Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002
Fréttir
T>iy
Valgerður svarar Ögmundi:
Vinstri grænir ekki
lengur grænir
- athyglisvert hvað Ögmundur er upptekinn af arðsemi, segir ráðherrann
„Þaö fór frekar lítið fyrir umræö-
unni um Kárahnjúkavirkjun.
Fyrsta umræöa fór fram í síðustu
viku og málið er nú komið til iðnað-
arnefndar. Það var athyglisvert
hvað vinstri grænir voru orðnir
uppteknir af arðsemi virkjunarinn-
ar. Þetta gekk svo langt að Guð-
mundur Árni Stefánsson hafði orð á
því að græna slikjan væri bara gjör-
samlega horfm,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra.
í pistli á heimasíðu ráðherrans
segir Valgerður að Ögmundur Jón-
asson hafi einungis velt fyrir sér
spumingum um arðsemi en ekki
öðrum mikilvægum atriðum sem
snúa að því hvort nýta eigi náttúru-
auðlindirnar, hvort byggja eigi
virkjrm með 190
metra hárri stíflu
og hvort flytja
eigi Jökulsá á
Dal yfir í Jökulsá
á Fljótsdal. Öll-
um þessum
spurningum
þurfi að svara
með það í huga
að þessar fram-
kvæmdir geri
kleift að auka útflutningsverðmæti
um 14% og þjóðarframleiðslu um
1%. Að auki muni framkvæmdin
skapa varanlegan grunn að byggða-
áætlun á Austfjörðum með því að
um 1000 ný störf skapist með bygg-
ingu álvers sem nýti orku virkjim-
Valgerður
Sverrisdóttir.
armnar.
„Að Ögmund-
ur þingmaður
skuli gera arð-
semi virkjunar-
innar að aðalat-
riði í sínum mál-
flutningi er
einnig athyglis-
vert í ljósi þess
að Ögmundur í
hlutverki fjárfest-
is sem stjómarformaður Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins hafnaði
því að sjóðurinn skoðaði arðsemi
Reyðaráls. Hann hafnaði þátttöku
sjóðsins fyrir fram — þá skipti arð-
semin engu máli! segir ráðherrann.
Ögmundur Jónasson gagnrýndi
Ogmundur
Jónasson.
stjómvöld harkalega í samtali við
DV fyrir skemmstu vegna Kára-
hnjúkamálsins. Hann kallaði það
„hneyksli" ef Alþingi samþykkti
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
virkjunarheimildir án þess að gerð
væri grein fyrir öllum atriðum
málsins. „Allt er þetta í skötulíki
varðandi efnahagsforsendur og arð-
semisútreikninga er hreinlega ekki
að finna. Svo ósvífin er ríksstjórnin
að veifa framan í Alþingi yfirlýsing-
um frá Landsvirkjun um að slíkir
útreikningar hljóti að teljast við-
skiptaleyndarmál, en í Bandaríkj-
unum, miðstöð kapítalismans, eru
slík viðhorf blásin út af borðinu,"
sagði Ögmundur þá.
-BÞ
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja breytingar á skattfríðindum sjómanna:
Loðnukvóti
hálfnaður
Loðnukvóti þessa flskveiðiárs er
nú rúmlega hálfnaður og hefur veiði
gengið mjög vel síðustu vikur, eftir
nokkuð erfiða byrjun á árinu. Loðnan
er nú gengin upp á landgrannið og
hefur veiðst vel suðaustur af landinu.
Skipafloti landsmanna hefur nú veitt
um 550 þúsund tonn það sem af er
þessu fiskveiðiári en þá era um 420
þúsund tonn eftir af heildarkvóta árs-
ins. Mestur hluti aflans hefur farið til
bræðslu en talsvert hefur verið um
átu í loðnunni sem veiðst hefur og
því hefur lítill hluti hennar verið
frystur. Menn era þvi vongóðir um að
það takist að veiða kvótann áður en
loðnuvertíðinni lýkur í lok næsta
mánaðar, svo framarlega sem veður
veröur áfram gott til veiða. -áb
Sjómannaafsláttur
verði afnuminn
Tveir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins eru með í bígerð frum-
varp um að sjómannaafsláttur
verði lagður niður í áfongum. Þau
Pétur Blöndal og Katrín Fjeldsted
benda á að aðstæður útgerðar og
sjómanna hafi breyst mikið til
batnaðar að undanförnu. Gengi er-
lendra gjaldmiðla hafi hækkað
verulega, eða um 20%, frá áramót-
um. Fiskur sé nær allur fluttur út
og því muni fiskverð líklega
hækka ámóta og erlendur gjald-
eyrir og tekjur útgerða og sjó-
manna því hækka umtalsvert.
