Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Síða 10
10
Landið
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002
DV
Gott
veganesti
Fátt er eins mikilvægt fyrir llkamlegan og andlegan
þroska bamsins og holl næring fyrstu æviárin. Holiur
og næringarríkur matur er þvi eitt besta veganestið sem
við getum gefið börnunum okkar. Þetta hafa
framleiðendur Gerber bamamatar alltaf vitað og nota
því eingöngu bestu og hreinustu hráefni sem völ er á.
í Gerber barnamat er hvorki bætt ónáttúrulegum litar-
og bragðefnum né rotvamarefnum. Þannig hefur Gerber
framleitt bamamat í meira en 70 ár og mun ailtaf gera.
Frá Djúpavogi
Mikil fegurö einkennir Djúpavog. Þar rís ný og betri sundlaug í sumar sem gagnast heimamönnum oggestum þeirra.
Djúpavogsbúar leggja niður sundlaugina frá 1982:
Ný sundlaug fyrir
107 milljónir
Framkvæmdir við byggingu
sundlaugar eru hafnar á Djúpavogi
og á þeim að ljúka í sumar. Sund-
laugin verður í 680 fermetra lím-
tréshúsi frá Flúðum, sem reist verð-
ur við íþróttahúsið. Stærð sund-
laugarinnar verður 10,5 m x 16,67 m
og einnig verður þar lítil bamalaug
og tveir heitir pottar. Áætlaður
kostnaður við sundlaugarbygging-
una er 107 milljónir króna.
Þegar nýja laugin kemst í gagnið
verður gamla sundlaugin frá 1982
aflögð enda orðin léleg og úr sér
gengin. Ólafur Ragnarsson, sveitar-
stjóri á Djúpavogi, segir aö þessar
framkvæmdir verði mikið átak fyr-
ir sveitarfélagið en nauðsynin sé
svo brýn, bæöi fyrir heimafólk og
eins í sambandi við ferðaþjónust-
una, að staðurinn þurfi að fá þessa
DV-MYNDIR JÚLÍA IMSLAND
Ólafur Ragnarsson, sveitarstjóri á
Djúpavogi
aðstöðu. Það getur hreinlega skipt
sköpum um að fólk vilji búa á stöð-
unum að þar sé góð aðstaða til
heilsueflingar og með tilkomu sund-
laugarinnar eru Djúpavogsbúar vel
settir í þeim málum,
Áformað er að hefja framkvæmd-
ir við laxeldi í Berufirði með vor-
inu, segir Ólafur. „Norðmennimir
sem með okkur eru í þessu em
væntanlegir hingað í apríl og fjöl-
skyldur þeirra þegar skólum lýkur.
Búið er að tryggja kaup á seiðum,“
sagði sveitarstjórinn.
Ólafur segir að atvinnuástand sé
gott á Djúpavogi þó ekki hafi oft gef-
ið á sjó fyrir smábátana það sem af
er árinu en loðnuskipin landa reglu-
lega. í sumar verður lokið frágangi
og lýsingu við nýju höfnina í Gleði-
vik og hún tekin i notkun. -JI
Kjarnakona í Tinnuskógi í Breiðdal:
Snyrtir og grisjar skóginn
DVJIAYND HANNA INGÓLFSDÓTTÍR
Kjamakona
Una Einarsdóttir, liöiega sjötug ekkja á Breiödalsvík, sinnir hér áhugamáli
sínu, skógrækt, í Tinnuskógi í Breiödal í lok þorrans.
Kjamakonan Una Einarsdóttir
lætur þorrann ekki aftra sér frá að
sinna áhugamáli sínu. Fréttaritari
hitti hana með sög í hendi í Tinnu-
skógi i Breiðdal í góða veðrinu um
daginn þar sem hún var að snyrta
og grisja skóginn.
Plantað var í Tinnuskóg á árun-
um 1953 til 1961 og á tímabili var
girðingin i slæmu ástandi. Þá gekk
fé þar og beit ofan af mnnunum
sem fóra að vaxa með jörðinni. Nú
hefur því verið kippt i lag og er
þetta þriðji veturinn sem Una notar
hverja lausa stund til að laga trén,
birki, greni og furu. Segist hún vera
farin að sjá mikinn árangur af
þessu starfi.
Á sumrin er hún á fullu að planta
og fer á hverju ári í gróðursetning-
arferðir til útlanda með Skógrækt-
arfélaginu og hefur meðal annars
skipulagt og plantað í reit sem félag-
ið fékk úthlutað i landi Heydala.
Fyrir tveim árum vann hún
ásamt fleiram við plöntun í svæðið
en um haustið bjargaði hún nokkur
hundruð stykkjum sem höfðu lyfst
upp úr jörðinni í frosti, tíndi þær
upp, bjó vel um þær og gróðursetti
þær aftur um vorið.
Fyrir fjórum árum fór Una til
Bessastaða til að taka við framlagi
úr Skógarsjóði til Skógræktarfélags
Breiðdælinga. -HI
SPRENGITILBOO
Tilboðið gildir Ugg&ssgf
21. -28. febr. ***$$%
aS KJLJKLIIXIGkUR
stór franskar,
hrásalat og
sósa, 2 I Pepsí