Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 Fréttir DV Árni Johnsen um ákæru ríkissaksóknara: Gengst við ellefu ákæru- atriðum af tuttugu og sjö - segist hafa tekið út vörurnar upp í laun Ámi Johnsen, fyrrverandi þing- maður, gengst við ellefu ákæruat- riðum af þeim tuttugu og sjö sem borin eru á hann í ákæru ríkissak- sóknara. Ámi sagðist í gærkvöld ekki vilja tjá sig við fréttamenn um ákæmna að sinni umfram það sem hann hefði gert í viðtölum i íslandi í dag á Stöð 2 og Kastljósinu á RÚV í gær. í íslandi í dag sagði Ámi um ákæruna: „Það em tuttugu og sjö ákæruatriði borin á mig. Þau eru að mínu mati í heild mjög hrá, frá sjálfum ríkissaksóknara. Af þessum tuttugu og sjö atriðum eru að mínu mati, eftir minni bestu vitund, ell- efu rétt. Það lá fyrir strax í sumar. Átta eru röng, fimm má telja bæði rétt og röng eftir því hvaðan maður kemur að því, tvö eru rangtúlkuð og eitt á ekki heima þama.“ Hann til- greindi ekki hvaða ákæruatriði ættu við rök aö styðjast enda væri málið nú hjá dómstólum. Árni gagnrýndi fjölmiðla mjög harkalega og sagði að umfjöllun þeirra um sig hefði einkennst af móðursýki. Hann taldi að í stétt DV-MYND GVA Vöruúttektir upp í laun Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, mætti í sjónvarpsviðtöl í gærkvöid. Þar sagðist hann hafa gert þau mistök aö hafa tekið út vöru upp í laun sem hann taldi sig eiga rétt á. blaðamanna hefði orðið til hópur sem ekki væri hægt að kalla annað en eins konar „mannætufélag"; menn sem stunduðu það að níða niður aðra, leita ekki upplýsinga og taka eina hliö málsins en aldrei málsbætur. Ámi færði fram þær málsbætur í gærkvöld að hann hefði fengið litið greitt fyrir störf sín að endurbygg- ingu Þjóðleikhússins. „Síðustu sjö árin hef ég engar launagreiðslur fengið fyrir mín störf [hjá Þjóðleik- húsinu], sem hafa veriö mjög viða- mikil,“ sagði Ámi í íslandi í dag. „Á þeim tíma geri ég þau mistök, sem ég sit uppi með, að taka mér vömút- tektir upp í laun, kannski fimmtung af þeim launum sem ég hefði átt að hafa, að meðaltali á ári um 250 til 300 þúsund krónur, og þaö em mín mistök.“ „Ég gerði ákveðin mistök, sem em vissulega alvarleg og sem ég harma, en það era skýringar á öllum hlutum ef menn vilja skoða það og spyrja eft- ir því. Það afsakar kannski ekki mis- tökin en það getur skýrt þau,“ sagði Ámi Johnsen. -ÓTG Ákærður fyrir f járdrátt, mútuþægni og umboðssvik: Meint fjársvik nema rúmum átta milljónum Meint fjársvik Áma Johnsens, fyrrverandi þingmanns, nema í heild rúmum átta milljónum króna. Þar af hefur Ámi endurgreitt um helming fjár- ins. Ríkissak- sóknari hefur höfðaö opinbert mál á hendur Árna Johnsen þar sem honum einum er gefið að sök fjárdráttur, umboðssvik, rangar skýrslur til yfírvalda og mútuþægni í opin- beru starfi sem al- þingismaður og formaður bygg- inganefndar Þjóð- leikhússins og Vestnorræna ráös- ins, Brattahlíðar- nefndar. Auk þess eru ákærðir Tómas Tómasson, verk- fræðingur hjá ístaki, fyrir þátttöku í fjárdráttar- og umboðssvikabrot- um, Bjöm Kristmar Leifsson, kenndur