Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 18
34 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002 Skoðun l>v ____Spuming dagsins Ferðu mikið á skyndibrtastaði? (Spurt á Akureyri) Helga Friðbjörnsdóttir kennari: Ég fer sjaldan á skyndibitastaöi en einstaka sinnum kaupi ég kjúkling. Gunnar Njáll Gunnarsson nemi: Annaö stagiö. Kaupi pitsur og ham- borgara. Þetta er alitof dýrt - en ég fer þegar maginn kallar. Hjörleifur Hallgríms útgefandl: Ég geri lítiö af slíku. Er mest fyrir ís- lenskan mat. Þeir sem boröa á skyndibitastööum eru þeir sem vilja veröa feitir. Hallmundur Kristinsson leikmyndasmiður: Ég geri lítiö af slíku, enda kemst ég ódýrar af meö því aö boröa heima. Sigfús Helgason bílstjóri: Ég fer mjög sjaldan - einstaka sinnum á Greifann og fæ mér nautasteik. Ragnheiður Sigurðardóttir bókasafnsfræðingur: Nei, enda finnst mér slíkt frekar dýrt hér á Akureyri. Þaö er helst aö ég kaupi mér pitsu á þúsund kall. Hrein torg, fögur borg? Hreinsun í skötulíki. Borgin og borgarstjórinn Geir R. Andersen blm. skrifar: Borgin er í hers höndum tímabundið á fjögurra ára fresti. Og svo koma kosn- ingar. Um hvað er kosið? Um allt sem ekki þarf að kjósa um; skipulagsmál, menningarmál, skólamál og skatta- mál. Hvemig er hægt að kjósa um þetta? -..einn til hinir kjósa sér?“ - Auövitað er þetta tómt rugl. Við kjósum ekki um lífsstíl. Ekki heldur um hækkun eða lækkun fast- eignaskatts, lengri eða styttri biðlista á leikskólum borgarinnar. Allt þetta er ákveðið af þeim meiri- hluta borgarstjórnar sem situr hverju sinni. - Borgin er fyrir íbú- ana, en íbúamir skapa borgina. Annars engin borg. Það er einfaldlega kosið um borg- arstjóra. Hver verður í forsvari. Veröur það áfram núverandi borg- arstjóri eða verður það nýr borgar- stjóri úr röðum Sjáifstæðisflokks- „Ég vil fá reglur um há sektarákvœði sem rnenn verði beittir þegar þeir fleygja rusli á götur og á víðavangi. Ég vil líka að Reykjavíkurflugvöllur víki sem fyrst fyrir nýju skipu- lagi byggðar. “ ins? Það er þetta sem er i umræð- unni, og verður áfram, allt til kjör- dags. Þama takast á tveir verðugir fulltrúar í stjórnmálunum. Harðir naglar, ekki pólitískir aukvisar. Það var hjákátlegt að hlusta á menn svara í SHfurþætti Egils fyrir nokkrum vikum þegar þeir voru beðnir að nefna mesta „skussann“ á liðnu ári. Og skiptust á að nefna ýmist forsætisráðherrann eða borg- arstjórann! Þá tvo sem staðið hafa framar öðrum i stjómmálum á ís- landi þessi árin. - Ofstækið blindar. Við höfum ekki enn séð loforða- lista framboðanna fyrir næstu borg- arstjómarkosningar. Þeir geta líka beðið, það er engu hægt að lofa. Það verður þá að taka allt sem nöfnum tjáir að nefna. Allan pakkann. Ef það á að vera rýmingarsala og allt á að seljast, þá verður líka að nefna útsöluprísana. - Og þá vill fólk koma, til að sjá og sigra, Sigurjón digra. Ég segi fyrir mig, sérstaklega; ég vil sjá borgarstjóra næstu fjögurra ára í forsvari fyrir hreinsun Reykja- víkur af rusli, skit og ljótum kofum. Hér fýkur allt sem fokiö getur og hreinsun er í skötulíki. Ég vil fá reglur um há sektarákvæði sem menn verði beittir þegar þeir fleygja rusli