Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Síða 22
*
22
Tilvera
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002
DV
lí f iö
Stud á
Kringlukránni
Það er nóg að gerast á Kringlu-
kránni í kvöld því klukkan 21
kynnir Geir Ólafsson nýju plötuna
sína. Eftir það leikur hljómsveit
Rúnars Júlíussonar svo fyrir dansi
fram á rauðanótt.
Krár
- M í »vórtum fötum í kvöld veröa Jónsi og þján-
ingabræður hans í! svörtum fötum á Gauknum og
munu þeir flytja sannan gleðiboöskaþ til gesta
þess ágæta staðar. Það ætti enginn að verða svik-
inn af því.
■ miM á Kaffi Revkiavik Það er ekki að spyrja
að þvi, engin önnur en hljómsveitin Sixties verður
á Kaffi Reykjavík í kvöld. Noh.
■ Panar á Plavers Það er vel að hljómsveiþn Pap-
ar spili á Players í kvöld. Partístemning, pörun,
pólitískar umræður og hreint alveg pípandi gott fiör.
Leikhús
1 NÝr etnleiKur i HafTwrfirði Nýr einleikur eftir
hinn unga leikara Guðmund Inga Þorvaldsson,
Skáld leitar harms, veröur frumsýndur í Hafnar-
fjaröarleikhúslnu í kwld. Guömundur leikur sjálfur
í verkinu en annar ungur leikari, Frlðrik Friðriksson,
sér um leikstjóm. Upplýsingar um miða fást I leik-
húsinu en sýningin hefst klukkan 21.
■ Með fulla vasa af driótl í kvöld sýnir Þjöðleik-
húsið verkiö Með fulla vasa af grjöti eftir Marie
Jones. Leikendur eru Stefán Kari Stefánsson og
Hilmir Snær Guðnason en leikritið er nýtt írskt verö-
launaleikrit sem nú fer sigurför um leikhúsheiminn.
Verkið fiallar um tvo írska náunga sem taka að sér
aö leika I alþjóðlegri stórmynd. Fjölskrúðugar per-
sónur verksins eru allar leiknar af leikurunum
tveimur. Sýningin hefst í kvöld kl. 20 og hægt er að
nálgast miða í síma 551 1200 eða I afgreiöslu
Þjóðleikhússins.
■ Jón Snarr i kvöld kl. 20 sýnir Borgarleikhúslð
sýningu sem ber heitið Jön Gnarr og er sjálfstætt
framhald á hinni geysivinsælu sýningu Ég var elnu
sinni nörd sem sýnd var við miklar vinsældir leikár-
iö 1999-2000. i sýningunni Ijallar Jón m.a. um
ýmsar umbreytingar í lífi sínu, samskipti kynjanna,
fallega fólkið, hvemig best sé aö borða rækjur, erf-
iðleika sem fylgja því að vera frægur meðal dýrateg
unda og ýmislegt fleira. Með Jóni kemur fram ung
stúlka sem segir sögur úr reynsluheimi kvenna.
Miðapantanir eru I síma 568 800.
M Gesturiwi í kvöld sýnir Borgarieikhúsið verkið
Gestlnn á litla sviðinu. Á þessari vitfirrtu en alvar-
legu nóttu reynir Freud að átta sig á hinum furöu-
lega Gesti. Trúleysinginn Freud sveiflast á milli
þess að halda að hann standi frammi fýrir Guöi og
grunsemda um að gesturinn sé geðsjúklingur sem
sloppið hefur af geöveikrahæli þá um kvöldiö. Höf-
undur er Eric-Emmanuel Schmitt en helstu leikend-
ur eru þau Gunnar Eyjólfsson, Ingvar E. Sigurðs-
son, Jóna Guðrún Jónsdóttir og Kristján Franklín
Magnús. Leikstjómi er Þór Tulinius en miðapantan-
ir fara fram I síma 568 800.
M GullbniðkauD j kvöld sýnir Leikfélag Akureyrar
leikritiö Gullbrúökaup eftir Jökul Jakobsson. Sýnt
er á Græna hattinum kl. 20 í kvöld en miða má
nálgast hjá Leikfélaginu í síma 462 1400.
Fundir_______________________________________
■ Sænskur liósmvndari Kl. 20 verður haldinn fyr-
irtestur af sænska Ijósmyndaranum Hasse Person
i LJósmyndasafni Reykjavíkur. Fyrirlesturinn ber
nafnið Ljósmyndin sem Qárfesting 1905-2002.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.
