Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLl 2002
27
DV
Sport
Blatter lof-
aði Collina
Sepp Blatter, forseti FIFA, lofaði
ítalska dómarann Pierlugi Collina
fyrir frammistöðu sína í úrslitaleik
HM. Þá sagði hann að frammistaða
evrópsku dómaranna í undanúr-
slita- og úrslitaleiknum hefði verið
til fyrirmyndar og sagði Blatter
hana hafa endurreist þá virðingu
sem dómgæslan verðskuldar um
heim allan. -esá
Troussier vill
þjálfa Frakka
Bæði fyrrum þjálfari Japana,
Philippe Troussier, og fyrrum
landsliðsmaðurinn Alain Giresse
hafa lýst yfir áhuga á að taka við
embætti Rogers Lemerres sem
landsliðsþjálfari Frakka, það er að
segja ef hann ákveður að hætta eða
verður rekinn.
Franska knattspymusambandið
mun taka ákvörðun um málið á
fundi í Lyon á föstudag. -esá
Einn lést í kjölfar taps Þjóðverja í úrslitaleik HM:
Hetjulegar mót-
tökur í Frankfurt
Það var tekið á móti þýska landsliðinu í
knattspyrnu sem þeir væru heimsmeistarar við
komuna aftm' til Þýskalands í gær. Tugþúsund-
ir höfðu safnast saman á Römer torginu í mið-
borg Frankfurt. Það var þó aðeins fyrir mánuði
síðan að liðið hélt utan til Japans og Suður-
Kóreu með nánast engar væntingar þýsku þjóð-
arinnar í farteskinu.
„Ég lft á viðhrögð manna hér í dag og velti
fyrir mér hvernig þetta hefði verið ef við hefð-
um orðið meistarar," sagði stærsta hetjan af
þeim öllum, þjálfarinn Rudi Völler. „Við hefð-
um frekar kosið að snúa aftur sem meistarar,"
sagði hann.
Þó svo að þýskir fjölmiðlar kenndu Oliver
Kahn, markverði liðsins, um tapið fyrir Brasil-
íu í úrslitaleiknum var almenningur með það á
hreinu að það væri ekki mikið við hann að
sakast. „Kahn konungur" stóð á einu skiltinu í
mannhafinu. Og hann kunni að meta það. „Það
sem skiptir fyrst og fremst máli er að við erum
aftur komnir á topp heimsknattspyrnunnar. Við
komum svo aftur eftir fjögur ár og þá kannski
sem heimsmeistarar," sagði Kahn við lýðinn.
Eftir úrslitaleikinn á sunnudag var skiljan-
lega mikið að gera hjá lögreglusveitum landsins
sem handtóku um 800 manns viðs vegar um
landið. Þá drukknaði 39 ára gamall maður þeg-
ar hann reyndi að synda yflr Neckar-ána í
Mannheim.
26 miUjónir Þjóðverja fylgdust með úrslita-
leiknum í sjónvarpi sem er þó ekki met en 33
milljónir horfðu á úrslitaleik Þjóðverja og
Tékka í EM árið 1996. -esá
Oliver Kahn, markvörður þýska landsliðsins, og félagar
hans fengu höfðinglegar móttökur við komuna til
Þýskalands í gær. Hér skálar hann með löndum sínum.
Maradona
segir Brass-
ana heppna
Argentínska goðsögnin Maradona
var eins og honum einum er lagið
yfirlýsingaglaður eftir að hafa séð
úrslitaleik Brasilíumanna og Þjóð-
verja. „Þetta var slakur leikur. Lið
Brasilíu er hópur einstaklinga sem
mynda enga liðsheild. Þeir voru
heppnir að Ronaldo toppaði á rétt-
um tíma,“ sagði Maradona. „Og
þetta var eitt versta þýska landslið
sem ég hef nokkum tímann séð. Úr-
slitaleikurinn var lýsandi fyrir
gæði fótboltans í mótinu."
