Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Qupperneq 12
12
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002
DV
REUTERSMYND
Ráðherrar á ársfundi
Binyamin Ben-Eliezer landvarnaráð-
herra og Shimon Peres utanríkisráð-
herra á ársfundi ísraelska Verka-
mannaflokksins í gær.
israelar fagna
drápi á sprengju-
manni Hamas
ísraelsk stjómvöld sögðu í gær að
þau hefðu gert skæruliðasamtökun-
um Hamas mikla skráveifu með því
að drepa helsta sprengjusérfræðing
þeirra. Manninum var gefið að sök
að bera ábyrgð á dauða rúmlega eitt
hundrað ísraelskra borgara.
Palestinumenn kölluðu drápið
morö og Hamas-liðar hétu að koma
fram hefndum.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, sagöi að stjórn hans væri
byrjuð að ræða friðartilraunir í
framtíðinni. Hann neitaði þó að
greina nánar frá viðræðunum.
Á ársfundi Verkamannaflokksins
sem hófst í gær hafnaði leiðtogi
hans, Binyamin Ben-Eliezer land-
varnaráðherra, kröfu frá hófsömum
flokksbræðrum sínum um að endi
yrði bundinn á ríkisstjómarsam-
staríið við hinn hægrisinnaða for-
sætisráðherra.
Michael Bloomberg,
borgarstjóri New York.
Varað við árás á
þjóðhátíðardegi
Velflestir embættismenn í Banda-
ríkjunum hafa sagt löndum sínum
að skemmta sér vel á þjóðhátíðar-
daginn 4. júlí um leið og að vera á
varðbergi fyrir hugsanlegum
hryöjuverkaárásum.
Kannanir sýndu að 75% Banda-
ríkjamanna muni ekki forðast stór-
borgir á viö New York og Was-
hington þó svo að 57% finnist það
líklegt að hryðjuverkamenn muni
láta til skarar skríða á þjóðhátíðar-
daginn. Michael Bloomberg, borgar-
stjóri New York, sagði til að mynda
íbúum borgarinnar að sýna hryðju-
verkamönnunum í tvo heimana
með þvi að taka þátt í hátíðarhöld-
um borgarinnar.
Embættismenn segja enn fremur
að upplýsingar um hugsanlegar
árásir 4. júlí streyma inn og því full
ástæða til að vera meövitaður um
ástandið.
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum verður háð á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 52,
Eskifirði, sem hér segir:
Hafþór NK-44, sknr. 6804, þingl. eig.
Jón Einar Valgeirsson, gerðarbeiðandi
Landsbanki íslands hf., höfuðst.,
fimmtudaginn 4. júlí 2002 kl. 9.30.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI
Talið að 71 maður hafi látist þegar tvær flugvélar skullu saman:
Annar flugstjórinn
brást of seint við
Kvöldhiminninn lýstist skyndi-
lega upp í gærkvöldi þegar tvær
flugvélar skullu saman í miðju flugi
yfir Bodenvatni í suðvesturhluta
Þýskalands. íbúar töldu að um eld-
ingu væri að ræða en sáu fljótlega
að um allt annað væri að ræða þar
sem brotajámi rigndi yfir tugkiló-
metra svæði í kjölfarið.
Um var að ræða rússneska far-
þegaflugvél að gerðinni Tupolev 154
annars vegar og þýska vöruflutn-
ingavél hins vegar. Um borð í far-
þegavélinni voru 69 manns, þar af
57 farþegar en samkvæmt fregnum
vora allir nema 5 í þeim hópi, 52
talsins, rúsnesk böm eða táningar,
öll undir 18 ára aldri. Tveir flug-
stjórar, annar breskur og hinn
kanadískur, voru um borð í vöru-
flutningavélinni sem flaug fyrir
DHL hraöpóstsþjónustuna.
