Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Qupperneq 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002
„O’Neill fer ekki neitt“
Skoska liðið Glasgow Celtic hef-
ur ekkert heyrt frá Leeds í
Englandi í tengslum við að síðar-
nefnda liðið vilji fá Martin O’Neill,
stjóra Celtic, til að taka við liðinu.
En eins og kunnugt er sagði stjórn
félagsins upp stjóra síðustu ára,
David O’Leary, fyrir skömmu.
Enn fremur ætla forráðamenn
Celtic að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að halda O’Neill
hjá félaginu. „Ég hef fulla trú á að
Martin muni efna samning sinn að
fullu við okkur,“ sagði Ian
McLeod, framkvæmdastjóri félags-
ins, en O’Neill á enn eftir 1 ár af
samningi sínum.
-esá
Framarinn Omar Hákonarson og KR-ingurinn Jökull Elísabetarson verða í eldlínunni
mætast í 16-liöa úrslitum Coca-Coia bikars KSÍ.
kvöld þegar KR og Fram
DV-mynd: Pjetur
liöa úrslit Coca-Cola bikars karla heQast í kvöld:
A sigurbraut
- Lúkas Kostic, þjálfari Víkings, telur Skagamenn vera komna á skrið
16-liða úrslit Coca-Cola bikars
karla hefjast í kvöld með fjórum
leikjum sem hefjast allir klukkan
19.15.
Leiftur/Dalvík tekur á móti Val á
Ólafsfirði, KR-ingar fá Framara í
heimsókn í Frostaskjólið, Grindvik-
ingar sækja Skagamenn heim á
Akranes og í Kópavogi mætast
Breiðablik og Þór Akureyri.
DV-Sport fékk Lúkas Kostic, þjálf-
ara 1. deildarliðs Víkings, til að spá
fyrir um úrslit leikjanna fjögurra.
Leiftur/Dalvík - Valur
Þessi lið mættust í fyrstu deild-
inni í byrjun móts og þá fóru Vals-
menn með sigur af hólmi, 2-0. Vals-
menn virðast vera með lang-
sterkasta liðið í 1. deOdinni en Leift-
ur/Dalvík er um miðja deild.
„Ég hef trú á því að Valsmenn
fari með nokkuð öruggan sigur af
hólmi. Leiftur/Dalvík er með ágætt
lið sem hefur staðið sig ágætlega
það sem af er móti en Valsmenn
hafa borið höfuð og herðar yfir önn-
ur lið í deildinni. Það er ekki bara
að úrslitin hafi verið þeim hagstæð
heldur hafa þeir lika verið að spila
mjög vel. Þeir eru með frábært lið
sem gæti farið langt í bikarnum,”
sagði Lúkas Kostic.
Breiöablik - Þór Ak.
Gengi Blikanna í 1. deild hefur
verið upp og ofan og það hefur geng-
ið illa fyrir Jörund Áka Sveinsson
að ná stöðugleika í liðið. Þórsarar
hafa átt í töluverðu basli sem nýlið-
ar í efstu deild en unnu glæsilegan
útisigur á Grindavík í síðustu um-
ferð og eru því kannski komnir með
það sjálfstraust sem til þarf.
„Þessi leikur getur farið á báða
vegu. Heimavöllurinn mun koma til
með að hjálpa Breiðabliki en Þórs-
arar sýndu gegn Grindavík að þeir
geta spilað mjög vel. Þeir eru með
eldfljóta sóknarmenn sem eiga eftir
að stríða svifaseinum varnarmönn-
um Breiðabliks," sagði Lúkas.
ÍA - Grindavík
Skagamenn hafa verið á mikilli
siglingu eftir að Bjarki Gunnlaugs-
son gekk til liðs við þá og virðast
mjög óárennilegir, sérstaklega á
heimavelli. Grindvíkingar hafa sýnt
að þeir geta unnið hvaða lið sem er
hvar sem er en þeir hafa einnig
dottið niður á mUli og spilað skelfi-
lega illa. Grindavík vann viðureign
liðanna á Akranesi í lok maí, 3-1, en
fá lítið fyrir þann sigur í kvöld.
„Mér sýnist Skagamenn vera
komnir á sigurbraut og þeir eru
komnir með þá tilfinningu að þeir
séu ósigrandi á heimavelli. Þegar
þeir eru á slíku skriði er erfitt að
stöðva þá og því hallast ég að sigri
Akraness í leiknum. Grindavík er
með marga frábæra leikmenn en
Bjami þjálfari þarf meiri tíma til að
búa til lið eftir sinu höfði,“ sagði
Lúkas.
KR - Fram
KR-ingar hafa verið í toppbarátt-
unni það sem af er þessu tímabili en
Framarar hafa vakið athygli fyrir
skemmtilegan og hraðan sóknar-
leik. Liðin áttust við á KR-velli fyr-
ir tæpum tveimur vikum og þá bar
KR sigur úr býtum í jöfnum leik,
2-0.
