Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2002, Síða 29
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002
29
Stofnað: 1928.
Heimavöllur: Akureyrarvöllur.
kur 2000 manns. Opin stúka fyrir 600
tekkjum og stæði í grasbrekku. Þórs-
ar fengu 738 áhorfendur að meðaltali
eik sumarið 1994.
’.andsmeistaratitlar: 1 (1989).
•sti árangur i bikarnunu í bikarúr-
taieikinn 1992 og 2001.
ærsti sigur i tiu liða efstu deild: 6-0
/101 1987.
cersta tap i tiu lióa efstu deild: 0-5
gn ÍA 1978, 0-5 gegn Keflavík 1978 og
3 gegn Val 1978.
Flestir leikir í efstu deild: Erlingur
Kristjánsson 127, Steingrímur
Birgisson 114 og Ormarr Ör-
lygsson 102.
Flest mörk i efstu deild:
Þorvaldur Örlygsson
19, Anthony Karl
Gregory 14 og
Ormarr Ör-
lygsson 13.
DV-Sport telur nú dagana þar til
Símadeildin hefst 20. maí næstkom-
andi. Fram að því munum við birta
spá blaðamanna DV-Sport um loka-
stöðuna í haust og í dag er komið
Árangur í efstu deild: 201 leikur, 58
sigrar, 51 jafiitefli og 92 töp. Markatalan
er 233-307.
að 8. sætinu.
KA-menn lenda í áttunda sætinu:
Akureyri á
kortiö á ný
DV-Sport bíður spennt eftir að Is-
landsmótið í knattspyrnu heflist að
nýju og mun í næstu sjö tölublöðum
telja niður fram að móti. Blaðamenn
DV-Sport hafa spáð og spekúlerað í
styrkleika og veikleika
liðanna og út úr þeim
rannsóknum hefúr ver-
ið búin til spá DV-
Sport fyrir sumarið.
Fram að móti mun-
um við birta hana, eitt
lið bætist við á hverj-
um degi. Við hefjum
leikinn á botnsætinu
og endum síðan á þvi
að kynna það lið sem
við teljum að muni tróna á toppi
Símadeildar karla þegar flautað verð-
ur til leiksloka í haust.
Við metum nokkra þætti hjá hverju
liði og gefúm einkunn á bilinu 1 til 6
eins og sjá má sem hlið á teningi hér
á síðunni.
I áttunda sætinu hjá okkur eru ný-
liðar KA-manna. KA-menn voru
nærri því búnir að klúðra því að kom-
ast upp í fyrra eftir sannfærandi
frammistöðu framan af sumri en þeir
tryggðu sér úrvalsdeildarsæti í loka-
umferðinni. KA-menn höfðu mátt bíða
í tíu ár eftir úrvalsdeildarsæti og góð
frammistaða í 1. deildinni árið á und-
an og í bikarkeppninni á síðasta ári
sýnir að KA-menn eru tilbúnir að
beijast í hópi þeirra bestu.
Þorvaldur Örlygsson kom heim að
nýju í fyrra og gerði útslagið og það
var ljóst af leik liðsins í bikarkeppn-
inni þar sem þeir slógu út tvö úrvals-
deildarlið og töpuðu fyrir því þriðja í
vítaspymukeppni að
liðið stóðst vel saman-
burðinn við efstu deúd.
En nú bíður KA-
mönnum það verkefni
að festa sig í sessi í
efstu deild að nýju.
Liðið hefur nánast
ekkert breyst frá sfð-
asta tímabili og ætti
Þorvaldur að vera vel
með á nótunum hvað
hann hefur í höndunum. Viðbótin er
einkum í Þórði Þórðarsyni markverði
sem styrkir liðið mikið.
KA-menn fögnuðu íslandsmeist-
aratitlinum fyrir 13 árum en síðan þá
hefur liðið mátt þola mikla niður-
sveiflu líkt og nágrannamir i Þór.
Hvort liðunum tekst að koma Akur-
eyri á knattspymukortið á nýjan leik
er óvíst en að mati DV-Sport eru KA-
menn með sterkara lið og því líklegir
sem eitt spútnikliða sumarsins.
