Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Page 10
10
Neytendur
FÖSTUDAGUR 10. MAl 2002
DV
Krónan
Select
Kjarval
Hagkaup
Húsráð
Of salt
Ef maturinn er of saltur er ekki
nauðsynlegt að henda honum því
ýmsu er hægt að bjarga með einföld-
um húsráðum. í súpur og pottrétti
er best að setja nokkrar sneiðar af
hráum kartöflum sem þú hendir að
eldun lokinni þegar þær hafa sogið
i sig saltið.
Annað ráð á sömu rétti er að setja
sína skeiðina af hvoru, eplaediki og
sykri, út í.
Of sætt
Bætið salti út í.
Ef um aðalrétt er að ræða eða
grænmeti, setjið þá eina tsk. af epla-
ediki saman við.
Of Ijós sósa
Litaðu með sósulit.
Best er að brúna hveitið vel áður
en vökvanum er bætt í. Það kemur
einnig i veg fyrir kekki.
Önnur aðferð við að brúna hveit-
ið er að setja það í hitaþolið ilát og
setja það með kjötinu í ofninn. Þeg-
ar kjötið er fullsteikt er hveitið orð-
ið brúnt og tilbúið í þessa fínu sósu.
Of þunn sósa
Hrærið saman vatni og hveiti í
þunnan jafning. Bætið hægt út í
soðið og hrærið þar til sýður.
Silkimjúk sósa
Geymdu í krukku blöndu af
hveiti og kornsterkju, jafn mikið af
hvoru. Settu 3-4 msk. í aðra
krukku, bættu vatni í, hristu og fyrr
en varir er kominn góður jafningur
í sósuna.
Feit sósa
Ef sósan er of feit er gott ráð að
strá yfir hana örlitlu af matarsóda.
Sölnað grænmeti
Ef nýtt grænmeti er sölnað eða
visið þá skal skera burtu brúnu
blettina. Skolið því næst í köldu
vatni, þurrkið og kælið í ísskáp í
eina klukkustund eða svo.
Hægt er aö hressa við léleg salat-
blöð með þvi að setja þau í skál af
vatni, bæta sítrónusafa í vatnið og
setja í ísskáp í eina klukkustund.
Salatblöð og sellerí verða hörð á
ný ef þau eru sett í pott með köldu
vatni og nokkrum sneiðum af hrá-
um kartöflum er bætt saman við.
Of þunn kartöflustappa
Kartöflur sem hafa verið soðnar of
lengi geta farið alveg í graut þegar
mjólkinni hefur verið hellt saman
við stöppuna. Þetta er hægt að laga
með því að strá þurrmjólk yfir og þá
fæst besta kartöflustappa í heimi.
Gas eða rafmagn?
- ekki mikill munur á kostnaði en hægt að komast af með minna gas, segir Þór Austmar hjá Gaskó
Gaseldavélar hafa aldrei verið vin-
sælli hér á landi en einmitt nú. Vin-
sældir þeirra má rekja til þess
hversu auðvelt og þægilegt er að elda
á þeim, auk þess sem sagt er að gas-
ið sé mun ódýrari orkugjafi en raf-
magnið. Þó hafa engar tölur þar að
lútandi heyrst nefndar og því fór
Neytendasíðan á stúfana og kannaði
máiið.
Albert Lúðvígsson, sölumaðm- hjá
Eirvík, sem hefur selt SMEG- og
Miele-gashellur um árabil, segir að
þeir sem hyggjast skipta yfír í gas
hafi að ýmsu að huga. „Gashelluborð-
in eru ódýrari en keramikhelluborð-
in og getur þar munað ailt að helm-
ingi, en það fer náttúrlega eftir því
hvaða merki eru borin saman. Við
gashelluborðin bætist alltaf auka-
kostnaður því þó margir tengi raf-
magnshelluborðin sjálfir mælum við
ekki með því þegar um gasið er að
ræða. Þvi verður að fá fagmann til
verksins."
Auk þess þarf að kaupa gaskút.
Algengast er að 6 eða 11 kg kútar séu
notaðir en þeir eru öðruvísi en 9 kg
kútarnir sem notaðir eru við gasgrill-
in. Skilagjald 6 kg kúts er 3735 kr. og
áfylling um 2.100 kr. en skilagiald á
11 kg kút er 4233 kr. og áfyllingin
kostar rúmar 3.000 kr.