„Þess vegna er útgerðin vel í stakk
búin til að taka á sig niðurfellingu
á þessum styrk. Einnig hefur end-
Pétur Blöndal. Katrín Fjeldsted.
urskoðunarnefnd um stjórn fisk-
veiða skilað skýrslu sinni og legg-
ur til að útgerðinni verði gert að
greiða auðlindagjald. Eðlilegt er
að útgerðin hætti að fá styrk frá
ríkinu áður en farið er að láta
hana greiða auðlindagjald,“ segja
þingmennirnir.
Sjómannaafsláttur var tekinn
upp árið 1954 en rökin fyrir hon-
um höfðu, að mati þingmannanna,
„vafasamt gildi þegar i upphafi og
hafa þau enn rýrnað í tímans rás“.
Einnig segir: „Yfir 98% þeirra sem
greiddu til Lífeyrissjóðs sjómanna
á árinu 1995 voru karlar. Þannig
má segja að sjómannaafslátturinn
sé forréttindi karla og vinni gegn
launajafnrétti karla og kvenna þar
sem yfirgnæfandi fjöldi starfsfólks
í fiskvinnslunni eru konur. Launa-
munur sjómanna og fiskvinnslu-
fólks er mikill. Sjómannaafsláttur-
inn eykur enn frekar þann mun,“
segja þingmennirnir. -BÞ
Stjórn og yfirmenn Landssímans á Hótel Rangá á Hellu:
Stjórnarformaður Símans spurð-
ur um eignaraðild að hóteli
- get ekki bannað viðskipti við eigin fyrirtæki, segir Friðrik Pálsson
Landssíminn
hefúr í nokkram
tilvikum tekið á
leigu stóran hluta
af Hótel Rangá
sem er í grennd
við Hellu. Stjóm-
arformaður Odd-
hóls ehf., sem rek-
ur hótelið er Ffiðr|k pá|sson.
Friðrik Palsson
sem jafnframt er stjómarformaður
Landssímans. DV hefur staðfest að í
desember 2001 var hótelið leigt undir
sjö manna stjóm fyrirtækisins og
nokkra yfirmenn Símans. Sá háttur
var hafður á að farið var að morgni
og þingað fram eftir degi. Síðan var
barinn opnaður og allt var ókeypis
fram á nótt.
Landssiminn greiddi síðan reikn-
ingana sem sagðir era hafa losað
milljón krónur.
i október árið 2000 var svipaður
hópur stjómarmanna og starfsmanna
einnig á Hótel Rangá á kostnað Sím-
ans. Skráðir eigendur að Oddhóli,
sem á og rekur Hótel Rangá, era Frið-
rik Pálsson, Sigurbjöm Bárðarson og
Axel Ómarsson framkvæmdastjóri.
Ekkert var að sögn stjómarmanns
hjá Landssímanum sparað í mat og
drykk og allt skrifað á Landssímann.
Einn þeirra stjómarmanna sem fóra i
umræddar ferðir sagði að þrátt fyrir
að allt hefði verið frítt þá hefðu menn
kikt á verðlistana. „Þama var engin
rauðvinsflaska undir 4.000 krónum
en það skipti engu því allt var frítt.
Ég hef alla vega aldrei séð neinn
reikning," sagði hann.
Hann segir að maturinn hafi verið
stórkostlegur og annan eins lúxus
hefði hann vart upplifað. Ferðimar
sem famar vora austur að Rangá
voru skilgreindar sem „stefnumóta-
vinna“.
Annar stjórnarmaður, sem DV
ræddi við, sagði að þama hefði „alls
ekki verið slugsað" heldur hefði fólk
fundað langt fram á nótt og vart gefíð
sér tima til að borða. Opinn barinn
DV-MYND NJORÐUR
Hótel Rangá
Landssíminn hefur átt mikil viöskipti
viö hótel stjórnarformanns síns.
hefði ekki truflað þá vinnu. Einhver
umræða var í skúmaskotum um eign-
araðild stjómarformannsins og sagði
þessi heimildarmaður DV að Friðrik
Pálsson hefði verið spurður beint út
um málið. „Hann gerði lítið úr þessu
og sagðist aðeins eiga lítinn hlut í
hótelinu," segir stjórnarmaðurinn.