á götur og á víðavangi. Ég vil líka að Reykjavíkurflugvöllur víki sem fyrst fyrir nýju skipulagi byggðar. í dag er Vatnsmýrin svæði sem allir aðrir en Reykvíkingar ráða. Reykjavík á að ráða sér sjálf, ekki önnur bæjar- eða sveitarfélög. Góða skemmtun í kosningaslagnum - sé einhver þörf fyrir hann. Verðlaunasjóður vegna ábendinga Skattborgari í Breiöholti skrlfar: Undirritaður gerir hér með tillögu um að Alþingi samþykki stofnun Verðlaunasjóös Alþingis vegna ábend- inga almennings. Reglur sjóðsins 1. Sjóðurinn veiti árlega verðlaun að upphæð 300.000 til 5.000.000 hver fýrir allt að 20 bestu ábendingar árs- ins varðandi allt sem betur mætti fara í meðferð opinberra fjármuna, að mati 7 manna nefndar sem Alþingi kýs til að ákveða hverjir skuli fá verð- laun. 2. Ábendingar þessar varði ekki Framvegis verði síðan úthlutað úr sjóðnum á sumardaginn fyrsta. sist meðferð fjármuna hjá opinberum stofnunum og fyrirtækjum og útilokar það síður en svo verðlaunaveitingu þó að um svokallaðar „trúnaðarupplýs- ingar" sé að ræða ef hagsmunir þjóð- félagsins teljast að mati nefndar- manna meiri heldur en hagsmunir þeirra stofhana og fyrirtækja hvers yfírmenn telja að starfsmenn hafi brotið trúnað. 3. Árleg fjárveiting til sjóðsins verði 30.000.000. 4. Fyrstu úthlutanir úr sjóðnum verði 25. apríl 2002 (sumardaginn fyrsta) og verði þá veitt verðlaun vegna ábendinga frá 1. janúar 2001 til 1. aprU 2002. Framvegis verði síðan úthlutað úr sjóðnum á sumardaginn fyrsta. Greinargerð Það er með ráðum gert að leggja til að fyrsta úthlutun úr sjóðnum nái yfir ábendingar á árinu 20010 tU þess að unnt sé t.d. að verðlauna þá sem komu með ábendingar tU fjölmiðla um viðskipti Áma Johnsens á kostn- að hins opinbera. Garri Pólitískir páskar Garri sá það í DV um helgina að verið var að krossfesta mann vegna Símamálsins. Maður sem upplýsti um ólöglegt athæfi for- ráðamanna Landssím- ans var rekinn fyrir trúnaðarbrest við fyrir- tækið. Sekt hans fólst í því að segja frá því sem forustumenn Sím- ans leyndu stjórn fyrir- tækisins, nefnUega ríf- legum ráðningarsamningmn sem stjómarformað- ur hafði gert við sjálfan sig með fuUtingi ráð- herra. Það er gömiU saga og ný að þeir sem segja satt endi á krossi eins og nú hefur gerst. Það er líka gömul saga og ný að æðstu prestamir sitji ósnertanlegir og heUagir í sætum sínum og þakki guði fyrir að vera ekki eins og aðrir menn. Það hefur nú endurtekið sig enn og því er nú á íslandi pólitísk dymbUvika - pólitískir páskar. Hinn pólitíski Hausaskeljastaður Eins og tíðkast á páskum heyrast Passiusálm- ar HaUgríms lesnir víða og lýsingar á kvöl og pínu Krists hljóma í eyrum þjóðarinnar nær daglega. Það er vel við hæfi þegar fréttir af trún- aðarbresti, handtökum og krossfestingum berast frá hinum pólitíska Hausaskeljastað. Sjálft Ríkis- útvarpið hefur lagt sitt af mörkum og heldur merki HaUgríms á lofti með daglegum sálma- lestri á öldum ljósvakans. Og eftir krossfestingu réttláta símamannsins um helgina öðlast orð skáldsins endumýjaðan kraft og sannleika, enda 16. sálmurinn, „Um Júdasar iðrun", nú á hvers manns vörum: Um Júdasar iðrun HaUgrímur Pétursson kvað: Undirrót