Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Síða 20
20
I
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002
I>V
90 ára_________________________________
Jóhann Rósmundsson,
Gilsstööum, Hólmavík.
Kári S. Johansen,
Austurbyggð 17, Akureyri.
80 ára_________________________________
Guömundur Guömundsson,
Skriðustekk 12, Reykjavík.
Helga E. Kristjánsdóttir,
Torfnesi Hlíf 2, ísafirði.
75 ára_________________________________
Þórdís Ingólfsdóttir,
Fornhaga 21, Reykjavík.
Hans Gunnar Hinz,
Hlíðarbyggð 14, Garðabæ.
70 ára_________________________________
Bernharö Hjartarson,
Stjörnusteinum 22, Stokkseyri.
80 Óra_________________________________
Halldór Guömundsson,
Urðarvegi 13, ísafirði.
Vigfús J. Hjaltalín,
Kjalarsíöu 8 D,
Akureyri.
Hann verður aö heiman í dag.
50 ára_________________________________
Kristín Helga Jónatansdóttir starfsmað-
ur á Hótel Loftleiðum. Hún tekur á móti
gestum í tilefni dagsins í Síðumúla 11
^ frá kl. 18:00 í dag.
Arngrímur ísberg,
Miklubraut 58, Reykjavík.
Guömundur Ingi Sigmundsson,
Logafold 47, Reykjavík.
Sigurveig Sigmundsdóttir,
Kársnesbraut 37a, Kópavogi.
Ragnheiöur L. Guöjónsdóttir,
Gullsmára 6, Kópavogi.
Kristín Karlsdóttir,
Sunnuholti 4, ísafirði.
Kristrún Pálsdóttlr,
Aðalbóli, Egilsstöðum.
40 ára_________________________________
Hallur Þorsteinsson,
Karlagötu 10, Reykjavík.
Karl Axeisson,
Boðagranda 12, Reykjavík.
Pálmi Egllsson,
Starhaga 7, Reykjavík.
Kolbeinn Arinbjarnarson,
Hlyngeröi 5, Reykjavík.
Kristinn V. Kristófersson,
Fjarðarseli 27, Reykjavík.
Thom Lomain,
Hafnargötu 1, Vogum.
Vilborg Einarsdóttir,
Móaflöt 33, Garöabæ.
Ellert Bjórn Svavarsson,
Stekkjarholti 3, Ólafsvík.
Boöi Stefánsson,
Skóghlíð 1, Egilsstöðum.
j. Guðmundur Rúnar Jóhannsson,
Álftarima 3, Selfossi.
Sigurborg Kjartansdóttir,
Grænuvöllum 5, Selfossi.
rún er dóttir Ingóifs, b. á Skjald-
þingsstöðmn í Vopnafirði Eyjólfs-
sonar, b. i Fagradal Guðmundsson-
ar, b. á Fagranesi i Aðaldal Bjöms-
sonar, í Lundi Guðmundssonar,
bróður Páls, langafa Stefáns, afa
Guðmundar Bjamasonar, ráðherra.
Móðir Guðrúnar var Elin Salína
Sigfúsdóttir, b. á Einarsstöðum í
Vopnafirði Jónssonar. Móðir Sigfús-
ar var Sigríður Sigurðardóttir, b. á
Lýtingsstöðum Jónssonar, b. á
Ljósalandi Jónssonar b. á Vakurs-
stöðum, Sigurðssonar ættfóður Vak-
ursstaðaættarinnar, íoður Jóns
yngra, langafa Katrínar, móður
Gunnars Gunnarssonar, rithöfund-
ar.
Málfríður Hannesdóttir, sem lést sunnu-
daginn 5. maí á hjúkrunarheimilinu
Klausturhólum, verður jarðsungin frá
Prestbakkakirkju laugardaginn 11. maí
kl. 14.
Þórný Gissurardóttir Hakonsen, frá
Byggðarhorni, verður jarðsungin frá
Laugarneskirkju í dag, 10. maí, kl.
10.30.
Sigríöur Lovísa Sigtryggsdóttir, Hjaröar-
landi, Biskupstungum, verður jarðsungin
frá Skálholtsdómkirkju laugardaginn 11.
apríl kl. 14.
Katrín Ásgrímsdóttir
garðyrkjufræðingur
Katrín Ásgrímsdóttir garðyrkju-
fræðingur að Kaldá, Egilsstöðum, er
fertug i dag.
Starfsferill
Katrín fæddist á Höfn í Homafiröi
10. maí 1962 og ólst þar upp. Hún
lauk grunnskólanámi þar á staðnum.
Síðan fór hún i MH og útskrifaðist
sem stúdent 1982. Hún lauk námi frá
Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera-
gerði 1984 og lærði einnig garðyrkju
við háskólann í Guelph í Ontari-
ofylki í Kanada. Þaðan útskrifaðist
hún 1988.
Hún var ræktunarstjóri hjá Skóg-
rækt ríkisins á Hallormsstað frá 1889
til 1997. Síðan þá hefur hún starfað
sjálfstætt og rekið garðyrkjustöðina
Sólskóga, ásamt eiginmanni sínum.