Heimildir DV herma að Hótel
Rangá hafi átt í umtalsverðum fjár-
hagsörðugleikum eftir að það var
byggt upp árið 1999. Aðsókn mun
hafa verið minni en væntingar stóðu
til. Samkvæmt heimildum DV var
Friðrik Pálsson í afgerandi hlutverki
þegar hótelið var byggt upp en heim-
ildir era fyrir þvi að nýir hluthafar
hafi komið að rekstrinum á síðasta
ári en breytingar hafa ekki verið til-
kynntar til Hlutafélagaskrár.
Friðrik Pálsson stjómarformaður
sagðist í samtali við DV ekki hafa
haft nein afskipti af rekstrihótelsins.
Hann sagðist aðeins eiga í dag sem
nemur 5 til 6 prósentum í hótelinu.
„Ég hef áður verið spurður út í
þetta mál. Ekki fer ég að banna fyrir-
tækjum að eiga viðskipti við hótel
þar sem ég á aðeins lítinn eignarhlut.
Þar gildir það sama varðandi Lands-
símann. Ég geri ekki athugasemdir
varðandi viðskipti annarra félaga,
sem ég á hlut í, við Símann," segir
Friðrik. -rt
Sólar
Img £jíi jnfjLU
RÉYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 18.23 18.26
Sólarupprás á morgun 08.50 08.53
Síðdegisflóð 16.34 21.07
Árdegisflóð á morgun 04.56 08.29
-8!
(13) U-
v
-11?. ^
°^.7,
Frost áfram
I nótt verða austan 13-18 m/s allra
syðst og vestast en annars hægari
austlæg eða breytileg átt. Dálítil él á
annesjum norðan- og austan til en
víða léttskýjað annars staöar. Frost 5
til 18 stig, kaldast inn til landsins.
j- 5:
r?) . V
V
-4^2)
“ ~??
Minnkandi frost
Austan átt, 10-15 m/s, sunnan og
vestan til en heldur hægari á
Norðausturlandi. Él austan til en
skýjaö með köflum vestan til og
frost 2 til 9 stig, mildast allra syöst.
Veðrið næ
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
Hiti 2” til 9“ $ Hiti 4° til 9° Hiti 2“ tii 9°
Vindun Vindur: Vindur:
4—5"1'- 3-6 ™A
*
Norölæg átt og Léttir til á Dálítil
él noröan- og Suöur- og snjókoma eöa él
austanlands Vesturlandl. Fremur kalt
Fremur kalt áfram. Hægur vindur og víöa léttskýjaö áfram.
1
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
wmm
AKUREYRI úrkoma í grennd -13
BERGSSTAÐIR úrkoma í grennd -17
BOLUNGARVÍK úrkoma í grennd -9
EGILSSTAÐIR léttskýjaö -10
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -10
KEFLAVIK skýjað -7
RAUFARHÖFN úrkoma í grennd -9
REYKJAVÍK skýjaö -9
STÓRHÖFÐI skýjað -3
BERGEN snjóél -3
HELSINKI snjókoma -2
KAUPMANNAHOFN léttskýjað 0
ÓSLO skýjað -1
STOKKHOLMUR -4
ÞÓRSHÖFN hátfskýjaö -3
ÞRANDHEIMUR snjóél -1
ALGARVE heiösktrt 16
AMSTERDAM rigning 3
BARCELONA skýjaö 12
BERLÍN snjóél 0
CHICAGO léttskýjað 12
DUBLIN súld 6
HALiFAX hálfskýjað -2
FRANKFURT alskýjaö 4
HAMBORG snjóél 1
JAN MAYEN snjóél -6
LONDON rigning 9
LÚXEMBORG rigning 1
MALLORCA skýjaö 15
MONTREAL alskýjað -2
NARSSARSSUAQ heiöskírt -16
NEW YORK heiöskírt 6
ORLANDO heiöskfrt 17
PARÍS rigning 6
VÍN snjóél 2
WASHINGTON heiöskírt 8
WINNIPEG heiðskírt -13