W Málþfrig i Nprræna húsinu Málþing um stefnu
í menningarmálum á Norðurlöndum veröur haldiö í
Norræna húsinu í dag kl. 13-17. Menntamálaráð-
herra setur þingiö en framsöguerindi flytja Peter
Duelund, Gestur Guðmundsson og Gelr Rögn-
valdsson. Viðbrögð við framsöguerindum verða í
höndum Ágústs Elnarssonar prófessors, Arnbjarg-
ar Svelnsdóttur alþingismanns, Hörpu Bjömsdótt-
ur myndlistarmanns, Egils Heibars Pálssonar leik-
ara og Ragnars Kjartanssonar mynd- og tónlistar-
manns. Tinna Gunnlaugsdóttir, forseti BÍL, stjóm-
ar almennum umræðum en Úlfar Bragason, for-
stöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals, stjómar
málþinginu. Túlkað veröur milli tungumála og máf
j þingið er öllum opið.
Hvar er boltlnn?
Próf í skólum eru í fullum gangi þessa dagana og sjálfsagt eru flestir krakkar innandyra og grúfa sig yfir bæk-
urnar. Þaó veröur þó af og til að taka sér stund á milli stríöa og létta á stressinu eins og þessar ungu stúlkur
geröu á íþróttavelli viö Melaskólann í Reykjavík. Voriö hefur hlaupiö í þær og sjálfsagt eru þær í boltaleik þó
boltinn sjáist ekki á myndinni.
Robbie lærir á
lúxuskerruna
íslandsvinurinn Robbie Williams er
loksins búinn aö átta sig á því aö ekki
þýðir að vera bílprófslaus í nútíma-
heimi, og orðinn 28 ára. Pilturinn er
líka fluttur tii Los Angeles þar sem
bíllinn er nauðsynlegra líffæri en
sjálfir fætumir, eða að minnsta kosti
ekki síðra. Robbie er byrjaður að læra
og billinn sem hann ekur um i með
ökukennaranum er ekki af verri end-
anum, lúxuskerra af Jaguar-gerð sem
hann keypti sérstaklega til þess ama.
Ef Robbie ætlar sér að aka bfl
heima á Englandi verður hann að
gera allt upp á nýtt því þar gilda am-
erísk ökuskírteini bara í eitt ár.
Maður lifandi
Wgmm
Einkennilegir siðir
Tíbrártónleikar Unglingakórs Snælandsskóla:
Sungið um kæra Kópavog
Unglingakór Snælandsskóla held-
ur tónleika í Salnum á morgun, 11.
maí, á afmælisdegi Kópavogs. Tón-
leikamir eru hluti af Tíbrártón-
leikaröð Salarins og hefjast kl. 17.
Þar verður meðal annars frumflutt
lagið Kæri Kópavogur, eftir Ólaf B.
Ólafsson tónmenntakennara en
hann gaf kómum lagið fyrir
nokknun árum og er vel viðeigandi
að frumflytja það á afmælinu.
íslensk tónlist frá ýmsum tímum
verður stærsti hluti efhisskrárinnar
en einnig mun kórinn syngja nokk-
ur erlend lög á frummálunum, svo
heyrast munu fimm tungumál, auk
íslenskunnar. Það eru norska,
sænska, þýska, enska og hebreska. í
kómum eru um þrjátíu unglingar á
aldrinum 12-16 ára og stjómandi er
Heiðrún Hákonardóttir.
Kórinn hefur æft af kappi undan-
farið, meðal annars vegna Þýska-
landsferðar i lok júní, á tónlistarhá-
tíðina Touch the Future. Hún verð-
ur haldin í Dannstadt Schauem-
heim, skammt frá Heidelberg og
stendur í sex daga. Þangað munu
Ungllngakór Snælandsskóla, ásamt stjómanda og undirieikara
Tónleikarnir um helgina eru góöur undirbúningur undir Þýskaiandsferöina í
sumar sem veröur fjóröa ferö kórsins til útlanda á sex árum.
koma bama- og ungmennakórar frá
ýmsum Evrópuþjóðum, auk
Kanada. Að sögn Heiðrúnar söng-
stjóra verður líka á svæöinu
kanadískur „kóreógraf', John Jac-
obson að nafni, sem leiðbeinir fólki
í sviðsframkomu. „Hjá honum snýst
allt um aö hreyfa sig, en ekki aö
standa uppstfllt, eins og við höfum
vanist. Það er breitt bil milli tónlist-
arinnar sem krakkamir syngja í
kómum og þeirrar sem þau hlusta
mest á dagsdaglega og kannski tekst
John að brúa að einhverju leyti það
bil,“ segir hún og hlakkar til að
fylgjast meö æfmgunum.