Þór Austmar hjá Gaskó segir að
tenging á gashellum kosti um 10.000
kr. Sé kúturinn settur út þarf hann
að vera í skáp og því þurfi að smiða
eða kaupa einn slíkan. „Ýmsum öðr-
um atriðum þarf að huga að. Þegar
ég tengi gashellur í heimahúsum get
Kaffivélar frá Philips:
Laus handföng
ég boðið upp á allt sem til þarf, svo
sem skáp, gasmæli og fleira. Auk
þess þrýstingsprófa ég kerfið og
kenni fólki á það, svo sem lekaleit og
sitthvað um eldun á gasi.“
Aðspurður segir Þór að kílóvatt-
stundin af rafmagni og gasi sé á svip-
uðu verði en það sem skipti máli sé
að hægt sé að komast af með minni
orku á gasinu. „Svörunin er hraðari
og því er maður fljótari að elda með
því. Eins eru margar leiðir færar til
að spara gasið. Sem dæmi má nefna
að þegar verið er að sjóða eitthvað í
stórum potti, t.d. slátur, þá er pottur-
inn settur á stærstu helluna og suðan
látin koma upp. Þá er hann færður á
þá minnstu, sem eyðir mun minna
gasi, og suðunni haldið þar við með
lágmarksloga. Venji fólk sig á að
færa potta á milli hellna, þannig að
alltaf sé notuð sú minnsta þegar hægt
er, má spara 80-90% af orkunni."
Hann segir að þeir sem fyrir
nokkrum árum fengu sér skipt hellu-
borð, þ.e. með bæði rafmagns- og gas-
hellum, og þurfi af einhverjum
ástæðum að skipta fari undantekn-
ingarlaust í gashellur eingöngu. „Það
er svo miklu skemmtilegra að elda á
gasi, maður hefur meiri tök á því
sem verið er að gera og svo sparar
Nýlega barst rafmagnsöryggis-
deild Löggildingarstofu ábending
þess efnis að hér á landi hefði orðið
það óhapp að handfang glerkönnu
sem fylgir kaffivél losnaði með þeim
afleiðingum að af hlaust brunasár
aúk skemmdá á innanstokksmun-
um. Úm er að ræða kaffivél af gerð-
inni Philips Essence HD 7603 þar
sem handfangið er fest við könnuna
með lími á tveimur stöðum.
1 framhaldi af slysinu lét raf-
magnsöryggisdeild Löggildingar-
stofu skoða kaffivélar af umræddri
gerð. Sú skoðun leiddi ekki í ljós að
festingum handfangsins væri ábóta-
vant en þó kom í ljós að á nýrri
gerðum hafði festingum þess veriö
breytt. Auk limsins var komin
málmklemma við efri brún könn-
unnar til frekari styrkingar á fest-
ingu handfangsins.
Við frekari eftirgrennslan hjá
Philips í Hollandi kom fram að þar
höfðu menn vitneskju um að galli
gæti leynst í límingu
handfanga á könnum
sem framleiddar voru á
ákveðnu tímabili. Skv.
upplýsingum þeirra
höfðu farið fram rann-
sóknir og áhættugreining
á umræddum galla en
málið ekki talið það al-
varlegt að ástæða væri til
að innkalla könnurnar.
Af þessu tilefni hefur
gæðadeild Philips í
Hollandi óskað eftir að
eftirfarandi komi fram:
„Philips hefur komist
að raun um að á mjög
takmörkuðum fjölda kaffi-
véla af gerðunum HD 7603, HD 7605,
HD 7607 og HD 7609 getur handfang-
ið losnað af könnunni. Losunin á
sér stað smám saman og verður orð-
in greinileg áður en handfangið
losnar alveg. Strax og
, þetta varð ljóst var sam-
setningu breytt þannig
að festing handfangsins
var styrkt til að koma í
veg fyrir að þetta endur-
tæki sig.“
Löggildingarstofa
hvetur eigendur kafii-
véla af umræddri gerð til
að vera á varðbergi og
skipta þegar í stað um
könnu verði þeir varir
við los á handfanginu.
Fólki er bent á að snúa
sér í því sambandi til
viðkomandi söluaðila.
Nánari upplýsingar veitir
Birgir Ágústsson hjá rafmagnsör-
yggisdeild Löggildingarstofu í síma
510 1100.
Gas og rafmagn
ÞórAustmar segir aö þeir sem fyrir nokkrum árum fengu sér skipt helluborö, þ.e.
meö bæöi rafmagns- og gashellum, og þurfi af einhveijum ástæöum aö skipta,
fari undantekningariaust i gashellur eingöngu. Myndin er úr versluninni Eirvík.
