Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002
Fréttir DV
Ábyrgðasjóður launa greiðir kaup við gjaldþrot fyrirtækj
a:
Vísvitandi spilað á kerfið
óviðunandi ástand, segir Guðmundur Ólafsson hagfræðingur
Fjöldi fyrirtækja veröur gjaldþrota í höfuðborginni á hverju ári
Oft veröa starfsmenn aö sækja ógreidd laun sín til Ábyrgöasjóös launa. Sterkar líkur eru á aö þetta kerfi sé
misnotaö og aö mati hagfræöins er slíkt meö öllu óviöunandi.
.Skyldur
vinnuveitenda og
starfsmanna
hljóta að vera
gagnkvæmar. Ef
menn mæta ekki
í vinnu er þeim
bara sagt upp og
ef vinnuveitandi
greiðir ekki laun
þá hættir starfs-
maðurinn. Ef Gyömundur
annar hvor stend- Olafsson.
ur ekki við sínar skyldur þá kemur
mér, þriðja aðila úti í bæ, það ekk-
ert við. Ég á ekki að borga í sjóð til
að tryggja starfsmanninnum laun.
Þetta eru bara niðurgreiðslur sem
leiða til þess að menn fara að spila
á þetta kerfí,“ segir Guðmundur
Ólafsson hagfræðingur.
Guðmundur visar þar til þess að
Ábyrgöasjóður launa sé látinn
greiða vangreidd laun gjaldþrota
fyrirtækja. I útvarpsþætti á dögun-
um benti Guðmundur á nýlegt
dæmi úr fjölmiðlaheiminum hér-
lendis og sagði að starfsmenn sem
fengju á endanum ógreidd laun sín
úr Ábyrgðasjóði væru ekkert annað
en ríkisstarfsmenn.
„Menn reka fyrirtæki sem eru í
raun gjaldþrota. Allir starfsmenn-
imir vita um stöðuna en halda
leiknum áfram vegna þess að þeir
vita að þeir fá launin greidd hjá rík-
inu. Allir sem að málinu koma taka
þannig þátt í þessum ljóta leik.
Þetta er auðvitað óviöunandi
ástand.“
Guðmundur segir menn í raun
sofandi fyrir þeim möguleika að rík-
isábyrgð launa sé vísvitandi misnot-
uð. Trúlega stafi þessi trygging upp-
haflega af samanburði á almennum
vinnumarkaði viö þær tryggingar
sem ríkisstarfsmenn hafí. Ástandið
eins og það er i dag sé þó mjög óeðli-
legt.
„Það hefur aukist að menn séu að
hlaupast frá skyldum sínum og
koma þeim yfir á ríkið. Ég tel fulla
ástæðu til þess að þessi mál verði
könnuð betur,“ sagði Guðmundur
Ólafsson.
Fá greitt eftir 3-4 mánuði
Ábyrgð sjóðsins tekur til krafna í
bú vinnuveitanda sem viðurkennd-
ar hafa verið sem forgangskröfur
samkvæmt gjaldþrotaskiptalögum.
Það eru m.a. kröfur launþega um
vinnulaun fyrir siöustu þrjá starfs-
mánuöi hans hjá vinnuveitanda,
launateng gjöld, orlof og vangoldin
lífeyrissjóðsiðgjöld. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Ábyrgðasjóði tekur
það venjulega um þrjá til fjóra mán-
uði frá því krafa er lögð fram þar til
launþegar geta vænst útborgunar á
ógreiddum launum sínum. Geri
vinnuveitandi hins vegar athuga-
semdir við kröfur launþeganna fara
slík mál oft fyrir dómstóla. Getur
slik meðferö tekið allt að eitt til tvö
ár. Þess ber þó að geta að eigendur
og helstu stjómendur fyrirtækja fá
ekki greidd laun úr Ábyrgðasjóði.
Samkvæmt lögum frá 1993
Núverandi fyrirkomulag Ábyrgða-
sjóðs launa var tekið upp með lögum
nr. 53 frá því í maí 1993. Félagsmála-
ráðherra fer með framkvæmd lag-
anna. Ábyrgðasjóðurinn lýtur
þriggja manna stjóm sem skipuð er
af félagsmálaráðherra til fjögurra ára
samkvæmt tilnefningu Alþýöusam-
bands íslands, Vinnuveitendasam-
bands íslands og sá þriðji er án til-
nefningar.