Þau hafa búiö á Kaldá frá 1996.
Katrin var í sveitarstjórn Valla-
hrepps 1994-1998 og hefur setið í bæj-
arstjóm Austur-Héraðs frá 1998, for-
seti bæjarstjórnar frá 2000.
Hún var formaður stjórnar Heil-
brigðisstofnunarinnar á Egilsstöðum
1996-1998 og síðan Heilbrigðisstofn-
unar Austurlands frá 1998-2001 og
hefur setið í skólanefnd Húsmæðra-
skólans á Hallormsstað frá 1996.
Fjölskylda
Katrín giftist 18. janúar 1992 Gísla
Guðmundssyni garðyrkjufræöingi,
f. 8. nóvember 1985. Foreldrar hans:
Fanney Jónsdóttir frá Gunnlaugs-
stöðum í Borgarfirði, f. 1.10. 1916 og
Guðmundur Gíslason frá Esjubergi á
Kjalamesi, f. 17. september 1910, d. 6.
mars 1973. Þau Fanney og Guðmund-
ur bjuggu lengst af í Blesugróf í
Reykjavík.
Böm Katrínar og Gísla em Ás-
grímur Helgi, f. 17. desember 1989,
Guðmundur, f. 27. júní 1992, og Kol-
beinn Fannar, f. 23. október 2001.
Fyrir átti Gísli dótturina Fanneyju
Jónu.
Systkini Katrínar em Ingólfur, f.
7. janúar 1945, skipstjóri á Höfn í
Homafirði, kvæntur Siggerði Aðal-
steinsdóttur; Halldór alþingismaður
og utanríkisráðherra, f. 8. septem-
ber 1947, kvæntur Sigurjónu Sig-
urðardóttur læknaritara; Anna
Guðný, bókari, f. 2. júlí 1951, gift
Þráni Ársælssyni, matreiðslumanni
í Rvík; Elín, f. 5. janúar 1955, leik-
skólastjóri í Rvik, gift Björgvini
Valdimarssyni, dúklagningamanni
Foreldrar Katrínar: Ásgrímur
Helgi Halldórsson, kaupfélagsstjóri
og framkvæmdastjóri á Höfn í
Homaflrði, f. 7. febrúar 1925, d. 28.
mars 1996, og kona hans, Guðrún
Ingólfsdóttir húsmóðir, f. 15. júní
1920.
Ætt
Ásgrímur var sonur Halldórs,
kaupfélagsstjóra og alþingismanns í
Bakkafirði i Borgarflrði eystra Ás-
grímssonar, b. á Grund i Borgar-
flrði eystra Guðmundssonar, b. á
Nesi í Borgarfirði Ásgrímssonar.
Móöir Guðmundar á Nesi var Helga
Þorsteinsdóttir, b. á Litlu-Laugum
Andréssonar og konu hans Ólafar
Jónsdóttur b. í Reykjahlíð Einars-
sonar, faðir Helgu, langömmu Jó-
hannesar, langafa Valgerðar Sverr-
isdóttur, alþingismanns. Bróðir
Ólafar var Friðrik, langafi Ólafs
Hjartar, afa Ólafs Ragnars Gríms-
sonar.
Móðir Ásgríms á Grund var Ingi-
björg Sveinsdóttir, b. á Snotrunesi
Snjólfssonar og konu hans Gunn-
hildar Jónsdóttur, b. í Höfn Áma-
sonar, eins Hafnarbræðra, bróður
Hjörleifs, langafa Jörundar, fóður
Gauks, umboðsmanns Alþingis.
Móðir Halldórs alþingismanns var
Katrín Bjömsdóttir, b. í Húsey
Hallasonar og konu hans Jóhönnu
Bjömsdóttur.
Móðir Ásgríms kaupfélagsstjóra
var Anna Guðmundsdóttir, b. á Hóli
í Borgarfirði eystra Jónssonar og
konu hans Þórhöllu Steinsdóttur, b.
á Borg í Njarðvík Sigurðssonar, b. í
Njarðvík Jónssonar, ættfóður
Njarðvíkurættarinnar yngri, fóður
Þorkels, langafa Guðlaugar, ömmu
Péturs Einarssonar, flugmálastjóra.
Móðurbróðir Halldórs er Amþór
Ingólfsson, yfirlögregluþjónn. Guð-
Jón Sigurðsson, fyrsti formaður Sjómanna-
sambands íslands, fæddist í Hafnarfirði 12.
maí 1902. Foreldrar hans voru Sigurður
Jónsson, fiskmatsmaður, og k.h. Guðný
Ágústa Gísladóttir. Eftir barnaskólanám í
Hafnarfirði og að Ási í Ásahr. stundaði
hann sjó á togurum, bátum og skútum.
Hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörf-
um fyrir stéttarfélög og stofnanir. Var
m.a. framkvæmdastjóri ASÍ 1940-44 og
aftur 1949-54, forstjóri Innílutningsskrif-
stofunnar 1958-60, skrifstofustjóri hjá
verðlagsstjóra 1961-66 og 1968-72. í stjórn
Sjómannafél. Rvikur 1932-34 og 1951-61,
form. 1967-71. Formaður Sjómannasamb. Is-
lands frá stofnun þess 1957-76 og í stjórn ASÍ
1938-76 með hléum, auk þess sem hann var 25
ár í framkvæmdastjóm Alþýðuflokksins.
Hann var sæmdur gullmerki Sjómanna-
dagsráðs 1976.
Jón var tvíkvæntur. Seinni kona
hans var Jóhanna Guðmundsdóttir frá
Seyðisfirði, bókari og framkvstj., f.
30.7. 1909, d. 9.11. 1985. Þau eignuðust
eina dóttur og hann átti fjögur börn
fyrir.
Jón var skapmaður og fastur fyrir,
en dagfarsprúður að eðlisfari og glað-
lyndm-. Sem verkalýðsforingi setti hann
sinn svip á þjóðlifið og var ötull baráttu-
maður fyrir réttindum verkalýðs og sjó-
manna. Hann lést í Reykjavík 6. júlí 1984.
Jón Sigurðsson
Sönglagahátíð stjórnmálaflokka í Hveragerði:
Spáðu í B, D eða S
- Lions í Hveragerði studdi við bakið á slökkviliðinu
DVA1YNDIR EVA HREINSDÓTTIR
Presley vakinn upp
Kjörís-menn reyndu þaö sem marga fýsir, þeir vöktu upp sjálfan kónginn, Ei-
vis Prestey.
' ~\
Ekta ftskur ehf.
J S. 4661016 J
Utvatnaður saltfiskur,
dn beina, tií að sjóða.
Hallgrímur Gylfi Axelsson, Þjóöólfshaga,
Holtum, andaðist á Sjúkrahúsi Suður-
lands 6. maí.
Hulda Svava Elíasdóttir, frá Elliöa í
Staðarsveit, til heimilis á Álfhólsvegi 95,
Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð 3. maí.
Björn Ingi Ingason flugvélstjóri lést í
Sydney, Ástralíu, 5. maí.
Helga Stella Guðmundsdóttir, áður til
heimilis í Hólmgarði 40, andaöist á
Landspítala, Hringbraut, 5. maí.
Hulda Sigurjónsdóttir, Hafnarstræti 7,
Akureyri, lést 25.4. Jaröarförin hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Ólöf Guölaug Önundardóttir lést á Land-
spítalanum í Fossvogi 19. apríl Jarðar-
^förin hefur farið fram í kyrrþey.
Langt er orðið síðan Hvergerðingar
hafa fjölmennt á skemmtun á heima-
slóðum líkt og gerðist um síöustu
helgi. Þá hélt Lionsklúbburinn söng-
skemmtun á Hótel Örk til styrktar
slökkviliði Hveragerðisbæjar. Nær öll
fyrirtæki og flokkar í bænum léðu lið
sitt með því að senda fulltrúa, einn
eða fleiri, til þess að syngja fýrir gesti.
Þetta reyndist hin allra besta skemmt-
un og mátti sjá marga forsvarsmenn
fyrirtækja og aðra starfsmenn i nýj-
um hlutverkum. Auk þess mæltist
mjög vel fyrir að um leið og flytjend-
ur sungu sitt lag voru sýndar myndir
af þeim í sínum daglegu störfum á
stórum skjá á sviðinu.
Þama var Ámi Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsustofnunar, sem
söng einsöng, Þórhailur Hróðmars-
son, kunnur lagahöfundur hér og
kennari við Garðyrkjuskólann, söng
að sjálfsögðu frumsamið lag. Kjörís
skartaði Elvis Presley, sem vakinn
var upp úr líkkistu með tOheyrandi
reyk, Árni Magnússon, framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins, söng
Spáðu í mig, lag Megasar, og hét það í
hans flutningi „Spáðu i B“.
Sjálfstæðisflokkurinn sendi alla
fjórtán ffambjóðendur sina upp á svið
með texta, þar sem þemað var: „Viltu
kæri kjósandi, ekki kjósa blindandi.
Settu X við D, en ekki S og B, við þá
er ekki lyndandi." Þorsteinn Hjartar-
son, fyrrverandi aðstoðarskólastjóri
grunnskólans, söng hugljúft lag ásamt
eiginkonu sinni fyrir sinn flokk, Sam-
fylkinguna.
Lionsfélagar og slökkviliösmenn
voru yfir sig ánægðir með árangur-
inn. Fjármálastjóri Lions sagðist
áætla að um eða yfir 300 þúsund krón-
ur myndu koma í hlut slökkviliðsins.
Voru menn almennt á því að héðan í
frá yrði þetta árviss viðburður,
vorfagnaður Hveragerðis til styrktar
góðu málefni. -eh
Vetrarnótt bæjarstarfsmanna
Hálfdán Kristjánsson þæjarstjóri leiddi söng starfsfólks bæjarskrifstofunnar í
Hverageröi sem söng lagiö „ Vetrarnótt“ sem fiestir íslendingar þekkja.