Rússnesku ungmenninn vora frá
Bashkortostan-héraðinu, um 1500
kílómetra frá höfuðborginni
Moskvu, á leið til Barcelona þar sem
þau ætluðu að sækja hátíð Menning-
armálastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna. Flest þeirra vora böm vel
staddra einstaklinga en Bashokor-
tostan er þekkt olíuhérað. Ungmenn-
in voru ekki öll í sama skólanum en
komu víðs vegar að úr héraðinu.
Vélarnar voru í 12 þúsund metra
hæð þegar slysið átti sér stað og
vora þær báðar að lækka flug sitt á
þeim tímapunkti. Flugsvæðið yfir
Bodenvatni, sem liggur á landa-
mærum Þýskalands, Sviss og Aust-
urríkis, er undir stjóm svissneska
flugmálaeftirlitsins og segja flugum-
ferðarstjórar að rússneski flugstjór-
inn hafi brugðist of seint við beiðn-
um um að lækka flug sitt. „Við
þurftum að ítreka það tvisvar eða
þrisvar áður en hann lækkaði flug-
ið,“ sagði Anton Maag, starfsmaður
svissneska flugmálaeftirlitsins, á
blaðamannafundi.
Vöruflutningavélin, sem var af
gerðinni Boeing 757, lækkaði flug
sitt þegar búnaður í vélinni varaði
við því að vélin væri i hættu og gaf
fyrirmæli um að lækka flugið. „Ef
vöruflutningavélin hefði haldið
sínu striki hefði aldrei komið til
þessa slyss,“ sagði Maag.
Bashkorian-flugfélagið sagði í
morgun að flugið til Barcelona hafi
komið skyndilega upp þar sem hóp-
urinn frá Bashkortostan hefði misst
af upphaflega fluginu í fyrradag.
„Og þar sem hópurinn var frá því
svæði sinntum við ósk þeirra um
leiguflug," sagði Sergei Rybanoc, yf-
irmaður félagsins í Moskvu.
Hann sagði enn fremur að þýskir
embættistmenn hefðu haft samband
við sig til að tjá þeim að flugmaður
þeirra hefði ekki átt sök á slysinu,
þvert á staðhæflngar svissneskra
flugumferðarstjóra og háttsetts
þýsks embættismanns í samgöngu-
ráðuneytinu, sem staöfesti þá frá-
sögn. Þó er ekkert enn fullvíst og
ekki útilokað aö viðbrögð og fyrir-
mæli á jörðu niðri hafi valdið slys-
inu.
REUTERSMYND
71 maður látlnn
52 rússnesk ungmenni undir 18 ára aldri fórust þegar rússnesk farþegaþota og vöruflutningavél skullu saman yfir
Bodenvatni á landamærum Þýskalands, Sviss og Austurríkis.
Stríðsglæpadómstóll í skugga deilna:
Bandarískir friðargæsluliðar
verða áfram við störf í Bosníu
Fyrsti fasti stríðsglæpadómstóll-
inn tók til starfa í gær í skugga hót-
unar bandarískra stjómvalda um að
draga sig út úr friðargæslu Samein-
uðu þjóöanna. Háttsettir embættis-
menn reyndu þó að gera lítið úr ótta
manna við að friðargæslan kynni að
leggjast af.
Efasemdir voru uppi um friðar-
gæslu SÞ í Bosníu i gær vegna
krafna Bandaríkjamanna um að nýi
stríðsglæpadómstóllinn hefði ekki
lögsögu yfir hermönnum þeirra.
Þeir hótuðu að koma í veg fyrir
gæslustörf á vegum SÞ ef ekki yrði
gengiö að kröfum þeirra.
Paddy Ashdown, æðsti maður SÞ
í Bosníu, sagði hins vegar við
breska sjónvarpið BBC seint i gær-
kvöld að gæslustörfm myndu ekki
leggjast af þótt Bandaríkin kölluðu
hermenn sína heim. Gæsluliðum
Fánar blakta í bosnískrl golu
Fánar Sameinuðu þjóðanna og
Bosníu blakta í golunni við höfuð-
stöðvar SÞ í Sarajevo.
yrði þó gert erfiðara fyrir með slíkri
heimkvaðningu.
„Erfitt verk verður því aðeins erf-
iðara. En gæslustörfin í Bosníu
munu ekki leggjast af,“ sagði Paddy
Ashdown í viðtalinu við BBC.
Talsmaöur NATO og sendiherra
Bandaríkjanna í Bosníu sögðu í gær
að bandarískir hermenn yrðu áfram
við gæslustörf í Bosníu.
Clifford Bond sendiherra fullviss-
aði Bosníumenn um að bandarískir
hermenn yrðu áfram í SFOR, gæslu-
liði NATO, þrátt fyrir hótanir
stjómvalda í Washington um að
kalla heim menn úr lögregluliði SÞ.
Um 2.500 bandarískir hermenn taka
þátt í störfum SFOR.
„Bandarískar hersveitir verða
áfram í Bosníu. Umboð SFOR bygg-
ir á friðarsamningunum frá Day-
ton,“ sagði Bond.
Fossett á leiðarenda
Ekkert benti til
annars í morgun en
aö bandaríska ævin-
týramanninum Steve
Fossett myndi takast
að verða fyrstur
manna til að fljúga
einn síns liðs um-
hverfis jörðina í loft-
belg. Klukkan þrjú í nótt hafði hann
lagt að baki 96 prósent leiðarinnar
og allt var í himnalagi. Búist er við
að hann lendi einhvers staöar i
Ástralíu síðar i dag eða kvöld.
Ásakanir að norðan
Stjórnvöld í Norður-Kóreu saka
Bandaríkjamenn um að hafa svið-
sett sjóorrustu helgarinnar milli
skipa Kóreuríkjanna til að spilla
samskiptum þeirra. Bandaríkja-
menn hafna því alfarið.
Messier fellst á að fara
Jean-Marie Messier, forstjóri fjöl-
miðlafyrirtækisins Vivendi Univer-
sal, féllst í gær með semingi á að
segja af sér eftir að hallarbylting
hafði verið gerð í fyrirtækinu.
Bókhaldið skoðað betur
Ráðamenn bandaríska fjarskipta-
fyrirtækisins WorldCom sögðu í
gær að farið yrði nánar i saumana á
bókhaldi undanfarinna ára í leit að
hugsanlegum mistökum. Fyrirtæk-
ið hefur verið sakað um gífurlegt
bókhaldssvindl og rambar á barmi
gjaldþrots.
Gusmao í Indónesíu
Xanana Gusmao,
forseti Austur-
Tímors, hitti
Megawati Sukamo-
putri Indónesíufor-
seta í Jakarta í
morgun, við upphaf
heimsóknar sinnar
til Indónesíu. Lík-
legt þykir að heimsóknin verði til
að styrkja tengsl hins nýfrjálsa rík-
is við fyrrum kúgara.
Börn látast í rútuslysi
Langferðabíll fullur af leikskóla-
bömum á ferðalagi fór ofan í gil í
Indónesíu í morgun og létust að
minnsta kosti 26 og tugir slösuðust.
Yfirhalningunni frestað
Bandaríkjaþing hefur ákveðið að
fresta yflrhalningu á leyniþjónust-
unni CIA og alríkislögreglunni FBI
þar til stofnað hefur verið ráðuneyti
innanrikisöryggismála.
Ákærður fyrir íkveikju
STuttugu og níu ára
gamall slökkviliðs-
maður í hlutastarfi,
Leonard Gregg, hefur
verið ákærður fyrir að
kveikja skógarelda í
Arizona til að tryggja
sér meiri vinnu. Mað-
urinn situr í gæsluvarðhaldi og verð-
ur leiddur fyrir dómara á morgun.
Reiðir ættingjar
Ættingjar fórnarlamba breska
morðlæknisins Harolds Shipmans
era reiðir yfir áformum ITVl sjón-
varpsstöðvarinnar aö sýna leikna
heimildarmynd um morðin.
Chirac vill nútímavæða
Jacques Chirac Frakklandsforseti
hefur farið fram á það við ríkis-
stjómina að hún standi fyrir nú-
tímavæðingu herafla landsins.