Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2002, Blaðsíða 28
44
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2002
Tilvera DV
lí f iö
Símynstur
íris Elfa Friðriksdóttir opnaði
sýningu í Gryfju Listasafns ASÍ
, , við Freyjugötu um helgina. Um
þessar mundir stendur einnig
yfir sýning á verkum hennar á
Mokka við Skólavörðustíg.
Kveikjan að verkunum er sótt í
pijónaaðferðir og fatamerki. íris
Elfa hefur á undanfómum árum
einbeitt sér að einföldu sí-
mynstri í verkum sínum.
Krár
■ BINGO I KAUPFELAGINU Bingó
veröur í Kaupfélaginu í kvöld. Allur
ágóði rennur til langveikra barna.
Frábærir vinningar eru í boöi frá
verslunum og fyrirtækjum í miö-
bænum. Bingóið hefst stundvíslega
kl. 9 og er bingóstjóri kvöldsins eng-
* inn annar en Jón Gnarr.
Bíó
■ FILMUNPUR Kl. 22.30 í dag sýn-
ir Rlmundur myndina You Can
Count on Me. Hún var tilnefnd til
tvennra óskarsverölauna árið 2000.
Sýningar
■ SVIFH) SEGLUM ÞÖNDUM Opn-
uð hefur verið í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjaröar,
* sýningin Svifið seglum þöndum. Þar
er fjallaö um síöustu seglskúturnar
á heimshöfunum og siglingar þeirra
fyrir Hornhöföa. Sýningin kemur frá
Alandseyjum og er unnin í samvinnu
viö Sjóminjasafniö í Ástralíu.
■ TEXTÍLVERK í RÁÐHÚSINU
Þórey Eyþórsdóttir hefur opnaö
myndlistarsýningu í Ráöhúsi Reykja-
víkur og á Horninu viö Hafnarstræti
kl. 16. Sýninguna nefnir Þórey Frá
þræöi tll heildar og byggir hana
einkum á vefnaöar- og textílverkum
sem hún hefur unniö aö á undan-
förnum árum.
■ VATNSLITAMYNDIR Á CAFÉ
PRESTO Maja Loebell, þýskukenn-
ari T MR, opnar sýningu á vatnslita-
» myndum á Café Presto, Hlíöar-
smára 15, kl. 15 í dag.
■ ÞETTA VIL ÉG SJÁ í GERÐU-
BERGI Vatn, grjót, hrosshár, út-
saumur, Ijósmyndir og olíumálverk,
þetta allt er nokkuð sem sjónvarps-
konan Eva María Jónsdóttir vill sjá
á samnefndri sýningu í Geröubergi.
Listamennirnir sem hljóta þann heiö-
ur aö vera valdir af Evu Maríu eru:
Anna Líndal, Rnnbogi Pétursson,
Georg Guöni, Guðmunda Andrés-
dóttir, Guörún Marinósdóttir, Hall-
dór Ásgeirsson, Helgl Þorgils,
Hrafnkell Sigurösson, Húbert Nói,
llmur Stefánsdóttir, Kristjnn G.
Harðarson, Ólöf Nordal, Ósk VII-
hjálmsdóttir, Óskar Jónasson, Páll
Guömundsson, Ragna Slguröardótt-
ir, Sigríöur Salvarsdóttir, Ulfur K.
'• Grönvold, Valgaröur Gunnars-
son.Sýningin stendur til 23. mars.
■ LÍFVANA í ASÍ Opnuö hefur verið
sýning í Asmundarsal sem ber nafn-
iö Lífvana. Þar sýnir Inga Sólveig
Friöjónsdóttir Ijósmyndaseríu.
Myndirnar eru sviösettar dauöasen-
ur og fjalja um endalok nokkurra
kvenna. í myndunum er ýmislegt
gefiö í skyn með klæðnaði, útliti og
umhverfi sem setur áhorfandann aö
nokkru leyti inn í líf kvennanna.
Fundir og fyrirlestrar
■ LÖGFRÆÐIFUNDUR
Fundur verður á Grand Hóteli í dag
kl. 16. Dr. Jesper Lau Hansen flytur
erindi um norrænar reglur um bann
viö innherjaviðskiputm og
dómaframkvæmd meö sérstakri
hliösjón af Týrsta íslenska
innheijadóminum.