við World Class, fyrir mút- ur, Gísli Hafliði Guðmundsson, fyrr- verandi starfsmaður Þjóðleikhús- kjallarans, fyrir mútur og umboös- svik og Stefán Axel Stefánsson, hjá Forum ehf., fyrir umboðssvik. Ákæra ríkissaksóknara er i 28 liöum og er Ámi ákærður í 27 þeirra. Fyrsta brotið á að hafa átt sér stað í ársbyrjun 1997 og hið síðasta í júlímánuði á síð- asta ári. Á tímabil- inu lét Ámi ýmsar nefndir m.a. greiða eldhús- og baðinn- réttingu, hreinlæt- istæki, fánastöng, þjóðfána og veif- ur. Auk þess er Ámi sakaður um að draga sér tæp- ar 800 þúsund krónur af banka- reikningi Vest- norræna ráðsins síðastliðið sum- ar. Þá er Áma gefið að sök að hafa framvísað tveimur til- hæfulausum reikningum á skrifstofu Al- þingis þar sem rukkað var fyrir fundaraðstööu og kaffi- veitingar. Ámi er eixmig ákærður fyrir mútuþægni; meðal annars fyrir að hafa tekið við 650 þúsund króna greiðslu frá forráðamönnum Þjóð- leikhúskjallarans sem þóknun fyrir að samþykkja reikning þeirra upp á 3,1 milljón króna. Björn Leifsson og Gísli Hafliði Guðmundsson eru ákærðir fyrir mútur vegna fyrr- greindrar greiðslu. -aþ 7 ruál Árna ÍAkæruatriðin ’ Upphæö Hvenær A FJðrdráttur (oplnberu starfi 1 Eldhús og baöinnrétting 326.000,00 19.02.1997 2 Hreinlætistæki og pípulagnaefni 231.810,00 30.09.1999 3 Fánastöng og límtrésbitar 39.999,00 19.03.1999 4 Álstigi 12.047,00 30.09.1999 5 Þjóöfáni og veifa 247.133,00 16.08.1999 6 Verkpallar 249.245,00 30.09.1999 7 Tværjólaseriur 217.257,00 22.12.2000 8 Timbur 251.857,00 28.02.2001 9 300 Óóalskantsteinar og 160.978,00 11.05.2001 30 stk. Óðalssteina 10 Timbur, saumur o.fl. 400.930,00 23.05.2001 11 Þéttidúkur og lím 173.658,00 02.07.2001 12 Tlmbur, þéttiull og aörar byggingavörur 1.016.069,00 03.07.2001 13 Þéttidúkur 157.320,00 3.484.303,00 09.07.2001 B FJárdráttur f oplnberu starfl 14 Fjárdráttur af reikningi 782.790,00 22.06.2001 Vestnorræna ráösins 782.790,00 C Rangar skýrslur tll yflrvalda 15a Reikningur fyrir leigu á fundaraöstööu 112.000,00 15.12.2000 15b Reikningur vegna veitinga fyrir 70 manns 118.000,00 03.06.2000 230.000,00 D Brot i oplnberu starfi, mútuþægnl 16 Timburkaup vegna stafkirkju 875.694,00 13.04.2000 17 Greiösla fýrir aö samþykkja reikning 650.000,00 1.525.694,00 mars 2001 E Umboössvlk í oplnberu starfi 18 Reikningur vegna kaupa á torfi og grjóti 645.000,00 22.06.2001 II Umboössvlk ðsamt Gfsla Hafllöa Guömundssynl 19 Kaffi og kökur vegna 29 funda 82.500,00 18.03.1998 20 byggingarnefndar Kaffiveitingar á fundum 88.000,00 170.500,00 20.01.1999 III Umboössvlk ásamt Stefán A. Stefánssynl 21 Kaffiveitingar á 33 fundum 169.000,00 14.12.2000 IV Umboössvlk og fjárdráttur ásamt Tómasl Tómassynl 22 Innrétting í bílskúr aö Haukalind 17 305.825,00 30.03.2000 23 Sandblástur, efni og viögeröir á ofni 32.800,00 338.625,00 28.05.2000 B FJárdrðttur meö aöstoö Tómasar Tómassonar 24 Rísar og fylgiefni 290.693,00 14.02.2001 25 Huröir, karmar, gluggar og innréttingar 418.000,00 03.05.2001 26 Huröir, karmar, gerefti, þröskuldar 104.981,00 16.05.2001 