Það má ekki gleyma því að KA-
menn hafa þrjá af skemmtilegri sókn-
armönnum deOdarinnar; Dean Mart-
in, Hrein Hringsson og Þorvald Mak-
an Sigbjömsson, allt menn sem
þekkjast vel og kunna að opna vamir
mótherjanna. -ósk/ÓÓJ
Síðustu átta ár:
1994: .
1995: .
1996: .
1997: .
1998: .
1999: .
2000: . . . 3. sæti í 1. deild
2001: .
Hvað segja KA-menn um spá DV-Sport
„Það er bara þannig að nýliðum í efstu deild er sjaldnast spáð góðu gengi.
Við höfum verið í tíu ára útlegð frá efstu deild og emm ekki með reynt lið.
Við höfum æft vel í vetur og reynt að undirbúa okkur sem best fyrir átökin
í sumar. Þetta verður barátta upp á líf og dauða í hveijum leik hjá okkur og
við vitum ekki alveg hvar við stöndum gagnvart sterkum andstæðingum. Við
þurfum að sleppa við meiðsli og hafa hæfílegan skammt af heppni með okkur
til að dæmið gangi upp,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari KA.
Markið
Þórður Þóróarson er
+ sterkur markvörður með
mikla reynslu og hann
varði mark Valsmanna vel
í fyrra. Góður einn á móti einum og
gerir fá mistök. Hugrakkur, skapmik-
ill og lætur vel í sér heyra.
Þórður er ekki hávaxinn
— og gæti því átti í vandræð-
um með fyrirgjafir. Þórður
á það til að láta skapið hlaupa með
sig I gönur og missa ein-
beitinguna.
Vörnin
KA liggur örugglega aftar-
+ lega með marga menn og
Slobadan Milisic og
Steinn V. Gunnarsson eru
sterkir að veijast á stuttu svæði. KA-
vömin fékk aðeins fimm mörk á sig í
átta deildarhhbikarleikjum.
___ Að sama skapi em þeir Mil-
isic og Steinn ekki
nægilega fljótir og mega ekki lenda í
að dekka stór svæði. Liðið gæti átt í
erfiðleikum í fostum
leikatriðum sökum
skorts á hæð.
Gengi KA í
vormótunum
Leikmanna-
Hópurinn
Deildabikarinn:
17. febrúar........Reykjaneshöll
KA-ÍBV......................3-1
Þorvaldur Makan Sigurbjömsson 2,
Hreinn Hringsson.
KA vann 3-0 þar sem ÍBV notaði
ólöglegan leikmann.
23. febrúar........Reykjaneshöll
KA-Grindavik.................5-0
Þorvaldur Makan Sigurbjömsson 2,
Elmar Dan Sigþórsson 2, Hreinn
Hringsson.
2. mars ............ReykjaneshöU
KA-Fram......................4-2
Hreinn Hringsson 2, Ásgeir
Ásgeirsson 2.
16. mars ...........ReykjaneshöU
KA-Þróttur ..................1-1
Kristján Sigurðsson.
7. april....Gervigras i Laugardal
KA-Valur.....................1-1
Elmar Dan Sigþórsson.
13. aprU ................ÁsveUir
KA-Keflavik .................1-0
Hreinn Hringsson.
20. aprú................KA-vöUur
KA-Dalvlk....................1-0
Öm Kató Hauksson.
Átta liða úrslit
25. aprU .... Gervigras í Laugardal
KA-ÍA .......................O-l
KA lék átta leiki, vann fimm, gerði
tvö jafntefli og tapaði einum.