„Ég hallast að sigri KR í þessum
leik. KR-liðið hefur mun meiri
reynslu í svona leikjum heldur en
Framarar og hafa þetta. KR-ingar
hafa verið sterkir á heimavelli í
sumar og þrátt fyrir að Framarar
hafi verið að spila góða knattspymu
þá nægir það þeim ekki,“ sagði
Lúka Kostic, þjálfari Víkings í
samtali við DV-Sport í gær. -ósk
Niðurröðun klár í handboltanum:
Maraþonhelgar
- mest áberandi í niðurröðuninni
Handknattleikssamband Islands
hefur gefið út niðurröðun fyrir
ESSO-deildir karla og kvenna næsta
vetur. Þessi niðurröðun er þó ekki
endanleg því félögin hafa frest til 5.
júlí til að gera athugasemdir.
„ESSO-bomban“
Það sem kemur mest á óvart í
þessari niðurröðun er fyrirbæri
sem forkólfar sambandsins kjósa að
kalla „ESSO-bombuna“. Þetta fyrir-
bæri skýtur upp kollinum þrisvar
sinnum í kvennadeildinni og fimm
sinnum í karladeildinni. Þá þurfa
liðin að spila bæði fóstudag og
sunnudag og má búast við því að lít-
il ánægja verði meðal leikmanna af
báðum kynjum með þetta fyrir-
komulag vegna þess gífurlega álags
sem því fylgir að spila tvo leiki á
Bland í poka
Tyrkneski miðjumaðurinn Bulent
Akin hefur gengið til liðs við Guóna
Bergsson og félaga í enska úrvals-
deildarliðinu Bolton en hann skrif-
aðu undir þriggja ára samning við fé-
lagið í gær. Akin, sem er 23 ára gam-
all, er mikils metinn í heimalandi
sínu og lék síðast með Galatasaray
þar sem hann var keyptur frá Den-
izlispor fyrir 650 milljónir króna.
Hollendingurinn Guus Hiddink,
sem kom suður-kóreska landsliðinu í
undanúrslit á nýyfirstöðnu HM í
knattspymu, er nú einn eftirsóttustu
þjálfara í heimi. Hollenska liðið PSV
Eindhoven, sem Hiddink hefur áður
þjálfað, vilja ólmir ráða hann aftur til
félagsins og segjast þeir hafa komist
að munnlegu samkomulagi um aö
þeir fái að ræða við hann fyrst.
Stjórnarmenn liðsins eru vissir um
að þeim takist að semja við Hiddink
um að taka við þjálfun liðsins.
Aöeins einu sinni áður var meðaltal
marka í leik í heimsmeistarakeppni í
knattspymu lægra en á HM í Suður-
Kóreu og Japan. 161 mark var skorað
í 64 leikjum sem gera 2,52 mark í leik.
Árið 1990 var 2,21 mark skorað að
meðaltali í leik en hæst var það árið
1954 þegar 140 mörk vom skorað í 26
leikjum (5,38). -esá
þremur dögum. Forystumenn sam-
bandsins segja í kynningu á niður-
röðuninni að þessar helgar verði
góður undirbúningur fyrir úrslita-
keppnina þar sem leikið verður þétt
og verður ekki lagt mat á þá fullyrð-
ingu hér.
Hart tekiö á frestunum
Forráðamenn sambandsins boða
einnig að frestanir leikja verði tekn-
ar fastari tökum næsta vetur en áð-
ur. Það verða aðeins samgönguerf-
iðleikar og farsóttir sem gilda þegar
fresta á leik og hafa forráðamenn fé-
laganria fengið skýr skilaboð um
þetta efni frá sambandinu.
Hlé vegna HM
Gert er ráð fyrir að hlé verði á
karladeildinni frá 21. desember til 7.
febrúar á meðan landsliðið undir-
býr sig og tekur þátt í heimsmeist-
arakeppninni í Portúgal í janúar á
næsta ári.
Þreföld umferö hjá konunum
Liðin í ESSO-deild kvenna munu
spila þrefalda umferð og alls 27 leiki
sem er ansi mikil framfór frá því í
fyrra þegar þeir voru aðeins 16.
-ósk
Xf l-PEiLD KVENNA
Tlndastóll - Sindri............6-4
Margrét Guðný Vigfúsdóttir 2, Inga
Bima Friðjónsdóttir 2, Hera Birgisdóttir
1, Gyða Valdís Traustadóttir 1 - Jóna
Benny Kristjánsdóttir 3, Karítas Þórar-
insdóttir 1.
Fjarðabyggð - Leiknir F........4-0
Sonja Jóhannsdóttir 2, Sonja Gísladóttir
1, Tinna Rut Guðraundsdóttir 1.
Staðan
Fjarðabyggð 4 3 0 1 16-7 9
Huginn/Höttur 4 2 1 1 12-7 7
Tindastóll 3 2 1 0 10-7 7
Sindri 5 2 0 3 21-11 6
Leiknir F. 4 0 0 4 0-27 0
Létt verk
hjá Venus
Bandariska tenn-
isstúlkan Venus
Williams fagnar
hér léttum sigri á
löndu sinni, Lisu
Raymond, 6-1 og
6-2, á Wimble-
don-mótinu í
tennis. Allt fer á
annan endann í
Englandi þessar
vikur sem keppn-
in fer fram á
hverju ári og fær
væntanlega eng-
inn meiri athygli
en Tim Henman,
sem einnig fagn-
aöi sigri í gær og
gæti orðið fyrsti
Englendingurinn
í áraraðir til aö
fagna sigri í ein-
liöaleik karla.
Reuters