Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Qupperneq 8
8 Fréttir MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002 DV Y KRAFTVtlAR Þjónustudeild Dalvegi 6-8 • 200 Kópavogur Sími 535 3500 • Fax 535 3509 haraldur@kraftvelar.is www.kraftvelar.is Hafðu samband og láttu okkur leysa málið FpiiÚíjílJ - Jlijjilpð m ahrinsælasti áfangastaður íslendlnga undanfari CC Qnfllrr -Vandaðir gististaðir iltfiSUUKT. ^•CÉCfeAr -Endalausar gylltar strend á mann m.v. hjón með 2 börn __ *** -Skemmtileat mannlíf á mann í tvíbýli í 2 vikur -19. júlí á Cantinho do Mar 8.500 kr. Súper-Sól afsláttur á mann Skattar 4.445 kr. á mann m.v. hjón með 3 börn 2 vikur - 28. maí á Village Park 8.500 kr. Súper-Sól afsláttur á mann Skattar 4.500 kr. full. / 3.500 kr. börn r/llJlIíJllJJil - JJiljiI og bíll í viku Flugsæti frá Rómantísk vika í París á mann í tvíbýli íslensk fararstjórn og spennandi Skattar 4.900kr. fullorðnir / 4.200kr. börn TERRA NOVA -SPENNANDI VALKOSTUR- Stangarhyl 3A • 110 Reykjavik • Sími: 591 9000 • terranova.is pi 1 a I í 1 [5 1 rny^r' [\hYi\w ;f il A k p| •I 1 E nT=liiiiim DV-MYND: PÉTUR GUÐVARÐARSON A Hallormsstaö Skógarhöggsmenn fella rauögrenið -sem verður notað í þjónustu spæjarans mikla. Höggvið á Hallormsstað: Rauðgreni fyrir 007 - annríki hjá skógarhöggsmönnum Flutt verða tvö hundruð rauðgreni- tré úr Hallormsstaðarskógi að Jök- ulsárlóni þar sem þau verða notuð í kvikmyndaveri James Bond. „Fyrsta upphringingin var upp á beiðni um sjö hundruð tré, fimm til tíu metra há, en endanleg tala er tvö hundruð tré af ýmsum stærðum frá 3,5 m upp í 8 m,“ segir Skúli Bjömsson hjá Skógræktinni á Hallormsstað. Búið er að höggva hundrað tré en þar sem ekki er hægt að pakka trjánum í netin nema í þíðviðri dregst eitthvað að koma trjánum á ákvörðunarstað þar sem útlit er fyr- ir frost næstu daga. Trén eru grisjuð úr sérstökum jólatrjáareit- um og eru þau elstu frá 1973. Skúli segir að plantað sé um einni og hálfri til tveimur milljónum trjá- plantna hjá Skógræktinni á ári og það hefði auðveldlega verið hægt að höggva fimm þúsund tré eða meira en svo myndarlegan skóg þarf Bond ekki að þessu sinni. Illa hefur viðrað til kvikmynda- töku siðustu tvo daga við Jökulsár- lón þar sem vonskuveður og snjó- koma hefur verið á þessum slóðum og tafið fyrir framkvæmdum. -JI Heilsuátak á Skagaströnd: Sextíu konur á hafnarvogina Föngulegur hópur Hér eru konurnar, rétt um 60, hinn föngulegasti hópur skagstrendskra kvenna. „Markmiðið er að auka vellíðan kvenna á Skagaströnd með því að bæta bæði andlegt og líkamlegt ástand þeirra. 1 leiðinni erum við lika að virkja þá kosti sem við eig- um í litlu samfélagi, til dæmis þá að við höfum tima til að gera svona hluti,“ segir Bryndís Guðjónsdóttir, forsprakki sextíu kvenna á Skaga- strönd sem stunda heilsueflingu af kappi alveg fram á vor. Átakið byrjaði kvöld eitt nýlega þegar hópurinn mætti til vigtunar á hafnarvogina á Skagaströnd í hörkugaddi, íklæddar kuldagöllum og þungum skóm. Útkoman var fjög- ur tonn og 620 kíló. „Markmiðið er að létta lundina, ekki endilega að fækka kílóum,“ sagði Bryndís og bætir við að sumar kvennanna þurfi frekar að þyngjast. Fiórar kon- ur af hverjum tíu á aldrinum 20 til 65 ára taka þátt í átakinu. Þrisvar í viku er hreyfing í íþróttahúsinu, þar eru vaxtamótunartímar og puð- að í tækjasal. Sjúkraþjálfari gerði sérstakt prógramm sem mælist vel fyrir. Líkami og sál heitir nám- skeiðið. Sálarlega þættinum er líka sinnt. Andlega þættinum er ekkert síður sinnt, fyrirlestrar um sál- fræði, líka um útlitið, næringu, sjálfseflingu og margt fleira. Karl- arnir á Skagaströnd eru margir úti á sjó en þeir stunda badminton þeg- ar færi gefst. „Við getum vonandi verið í stutt- buxum og bol í vor þegar við verð- um vigtaðar og þá líklega miklu létt- ari, annars er ekki aðalmarkmiðið að grenna sig eða létta, heldur hitt að líða betur bæði andlega og likam- lega,“ segir Bryndís. Hún segir að- stöðuna ágæta á Skagaströnd og íþróttahúsið sé til ráðstöfunar þrisvar í viku. -ÞÁ Utigangsféð sótt í Héðinsfjörð Um síðustu helgi tókst að sækja 13 útigangskindur í Héðinsfjörð en þær fundust þar fyrir um mánuði en þá tókst ekki að ná þeim til byggða. í síðustu viku fóru fjórir menn á snjósleðum frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð og komu kindun- um, sem voru framarlega í firðin- um, niður að sjó. Á laugardag gaf síðan loksins til að sækja kindurnar. Var farið á trillu úr Siglufirði og einnig á snjó- sleðum. Vel gekk að handsama kindurnar en selflytja þurfti þær á gúmmíbát út i trilluna og gekk það ágætlega, að sögn Stefáns Einars- sonar frá Siglunesi sem sá um að sækja féð. Hann sagði að kindurn- ar hefðu verið í þokkalegu ástandi þrátt fyrir að jarðlítið hefði verið þar sem þær voru. Sex af kindun- um voru úr Fljótum en hinar úr Ólafsfirði. Þrjú lömb voru í hópn- um, þar á meðal lambhrútur, þannig að líklegt er að eigendumir 3 DV+1YND ORN ÞORARINSSON Útlgangsfé Fimm af útigangsánum á fjárhúshiaöinu á Brúnastöðum í Fijótum, loksins komnar í gott skjól fyrir vetrarveðrunum. fái lömb með fyrra fallinu í vor. firði og hafa þær jafnvel verið sótt- Undanfarin ár hefur gengið seint ar á svipuðum tíma og nú og jafnvel að ná síðustu kindunum úr Héðins- síðar. -ÖÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.