Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002
DV
9
Fréttir
Framkvæmdir í Fossvogsdal:
Skurðirnir heyra
sögunni til
Gríðarlegar framkvæmdir standa
nú yfir í Fossvogsdalnum sem
Reykjavíkurborg og Kópavogsbær
standa sameiginlega að. Þar er ætl-
unin að koma upp nokkrum
seftjörmnn sem myndaðar verða úr
regnvatni.
Sigurður Ingi Skarphéðinsson,
gatnamálastjóri Reykjavíkurborgar,
segir að nú sé öllu regnvatni í Kópa-
vogi og Reykjavík veitt eftir skurð-
um i dælustöðvar og þaðan út i sjó.
Þetta sé ekki nauðsynlegt þar sem
regnvatnið er hreint vatn. „Það sem
við erum að gera er að skilja að
regnvatn og skólp. Þegar rignir mik-
ið hefur það komið fyrir að þeir
lækir sem vatnið og skólpið rennur
eftir hafa ekki getað tekið við öllu
saman. Áður sameinaðist vatnið
skólpinu í þessum lækjum áður en
það fór í dælustöðvarnar en nú
verður regnvatninu veitt í þessar
tjarnir. Þetta mun því minnka
vatnsrennslið eftir þessum lækj-
um.“ Sigurður segir að skurðimir í
Fossvogsdalnum, sem vatnið hefur
runnið eftir, muni heyra sögunni til
eftir þessar framkvæmdir.
Gert er ráð fyrir því að þessum
framkvæmdum muni ljúka þegar
kemur fram á sumarið. Þar með
geta þeir sem fá sér göngutúr um
dalinn gengið með fram fallegum
seftjömum sem ætti aldeilis ekki að
spilla fyrir góðri útiveru.
Það var Yngvi Loftsson, lands-
lagsarkitekt hjá Landmótun, sem sá
um hönnun á dalnum með þessum
tjömum. Heildarkostnaður við
verkið í Fossvogsdalnum er 60 millj-
ónir króna og skipta Reykjavíkur-
borg og Kópavogsbær honum á milli
sín. Kópavogsbær mun hins vegar
greiða sérstaklega fyrir fram-
kvæmdir í kringum íþróttasvæði
HK, þar á meðal malarvöll sem ver-
ið er að útbúa þar. Útfærsluna er
hægt að sjá á teikningunni hér til
hliðar. -HI
Frá framkvæmdunum í Fossvogsdalnum
Áættaö er að um mitt sumar veröi þessi fallegi dalur skreyttur seftjörnum.
Lækkun vaxta um 0,3%:
Breytir ekki miklu
fýrir meðalheimilið
- getur lækkað greiðslubyrði um 10.000 kr.
Eins og kunnugt er lækkaði
Seðlabankinn vexti um 0,3% fyrir
rúmri viku og líkur eru á að við-
skiptabankamir muni fylgja henni í
meginatriðum. Kristjón Kolbeins,
sérfræðingur hjá Seðlabankanum,
segir að um áhrif þessarar lækkun-
ar á greiðslubyrði heimilanna sé
ekki vitað en telur að hún sé ekki
umtalsverð. „Heildarskuldir heimil-
anna i landinu era um 700 miiljarð-
ar, þar af eru um 330 milljarðar hjá
íbúðalánasjóði. Þau lán bera fasta
vexti og verðtryggingu og því hefur
þessi lækkun ekki áhrif þar. Þó má
leiða líkur að því að lækkun vaxta
geti haft einhver áhrif á affoll hús-
bréfa og á vexti sjóðsins."
Kristjón segir að eftir standi um
370 milljarðar og sé gert ráð fyrir að
vaxtalækkunin skili sér að fullu yfir
línuna sé um að ræða lækkun á
greiðslubyrði skulda heimilanna
um rúman milljarð króna. Heimili á
landinu era um 100 þúsund og því
lækkar greiðslubyrði meðalheimilis
um ca 10.000 kr. á ári, eða um 800
kr. á mánuði við þessa vaxtabreyt-
ingu.
„En á móti kemur að landsmenn
eiga einnig miklar fjáreignir, mis-
jafnlega aðgengilegar, og getur
ávöxtun þeirra lækkað. Sem dæmi
má nefna að fjárfestingar í lífeyris-
sjóðum eru næstum eins miklar og
skuldir landsmanna." -ÓSB
Tjarnirnar í Fossvogsdalnum
Á þessari teikningu frá Landmótun sést hvernig dalurinn mun líta út aö loknum framkvæmdunum. Efst á myndinni er
Fossvogshverfið í Reykjavík en neöst Grundahverfiö í Kópavogi.
-—
WM
■
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin
svæði í Reykjavík:
Amtmannsstígur, Lækjargata, Bankastræti, Þingholtsstræti (Skólastræti),
deiliskipulag.
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af Amtmannsstíg til suðurs, Lækjargötu til vesturs,
Bankastræti til norðurs og Þingholtsstræti til austurs.
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Markmið tillögunnar er m.a. að
stuðla að uppbyggingu og vernd miðborgarsvæðisins, gefa skipulagssvæðinu heildstætt
yfirbragð, ákveða nýtingu þess til framtíðar og tryggja betri nýtingu lóða.
Tillagan gerir m.a. ráð að öll hús reitunum standi áfram að undanskildum nokkrum bakhúsum.
Vemdun húsa er í samræmi við tillögur í þemahefti með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016,
um húsvernd og húsakönnun Árbæjarsafns. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja
bakbyggingar á einni hæð á lóðum næst Bankastræti. Heimilt verði að hækka húsið nr. 4 við
Bankastræti um 1-2 hæðir og ris og setja risþak á hluta hússins nr. 6 við Bankastræti.
Bakbygging á lóðinni nr. 6 við Þingholtsstræti lækki um eina hæð og heimilt verði að byggja
viðbyggingu austan við hús nr. 5b við Skólastræti. Leyfilegt byggingarmagn á reitnum vex um
rúmlega 1000 m2 skv. tillögunni.
Amtmannsstígur, Þingholtsstræti, Bankastræti, Ingólfsstræti, deiliskipulag
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af Amtmannsstíg til suðurs, Þingholtsstræti til vesturs,
Bankastræti til norðurs og Ingólfsstræti til austurs.
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Markmið tillögunnar er m.a. að
stuðla að uppbyggingu og vernd miðborgarsvæðisins, gefa skipulagssvæðinu heildstætt yfir-
bragð, ákveða nýtingu þess til framtíðar og tryggja betri nýtingu lóða. Tillagan gerir m.a. ráð
fyrir að öll hús reitsins standi áfram. Þó er gert ráð fyrir niðurrifi nokkura skúra sem skilyrði
fyrir uppbyggingu. Á reitnum verður almennt heimilt að byggja bakbyggingar á einni hæð með
flötu þaki. Þá gerir tillagan ráð fyrir að hækkun Bankastrætis 8 um eina hæð og ris. Heimilt
verði og að byggja bílskúr norðan við húsið nr. 10 við Ingólfsstræti. Ekki verði byggt á lóðinni
nr. 9 við Þingholtsstræti (hornlóðin við Amtmannsstíg). Leyfilegt byggingarmagn á reitnum
vex um 1200 m2 skv. tillögunni.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3,1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 10. maí 2002 - til 21. júní 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila
skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 21. júní 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 10. maí 2002.
Skipulagsfulltrúi
BALL Á CHAMPION S
ALLTAF DANSLEIKIR UM HELGAR:
10. & I I.MAÍ
Hljómsveitin SÍN
leikur fyrir dansi.
í BEINNIÁ BREIÐTJÖLDUM
Laugardagurinn 11. maí
Kl. 11.00 Formúla, tímataka
Kl. 12.00 Brentford - Stoke
Kl. 14.00 Arsenal - Everton
Sunnudagurinn 12. maí
Kl. 11.30 Formúla 1
Stórhöfði I 7
www.champions.is • Textavarp 668 • Hádegishlaðborð virka daga