Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 13. JÚLf 2002
H g /c) a rb la ö DV
25
Hægt er að kaupa smálúðuna í
flökum í flestum fiskbúðum en
Óli Páll kýs að flaka hana
sjálfur.
Frábær matarvín frá
Astralíu og Frakklandi
- er val Birkis Elmarssonar hjá RJG
Að þessu sinni kynnum við einungis hvítvín
enda býður þema síðunnar sannarlega upp á það
auk þess sem sumarlegur og léttur bragur er á
eldamennskunni. Birkir Elmarsson hjá Rolf Jo-
hanson & Co var ekki í vafa um hvaða vín hann
vildi velja með smálúðunni. Hann valdi stórt
matarvín á góðu verði, Penfolds Koonunga Hill
Chardonnay. Penfolds er án efa þekktasti vín-
framleiðandi Ástralíu. Penfolds Koonunga Hill
Chardonnay kemur frá fjórum svæðum í Ástral-
íu, og þeirra þekktust eru Maclaren Valley og
Adelaide HUls. í þessu víni er Chardonnay-þrúg-
an látin halda ferskleika sinum sem þýðir að vín-
ið er aðeins fimm mánuði á eikartunnum. I vín-
inu má finna angan af ferskjum í bland við græn
epli og eikartóna. í bragði vínsins koma fram
hunang, melónur og sæt krydd og grænu eplin
springa fram í lokin. Mjög gott jafnvægi er á miUi
ávaxta og eikar sem gerir þetta vín að frábæru
matarvíni. Vínið passar vel með bragðmeiri fisk-
réttum og kjúklingi.
Sem sagt: Stórt matarvín á góðu verði en flask-
an kostar 1.290 krónur í ÁTVR.
En Birkir vUl ekki sleppa af okkur hendinni án
þess að koma við i Evrópu, nánar tiltekið Alsace-
héraðinu í Frakklandi. Þaðan mælir hann með
Pfaffenheim Tokay Pinot Gris Reserve. Alsace-
héraðið er fyrst og fremst þekkt fyrir að búa til
hvítvín sem eiga það sameiginlegt að vera stór-
kostleg matarvín, hvert á sinn hátt. Pfaffenheim
er fyrirtæki sem kaupir vínþrúgur af mörgum
vínbændum. Slík fyrirtæki hafa á stundum ver-
ið litin hornauga en Pfaffenheim hefur alla
tíð verið þekkt fyrir mikil gæði og er virt-
ur framleiðandi Alsace-vína. Vínin frá
Pfaffenheim eiga það sameiginlegt að
vera mjög einkennandi fyrir héraðið, og
slíkt hlýtur að teljast kostur. Tokay
Pinot Gris-þrúgan einkennist af suðræn-
um ávöxtum og það fullt af þeim eins og an-
anas, mangó og ferskjum. Vinið er sett á
stáltanka en ekki í eikartunnur og vegna
þessa heldur vínið sætu og ferskleika ávaxt-
anna sem þrúgan gefur af sér. Frábært mat-
arvín eins og áður sagði, passar með öllum
betri sjávarréttum, hvítu kjöti, og þolir vel
kryddaðan mat t.d. flestan austurlenskan
mat. Birkir segir frá því til gamans að Al-
sace-búi hafl mælt með því að hann prófaði
Tokay Pinot Gris með villibráð, t.d. gæs.
Hann ætlar sannarlega að láta á þetta reyna
strax í haust.
Pfaffenheim Tokay Pinot Gris Reserve
kostar 1.660 krónur í ÁTVR.
Umsjón
Haukur Lárus
Hauksson