og huröarhúnar 27 Baöherbergistæki 184.624,00 998.298,00 16.05.2001 Samtals: 8.344.210,00 Upphæöir í rauöu hefur Áml endurgreltt. | Færsla reikninga: Bandaríkjadalur langvinsælastur Þrjátiu og tvö félög hafa sótt run heimild hjá ársreikningaskrá fyrir að færa bókhald sitt og ársreikn- inga i erlendri mynt. Færsla í er- lendri mynt er heimil á þessu ári í fyrsta sinn samkvæmt nýsamþykkt- um lögum. Langflest þessara félaga hafa sótt um að fá að færa reikninga sína í bandarikjadölum eða tuttugu og fjögur. Fjögur hafa sótt um að færa í evrum, eitt í norskum krónum og eitt í breskum pundum. Frestur til að sækja um heimild til að færa í erlendri mynt á yfirstand- andi rekstrarári er til 30. apríl. -ÓTG RKÍ gefur tvo reiðhnakka Reykjavíkurdeild Rauða kross ís- lands gaf nýverið Reiðskólanum Þyrli tvo sérhannaða hnakka fyrir fatlaða sem skólanum er ætlað að nota í reið- kennslu. Hnakkamir eru þannig gerðir að hægt er að festa á þá sérstakt bak auk þess sem ólar eru spenntar utan um þann sem er á hestinum. Þetta þýðir að hann fær góðan stuðning og er lít- il hætta á að hann detti af baki. Til- gangur þessarar gjafar er að stuðla að því að fatlaðir geti notið endurhæfing- ar og útivistar á hestbaki. Reiðskólinn Þyrill hefur á síðustu ámm boðið upp á reiðnámskeið fýrir fatlaða en áhugi þessa þjóðfélagshóps á reiðmenr.sku hefur farið stórlega vaxandi á siðustu árum. Reiðmennska er talin mjög góð þjálfun fyrir líkam- lega fatlað fólk, sérstaklega þá sem bundnir em í hjólastól. -HI 15 mánaða fang- elsi fyrir fjárdrátt Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á miðvikudag lögfræðing á fertugsaldri í fimmtán mánaða fangelsi fyrir fjár- drátt og skjalafals. Að auki á hann að greiða tæplega 4,2 milljónir króna í bætur auk dráttarvaxta til þeirra sem hann dró að sér fé frá. Þá greiðir hann einnig málsvamarlaun verjanda síns, 130 þús. krónur. Lögfræðingurinn var ákærður fyrir að hafa dregið sér tæplega 9,5 milljónir króna sem fyrirtækið sem hann stýrði, Juris, sá um að innheimta fyrir 43 við- skiptamenn sína. Peningana notaði lög- fræðingurinn í rekstur fyrirtækis síns en það var úrskurðað gjaldþrota fyrir tveimur árum. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa falsað níu víxla í viðskiptum sínum. Maðurinn játaði þau brot sem hann var ákærður fyrir og samþykkti þær bótakröfur sem gerðar vom. Við refsi- ákvörðun var litið til þess að maðurinn olli yfirgripsmiklu fjárhagstjóni sem bitnaði á fjölda viðskiptamanna fyrir- tækisins og að hann hafi brugðist trún- aðartrausti þeirra. Hins vegar er það metið til refsimildunar að hann var samvinnufús við rannsókn málsins og aðstoðaði eftir fongum við að upplýsa það. Hæfileg refsing þykir því 15 mán- aða fangelsi en ekki þótti ástæða til að skilorðsbinda dóminn þar sem maður- inn hefði ekki sýnt viðleitni til að bæta fyrir tjónið. -HI ÞQKKUM FRABÆRAR VIÐTOKUR Örfáar vélar eftir úr fyrstu sendingu nintendais —allt um GAMECUBE B R Æ Ð U R N I R LEIKJATOLVUR Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.