Drottningin tekur lagið
Andrea Gylfadóttir, söngkona og
verndargyöja Hróksins, söng sig
inn í hug og hjörtu skáktöffaranna
á Grand Rokk.
Stórtónleikar Hróksins:
Konungleg skemmtun
á Grand Rokk
Skákfélagið Hrókurinn blés til
glæsilegrar tónlistarveislu í höfuð-
vígi sinu, kránni Grand Rokk, á
föstudagskvöld. Tilefni tónleikanna
var annars vegar að minnast fallins
félaga, Dans Hansons, og hins vegar
að afla fjár fyrir alþjóðlegt stórmót
sem félagið stendur fyrir í næsta
mánuði. Fjölmargir tónlistarmenn
og skemmtikraftar lögðu sitt af
mörkum með leik, söng og öðru
sprelli. Meðal þeirra sem fram
komu voru hljómsveitimar Lúna og
Majónes, tónlistarmennirnir Jakob
Frímann Magnússon, Björn Jörund-
ur og Andrea Gylfadóttir og Radíus-
bræðumir Steinn Ármann og Davíð
Þór sem eru aftur komnir á kreik
eftir langt hlé.
Hrókar alls fagnaðar
Hrafn Jökulsson, hrókur númer eitt, Andrea Gylfadóttir, verndargyöja
Hróksins, Jakob Bjarnar Grétarsson, kynnir kvöldsins, ásamt Geirfuglun-
um Frey Eyjólfssyni og Stefáni Má Magnússyni.
íslenski markaðsdagurinn:
Uppskeruhátíð auglýsingageirans
íslenski markaðsdagurinn var
haldinn hátíðlegur i Háskólabíói á
föstudaginn. Þar komu saman þeir
sem vinna að auglýsinga-, markaðs-
og kynningarmálum hér á landi og
fögnuðu uppskeru liðins árs. Verð-
laun voru veitt í 12 flokkum og er
óhætt að segja að auglýsingastofan
Hvíta húsið hafi verið sigurvegari
kvöldsins en alls var stofan tilnefnd
til þrettán verðlauna og hreppti
fimm. Að verðlaunaafhendingu lok-
inni var efnt til hófs i forsal Há-
skólabiós þar sem ýmis fyrirtæki
kynntu þjónustu sina og boðið var
upp á glæsileg-
ar veitingar,
jafnt í fóstu
sem fljótandi
formi.
Bíógagnrýni
Helga Braga
sleppir fram af sér
beislinu
Helga Braga Jóns-
dóttir leikkona
skemmti gestum
á milli atriöa.
Meöal annars
sýndi hún austur-
lenskan maga-
dans viö mikinn
fögnuö.
Laugarásbíó - Gosford Park: já ★ ★
Málin rædd
Stuömaöurinn Jakob Frímann Magnússon og Sverrir
Björnsson, hönnunarstjóri Hvíta hússins, ræöa
landsins gagn og nauösynjar.
A góöri stund
Haraldur Haraldsson, markaösstjóri ísienskra getrauna, Ármann Kr.
Ólafsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, Halldór Elvarsson, grafískur hönnuöur,
Valgerður Halldórsdóttir hönnuöur og Ragnar Kjartansson markaösstjóri.
Uppi og niðri
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Einn af neöri hæðlnni
Clive Owen í hlutverki þjóns.
Við erum stödd á Gosford Park,
myndarlegu óðalssetri einhvers staðar
í Englandi, í nóvember 1932. Þar býr
hinn forríki, feiti og leiöinlegi Sir
William með glæsilegri yngri og kaldri
konu sinni, lafði Silvíu. Til þeirra
kemur hópur fólks til að eyða helginni
við að skjóta fasana á landareign Sir
Williams, bæði skyldmenni og ná-
grannar úr hinum enska aðli, eins og
Stockbridge lávarður og Trentham
komtessa, en líka hinn frægi leikari,
Ivor Novello, og Morris Weissman,
framleiðandi frá Hollywood, og marg-
ir, margir fleiri. Á meðan aðallinn
kemur sér fyrir í stofúnum uppi, sýp-
ur á fyrsta hanastélinu og skiptist á
slúðursögum er allt á fúllu í kjallaran-
um því hverjum fyrirmanni fylgja
einn eða fleiri þjónar sem þurfa að
kynnast húsinu í hvelli, hvar fyrir-
mennin sofa og hvar þeir sjálfir. Það
þarf að taka upp úr töskum, þvo og
strauja skyrtur og kjóla, festa blúndur,
ganga frá skartgripum, bursta skó
o.s.frv. o.s.frv. öllum þessum aðgerð-
um er stjómað af ráðskonunni, frú
Wilson, af fyrirmyndardugnaði og for-
sjálni. Hún er hinn fullkomni þjónn -
gerir sér grein fyrir löngunum fólks
löngu áður en það fattar það sjálft.
