Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Síða 9
9
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 ____________________________________________________________
DV______________________ ______________________________________________________________________________________________________Viðskipti
Umsjón: Vidsklptablaðið
Eitt hundrað liðsheildarferðir
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 6.300 m.kr.
Hlutabréf 2300 mkr.
Bankavíxlar 1800 mkr.
MEST VIÐSKIPTI
0 Eimskip 1000 mkr.
0 Búnaðarbankinn 376 mkr.
0 Pharmaco 190 mkr.
MESTA HÆKKUN
© Skagstrendingur 8,3%
0 Pharmaco 4,7%
© Aco-Tæknival 3,6%
MESTA LÆKKUN
© Nýherji 3,4%
© Samherji 1,9%
© Þormóður rammi-Sæberg 1,7%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.282 stig
- Breyting © 0,31 %
Atvinnu-
leysið
minnkar
Atvinnuleysið í apríl var 2,6%
og minnkaði frá því i mars þegar
það nam 2,7%. 1 aprílmánuði síð-
astliðnum voru skráðir 81.193 at-
vinnuleysisdagar á landinu öllu
sem jafngildir því að 3.692 manns
hafi að meðaltali verið á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum.
Atvinnuleysið eykst á höfuð-
borgarsvæðinu, á Vestfjörðum og
á Suðurlandi en minnkar annars
staðar. Það er nú meira en í aprU
í fyrra á öllum atvinnusvæðum
nema á Norðurlandi vestra, Aust-
urlandi og Suðurlandi. Atvinnu-
leysi kvenna eykst um 2,2% en at-
vinnuleysi karla minnkar um
2,1%. Þannig fjölgar atvinnulaus-
um konum um 40 milli mars og
apríl og atvinnulausum körlum
fækkar um 40. Atvinnuleysið er
mest á Norðurlandi eystra, 3%, og
á höfuðborgarsvæðinu, 2,9%, en
minnst á Vestfjörðum, 1,6%, Norð-
urlandi vestra, 1,8%, og Suður-
landi, 1,8%. Atvinnuleysi kvenna
er minnst á Vestfjörðum, 1,9%, og
Norðurlandi vestra, 2,1%, en mest
á Norðurlandi eystra, 3,5%, og á
Vesturlandi, 3,3%. Atvinnuleysi
karla er mest á Norðurlandi
eystra, 2,7%, og á höfuðborgar-
svæðinu, 2,6%, en minnst á Suð-
urlandi, 1,2%.
Yfirleitt batnar atvinnuástandið
frá apríl til maí. Undanfarin 10 ár
hefur atvinnuleysið minnkað að
meðaltali um 7,8% frá apríl til
maí. Líklegt er að atvinnuleysið í
mai minnki og verði á bilinu 2,2%
til 2,5%.
Íd=Ut-i!iM____________16. 05.2002 kl. 9.15
KAUP SALA
KAUP SALA
HÍDollar 91,390 91,850
KiSpund 133,180 133,860
14'Bkan. dollar 58,680 59,040
3Dönskkr. 11,1980 11,2600
HHNorsk kr 11,0530 11,1140
CSsænsk kr. 9,0240 9,0740
77] Sviss. franki 57,1700 57,4800
[•Jjap. yon 0,7159 0,7202
{^ECU 83,2567 83,7570
SDR 116,3100 117,0100
Á dögunum var farin liðsheildar-
ferð númer 100 hjá Pricewaterhou-
seCoopers á íslandi en það voru
starfsmenn Sjóvár-Almennra trygg-
inga hf. sem fóru í hana. Tilgangur
með slíkum ferðum er að skapa enn
sterkari liðsheild hjá fyrirtækjum
með því að fá ólíka starfsmanna-
hópa til að vinna saman og um leið
efla tengsl þeirra sín í milli.