aUra lasta ágimdin köUuð er. Frómleika frá sér kasta fjárplógsmenn ágjamir, sem freklega elska féð, auði með okri safna, andlegri blessun hafna, en setja sál í veð. Cjxi-ri xLAKa&Uuu Orkuveitan tilbúin? Hugmynd Lúövíks um bæina betri. Seldur innanlands Ragnar Haraldsson skrifar: Nú eru fréttir uppfuUar af því að Orkuveita Reykjavíkur vUji gerast ijár- festir í Landssímanum og þykir víst ekkert óeðlUegt við þetta. Eða hvað? Ég las hins vegar grein i DV alveg nýlega eftir Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlög- mann þar sem hann leggur tU að bæim- ir kaupi Símann og færir nokkur rök fyrir þessari hugmynd sinni. Ég tel að þarna sé komin lausn á söluvandanum sem hrjáir þetta fyrrum stóra ijar- skipta- og þjónustufyrirtæki. Ég tel sem sé mun gæfulegra að bæimir kaupi Símann en Orkuveita Reykjavíkur. Tel hana hafa nóg með sig. Byltingin étur líka Einar Magnússon skrifar: Það er oft sagt að byltingin éti böm- in sín. Ég vU líka meina að siðbylting- in éti börnin sin. Þegar á að taka tU uppstokkunar ofvemdað kerfi sem þeg- ar er spiUt, eins og það sem við búum við og höfum búið við áratugum saman (aUar ríkisstjómir hér ábyrgar fyrir því), t.d. eins og með snöggri einkavæð- ingu, hlýtur eitthvað að láta undan. Þegar steinunum er velt almennUega við kemur í ljós að miklar breytingar þarf að gera; fyrst að víkja mönnum írá kjötkötlunum og síðan að fjarlægja sjálfa kjötkaUana. En við það verður auðvitað sprengja. Og nú springur hún framan í andlit þeirra sem ekki kunna tU verka. Ný kynslóð amlóða og atorku- lausra framagosa er fráleitt hæf tU að að gera byltingu, hvað þá siðbyltingu. Sturla Þórarinn V. Böðvarsson. Þórarlnsson. Einhver millileikur óupplýstur? Pólitísk ráðning? Sigurpáll hringdi: Fram hefur komið að fyrrverandi forstjóri Landssímans, Guðmundi Björnssyni, var ýtt út fyrir Þórarin V. Þórarinsson sem þá var ráðinn for- stjóri. Þó var það svo að undir stjóm Guðmundar Bjömssonar, þáverandi forstjóra, var ekki nein sú óreiða eða í líkingu við það sem nú era sagðar fréttir af. Klúðrið sem nú er í sviðs- ljósinu er tUkomið með því og eftir að Sturla Böðvarsson fyrirskipaði ráðn- ingu Þórarins V. Þórarinssonar sem forstjóra Simans. Og því spyija menn nú hver annan: Hvað var það sem átti að lagfæra með ráðningu Þórarins? Eða var hún bara pólitísk? F íknief nadj öf ull Steingrímur hringdi: Ég held að eigandi Hjólvest, sem hafði drenginn sem varð manninum að bana í vesturbænum í vinnu, hafi haft lög að mæla er hann sagði að það hefði verið fikniefnadjöfuU sem tók sér bólfestu í þessum dreng. Það er orðið óhugnanlegt að vita af þvi að svo er ástatt um fjöldann af ungu fólki hér í landinu. Fíkniefnin eru að heltaka allt of marga íslendinga og fjármála- vandræði margra, yngri sem eldri, leiða tU fleiri íjármálaglæfra en talið er í dag. Jafnvel er talið að græðgi margra í fjármálamisferli hér megi einmitt rekja tU þessa fikniefnadjöf- uls. - Þetta er orðin alvarleg þróun. OVI Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.ls Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholtl 11, 105 ReyKiavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.