Ábyrgðasjóður launa skal vera í
vörslu félagsmálaráðuneytis sem sér
um daglega afgreiðslu og reiknings-
hald sjóðsins í umboði sjóðstjórnar.
I 3. grein laganna segir að
Ábyrgðasjóðurinn skuli fjármagnaö-
ur með sérstöku ábyrgðargjaldi af
greiddum vinnulaunum, þóknun og
reiknuðu endurgjaldi hvaða nafni
sem nefnist.
Ábyrgðargjaldið skal vera allt að
0,2% af gjaldstofni. Hlutfallið skal
ákveðið með reglugerð sem félags-
málaráðherra setur fyrir eitt ár í
senn, að fengnum tillögiun stjómar
ábyrgðasjóðsins. Telst ábyrgðar-
gjaldið til rekstrarkostnaðar fyrir-
tækja og kemur því væntanlega til
frádráttar við ákvörðun skatta á
viðkomandi fyrirtæki. í raun er það
því ríkið sem á endanum leggur til
þessa peninga í formi skattaafslátt-
ar. Skorti ábyrgðasjóðinn reiðufé til
að standa við skuldbindingar sínar
skal ríkissjóður leggja sjóðnum til
þá fjármuni sem til þarf og skoðast
það sem lántaka.
Hluti af þessu máli er það sem
einnig hefur verið nefnt „kennitölu-
flakk." Það er þegar rekstraraðilar
gjaldþrota fyrirtækja stofna ný á
nýrri kennitölu til að halda áfram
rekstri. Þá eru ógreiddar skuldir
fyrra fyrirtækis oft skildar eftir
ásamt ógreiddum launum og tengd-
um gjöldum. Gera bankastofnanir
reyndar ráð fyrir slíkri áhættu í
lánastarfsemi sinni með þvi að
leggja til hliðar fé á sérstaka af-
skriftarreikninga. -HKr.
Landsmót 2002 á Vindheimamelum í Skagafirði:
Glæsihross og gott veður
DVWYNDIR GUNNAR V. ANDRÉSSON
Gert klárt
Þessi Landsmótsgestur var aö undirbúa sig fyrir dýrö komandi daga, en eins
og sést í bakgrunni liggur vel á mannskapnum á Vindheimamelum sem
skörtuöu sínu fegursta í blíöviröinu í gærdag.
Mikið verður lagt upp úr góðri
fjölmiðlun á svæðinu yfir mótsdag-
ana Þannig eru starfræktar hvorki
meira né minna en þrjár útvarps-
rásir sem nást víða um Skagafjörð.
Ein rás verður fyrir hvem völl,
þannig að fólk getur stillt viðtæki
sín á þann völl sem það hefur áhuga
á að fylgjast með atburðum á hverju
sinni. Þá er starfandi ein sjónvarps-
stöð á svæðinu.
Þar verða sýndar myndir frá aðal-
velli, svo og úrslit og auglýsingar.
Heimasíða Landsmótsins verður
einnig vel virk yfir mótsdagana.
Síðast en ekki síst vera Hestar 847.is
með beina útsendingu á Netinu
þannig að ekki á að vera vandkvæð-
um bundið að fylgjast með þeim því
sem fram fer á Vindheimamelum
næstu daga.
í dag hefst mótið á kynbótasýn-
ingum og þá mæta til sýningar 6 og
7 vetra hryssur. Eftir hádegi verður
einnig keppni í ungmennaflokki.
-JSS
DV, VINDHEIMAMELUM:__________________
„Aðstaðan er glæsileg, bæði vell-
ir, veitingaaðstaða, svo og svæði
fyrir mótsgesti," sagöi Gunnar Am-
arsson hrossaræktandni þegar DV
hitti hann á Vindheimamelum í
gær. Þar hafa greinilega verið unn-
in mörg handtök á síðustu vikum og
mánuðum. Verið var að leggja loka-
hönd á undirbúninginn fyrir lands-
mótið sem hófst í morgun. Veðrið
var eins og best varð á kosið, sól-
skin og hiti. Talsvert af fólki var
komið á svæðið, einkum þeir sem
verða þar með hross til sýninga eða
keppni. Menn notuöu góða veðrið til
að kynna hrossunum völlinn og
undirbúa þau fyrir tömina sem
fram undan er.