Þó er langt í frá að engir snertifletir
séu milli þeirra háu og lágu. Aðallinn
sækir í þjónustufólkið ef hann vantar
ástriðu, hlýju og vináttu á meðan þjón-
amir virðast aðeins lifa fyrir yfirmenn
sina - það eina sem er talað um niðri
er fólkið uppi. Myndin flakkar á milli
hæða og á milli ails þessa fólks af
háum og lágum stigum og smám sam-
an komumst við að þvi að margir búa
yfir gömlum sársaukafullum leyndar-
málum sem virða ekki landamæri
íburðarmikilla hæða hússins og eril-
sams kjallarans. Og eitt leyndarmálið
er svo stórt og sárt að þessa helgi verð-
ur það manni að bana. Nóg er af ein-
staklingum bæði uppi og niðri sem
höföu ástæðu til að hata hinn myrta og
á staðinn kemur leynilögregluþjónninn
Thompson sem er svo uppfullur af
sjálfsáliti að hann gleymir að rannsaka
sönnunargögn - kannski sem betur fer.
Aö horfa á Gosford Park er að horfa
á landslið enskra leikara. Hversu oft fær
maður tækifæri til að sjá saman
Michael Gambon (fuilkominn), Kristinu
Scott-Thomas, Maggie Smith (enginn
getur lætt út úr sér meinlegum athuga-
semdum eins og hún), Helen Mirren
(frábær), Emily Watson, Derek Jacobi,
Stephen Fry, Álan Bates og Richard E.
Grant? Og að sjá þau leika eins og engla
undir styrkri stjóm Roberts Altmans
(The Player, Short Cuts), leikstjóra sem
hefur fullkomið vald á þvi að vefa sam-
an sögur, persónur og atburði þannig að
úr verður magnað mósaík þar sem engu
og engum er ofaukið. Ef finna ætti aðal-
persónu í myndinni væri það hin unga
Kelly McDonald sem leikur aðkomna
þjónustustúlku og gerir það af innlifun.
Gosford Park er í lengra lagi og má
segja henni til vansa að sagan sé ef til
vill ekki nógu sterk til að réttlæta
lengdina. Hins vegar er hvert atriði vel
útfært og sniEdarlega leikið, enda hef-
ur Altman alltaf haft meiri áhuga á
persónum en plotti og ef til vill er
hann með lengdinni að sýna okkur
leiðindin sem enski aðallinn greinilega
þjáðist af. Morðið á einum úr þeirra
hópi virðist helst vera velkomin
dægrastytting þegar öll umrasðuefhi
eru uppurin.
Þeir sem halda að Gosford Park sé
morðmynd í Agötu Christie-stílnum
verða fyrir vonbrigðum því morðið og
uppljóstrunin er aldrei aðalviðfangs-
efhi myndarinnar. Gosford Park fjailar
um sjáifselsku og græðgi, hún lýsir
heimsveldi á brún hengiflugs, þar sem
gömul gildi reynast innantóm og fólsk
og til þess eins fallin að viðhalda kúg-
un og algjöru viröingarleysi gagnvart
fólki af lægri stigum. Eins og Altman
gæti ég haldið lengi áfram en ég hætti
hér og hvet þá sem unun hafa af
stjömuleik og myndum, þar sem nostr-
að er við smáatriði, til að leggja leið
sína i Laugarásbíó. Sif Gunnarsdóttir
Leikstjóri: Robert Altman. Handrit: Julian Felt
owes. Kvikmyndataka: Andrew Dunn. Tónllst:
Patrick Doyle. Aðalleikarar: Emily Watson, Der-
ek Jacobi, Maggie Smith, Kristin Scott Thom-
as, Kelly McDonald, Clive Owen, Stephen Fry,
Ryan Phillippe, Jeremy Northam, Helen Mir-
ren, Michael Gambon, Alan Bates, Richard E.
Grant, Eileen Atkins, Bob Balaban, Charies
Dance og James Wilby.