Að þessu sinni var farið að Bás-
um í Ölfusi en rúmlega 150 starfs-
menn tóku þátt i henni. Fyrirmynd-
in að slíkum námskeiðum er sótt til
Bandaríkjanna og Evrópu og byggj-
Fiskafli eykst
milli ára
Heildaríiskafli í apríl síðastliðn-
um var 68.676 tonn samanborið við
25.483 tonn fyrir sama mánuð í
fyrra. Munurinn nemur rúmum
43.000 tonnum en helsta ástæða
þessa mikla mismunar er að lítil
sjósókn var i aprílmánuði í fyrra
vegna verkfalls sjómanna.
Heildarafli landsmanna fyrstu
fjóra mánuði ársins nemur 1.119.859
tonnum sem er rúmíega 162 þúsund
tonnum meiri en á sama tímabili
síðasta árs. Betri loðnuveiði á vetr-
arvertíðinni 2002 ásamt minni
heildarafla aprílmánaðar 2001 skýra
að mestu þennan mun á milli ára.
Botnfiskafli ársins 2002 er orðinn
164.367 tonn, flatfiskaflinn 11.801
tonn, uppsjávaraflinn 930.173 tonn
og skel- og krabbadýraaflinn 13.335
tonn.
Hagnaður Húsa-
smiðjunnar
57 milljónir
Húsasmiðjan var rekin með 57
milljóna króna hagnaði á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs. í
fréttatilkynningu frá félaginu segir
að afkoman sé í takt við áætlanir,
að frátöldum gengishagnaði vegna
styrkingar krónunnar, en hann
nam um 96 milljónum króna á tíma-
bilinu. Félagið átti því von á tapi af
rekstri fyrsta ársfjórðungs en hann
er jafnan sá lakasti í rekstri Húsa-
smiðjunnar. Veltan nam 1.835 millj-
ónum króna og hagnaður fyrir af-
skriftir nam 81 milljón króna sem
samsvarar 4,5% af vörusölu. Velta
er jafnan meiri á síðari hluta árs,
auk þess sem vörunotkun er jafnan
hagstæðari á því tímabili.
Vörunotkun á tímabilinu var
62,4%, samanborið við 63% á fyrri
helmingi síðasta árs og 61,8% fyrir
árið í heild. Þessi samanburður á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs og öllu
síðasta ári gefur hins vegar villandi
mynd af rekstrinum þar sem tekj-
umar eru sveiflukenndar á meðan
launakostnaður og annar rekstrar-
kostnaður er fastim. Laun og launa-
tengd gjöld námu 380 milljónum
króna sem er svipað og á þriðja árs-
fjóröungi siðasta árs. Annar rekstr-
arkostnaður nam 248 milljónum
króna, sem er 20 milljónum króna
lægra en ársfjórðungsmeðaltalið
fyrir síðasta ár.
í tilkynningu frá félaginu kemur
fram að reksturinn sé í ágætu sam-
ræmi við rekstraráætlun félagsins,
að gengishagnaðinum slepptum, og
séu því ekki horfur á öðru en að af-
koman fyrir árið í heild verði í takt
við áætlanir.
ast þau á rannsóknum og greiningu
á lykilþáttum í rekstri fjölmargra
fyrirtækja sem náð hafa framúr-
skarandi árangri. Hver og ein ferð
er aðlöguð að hverju fyrirtæki fyrir
sig og byggist á fræðilegri umfjöllun
ásamt ögrandi verkefnum í is-
lenskri náttúru. Það var Svali H.
Björgvinsson frá Pricewaterhou-
seCoopers sem stýrði hópstarfinu
að þessu sinni en ferðin þótti heppn-
ast sérlega vel.
Hópurinn
Aö þessu sinni var fariö aö Básum í Ölfusi en rúmlega 150 starfsmenn tóku þátt í henni.
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera
skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15.
maí 2002, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2002 og önnur
gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í gjalddaga til og með 15.
maí 2002 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli,
áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu
árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu
söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af
skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum,
búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum
og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og
verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi,
fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignar-
skattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, þróunarsjóðsgjald,
kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og
skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu
skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan
kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert
fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk
útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst
til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að
starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er
skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af
ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Reykjavík, 16. maí 2002.
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum