Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2002, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2002, Síða 27
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2002 27 DV Sport Bland i nolca Ef Fylkismenn sigra KR-inga í Síma- deild karla á sunnudag er ljóst aö þeir hafa þar með tryggt sér Islands- meistaratitilinn i knattspymu. Ef svo fer hefur veriö ákveöið aö afhenda þeim íslandsbikarinn að leik loknum, enda eru þeir á heimavelli sínum. Forsvarsmenn Spænska knatt- spyrnuliðsins Villareal hafa rekiö þjálfara sinn, Victor Munoz, en hann kom hingað til lands með liði sínu og mætti FH í Toto-keppninni í sumar. Brottreksturinn kom eftir tap liðsins gegn 3. deildar liði Hercules í bikarkeppni. Liðið hafði auk þess leikið einn leik í deildinni en gerði þá jafntefli við Osasuna. Þessi árangur var meira en forsvarsmenn þoldu og því ráku þeir hinn geðþekka þjálfara sinn. Enn aukast vandræði Skotlands- meistara Celtic, keppnistímabilið hef- ur ekki farið vel af stað hjá liðinu. Liðið varð af sæti í meistaradeild UEFA eftir tap gegn Basel og tapaði fyrsta leik i deildinni fyrir Mother- well. Nú hefur komið í ljós að Johan Mjallby, sem hefur leikið stórt hlut- verk í vörn Celtic, verður ekkert með næstu þrjá mánuði vegna meiðsla á hné og þarf hann að gangast undir að- gerð. Knattspyrnudómari frá Equador hef- ur verið dæmdur í 20 leikja bann í efstu deild í heimalandi sínu. Ástæðan er sú að hann framlengdi leik um 13 mínútur sem gerði það að verkum að liðið sem var undir í leiknum náði að skora tvö mörk á þessum tíma og vinna leikinn. Grunur leikur á að hann hafi gert þetta viljandi þar sem hann hyggi á framboð til borgarstjóm- ar i heimaborg liðsins sem stóð uppi sem sigurvegari að lokum. Dómarinn var einfaldlega á atkvæðaveiðum. Enska knattspyrnusambandið hef- ur tUkynnt að það muni ekki hegna Thierry Henry vegna atviks sem upp kom í leik Arsenal og Man. City á mánudag. Þegar Henry fagnaði marki tók hann keppnistreyju sína og togaöi hana upp fyrir höfuð, þannig að í ljós komu skilaboð á peysu sem hann hafði undir keppnistreyjunni. Þar var hann að tUeinka markið barni vinkonu sinnar, eða eins og á bolnum stóð „For the new bom kyd“. Enska sambandið mun veita leik- manninum tUtal, það er þó spuming hvort ekki ætti að fylgja létt ensku- kennsla með þar sem stafsetningin á orðinu kyd er örugglega ekki sam- kvæmt bókinni. 1. deildar lið Vals í handknattleik er komið heim frá Spáni þar sem liðið tók m.a. þátt í fjögurra liða móti í Barcelona. Valsmenn léku þar gegn GranoUers frá Spáni og frönsku lið- unum Toulouse og Cretei. Valsmenn töpuðu öUúm leikjum sínum en að sögn Geirs Sveinssonar, þjálfara Vals, tókst ferðin engu að síður vel í aUa staði. Gylfi Orrason dæmdi leik KA og Fylkis í bikarkeppninni I gærkvöldi. Það líður ekki á löngu þar til hann mætir Fylkismönnum að nýju þvi hann dæmir leikinn gegn KR í Síma- deUdinni á sunnudag. Haukum og ÍBV er spáð íslandsmeistaratitlum í handknattleik: Stefnum hátt - segir Halldór Ingólfsson, fyrirliði Hauka, sem hafa titilinn að verja Handknattleiksvertíðin hefst fyr- ir alvöru á fostudaginn kemur en þá verður flautað til leiks í 1. deild kvenna og daginn eftir hefja liðin í 1. deild leik sinn. Á kynningarfundi með íþróttafréttamönnum i gær var kunngerð spá sem fyrirliðar og þjálfarar í karla- og kvennaflokki tóku þátt í og kom í ljós að Haukum er spáð íslandsmeistaratitli í 1. deild karla og ÍBV í 1. deild kvenna. Það má ljóst vera að keppnin í 1. deild karla verður spennandi ef marka má spána. Haukamir fengu bestu kosninguna með 304 stig í efsta sætinu. Valsmönnum er spáð öðru sæti og fengu 298 stig í spánni. Gróttu/KR er spáð þriðja sætinu, ÍR því fjórða og í næstu sætum koma ÍR, HK, FH, Þór, KA, Afturelding, Fram, ÍBV og Stjaman. Víkingur og Selfoss vo/u sett í tvö neðstu sætin. Flest liðin hafa farið í gegnum tölu- verðar mannabreytingar og KA, sem er núverandi íslandsmeistari, hefur ekki farið varhluta af því og er liðinu spáð áttunda sætinu. í kvennaflokki er því spáð að bar- áttan um titilinn komi til með að standa á milli ÍBV og Hauka. Eyja- stúlkur fengu 159 stig í spánni en Haukar koma i humátt á eftir, þeir fengu 151 stig. Vikingar hreppa þriðja sætið samkvæmt spánni og Stjaman það fjórða. í næstu sætum koma FH, Grótta/KR, KA/Þór, Fram og Fylkir. Halldór Ingólfsson, fyrirliði Hauka, sagði í samtali við DV gam- an að sjá að liði þeirra væri spáð góðu gengi í vetur en þetta væri þó meira til gamans gert. „Það er ekkert launungarmál að við Haukarnir stefnum hátt og langt í vetur og við ætlum að reyna að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til liðsins. Mér sýnist þó á öllu að deildin gæti orðið jafnari i vetur en oft áður en nokkur lið mæta nú til leiks þó nokkuð öflugri en á síðasta tímabili. Ég reikna með skemmti- legu móti og hlakka mikið til að al- varan hefjist. Ég held að áhuginn fyrir handboltanum í vetur eigi eft- ir að verða töluverður og auk deild- arinnar eigi heimsmeistaramótið eftir að ýta undir mikinn áhuga,“ sagði Halldór Ingólfsson, fyrirliði Hauka. Eyjastúlkum er spáð toppsætinu en fyrir utan Allan Gorkorian eru þrjár nýjar erlendar stúlkur gengn- ar til liðsins. Stefnum leynt og Ijóst á toppinn Unnur Sigmarsdóttir þjálfar ÍBV í vetur og er þetta fyrsta árið henn- ar með liðið. Hún sagði við DV að spáin kæmi sér ekki ýkja mikið á óvart en liðið yrði þó að standa und- ir þeim væntingum sem gerðar væru til þess. „Við mætum til leiks með tölu- vert breytt lið frá því á síðasta tíma- bili en við þurftum að sjá á eftir fjórum leikmönnum úr byrjunarlið- unu frá því vor. Við höfum aftur á móti góðan grunn sem saman stend- ur af leikmönnum með mikla reynslu og svo í bland yngri en jafn- framt efnilegar stúlkur. Við höfum fengið til okkar þrjá nýja erlenda leikmenn og svo að auki Allan Gor- korian frá Gróttu/KR. Þegar öllu er á botninn hvolft erum við kannski ekki með lakara lið en í fyrra en það á eftir að koma í ljós hvað við förum langt á þessum mannskap. Við stefnum þó leynt og ljóst á topp- inn og ég get ekki annað séð en að deildin verði þrælskemmtileg í vet- ur,“ sagði Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari kvennaliðs ÍBV, í spjalli við DV. 1. deild karla hefst með fjórum leikjum á laugardag og leika þá Stjaman-FH, HK-Þór, KA-Selfoss, Valur-ÍR og Víkingur og Aftureld- ing. Á sunnudag lýkur 1. umferð með leikjum Hauka og ÍBV og Gróttu/KR og Fram. 1. deild kvenna hefst á fostudags- kvöldið með leikjum Fram og Hauka og ÍBV og KA/Þórs. Á laug- ardag leika Valur-FH, ÍBV-KA/Þór, Víkingur-Stjarnan og Grótta/KR og Fylkir/ÍR. -JKS Fyrirliðar liðanna í Essó-deildum karla og kvenna en þeir komu saman í Smáralind til að spá fyrir um gengi liðanna f vetur DV-mynd ÞÖK í úrslitaleik KR og Fylkis í Símadeild karla 24 sinnum a toppnum Fylkismenn sitja nú í toppsæti Símadeildar karla í 24. sinn á síðustu þremur árum en Ár- bæingar eiga þó enn eftir að halda sætinu í sfðustu umferð og vinna titilinn. Næstu leikir gegn KR og ÍA ráða öllu um hvort titillinn kemst í fyrsta sinn í Árbæ- inn en það eru einmitt liðin sem hafa orðið meistar- ar síðustu þrjú ár- in. Fylkismenn hafa verið á toppn- um eftir 46% þeirra umferða sem spilaðar hafa verið á nýrri öld en KR-ingar, sem koma þeim næstir með 13 setur í toppsætinu, hafa unnið tvo meistaratitla á þessum tíma og stefna eflaust á að ná toppsætinu af Fylki í þriðja sinn í loka- umferðunum tveimur í ár. Lið á toppnum á nýrri öld, 2000-02 Fylkir ......................24 KR (2 meistarartitlar) ......13 ÍA (1 meistaratitill).........7 Keflavík .....................6 Valur ........................3 Grindavík.....................1 ÍBV...........................1 Fylkismenn hafa verið átta sinnum í efsta sætinu í sumar en KR-ingar hafa verið á toppnum eftir sex umferðir. Suðurnesjaliðin Grindavík og Keflavík eru siðan hin liðin tvö sem setið hafa í toppsæti deildar- innar, Keflvíkingar eftir þriðju umferð og Grindvíkingar eftir 4. umferð. Sumarið 2000 voru Fylkismenn nlu sinnum á toppn- um en urðu síð- an að gefa eftir í I lokin eftir að hafa verið á toppnum frá 8. til 16. umferöar. KR-ingar náðu toppsætinu í 17. umferð og héldu því í lokaumferðinni en urðu samtals á toppnum i sjö umferðir það ár. Sumarið 2001 voru Fylkismenn sjö sinnum á toppnum eða jafnoft og meistarar Skaga- manna ofan af Akranesi. -ÓÓJ Skora mörkin sem telia Það má segja að KR-ingar hafi skorað mörk- in sem hafa skipt máli i sumar því ekkert lið í Símadeild karla hefur skorað fleiri stiga- mörk og eins hefur ekkert lið fengið færri stigamörk á sig. Til að skýra hugtakið stigamark aðeins nánar þá er stigamark mark sem breytir úrslitum leiks. Það er ann- aðhvort sigurmark sem trygg- ir liðinu sigur og þrjú stig eða mark sem tryggir liðinu jafntefli og um leið eitt stig. KR-ingar hafa skorað níu stigamörk í Síma- deildinni í sumar, flmm sinnum hafa KR-ing- ar tryggt sér jafntefli og flórum sinnum hafa þeir skorað sigurmark. Á sama tíma hafa and- stæðingar þeirra aðeins skorað eitt stigamark en það gerði Litháinn Valda Trakys er hann tryggði FH 1-0 sigur í lok maí. Síðan hafa KR- ingar skorað átt stiga- mörk án þess að fá á sig slíkt mark. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur reynst KR-liðinu sérstaklega vel á þessu sviði, hann hefur skorað sex stiga- mörk í sumar, þar af hafa þrjú verið sigur- mörk. Enginn leikmað- ur í deildinni hefur skorað fleiri slík mörk. Það er því aldrei að vita hvort tíunda stiga- markið gæti verið það Sf igamörk 2002 Skoruð - - fengin á sig (nettó) KR 9-1 (+8) KA 8-3 (+5) Fylkir .... 5-2 (+3) FH 5-4 (+1) Fram 5-4 (+1) Þór, Ak. . . 4-4 (0) Keflavík . . . 4-6 (-2) Grindavík . 2-5 (-3) ÍBV 2-8 (-6) ÍA 0-6 (-6) sem færir KR-ingum svo gott sem íslandsmeistaratitilinn í leiknum gegn Fylkis- mönnum en það verður að koma í ljós í Ár- bænum á sunnudaginn. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.