Gunnar sagöi aðeins eitt valda
vonbrigðum en það væri aðstaðan
fyrir kynbótahrossin. Hún hefði
ekkert breyst sl. tólf ár. Þar hefði
vissulega mátt bæta um betur. „En
burtséð frá því spái ég því að hér
verði glæsihross, prúðmannleg reið-
mennska og gott veður,“ sagði
Gunnar.
Knapar á þlngi
Fjölnir Þorgeirsson knapi sést hér ásamt öörum hestamönnum undirbúa sig
á fundi fyrir reiöar næstu daga, en knapar veröa þar í aöalhlutverki ásamt
helstu gæöíngum landsins.
Fóðurskip fyrir
laxana komið
á Mjóafjörð
Mikil umsvif eru á Mjóafirði um
þessar mundir. Laxeldi Sæsilfurs
hf. hefur fengið gjafapramma sem í
er tölvustýrt fóðurkerfi og neðan-
sjávarmyndavélar. Pramminn tekur
250 tonn af fóðri og úr honum verð-
ur gefið á kvíarnar sem verða alls
20 talsins með milljón seiðum. Á
prammanum er skrifstofa og íbúð
fyrir tvo sjómenn og geta þeir gist
um borð yfir nætur ef þurfa þykir. í
landi eru tvö einbýlishús í bygg-
ingu. Fóðurpramminn var dreginn
hingað til lands af svokölluðum
brunnbát sem Sæsilfur leigir í sum-
ar til að fylla kviarnar af laxaseið-
um en því verki á að ljúka fyrir
haustið og þarf báturinn að fara
nokkrar ferðir til Noregs eftir seið-
unum.
Slátrun á laxi á að hefjast í laxa-
sláturhúsi Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað í haust, í fyrstu allt að 700
tonnum en Sæsilfur hefur leyfi til
að framleiða 4 þúsund tonn á ári og
er með enn stærri tölur i huga þeg-
ar fram í sækir. -GÞ/JBP
Dómur á Akureyri:
Sló inn matvöru í
stað DVD-diska
Tvítug afgreiðslumær hjá Hag-
kaupum á Akureyri hefur verið
dæmd til að greiða skaðabætur til
verslunarinnar eftir að hún lét hjá
líða að skanna vörur sem félagi
hennar keypti i búðinni. Þetta gerð-
ist f maí í fyrra og var um að ræða
fimm myndbandspólur, einn geisla-
disk og þrjá DVD-mynddiska. Með-
ákærði, 19 ára gamall Vopnfirðing-
ur, hafði þessar vörur úr verslun-
inni að verðmæti 20.391, en i stað
dýru varanna skannaði afgreiðslu-
stúlkan inn ódýra matvöru sem hún
hafði geymt við afgreiðslukassa, að
fjárhæð kr. 675.
Ákærðu játuöu þjófnaöarbrotið
fyrir dómi en Héraðsdómur Norður-
lands eystra segir að með hliðsjón
af skýlausri játningu ákærðu, ung-
um aldri, hreinum sakarferli og at-
vikum máls að öðru leyti þyki rétt
að fresta ákvörðun um refsingu
þeirra beggja og láta refsingu niður
falla að liðnum tveimur árum frá
dómsuppsögu haldi þau almennt
skilorö. Sök tvimenninganna er
metin jöfn. -BÞ
Seðlabankinn:
Hættur skráningu
eldri gjaldmiðla
Seðlabanki íslands hefur hætt að
skrá sérstaklega gengi gömlu evr-
ópsku gjaldmiöla þeirra landa sem
tekið hafa upp evruna. Var opinber
skráning Seðlabanka íslands á þess-
um gjaldmiðlum lögð af frá og með
gærdeginum, 1. júlí 2002. Þar er um
að ræða austurrískan skilding,
belgíska flórínu, finnskt mark,
franskan franka, gríska drökmu,
hollenskt gyllini, írskt pund, ítalska
líru, portúgalskan skúta, spænskan
peseta og þýskt mark. Seðlabanki
Evrópu birtir á vefsíðu sinni reikni-
stuðla sem notast má við þegar
reikna þarf út gengi eldri gjaldmiðla
út frá gengi evru, Þessir stuðlar eru
nú birtir á vefsíðu Seðlabanka ís-
lands, sedlabanki.is. -HKr.