BFGoodrich
Dekk
vddu
það
besta
aðems
mm
Vagnhöfða 23 • Sími 590 2000
www.benni.is
Hjolbarðaverkstæði Sigurjóns • Reykjavík
Nesdekk • Seltjarnarnesi
Dekk og smur • Stykkishólmi
Léttitækni • Blönduósi
Höldur • Akureyri
Bílaþjónustan • Húsavík
Smur og Dekk • Höfn Hornafirði
IB Innflutningsmiðlun • Selfossi
BFGoodrí&H
,
UmboOsoOílar:
Tilboðin gilda í maí.
1 Freyju rís stórt 85 kr.
2 Nóa kropp 150 g 179 kr.
3 BKI kafi 500 g 339 kr.
4 Lorenz kartöfluflögur 25 g 79 kr.
5 Lorenz kartöfluflögur í stauk 199 kr.
6 McVites Caramel kex 300 g 236 kr.
7 Drykkjarjógúrt, 2 teg. 250 ml 69
8 Pantene Cls sjampó 200 ml 379 kr.
9 Pantene Cls hárnæring 200 ml 379 kr.
10 Turtle wash & shine - sápubón 239 kr.
Tilboðin gilda til 12. maí.
SS VSOP helgarsteik 999 kr. kg
KS læri 1/1 frosið 799 kr. kg
Ferskar kjötvörur Óðals UN hakk 699 kr. kg
Hatting minibrauð 600 g 219 kr.
Pringles karrý 200 g 189 kr.
Ágætis rauðar kartöflur 2 kg 199 kr.
Ágætis gullauga kartöflur 2 kg 199 kr.
Ágætis premier kartöflur 2 kg 199 kr.
Tilboðin gilda til 15. maí.
1 lceberg 299 kr. kg
2 Kea nautahakk UN-1 prepack 783 kr. kg
3 Vienetta vanilla 468 kr.
4 Vienetta chocolate 468 kr.
5 Kexsm. kanilsnúðar 239 kr.
6 Kexsm. kanilsnúðar m/súkkulaði 247 kr.
7 Kexsm. sælusnúðar 239 kr.
það tíma. Þegar maturinn er látinn
malla á litlum loga þarf ekki að fylgj-
ast svo grannt með honum því suðan
helst niðri. Þá er hægt að gera eitt-
hvað annað á meðan."
Gasverð hækkaði mikið á timabili
en hefúr nokkum veginn staðið í stað
undanfarið. Þó gasnotkun sé auðvitað
mismunandi milli heimila og erfitt sé
að meta hversu mikið hún kostar ár-
lega segir Þór að hjá 4-5 manna fjöl-
skyldu megi búast við að 11 kg kútur
dugi i 5-8 mánuði. - ÓSB
Uppgrip-verslanir Olís
Tilboðin gilda í maí.
i Freyju lakkrísdraumur stór 89 kr.
2 Rolo kex 199 kr.
3 Toffy Crisp 85 kr.
4 Fresca 1/2 1 plast 109 kr.
5 Reiðhjólahjálmar 2499 kr.
6 Reiðhjólahjálmar 1999 kr.
Tilboðin gilda til 8. maí.
1 Bacon hleifur 20% afsl. 532 kr. kg
2 Pepperoni hleifur 20% afsl. 532 kr. kg
3 BKI Classic 500 g 299 kr.
4 Brownie Cookies 200 g 159 kr.
5 Freyju hrís flóð 200 g 269 kr.
6 Nóa súkkulaðirúsinur 200 g 139 kr.
Samkaup - Úrval
Vikutilboð
1 Vex uppþv. lög. Skógar 500 ml 159 kr.
2 Vex uppþv. lög. sótthr. 500 ml 159 kr.
3 Vex uppþv. lög sítr. 500 ml 149 kr.
4 Vex uppþv. töflur 30 stk. 560 kr.
5 Mjöll mýkur m/vorilmi 2 1 369 kr.
6 Mjöll mýkir m/sumarilmi 2 1 369 kr.
7 Nýr Geisli fylling 204 kr.
8 Nýr Geisli m/dælu 249 kr.
Tilboðin gilda til 15. maí.
Frosin ýsuflök 599 kr. kg
SS rauðvínslegið lambalæri 996 kr. kg
Svali appelsínu 3x1/41 99 kr.
Rófur 99 kr.
Hvitkál 99 kr.
Heimaís, 2 1, vanilla og súkkulaði 399 kr.