-Gun.
Charlotte á aft-
urenda ársins
Velska söngkonan Charlotte
Church á afturenda ársins meðal
kvenna, að mati þeirra sem best tfl
þekkja og greiða um það atkvæði.
Söngkonan viðurkennir að hún sé
stolt af afturendanum, enda hafi hún
nú þroska til að meta þrýstinn boss-
ann, enda orðin sextán ára.
„Ég er hrifm af afturendanum á
mér. Hann er hvorki magur né flatur
en mér finnst það ailt i finasta lagi.
Mér finnst bakhlutinn á mér flottur,
hvað svo sem aðrir hafa um það að
segja," segir söngkonan unga í viðtali
við Sky sjónvarpsstöðina.
Charlotte er vinsæl mjög og hefur
selt tíu milljónir hljómplatna um
gjörvalla heimsbyggð-
ina.
Ég stóð í biðskýl-
inu einn daginn.
Einu af þessum
strætóbiðskýlum sem
skýla manni hvorki
fyrir regni né vind-
um. Ég bölvaði R-list-
anum i hljóði fyrir að
hafa fallið fyrir hönn-
un sem lítur sjálfsagt
vel út á pappír en ger-
ir ekkert gagn í raun-
veruleikanum. Ég
bölvaði samt ekki
lengi. Þetta var nefni-
lega í umburðar-
lyndisvikunni. Svo ég
reyndi bara að hafa
skilning á yfirborðs-
mennsku R-listans.
í skýlinu voru tveir unglingspilt-
ar, heldur ólánlegir eins og karl-
menn eru venjulega á þessum aldri,
bólugrafnir, folir og væskilslegir.
Ég held að þeim hafi leiðst biðin eft-
ir strætó og liklega var það þess
vegna sem þeir tóku upp á því að
hrækja. Þetta var heilmikil ser-
emónía. Þeir skiptust á einhverjum
orðum og síðan hrækti annar
þeirra. Þegar sá hafði hrækt leit
hann á félaga sinn sem sagði ein-
hver orð og hrækti síðan. Svona
hræktu þeir hvor í kapp við annan
í þær sjö mínútur sem við biðum
saman eftir strætó. Þegar strætó
birtist horfðu þeir stoltir á sletturn-
ar sem voru um allt skýlið. Þetta
var mjög frumstætt allt saman.
Minnti á lögmál frumskógarins þar
sem dýrin merkja sér sin svæði og
verja þau af grimmd.
Ég var að hugsa um að segja eitt-
hvað, eins og til
dæmis að benda
þeim á að þessar
hrækingar væru
sóðalegar. Segja
kannski: ■ „Gerið
þið þetta heima hjá
ykkur?" Dálítið
kennslukomfleg
spurning, yfirlætis-
leg og fýluleg í
senn, og kannski
ekki við hæfi í um-
burðarlyndisvik-
unni. Og ef foreldr-
ar geta ekki kennt
bömum sínum
góða siði eiga þá
kellingar úti í bæ
að snúa sér að því verkefni í frítíma
sínum i biðskýlum? Ég held bara
ekki. Svo er það nú bara þannig að
maður sér oft á fólki hvort það
nennir að hlusta á mann eða ekki.
Ég sá á þessum drengjum að þeir
væm fremur lítið fyrir að hlusta.
Nú vom þessir tveir unglingspilt-
ar ekkert ffábrugðnir öðrum piltum
á þeirra aldri. Bærinn er nefnilega
fullur af hrækjandi unglingspiltum.
Ég á erfitt meö að venjast því að
„Ég stóð í biðskýlinu
einn daginn. Einu af
þessum strœtóbiðskýlum
sem skýla manni hvorki
fyrir regni né vindum. Ég
bölvaði R-listanum í
hljóði fyrir að hafa fallið
fyrir hönnun sem lítur
sjdlfsagt vel út á pappír
en gerir ekkert gagn í
raunveruleikanum. Ég
bölvaði samt ekki lengi.
Þetta var nefnilega í um-
burðarlyndisvikunni. “
mæta þeim þar sem þeir em hrækj-
andi í allar áttir. Ég er sennilega
ekki nógu umburðarlynd. Svo er
það nú líka svo að ég botna bara
ekkert í þessum sið ungra karl-
manna að hrækja í allar áttir. Getur
ekki einhver atferlisffæðingur út-
skýrt þetta fyrir mér?