Markverðir:
I. Þórður Þórðarson .......31 árs
12. Árni K. Skaftason .....23 ára
Varnarmenn:
3. Hlynur Jóhannsson.........31 árs
5. Slobodan MUisic ........36 ára
6. Kristján Sigurðsson.......22 ára
7. Steinn Viðar Gunnarsson . 26 ára
Miðiumenn:
4. Dean Martin.................30 ára
8. Ásgeir Ásgeirsson ......30 ára
II. Steingrímur Eiösson . . . . 30 ára
14. Róbert Ragnarsson.....28 ára
16. öm Kató Hauksson..........20 ára
17. Júlíus Tryggvason........36 ára
18. Sigurður Skúli Eyjólfsson 19 ára
20. Þorvaldur örlygsson .... 36 ára
Sóknarmenn:
9. Þorvaldur Makan........28 ára
10. Hreinn Hringsson ......28 ára
15. Elmar Dan Sigþórsson . . . 20 ára
19. Jóhann Helgason.......18 ára
Þiálfari:
Þorvaldur Örlygsson.......36 ára
Aðstoðarbiálfari:
Erlingur Kristjánsson.....40 ára
Farnir: Enginn.
Komnir: Júlíus Tryggvason frá Þór
A., Þórður Þórðarson frá Val.
ISpÖrt sP^r í Símadeild karla í sumar:
Sóknarmennirnir
Hreinn Hringsson
og Þorvaldur
Makan voru
sjóöandi heitir í 1.
deildinni í fyrra. Ná
þeir aö endurtaka
þaö í Símadeildinni
í sumar?
Sport
M iöjan
Reynsluboltamir Þorvald-
-j- ur Örlygsson og Ásgeir
Ásgeirsson vita um hvað
þetta snýst og Dean Martin er stór-
hættulegur í upphhlaupum sínum
upp hægri kantinn. Ungir og frískir
strákar eins og Elmar Dan gætu
sprungið út í sumar.
__ Þorvaldur hefur ekki
spilað einn einast leik í vor
og hann er sá eini af miðjumönnum
liðsins sem hefur
sannað sig i efstu deild.
Sóknin
Hreinn og Þorvaldur
J- Makan hafa báðir reynslu
og hafa sannað sig sem
markaskorarar í efstu
deild. Samvinna þefi-ra síðasta sumar
var góð og saman gerðu þeir 26 mörk.
— Hrein skortir tækni og það
er spuming hvort að hann
fær þau svæði í sumar sem
hann nýtti sér svo vel í 1. deildinni í
fyrrasumar.
jbi
Bekkurinn
KA-menn hafa unga stráka
sem em liklegir til að
T- nýtast þeim af bekknum.
Þorvaldur hefur leyft
öðrum að spila I vor til að
virkja stærri hóp fyrir átök
sumarsins.
— KA-menn hafa ekki fengið
leikmenn til liðs við sig til
að auka breiddina. Vamarmenn
liðsins eru aðeins skráðir fjórir og
því má ekkert út af bera.
tf I
Þjálfárinn
Þorvaldur hefur mikla
reynslu eftir langan at-
vinnumanna- og landsliðs-
feril og kom KA upp í
efstu deild á fyrsta ári eitthvað sem
fyrirrennarar hans hafi mistekist í
rétt tæpan áratug. Hefúr einn
þjálfara í deildinni tækifæri til að
hafa bein áhrif inn á völlinn sem
spilandi þjálfari.
_ Sem spilandi þjálfari
gæti álagiö orðið mikið á
Þorvaldi ekki síst þar sem
miðja liösins gæti komið til með aö
standa og faila með hans reynslu og
útjsónarsemi. Er jafnframt á sinu
fyrsta ári í efstu deild
með óreynt lið.
Að auki
KA-menn em gulir og
-L. glaðir og stuðningsmenn
liðsins hafa jafnan verið
duglegir að styðja við
bakið á sinum mönnum, hvort sem er
fyrir sunnan eða norðan. Árangur
liðsins í bikarkeppninni og
íslandsmeistaratitillinn 1989 er afrek
sem hægt er að byggja á og sýna bæði
að félagið hefur alla burði til að koma
Akureyri aftur á knattspymukortið.
Liðsandinn ætti að vera góður eftir
frábært gengi á öllum sviðum á
síðasta ári.
KA býr við erfiðar
aðstæður, bæði hvað varöar
aðbúnað og fjármagn. Ólíkt
liðunum fyrir sunnan hefur KA ekki
frekar en Þór aðgang að
knattspyrnuhöll og æfingar liðsins
hafa því mátt fara fram í snjó, kulda
og bleytu í vetur.
AI
f'j ■iKn'úik*A
ISport -stig: 19