Þá sakaði hann Pele um að halda
sér fyrir utan „FIFA-fjölskylduna“
eins og hann orðaði það. „Hvemig
stendur á því að ég er fyrst núna á
HM, á síðasta leik mótsins?" sagði
hann en honum var upphaflega ekki
hleypt inn í landið vegna eiturlyfla-
misferla hans. „Það er heimskuleg
ástæða," sagði hann. „Ég skaðaði
engan, bara Maradona." -esá
Drengur hjólar fram hjá styttu af brasilíska fótboltagoöinu Ronaldo á General Cesar Costa götunni f Rio de Janeiro
þar sem Ronaldo er fæddur. Þar eins og annars staðar í Brasilíu er þjóöhátíöarstemning í kjölfar sigursins á HM í
knattspyrnu á sunnudag. Reuters
HM-titlar Brasilíu í tölum
Brasilíumenn eru langsigursælasta knattspymuþjóð heims og um helgina vann þessi ótrúlega knattspymuþjóð fimmta heimsmeistaratitilinn sinn frá upphafi en engri annarri þjóð hefur
tekist að vinna titilinn oftar en þrisvar. Brasilíumenn unnu Julius Rimet-styttuna til eignar 1970 er þeir unnu hana í þriðja sinn á aðeins tólf árum og eftir sigurinn um helgina vantar þá
aðeins einn heimsmeistaratitil til þess að taka aðra styttu úr umferð. Hér fyrir neðan má sjá samanburð á fimm heimsmeistaraliðum Brasiliumanna sem öll hafa skapað sér nokkra sérstöðu
en auk þeirra eiga menn eftir að nefna liðin frá 1950,1982 og 1998 sem öll þóttu hafa það sem þurfti til að vinna heimsmeistaratitilinn. 1950 töpuðu Brasilíumenn úrslitaleik,num gegn Úrugvæ
1-2 á heimavelli, 1982 skildu ítalir þá eftir í milliriðlum og fyrir flórum árum töpuðu Brasilíumenn úrslitaleiknum gegn Frakklandi, 0-3, þar sem þeirra lykilmaður, Ronaldo var óþekkjanlegur
sökum veikinda. -ÓÓJ
1958
Unnu Svíþjóð, 5-2, í úrslitaleik
í Stokkhólmi í Svíþjóð
Leikaðferð: 4-2-4
Sigurhlutfall: 92% (5-1-0)
Fjöldi leikmanna í keppni: 16,
þar af 6 sem léku alla leikina.
Mörk: 16 - 2,67 að meðaltali
Leikir án þess að skora: 1
Markaskorarar:
Pelé 6, Vavá 5, Ma^ola 2, Didi 1,
Nilton Santos 1, Zagalo 1.
Mörk fengin á sig: 4
Leikir haldið hreinu: 4
Þjálfari: Vicente Feola, 49 ára
Meðalaldur: 25,9 ár
Meðalhæð: 173,8 cm
Meðalþyngd: 71,6 kg
Leikmenn sem spila í Brasilíu: 16
Leikmenn sem spila erlendis: 0
Fyrirliði: Bellini, 28 ára
vamarmaður frá Vasco de Gama.
Sijama mótsins: Pelé
sem skoraði 6 mörk í 4 leikjum,
þar af 5 í undan- og úrslitaleiknum.
1962
Unnu Tékkóslóvakíu, 3-1, í úr-
slitaleik í Santiago í Chile
Leikaðferð: 4-2-4
Sigurhlutfall: 92% (5-1-0)
Fjöldi leikmanna í keppni: 12,
þar af 10 sem léku alla leikina.
Mörk: 14 - 2,33 að meðaltali
Leikir án þess að skora: 1
Markaskorarar:
Vavá 4, Garrincha 4, Amarildo 3,
Pelé 1, Zagalo 1, Zito 1.
