey hefur lýst yfir áhuga sínum og óskað leyfis frá sveitarstjórn Skagafiarðar til að reisa minnisvarða um útlagann Gretti Ásmundarson í Drangey. Byggðarráð samþykkti að fela tækni- deild sveitarféiagsms að skoða málið. Að sögn Ingólfs Guðmundssonar, formanns Grettisnefndar Kiwanis- klúbbsins, er þetta áformað í tengsl- um við 25 ára afmæli klúbbsins á næsta ári. Hugmyndm er að koma upp útsýnisskífu í eynni. Á stöpli hennar yrðu skildir þar sem fiallað yrði um eyjuna og sögu Grettis í stuttu máli. -ÞÁ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.