Mörk fengin á sig: 5
Leikir haldiö hreinu: 2
Þjálfari: Aimoré Moreira, 50 ára
Meðalaldur: 30 ár
Meðalhæð: 174 cm
Meðalþyngd: 70,6 kg
Leikmenn sem spila i Brasiliu: 12
Leikmenn sem spila erlendis: 0
Fyrirliði: Mauro, 32 ára
vamarmaður frá Santos.
Stjama mótsins: Garrincha
sem skoraði 4 mörk í 6 leikjum og
átti þátt í flestöllum mörkum liðsins.
1970
Unnu ítali, 4-1, í úrslitaleik
í Mexíkóborg í Mexíkó
Leikaðferð: 4-3-3
SigurhlutfaU: 100% (6-0-0)
Fjöldi leikmanna í keppni: 16,
þar af 8 sem léku alla leikina.
Mörk: 19 - 3,17 að meðaltali
Leikir án þess að skora: 0
Markaskorarar:
Jairzinho 7, Pelé 4, Rivelino 3,
Tostáo 2, Carlos Alberto 1, Gérson
1, Clodoaldo 1.
Mörk fengin á sig: 7
Leikir haldið hreinu: 1
Þjálfari: Mario Zagalo, 39 ára
Meðalaldur: 25,8 ár
Meðalhæð: 172,7 cm
Meðalþyngd: 71,4 kg
Leikmenn sem spila i Brasilíu: 16
Leikmenn sem spila erlendis: 0
Fyrirliði: Carlos Alberto, 26 ára
bakvörður frá Santos.
Stjama mótsins: Jairzinho
sem skoraði í öllum leikjum liðsins
í keppninni, 7 mörk samtals.
1994
Unnu ítali, 4-3, í vitaspymu-
keppni í úrslitaleik
í Pasadena í Bandaríkjunum
Leikaðferð: 4-4-2
SigurhlutfaR: 86% (5-2-0)
Fjöldi leikmanna í keppni: 18
þar af 8 sem léku alla leikina.
Mörk: 11 - 1,57 að meðaltali
Leikir án þess að skora: 1
Markaskorarar:
Romario 5, Bebeto 3, Raí 1, Márcio
Santos 1, Branco 1.
Mörk fengin á Sig: 3
Leikir haldið hreinu: 5
Þjálfari: Carlos A. Parreira, 49 ára
Meðalaldur: 27,4 ár
Meðalhæð: 178,2 cm
Meðalþyngd: 74,2 kg
Leikmenn sem spila í Brasilíu: 8
Leikmenn sem spila erlendis: 10
Fyrirliði: Dunga, 31 árs
vamartengiliður frá Stuttgart.
Stjama mótsins: Romario
sem skoraði 5 mörk I 7 leikjum og
var valinn maður mótsins.
2002
Unnu Þýskaland, 2-0, í úrslita-
leik í Yokohama í Japan
Leikaðferö: 3-5-2
Sigurhlutfall: 100% (7-0-0)
Fjöldi leikmanna í keppni: 21
þar af 6 sem léku alla leikina.
Mörk: 18 - 2,57 að meðaltali
Leikir án þess að skora: 0
Markaskorarar:
Ronaldo 8, Rivaldo 5, Ronaldinho 2,
Edmilson 1, Junior 1, Roberto Car-
los 1.
Mörk fengin á sig: 4
Leikir haldið hreinu: 4
Þjálfari: Luis Felipe Scolari, 54 ára
Meðalaldur: 26,6 ár
Meðalhæð: 180,1 cm
Meðalþyngd: 73,4 kg
Leikmenn sem spila i Brasilíu: 10
Leikmenn sem spila erlendis: 11
Fyrirliöi: Cafu, 32 ára
bakvörður frá AS Roma.
Stjarna mótsins: Ronaldo
sem skoraði 8 mörk í 7 leikjum,
þar af 2 í úrslitaleiknum.